Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2003, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003
Fréttir DV
Dæmd fyrir
þjófnað og
fíknefnabrot
Héraðsdómur Reykja-
víkur dæmdi í gær karl og
konu á þrítugsaldri í tíu og
ellefu mánaða fangelsi fyrir
þjófnað og karlinn fyrir
fíkniefna- og vopnalaga-
brot.
Konan var sek um að
hafa farið í félagi við
fimmtuga konu inn í íbúð í
Breiðholti þar sem hún stal
farsíma, veggmynd, skart-
gripum og veski.
Maðurinn var einnig
dæmdur fyrir tilraun til
þjófnaðar en lögreglumenn
höfðu hendur í hári hans
þegar hann braust inn í bíl
í bílaporti Héraðsdóms
Reykjavíkur.
Fangelsisdómi konunn-
ar er frestað að öllu leyti í
þrjú ár og sjö mánuðum af
10 mánaða dómi manns-
ins. Þremenningarnir hafa
allir komist í kast við lögin
áður.
Svíarvilja
Saddam
Sænska ríkisstjórnin er
fús til að hýsa Saddam
Hussein, fyrrum forseta
fraks. Göran Persson for-
sætisráðherra greindi frá
því í gær að Saddam gæti
afplánað dóm sinn í
sænsku fangelsi.
„Ef Saddam verður
dæmdur af alþjóðlegum
dómstól höfum við sömu
skyldur og aðrar þjóðir,"
sagði Persson.
Svíar hýsa nú þegar
dæmdan stríðsglæpamann,
Biljana Plavsic, sem gegndi
embætti forseta Serbíu.
Plavsic var dæmd í 11 ára
fangelsi.
Atlantsolía
ekki út á land
„Fyrst og fremst er ætl-
unin að koma sér fyrir í
þéttbýlinu fyrir sunnan og
meta svo stöðuna varðandi
landsbyggðina," segir Hugi
Harðarson, talsmaður Atl-
antsolíu. Mikil umræða fer
fram víða á landsbyggðinni
um hvort bjóða eigi fyrir-
tækinu aðstöðu gegn því að
sett verði upp stöð á lands-
byggðinni.
„Bílar okkar hafa flutt
olíu alla leið austur til
Hornafjarðar og vestur á
Snæfellsnes en hvað varðar
uppsetningu á stöð er eng-
inn grundvöllur fyrir slíkt
úti á landi fyrr en rekstrar-
grundvöllur okkar er
tryggður hér."
Meintur kynferðisbrotamaður í gæsluvarðhaldi fram á föstudag. Lögregla telur
brýna nauðsyn til að halda honum í einangrun. Hald var lagt á mörg hundruð
myndbandsspólur og tölvubúnað.
Leitað að klámi á
myndbsndsspálum
frá Patreksfirði
Patreksfjöröur Gæsluvarðhald
yfír meintum kynferðisbrotamanni m
rennur út á föstudag.
„Það ber brýna nauðsyn til að
halda þessum manni áfram í ein-
angrun," segir Jón H. Snorrason,
saksóknari hjá Rfkislögreglustjóra,
um mál Sigurbjöms Sævars Grétars-
sonar sem handtekinn var fyrir
skömmu á Patreksfirði, grunaður
um kynferðisglæpi gegn ungum
drengjum. Nokkrir piltar kærðu Sig-
urbjörn og í kjölfarið var hann hand-
tekinn af lögreglusveit sem send var
ffá Reykjavík vestur á firði.
Hæstiréttur mun í dag taka af-
stöðu til þess hvort Sigurbjörn Sæv-
ar verður áfram í gæsluvarðhaldi
fram á föstudag, líkt og Héraðs-
dómur Reykjavíkur heimilaði í
fyrradag. Þá rann út fyrri gæslu-
varðhaldsúrskurður yfir Sigurbirni
sem Héraðsdómur hafði dæmt
hann í en Hæstiréttur síðan stytt
um nokkra daga. Ríkislögreglustjóri
leggur nú augljóslega allt kapp á að
ljúka rannsókn málsins áður en Sig-
urbirni verður sleppt.
Hald lagt á tölvur og spólur
Óvanalegt er að embætti Ríkis-
lögreglustjóra fari með rannsókn
máls af þessu tagi. Undir venjuleg-
um kringumstæðum kemur það í
hlut lögreglustjóraembættis á þeim
stað þar sem málið kemur upp. Þar
eð Sigurbjörn Sævar hafði starfað
sem svokallaður héraðslögreglu-
maður á Patreksfírði voru fyrrum
starfsfélagar hans í lögregluliðinu
hins vegar taldir vanhæfir til að
sinna rannsókninni og kom því til
kasta Ríkislögreglustjóra.
Eins og sagt hefur frá í fréttum
DV hefur heimildir
fyrirþví að í gær hafi
enn ekkert klámefni
fundist.
hefur rannsóknin verið umfangs-
mikil og meðal annars var sveit níu
lögreglumanna frá nokkrum stöð-
um á landinu nýlega send á Pat-
reksfjörð í leit að sönnunargögnum
í hverju því húsnæði á Patreksfirði
sem Sigurbjörn hafði aðgang að.
Þar á meðal var öllu snúið við á
heimili hans. Hald var lagt á tölvur
og mikið magn af myndbandsspól-
um. í gæsluvarðhaldsúrskurði, sem
kveðinn var upp yfir Sigurbirni, var
byggt á lagagreinum bæði um sam-
ræði og önnur kynferðismök með
börnum, sem og á ákvæðum um
barnaklám.
Fyrir liggur framburður piltanna
sem borið hafa Sigurbjörn þungum
sökum. Þeir hafa verið í yfirheyrsl-
um í Barnahúsi. Eftir hina miklu
rassíu á Patreksfirði var jafnvei talið
að ekki yrði farið fram á að gæslu-
varðhaidsúrskurðurinn yfir Sigur-
birni yrði framlengdur, en sam-
kvæmt lögum um slíka frelsissvipt-
ingu skal halda mönnum í gæslu-
varðhaldi ef ætla má að sakborning-
ur muni „torvelda rannsókn máls-
ins, svo sem með því að afmá merki
eftir brot, skjóta undan munum eða
hafa áhrif á vitni eða samseka", eins
og það er orðað í lögunum um með-
ferð opinberra mála.
Ekkert fundist enn á spólum
Þeir sem þekkja til rannsóknar
sakamála töldu kröfu um framleng-
ingu gæsluvarðhalds merki um ann-
að tveggja; að málið væri talið mjög
alvarlegt eða þvert á móti, að lögregl-
unni gengi illa að finna sönnunar-
gögn gegn Sigurbimi og teldi sig
þurfa til þess meiri tíma.
DV hefur heimildir fyrir því að í
gær haft enn ekkert klámefni fundist
á þeim mörg hundruð myndbands-
spólum sem hald var lagt á á heimili
Sigurbjörns. Ekkert hafði því fundist
sem benti til sektar Sigurbjöms, hvað
snerti ásakanir um vörslu hans á
barnaklámi, en miklu verki var þá
ólokið við að fara yfir spóiur og rann-
saka tölvubúnað.
Þrátt fyrir að barnaklám hafi enn
ekki fundist tóku heimildir DV innan
lögreglunnar í sama streng og Jón H.
Snorrason, að gæsluvarðhald væri
nauðsynlegt. Ekki væri sjálfgefið að
afbrotamenn geymdu sönnunargögn
á myndbandsspólum heima hjá sér.
Saddam á Litla-Hraun
Svíar hafa nú sett fram þá fárán-
legu kröfu að þeir fái að vista mið-
aldra kolskeggjaða mann á sextugs-
aldri sem grunaður er um meinta
stríðsglæpi og að hafa myrt hund-
ruð þúsunda borgara á meðan hann
var við völd. Maðurinn sem um
ræðir var þekktur einræðisherra og
fannst í holu. í erlendum fjölmiðl-
um voru víst birtar af honum mynd-
ir en slíkt þykir stundum ósæmilegt
hér á landi.
Hvað um það! Svarthöfði lýsir
frati á slíka útúrsnúninga og nefnir
manninn bara nafninu sem honum
var gefið: Saddam Hussein. Já, og
sænsk yfirvöld hafa nú boðist til að
vista kauða. I sömu viku og Norð-
menn stela af okkur hræi Keikós og
urða það í ónefndum firði. Svart-
höfði þolir hreinlega ekki meir.
Halldór Ásgrímsson og Norðurlönd
eins og þau leggja sig verða að
ganga í málið. Annað hvort grafa
Norðmenn Keikó upp eða við fáum
Saddam á Litla-Hraun.
Og þetta er ekkert ósanngjörn
krafa. Við erum vestrænt menning-
arríki og höfðum þó manndóm f
okkur til að taka þátt í morðum á
körlum, konum og börnum í frak og
eigum því skilið eitthvað fyrir okkar
snúð. Áuðvitað dýrt að halda uppi
Saddam á Hrauninu en landkynn-
ingargildið yrði ómetanlegt.
Saddam er miklu frægari en Björk
og myndi trekkja eins og ég veit ekki
hvað. Það yrðu hér straumar af fólki
frá Japan, Kína, Bandaríkjunum og
jafnvel Afríku. Allir vilja sjá mann-
helvítið, sjálfan djöfulinn. Iceland-
air og Iceland Express gætu verið
með helgartilboð. Fljúgðu til ís-
lands, pikkaðu upp lausláta gellu og
tefldu svo við sjálfan Saddam
Hussein á Hrauninu á sunnudegin-
um.
Svarthöfði