Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2003, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003
Fréttir DV
Rúmeninn
losnar í dag
Gæsluvarðhald yflr rúm-
enskum karlmanni, sem
grunaður er
um misferli
með vegabréfs-
áritanir, rennur
út í dag. Mað-
urinn var
handtekinn á Keflavíkur-
flugvelli sfðastliðinn laug-
ardag þegar hann var á leið
úr landi. Hann var með
töluvert magn falsaðra
vegabréfa í fórum sínum og
einnig fundust fölsuð flugá-
hafnarskírteini á honum.
DV hefur heimildir fyrir
því að málið sé litið mjög
alvarlegum augum og bein-
ist rannsóknin meðal ann-
ars að því að kanna við
hverja hann hafði sam-
skipti hér á landi. Líkur eru
taldar á því að maðurinn sé
svokallaður „visa shopper"
en í því felst að hann safni
vegabréfsáritunum ólög-
lega fyrir fólk sem ekki á
rétt á að komast inn á
Schengen-svæðið.
Byssur
ófundnar
Lögreglan leitar enn að
pilti undir tvítugu og
tveimurbyss- -
um sem hann
er grunaður
um að hafa
undir hönd-
um. Sam-
kvæmt upplýsingum frá
lögreglunni í Keflavík eru
önnur lögregluembætti að
„skimast um“ eftir piltin-
um, en ekki er vitað hvar
hann er á landinu. Þremur
haglabyssum og þremur
rifflum var stolið í innbroti
í Keflavík í þarsíðustu viku,
en búið er að finna ailar
nema eina haglabyssu og
einn riffil. Tvær af hagla-
byssunum voru notaðar í
vopnuðu ráni í Bónus í
Kópavogi í síðustu viku.
A að þrífa alla
skápa fyrir
jólin?
Jóna Dóra Karlsdóttir forseti
bæjarstjórnar Hafnarfirði
Ég tek alla skápa í gegn hjá
mér í nóvember. Þaö þarf
hvort eð er að þrífa þá og mér
finnst ágætt að gera það á
þessum árstima. Sjálfer ég
alin upp við það og mér finnst
það góðursiður.
Hann segir / Hún segir
Það er erfitt fyrir mig að segja
að það þurfi að gera það því
ég er svo latur við það sjálfur.
En þessu er sinnt afmiklum
dugnaði á mínu heimili.
Sjálfursýni ég skammariega
linkind og ódugnað þegar að
þessu verki kemur. Ég hefheyrt
að það þurfi hvort eð er að
gera þetta einhvern tíma og
því ekki fyrir jólin eins og á
öðrum tímum ?
Umræða um mansal gerist æ ágengari og það er jafhvel talað um að konur séu seld-
ar manna á milli á íslandi. Margar eru ásakanirnar en færri dómarnir. Lögreglan
er meðvituð um vandann og hjá Útlendingastofnun er fylgst vel með þróun mála.
Frétt DV í gær um meinta sölu á sambýlis-
konu Sævars Sigurðssonar skipstjóra hefur vak-
ið mikla athygli. Hann heldur því fram að hún
hafl verið seld til Ólafsvíkur og hefur skrifað Út-
lendingastofnun bréf þess efnis auk þess sem
hann hefur kært þjófnað til lögreglunnar. En
konan og hinn meinti kaupandi
eiga að hafa stolið DVD-spil
ara, eldhúsaáhöldum, GSM-
síma og fleiru af heimili
Sævars. Hann gengur
enn með hring með
áletrun konunnar inn-
an í og saknar hennar
mjög.
Útlendingastofnun
meðvituð
Georg Kr. Lárus-
son, forstjóri Útlend-
ingastofnunar, segir að
mansal komi aðeins til
þeirra eftir athugun
lögreglu og
að þeir séu í samstarfi við lögregluna: „Auðvit-
að höfum við orðið vör mansai á íslandi og
vissulega eru til dæmi um að konur gangi kaup-
um og sölum. Það er greinilega vaxandi til-
hneiging að ísiand komi við sögu í mansals-
málum," segir Georg.
Hann segist ekki geta staðfest að taíienskar
konur séu viðriðnar mansalsmál á sam-
löndum sínum hér á landi. „Við heyrum
margar svona sögur en getum ekki
staðfest þær,“ segir Georg.
Svartur blettur
„Auðvitað er leiðinlegt að
þurfa að fjaila um þennan iitla
hóp sem setur svartan blett á
hundruð kvenna sem eru af taí-
lensku bergi brotnar en vanda-
málið hverfur ekki við að sópa
því undir borð,“ segir Þráinn
Stefánsson símvirki en hann var
Georg Kr. Lárusson Auövitod höf
um við urðið vör mansal ö fslandi og
vissuleqa séu til dæmi um að konur
qangi koufuim oq sölum.
Þráinn Stefánsson „Auðvitað er leiðiniegt að þurfa að fjalla
um þennan svarta hóp sem setur blett á hundruð kvenna sem
eru aftailensku bergi brotnar en vandamálið hverfur ekki við
að sópa þvi undir borð."
giftur taílenskri konu til fjölda ára. Þráinn seg-
ist þekkja til svona mála þótt hann hafi engar
haldbærar sannanir ,í höndunum. En hann
bendir einnig á að um lítinn hóp sé að ræða og
oft á tíðum tengist sá hópur fjárhættuspilum
líkt og þeim sem voru í gangi á Landspítalanum
í haust. Þá komst hnífabardagi í fréttirnar en
þar hafði eldhússtarfsfólk af erlendu þjóðar-
broti komið upp veðpott sem oili deilum sem
enduðu í hnífabardaga.
Gæti tengst spilafíkn
Annar maður sem DV hafði samband við er
giftur taílenskri konu. Hún er, ólíkt konu
Þráins, spilafíkill. Sá maður vildi ekki
koma fram undir nafni vegna bama
sinna en staðfesti að á Jslandi væru
reknir spilaklúbbar taflenskra
kvenna þar sem spiluð er taflensk
útgáfa af rommí og háar fjárhæð-
ir laggðar undir.
Bæði Þráinn og maðurinn
sem um ræðir staðfestu að
eins og í öllum fjárhættuspil-
um gæti fólk farið að skulda
háar upphæðir sem erfitt er
að greiða til baka. Það er þá
sem hlutirnir fara úr
böndunum.
Mansal á íslandi
staopeynd
Tugir milljóna króna settir í þætti
um Kárahnjúka
Áróðursþættir Lands-
virkjunar sýndir á RÚV
Sjónvarpið sýndi í gærkvöldi
fyrsta þáttinn af átta alls um gerð
Kárahnjúkavirkjunar. Ætlunin er
með þáttunum að kynna lands-
mönnum framkvæmdirnar með
sérstaka áherslu á mannlífið á
svæðinu.
J sjónvarpsdagskrám var tekið
fram að dagskrárgerð væri í hönd-
um Steingríms Karlssonar og þætt-
irnir framleiddir af Sagafilm. Hvergi
kemur hins vegar fram að fram-
leiðslan sé að tilstuðlan Landsvirkj-
unar.
Þorsteinn Hiimarsson, upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, segir
að í Jok þáttanna komi skýrt fram
að Landsvirkjun standi að baki
þáttunum og segir einfaldlega um
mistök að ræða. „Það var aldrei ætl-
unin að fela það en Sjónvarpið
kaupir efnið af Sagafilm og verið
getur að þar hafl eitthvað farið úr-
skeiðis."
Bjarni Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Sjónvarpsins, viður-
kenndi að um mistök væri að ræða
en þau hefðu verið leiðrétt um leið
og upp komst. „Það var ekki ætlun-
in að leika tveimur skjöldum varð-
andi þessa þætti. Þeir eru fram-
leiddir af Sagafilm fyrir Landsvirkj-
un og við höfðum það til hliðsjónar
þegar ákveðið var að kaupa þá. Mat
okkar var það að sýning þáttanna
væri þjónusta við áhorfendur okkar
enda er þetta stærsta framkvæmd
íslandssögunnar. “
Þáttagerðin var upphaflega boð-
in út af Landsvirkjun í febrúar síð-
astliðnum. Ætlunin er að framleiða
og sýna tvo þætti á hverju ári með-
an á framkvæmdunum stendur.
Allir verða þeir sýndir í Sjónvarpinu
en Bjarni vildi taka fram að enginn
þáttur færi í loftið án samþykkis
stjórnenda Sjónvarpsins.
albert@dv.is