Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2003, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003
Fréttir DV
Hélt að Nicole
væri Kate
Karl Bretaprins ruglaðist
heldur betur í ríminu þegar
hann heilsaði áströlsku
þokkagyðjunni Nicole Kid-
man á frumsýningu Cold
Mountain í London í íyrra-
dag. Nicole kom til frum-
sýningarinnar ásamt mót-
leikara sínum, Jude Law, og
var nærvera prinsins einn
af hápunktum frumsýning-
arinnar. Það vantaði ekki
að prinsinn heilsaði Nicole
með virktum; vandinn var
bara sá að hann kallaði
hana Kate. Taldi Karl prins
að þarna væri á ferðinni
Kate Winslet. „Lékst þú
ekki í Enigma?" spurði
prinsinn. Nicole svaraði því
til að hún hefði leikið í
Moulin Rouge. „Þú hefur
þá unnið við ýmislegt sfðan
þá,“ sagði Karl prins þá og
virtist engu nær.
Frumsýningu myndar-
innar var vel fagnað og var
Karl prins meðal áhorf-
enda.
Valgeir
Guðjónsson
Valgeir er hugljúfur og góður
drengur með snilligáfu í meló-
díum. Hann er vandvirkur og
hógvær í kynningum á eigin
afurðum. Valgeir hefur óvenju
mikla eðlisgreind sem hefur
fleytt honum langt í lífinu.
Kostir & Gallar
Valgeir mælti huga að endur-
nýjun. Þegar hann kemur fram
fyrir alþjóð með margra ára
millibili hættir honum til
kæruleysis; hefur sama
brandarann á vörum í hverju
viðtalinu aföðru. I samskipt-
um við fólk skortir Valgeir dug
til að standa fastar á eigin
sannfæringu.
Formaður útvarpsráðs gagnrýnir harðlega þau ummæli ritstjóra Spegilsins að
útvarpsstjóri og fleiri séu í rógsherferð gegn Speglinum. Ritstjórinn segist engu
vilja svara að svo stöddu.
Segir Spegilsritstjóra
neðan við allar hellur
„Slík framganga starfsmanns í fjölmiðlum er
fyrir neðan allar hellur," segir í bókun formanns
útvarpsráðs um viðtal ritstjóra Spegilsins við
Fréttablaðið.
í viðtalinu við Fréttablaðið er haft eftir Frið-
riki Páli Jónssyni, ritstjóra Spegilsins, að Boga
Ágústssyni, forstöðumanni fréttasviðs Ríkisút-
varpsins, sé með skipulagsbreytingum ætlað að
vera „með puttana" í vinnu starfsmanna Spegils-
ins. Einnig að í gangi sé rógsherferð Markúsar
Arnar Antonssonar útvarpsstjóra, Björns Bjarna-
sonar dómsmálaráðherra og Gunnlaugs Sævars
Gunnlaugssonar, formanns útvarpsráðs, gegn
Speglinum.
Formaður hneykslaður
Páll Magnússon, varaþingmaður og fulltrúi
Framsóknarflokksins í útvarpsráði, benti á fundi
útvarpsráðs í gær á viðtalið við Friðrik Pál sem
birtist í Fréttablaðinu 27. nóvember.
Bogi Ágústsson sagðist á fundi útvarpsráðsins
Friðrik Páll Jónsson Rit-
stjóri Spegilsins.
hafa rætt við Friðrik
Pál. Sinn skilningur
hafi engan veginn ver-
ið sá sem greinir hér að
ofan.
Að loknum umræð-
um lét Gunnlaugur
Sævar Gunnlaugsson,
fulltrúi Sjálfstæðis-
flokks í útvarpsráði,
bóka ofangreinda at-
hugasemd um að hann
teldi framgöngu Frið-
riks Páls í viðtalinu týr-
ir neðan allar hellur.
Páll Magnússon Fulltrúi
Framsóknarflokks benti á
ummæli ritstjóra Spegilsins i
blaðaviðtali.
Siv Friðleifsdóttir „Ekki
verður unað við vinnubrögð
afþessu tagi."
„... til að leggja hart að henni að fara í viðtal
í hljóðver Ríkisútvarpsins."
Reynir Tómas Geirsson Yf-
irlæknir á kvennadeild Land-
spitala - háskólasjúkrahúss.
Útvarpsmaður leyfir sér að hringja
Á útvarpsráðsfundinum í gær voru auk þessa
lögð fram tvö bréf sem bæði snertu efnistök
Spegilsins.
Fyrra bréfið var frá Reyni Tómasi Geirssyni
yfirlækni sem lýsti óánægju með efnistök í viðtali
við einn undirmanna sinna. Dagskrárgerðar-
maður hafi „leyft sér að hringja" í lækni á frívakt
„til að leggja hart að henni að fara í viðtal í hljóð-
ver Ríkisútvarpsins." Umræðuefnið var snemm-
skimun í þungun.
Útvarpsstjóri sagði í svari til Reynis að verk-
lagsreglur yrðu endurskoðar, meðal annars
vegna athugasemda yfirlæknisins.
Áður hafði dagskrárstjóri Rásar 2, Jóhann
Hauksson, lýst þeirri niðurstöðu í minnisblaði til
Markúsar Arnar að starfsreglur hefðu ekki verið
brotnar í umræddum dagskrárlið.
Umhverfisráðherra vísað á bug
Seinna bréfið var frá Siv Friðleifsdóttur
umhverfisráðherra sem taldi sjónarmið ís-
lenskra stjórnvalda ekki hafa komið fram í
tengslum við frásögn Spegilsins af umræðu á
fundi fastanefndar Bernarsamningsins um
áhrif Kárahnjúkavirkjunar á fslenskt fuglalíf.
Siv sagði að gera yrði þær kröfur að reynt væri
að gæta lágmarks jafnvægis í umfjöllun og ekki
fjalla um mál með jafn einhliða hætti og dag-
skrárgerðarmaður Spegilsins hefði „orðið uppvís
að“, eins og ráðherrann orðar það. Rætt var við
fulltrúa ríkisins í Speglinum daginn eftir. í svari
sínu vísaði ritstjóri Spegilsins á bug ásökun um-
hverfisráðherra um að lýsing Spegilsins á áður-
greindum fundi hefði „ekki verið í neinu sam-
ræmi við veruleikann."
Skipulagsbreytingin, sem áður er vikið að, var
sú að Spegillinn var færður frá innlendri dag-
skrárdeild og undir fréttastofu útvarps og þar
með undir Boga Ágústsson, forstöðumann
fréttasviðs. Engar breytingar munu hins vegar
hafa orðið á starfsemi og efnistökum Spegilsins
við þetta.
Friðrik Páll Jónsson, ritstjóri Spegilsins, sagð-
ist ekki vilja tjá sig um bókun formanns útvarps-
ráðs að svo stöddu.
gar@dv.is
Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson For-
maður útvarpsráðs.
Tilvalin gýöf handa afa og öntntu!
Amma, hvernig var
fyrsta stefnumótiö þitt?
Afi, langaði þig alltaf aö
eignast barn?
Hvernig var tískan
þegar þú varst
unglingur?
Þegar afi og amma hafa svarað
spurningunum í bókinni þá
gefa þau hana til baka við gott
tækifæri. Þannig breyta þau
bókinni í sína eigin ævisögu, miðla af
reynslu sinni og ljóstra upp leyndar-
málum. Afi og amma - milli mín og þín
er ævintýralegt og uppbyggjandi
veganesti fyrir yngri kynslóðir.
Tæpur þriðjungur Finna býr við örorku samkvæmt
rannsókn innan ESB
Einn af hverjum
sex er öryrki
Einn af hverjum sex einstakling-
um innan Evrópusambandsins er
öryrki. Þetta kemur fram í nýrri
rannsókn sem sambandið lét gera
nýlega og tók bæði til ríkja innan
sambandsins og átta annarra þjóða
sem sótl hafa um inngöngu.
í þeim 25 ríkjum samanlagt sem
rannsóknin náði til voru 45 milljón-
ir manna sein þjáðust annaðhvort af
langvarandi veikindum eða höfðu
misst getu að einhverju marki.
Mikill munur var á milli land-
anna. Langhæsta hlutfall öryrkja var
í Finnlandi. Þar eru heil 32,2% ör-
yrkjar. Bretar koma næstir en þar er
hlutfallið rúm 27%. Á Ítalíu, Spáni og
í Slóvaldu er hlutfall öryrkja hvað
lægst eða í kringum 8%. Kynjamun-
ur var lítill en áberandi var hve til-
fellum fjölgaði mjög í öllum löndum
með hækkandi aldri.
Flestir öryrkjar í Finnlandi /löndum
Evrópu búa 45 milljónir manna við örorku
afeinhverju tagi.