Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2003, Page 9
UV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003 9
Dímon segir
öllum upp
Dímon hugbúnaðarhús
hefur sagt upp öllum
starfsmönnum sínum, um
20 manns. Forsvarsmenn
fyrirtækisins róa nú öllum
árum að því að koma fót-
um undir reksturinn, að því
er kemur fram í tímaritinu
Tölvuheimi. Ástæða
bakslagsins er að samning-
ar um verkefni fyrir far-
símafyrirtækið Nokia gengu
ekki eftir vegna þess að
Nokia keypti upp annað
hugbúnaðarfyrirtæki sem
það vildi nýta í fyrirhugað
verkefni. Haft er eftir inn-
anbúðarmanni í Dímoni að
vandræði íyrirtækisins stafi
af því að það hafi sett öll
eggin í eina körfu.
Dró sér
milljón
Fertug kona hefur verið
dæmd í þriggja mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyr-
ir fjárdrátt í Bóksölu stúd-
enta. Konan, sem var
starfsmaður bókabúðarinn-
ar, dró sér fé á tímabilinu
júní 1997 og fram í ágúst
2000. Konan varð uppvís að
fjárdrætti í fimmtíu skipti
og alls nam fjárdrátturinn
947 þúsund krónum. Kon-
an játaði brot sín. Hún er
dæmd til að greiða Bóksöl-
unni 1.275 þúsund krónur
auk málskostnaðar.
Evrópu-
met í afla
Aldrei áður hefur jafn
mikill afli komið á land í
Fjarðabyggð eins og á árinu
sem er að líða. Vegna þessa
tilefnis bjóða hafnaryfir-
völd á hverjum stað fyrir sig
til veislu á föstudaginn
kemur enda rekstur þeirra
gengið framar vonum á ár-
inu. Þykir því tilhlýðilegt að
bjóða gestum og gangandi
upp á kaffi og tertur. Til
stendur einnig að senda
stærstu sjávarútvegsfyrir-
tækjunum væna tertu af
sama tilefni.
Ásbjörn Björgvinsson, forstöðumaður Hvalamiðstöðvarinnar á Húsavík, óskaði
eftir því að fá hræið af háhyrningnum Keikó sent til íslands. Norsk yfirvöld leyfðu
ekki flutninginn og Keikó var grafinn í norska jörð í skjóli nætur. Ásbjörn vill
aðstoð íslenskra stjórnvalda til að fá leifar háhyrningsins til Húsavíkur
„Ég setti mig strax í samband við umsjónar-
menn Keikós og óskaði eftir því að hann yrði
settur í frystigám," segirÁsbjörn Björgvinsson,
forstöðumaður Hvalamiðstöðvarinnar á Húsa-
vik, sem fékk synjun norskra yfirvalda við því
að hræ frægasta háhyrnings heims yrði flutt
aftur til íslands.
Keikó var grafinn í skjóli nætur í fjörukamb-
inum í Taknesbukta í Noregi að viðstöddum
nokkrum aðstandendum og skurðgröfumanni.
Ásbjörn segir sorglegt að búkur Keikós verði
látinn rotna. „Það eru þekkt dæmi fyrir því að
stoppa upp heilu hvalina, til dæmis á Náttúru-
fræðisafni Danmerkur. Auk þess höfum við
frystiklefa í Hvalasafninu þar sem við hefðum
getað geymt hann í versta falli og sýnt hann
gestum safnsins í fullri mynd. En það er búið
að eyðileggja þann möguleika. Nú mun ég
leggja á það þunga áherslu að íslensk stjórn-
völd liðsinni okkur í því að fá leifar Keikós aft-
ur til íslands, enda er eðlilegt að hann komi til
baka,“ segirÁsbjörn,.
Hvalamiðstöðin á Húsavík hefur undanfar-
in tvö ár haldið sérstaka sýningu til heiðurs
Keikó. Honum hefur verið helgað heilt her-
bergi á safninu, og er meðal annars til sýnis
beinagrind háhyrnings af sömu stærð og
Keikó. Ásbjörn vill fá réttu beinagrindina.
„Beinagrindin er eitt og hálft ár eða meira að
hreinsast. Það skiptir máli hversu hratt marfló-
in étur utan af hræinu. Gröfin laðar án efa að
sér marga ferðamenn og Norðmenn eru með
hann. En mér finnst rétt að Keikó endi sinn fer-
il hér.“
Þó svo að hræ hvala rotni að öllu jöfnu er
líklegt að einn líkamshluti Keikós geti sloppið
óskaddaður frá gröfmni. „Að öilu jöfnu rotna
svona dýr og hveljan, húð hvalsins, verður að
drullu. Eini líkamshlutinn sem er ekki úr hvelju
er reðurinn og það gæti verið spennandi að
reyna að fá hann til landsins. Það er líklegt að
hann þorni og varðveitist og ég myndi vilja
hafa hann á landinu, hugsaniega á Reðursafn-
inu fyrir sunnan," segir Asbjörn.
Einar Sveinbjörnsson, aðstoðarmaður um-
hverfisráðherra, vísaði á sjávarútvegsráðu-
neytið vegna málsins, vegna þess að ekki væri
um að ræða lifandi dýr. Stefán Ásmundsson,
þjóðréttarfræðingur hjá sjávarútvegsráðuneyt-
inu, segir ekkert banna þennan flutning.
„Norsk stjórnvöld þyrftu að gefa út útflutnings-
vottorð, líkt og vegna allra háhyrningaafurða.
Þetta er svolítið sérstakt mál og þetta yrði skoð-
að sérstaklega ef það kæmi upp á borð hjá okk-
ur.“
„Norðmenn eru með hann og
gröfin laðar að sér marga
ferðamenn. En mér finnst rétt
að Keikó endisinn ferilhér."
Haldin verður sérstök uppákoma í Hvala-
miðstöðinni á Húsavík til minningar um Keikó
á föstudaginn klukkan fjögur, viku eftir að
hann lést. Þar verður til sýnis uppblásið módel
af Keikó og myndin Free Willy verður sýnd.
jontrausti@dv.is
Ásbjörn Björgvinsson Forstöðumað-
ur Hvalamiðstöðvarinnar á Húsavik
gagnrýnir norsk yfirvöld fyrir að synja
um flutning Keikó til Islands.
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★*
TÍIboð 1. Rafmagnsgítartilboð. KtB^lsTTTffTjffCTIIIMEllllBIDtkB Tilboð 2. Kassagitar.
Rafmagnsgítar, magnari, ól og
***
★
★
★
★
★
★
★
snura.
Tilboðsverð
27.900,-
stgr.
★★★★★★★
Tilboðsverð 15.900,- stgr.
Gftarinn ehf.
Stórhöfða 27
sími 552-2125 og 895 9376
www.gitarinn.is • gitarinn@gitarinn.is
★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★
★★★
********