Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2003, Side 16
7 6 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003
Fréttir DV
Hjúkrunarfræöingurinn Charles Cullen gerðist að eigin sögn raðmorðingi til að
losa sjúklinga undan þjáningu. Hann játar á sig tugi manndrápa en er ákærður
fyrir morð og manndrápstilraun. Hann gengur laus gegn milljón dollara tryggingu.
Lögreglan
komstífeitt
íbúi í Adelaide í Ástralíu
var heldur seinheppinn
þegar hann hringdi í lög-
reglu og sagði fjóra menn
hafa brotist inn í íbúð sína
og stolið kannabisplöntum.
Lögregla kom þegar í stað á
vettvang og hafði hendur í
hári þjófanna. Maðurinn
varð harla glaður yfir
snerpu lögreglunnar en sú
gleði varði stutt því hann
var sjálfur handtekinn -
fyrir ræktun ólöglegra
plantna. „Maðurinn lá í
hnipri undir rúmi þegar við
komum á staðinn," sagði
talmaður lögreglunnar. „Ég
veit ekki hvað hann var að
hugsa. Kannski hefur hann
reykt of mikið af eigin
framleiðslu."
Stoltardætur
Saddams
Dætur Saddams
Husseins vilja að faðir sinn
verði leiddur fyrir alþjóð-
legan dómstól. „Fram-
kvæmdastjórnin í Irak á
ekki að annast réttarhöldin.
Við viljum sanngjörn rétt-
arhöld," sagði Raghad,
dóttir Saddams, tregafullri
röddu í gær. Hún sagði fjöl-
skylduna myndu ráða lög-
fræðing til að annast vörn-
ina.
Raghad sagðist jafn-
framt fullviss að faðir sinn
hefði verið dópaður þegar
hann var handtekinn. „Ljón
hættir ekki að vera ljón þótt
það sé handsamað. Þeir
hefðu aldrei getað tekið
hann ef hann hefði ekki
verið undir áhrifum lyfja.
Við erum stoltar af föður
okkar," sagði Raghad og
vísaði til systur sinnar,
Rönu. Saddam Hussein lét
drepa eiginmenn þeirra
systra árið 1996 fyrir að
veita Vesturlöndum upp-
lýsingar um vopnaeign
sína. Systurnar eru búsettar
í Jórdaníu.
Hjúkrunarfræðingurinn Charles Cullen hefur
verið ákærður fyrir að myrða sjúkling og gera til-
raun til að myrða annan þegar hann starfaði á
Somerset-sjúkrahúsinu í New Jersey í Bandaríkj-
unum. Talið er að Cullen hafi myrt sjúklinginn
með því að gefa honum röng lyf.
Réttarhöld í málinu hófust f gær og komu yfir-
lýsingar hjúkrunarfræðingsins í réttarsal mörgum
í opna skjöldu. Þegar dómari spurði Cullen hvort
hann væri sekur um að hafa myrt sjúklinginn
sagðist Cullen vissulega bera ábyrgð á dauða hans.
Hann sagði það ekld alla söguna því hann hefði
komið að minnsta kosti fjörutíu sjúklingum fyrir
kattarnef. Tilgangur manndrápanna var að sögn
Cullens að losa fólk undan verkjum og þjáningu.
„Ég vil ekki verjanda og vil ekki verjast
ákærunni. Ég er sekur," sagði Cullen fyrir dómn-
um í gær. Cullen, sem gengur laus gegn milljón
dala tryggingu, gæti átt dauðarefsingu yfir höfði
sér.
Þekkt fyrirbæri
Manndrápin fjörutíu höfðu raunar komið
upp f yfirheyrslum lögreglu yfir Cullen síðustu
daga og vikur. Hleypt hefur verið af stokkunum
umfangsmikilli rannsókn á öllum sjúkrastofnun-
um þar sem Cullen starfaði síðan hann lauk
námi fyrir 16 árum. Rannsóknin teygir anga sína
til níu sjúkrahúsa í New Jersey og Pennsylvaníu.
Rannsaka þarf sjúkraskýrslur nokkur hundruð
sjúklinga sem hafa látist á þeim deildum þar sem
Cullen starfaði.
Saksóknari sagði í gær að engin leið væri að
meta hvort játning Cullens væri sönn eða hvort
hann færi rétt með tölu látinna. Málið væri
skelfilegt. Raðmorðingjar í heilbrigðisstétt eru
langt í frá óþekkt fyrirbæri. Nýjasta málið af
þessum toga var mál Donalds Harvey, aðstoðar-
hjúkrunarmanns, sem viðurkenndi að hafa myrt
37 sjúklinga með því að gefa þeim arsenik á
„Ég vil ekki verjanda og vil
ekki verjast ákærunni. Ég er
sekur/'sagði Cullen fyrir
dómnum í gær. Cullen, sem
gengur laus gegn milljón dala
tryggingu, gæti átt dauðarefs-
ingu yfir höfði sér.
.............
I
sjúkrahúsum í Ohio og Kentucky.
Þrátt fyrir játningu Cullens verður
aðeins réttað vegna tveggja ákæru
atriða nú. Cullen er annars veg-
ar gefið að sök að hafa gefið
kaþólskum presti á sjö
tugsaldri ofurskammt
af hjartalyfjum með
þeim afleiðingum
að hann lést. Hinn
ákæruliðurinn
varðar fertuga
konu sem lá á
Somerset-
sjúkrahúsinu
vegna hjartveiki
og krabba-
meins. Cullen er
talinn hafa gefið
henni of stóran
skammt lyfja en
læknar áttuðu sig
á málinu í tæka tíð
og björguðu lífi
hennar.
Góður granni
Cullen var
handtekinn á veit- |
ingahúsi í New Jers-
ey sfðastliðinn föstu-
dag. Cullen viður-
kenndi strax við yfir-
heyrslur að vera valdur
að dauða prestsins.
Hann sagðist hafa reynt
að drepa konuna en það
hefði mistekist. Síðar í yf-
irheyrslunni greindi Cul-
len svo lögreglu frá því að
dauði prestsins væri langt
frá einsdæmi; hann hefði
gert það sama að minnsta kosti
fjörutíu sinnum.
Nágrannar Cullens urðu mjög hissa þeg-
ar þeir heyrðu af málinu. Þeir segja Cullen
vera dagfarsprúðan nágranna sem tali við
fáa. Einn nágranninn sagðist hafa talað
við Cullen nýverið og ekki orðið var við
að neitt bjátaði á. „Við mokuðum
saman snjó. Hann var vingjarn-
legur og virtist mest fyrir að
vera út af fyrir sig.“
Charles Cullen
Kveðst sekur og vill
ekki láta verja sig.
Hvernig eiga stjörnu-
merkin samau?
Hvernig er best að hðndla skapsmuni sporðdrekans?
Eða klofinn persónuleika tvíburans? Eða ráðríki Ijónsins?
Spáðu í mig byggir á fornri speki ásamt djúpu innsæi og er
ómissandi veganesti í ferðalagi okkar um
hjarta þeirra sem viðelskum.
°Z sporðflfeiti saman?
Skemmtilegar og uppbyggjandi
pælingar sem auka víðsýni
og skerpa ástriðurnar...
Spáðuí
imig
salkaforlag.fs
Enn ein smygltilraunin innvortis
Fundu 250 grömm af kókaíni
Tveimur mönnum var í gær
sleppt úr haldi lögreglunnar á Kefla-
víkurflugvelli eftir að um 150 grömm
af kókaíni fundust innvortis í
öðrum þeirra. Mennirnir, íslending-
ur og Pólverji, voru handteknir á
sunnudagskvöld við komuna frá
Kaupmannahöfn. Eftir því sem DV
kemst næst fundust fíkniefnin á ís-
lendingnum.
Tæplega tvítugur maður situr í
gæsluvarðhaldi en hann var einnig
handtekinn í Leifsstöð á sunnudags-
kvöld. Um 100 grömm af kókaíni
fundust á honum. Maðurinn faldi
efnin innvortis. Hann hefur verið
ósamvinnufús og neitað að fara í
röntgenmyndatöku. Gæsluvarðhald
yfir honum rennur út á hádegi í dag.
Grammið af kókaíni kostar um 11
þúsund krónur og því gætu verð-
mæti efnsins numið um fimm millj-
ónum væri það selt á götunni. Það
fer eftir hreinleika kókaínsins en
gera má ráð fyrir að hægt sé að
drýgja efnið um helming.
Fyrir utan þremenningana sem að
ofan er getið voru tveir aðrir teknir í
flugstöðinni á sunnudag. Þar vom á
ferð tveir ungir menn sem höfðu
komið um 200 grömmum af hassi íyr-
ir í endaþarmi. Það mál telst upplýst.