Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2003, Page 17
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003 7 7
Margir háttsettir menn frá Hells Angels í Evrópu hafa komið hingað til lands. Samtökin leggja mikla
áherslu á ímynd sína gagnvart almenningi. Hamar er uppáhaldsvopn Vítisengla.
SKAMMSTAFANIR
Þessar skammstafanir sjást oft á
merkjum, húðflúri og öðrum stöðum
hjá HA
1% Viðkomandi er útlagi
13 Merki um að viðkomandi noti
Hells Angels hafa áhuga á ís-
lenska fíkniefhamarkaðnum þar
sem þeir geta þar fengið mikla
ávöxtun á verslun með fikniefni.
„Þótt fíkniefnamarkaðurinn hér sé
lítill, þá er hann hlutfallslega dýrari
en í nágrannalöndunum og hefur
hingað til verið mjög óskipulagður.
Þarna sjá HA eflaust fyrir sér mark-
aðstækifæri," segir í grein í Lög-
reglumanninum, tímariti Lands-
sambands lögreglumanna.
Heimildarmenn DV nefna dæmi
af því að burðardýr, sem komið hafi
hingað til lands með kíló af hassi,
hafi nokkru áður verið að flytja heilu
tonnin af hassi í vörubíl í Þýska-
landi. Hingað er hægt að flytja til-
tölulega lítið magn af fíkniefnum
með miklum ágóða. Það sé hægt
með hassið sem gengur kaupum og
sölum á fslandi á allt að 3.500 krón-
ur fyrir grammið en á „hvítu efn-
unum“ svokölluðu sé hægt að græða
enn meira á þar sem hægt er að
þynna þau út.
Vottuðu glæpamanni virð-
ingu og komu til íslands
Lögreglan hefur heimildir fyrir
því að háttsettir menn innan Hells
Angels hafi komið hingað til lands,
nokkrir á síðasta ári. DV greindi frá
því á mánudag að á síðasta ári hefði
verið hér á landi yfirmaður allrar
fíkniefnadreifingar Hells Angels í
Norður-Evrópu. Fíkniefnadreifing-
in er gerð út frá Hollandi en mið-
stöðin fyrir Norðurlöndin er í Dan-
mörku. Einn heimildarmaður
greinir frá því að þegar einn af leið-
togum Hells Angels hafi verið myrt-
ur í Hollandi fyrir fáeinum misser-
um, hafi öllum háttsettum englum
verið fyrirskipað að fara til
Hollands og votta honum virðingu
sína. Þar á meðal voru þeir sem
stýra starfi Hells Angels í Noregi en
á meðal þeirra eru menn sem hafa
komið til íslands oftar en einu
sinni.
Gefa leikföng og blóð
I DV í gær birtist viðtal við
Brynjólf Þór Jónssön talsmann vél-
hjólaklúbbsins Fáfnis MC, þar sem
hann lýsti því að Fáfnir hefði sótt um
inngöngu í Hells Angels. „Vítisenglar
eru ekki óheiðarleg samtök," sagði
hann en hafði ekki mörg orð um
ásakanir Sniglanna um að Fáfnir
ætti ekki rétt á sér, frekar en mafían.
Hann sagði bæði Fáfni og Hells Ang-
els vera lögleg samtök sem hvergi
væru bönnuð.
I greininni í Lögreglumanninum
kemur fram að Hells Angels hefur í
gegnum tíðina verið mjög umhugað
um ímyndina. Til að mynda halda
þeir árlega samkomu í Bandaríkjun-
um og gefa leikföng í sjóð sem á að
renna til munaðarlausra og fátækra.
Þá eru þeir duglegir í að gefa blóð.
Eins hefur á síðari árum verið lögð
áhersla á að fækka ögrandi merking-
um á einkennisklæðum Hells Ang-
els.
Þegar Vítisenglar hasla sér völl á
Brynjólfur Þór Jónsson Vítisenglar eru
ekki óheiðarleg samtök.
nýjum stað, leggja þeir sig fram um
það að koma sér í mjúkinn hjá ná-
grönnunum og halda öðrum glæpa-
mönnum í nágrenninu í skefjum. „í
fyrstu líkar fólki vel návistin við þá,
en smám saman breytist þetta og
HA verða yfirgangssamari og reyna
að ganga eins langt og hægt er.
Einnig lenda nágranarnir oft í mikilli
hættu þegar gengin eiga í innbyrðis
stríði hvert við annað," segir í grein-
inni.
Hamar uppáhaldsvopnið
í greininni í Lögreglumanninum,
sem er byggð á erlendum rannsókn-
um á starfsemi Hells Angels, kemur
fram að það vopn sem meðlimir
Hells Angels haldi mest upp á sé
hamarinn. Þannig verði hamrar iðu-
lega uppseldir á þeim stöðum sem
samtökin halda mót. Skýringin er sú
að hamarinn getur reynst hættulegt
og ’sterkt vopn en svo er erfitt að
koma í veg fyrir að menn beri á sér
venjulegt verkfæri af því tagi.
eða versli með marijúana eða
metamfetamín.
22 Viðkomandi hefur setið í
fangelsi
81 Tölur í stað bókstafa. H er 8
stafur í stafrófinu og A 1.
ACAB All Cops Are Bastards
(Allar löggur eru bastarðar)
AFFA Angels Forever, Forever
Angels (Englar aðeilífu,
eilífu englar)
Dequlallo Sá sem ber þetta hefur verið
ofbeldisfullur gagnvart lög-
reglu.
Fifthy Few Viðkomandi hefur framið
morð fyrir gengið
FTW FuckThe World, sést lítið nú
til dags.
MC Motorcycle Club (Mótor-
hjólaklúbbur)
TCB Taking Care of Business
kgb@dv.is
Fimm stjörnu golffatnaður
Sunderland
Sunderland
regnfatnaðurfær
bestu dóma hjó
Golf Monthly
www.sunderlandgolf.com
Opið til:
kl. 22.00 tiljóla
kl. 23.00 á Þorláksmessu
kl. 10 - 12 á aðfangadag
Alfrn-ðihókiu um pulf
A-Ö
Big House Crew Mynd úrdagataii norrænna Hells Angels fyrir árið 2004. Þetta eru menn
sem sitja i fangelsi. Merkingarnar á vestunum skipta máli. Merkið „Filthy few‘‘þýðir að viðkom-
andi hafi framið morð.
HoleinOne • Bæjarlind 1-3 • sími 5774040 • www.holeinone.is