Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2003, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003
Fókus DV
Mikael Torfason var alveg bit um síðustu helgi þegar Davíðsfrumvarpið var kynnt þjóðinni. Hann
minnti forsætisráðherra á eigin tilvitnanir í Passísusálmana. í dag á hann hins vegar erfitt með að
skilja Steingrím J. Sigfússon, formann vinstri-grænna, sem var á fjöllum og að sinna Qölskyldunni -
nokkrum dögum fyrir mánaðarlangt jólafrí þingmanna - í stað þess að vinna vinnuna sína. Svo kom
hann af fjöllum.
*
Eftírlaunafrumvarpið hans Davíðs
sýnir svo um munar að það er eitthvað
meira en lítíð að foimönnum stjómar-
andstöðunnar. Enginn þeirra mættí til
að greiða atkvæði um frumvarpið og í
gær var í DV eitt það merkilegasta við-
tal sem maður hefur séð við formann
stjómmálaflokks. Þar mættí Stein-
grímur Jóhann Sigfússon, þingmaður
og formaður vinstri-grænna, og sagð-
ist naga sig í handarbökin þar sem
hann sat á flokkskrifstofunni sinni, ný-
kominn af fjöflum. Fyrr
um daginn hafði
hann ekki einu
sinnihaftorkutil
að dröslast nið-
ur á þing (en
hann var vlst
kjörinn þangað
í síðustu kosn-
°g
atkvæði
með samvisku
sinni sem nagar
hann - í handar-
bökin.
Davíð og Halldór voru
ekki hræddir og komu
ekki affjöllum. Þeir
leyfðu fjölmiðlum
meira að segja að ná i
sig og földu sig ekki.
Já, það var verið að kjósa um
frumvarp - sem hann virðist vera á
móti og flestir ef ekki allir þeir sem
hann hefur umboð íyrir- sem gefur
honum helmings launahækkun og
maðurinn mætir ekki. í viðtalinu í
gær fabúlerar maðurinn um duldar
viðvaranir sem hann hafi sent hin-
um formönnunum um að tíma-
setningin og efnisatriði frumvarps-
ins væru varasöm. Hann bætir því
svo við að hann hafi sleppt því að
ræða þétta leynimakk sitt með hin-
um formönnunum við eigin flokks-
menn af því að mikill trúnaður ríkti
í málinu.
Tennurnarfarnar
Svo ég haldi áfram að lýsa viðtalinu
við Steingrím J. Sigfússon þá reynir
maðurinn að slá sig til riddara með því
að segjast skilja reiði fólks og baráttu
verkalýðshreyflngarinnar. Hann skilur
okkur en gerir ekkert í því. Mætir ekki
einu sinni á þing. Þessi baráttuhundur
sem aldrei hefur fúlsað við ræðu eða
góðum debat. Hver dró úr honum
tennurnar?
Var það ekki bara þessi helmings
launaliækkun? Hún ætti nú að blinda
flesta óstaðfasta menn og Steingrímur
er svona svoldið eins og tveir menn
þessa dagana. Annar er blindur og
hinn líka - svo maður vitni nú lauslega
í orð Krists um faríseana sem vildu
leiðbeina lýðnum en fóru sjálflr villir
vega. Eða eins og hann orðaði það
sjálfur: „Þeir eru blindir, leiðtogar
blindra. Ef blindur leiðir blindan, falla
báðir í gryfju.1' (Matteus 15:14) Þeir
(þ.e. Steingrímur og Jóhann) leiðast á
flokksskrifstofunni og komast ekki
einu sinni yfir á Alþingi til að greiða at-
kvæði um eitt stærsta mál þessa þings
en lofa þess í stað að láta launahækk-
unina renna í styrktarmannakerfi
vinstri-grænna.
Takk fyrir það, Steingrímur minn.
Það er eflaust gott fyrir bókhaldara
flokksins en eins og þetta horflr við
mér er það ekki nóg til að þú fáir að
þvo hendur þínar af þessu fáránlega
máli. Það þýðir ekki að tromma upp
núna allt í einu með ofsalegan skilning
á þessu máli öllu saman. Mér er alveg
sama hvort þú skilur reiði mína og
annarra sem eru pirraðir yflr þessu. Ég
kæri mig í raun ekki um að þú skiljir
mig. Ég hefði frekar viljað að þú hefðir
komið hreint fram og staðið með sam-
visku þinni. Unnið vinnuna þína í stað
þess að sýna það og sanna að allur
máttur sé úr þér.
Faldi sig fyrir fjölmiðlum
Steingrímur er nefnilega í vinnu
hjá okkur og þegar við kjósendur ná-
um af honum tali, í viðtali í DV, svarar
hann því ti! að ástæðan fyrir því að
hann hafl sagt lítið sem ekkert um
þetta mál hingað til sé að hann hafl
verið að koma frá Rússlandi og svo far-
ið á fjöll en að nú sé hann loks kominn
af fjöllum. Hann kom af fjöllum og
sagði orðrétt: „Ég ætlaði ekki að láta ná
ímig.“
En í næstu setningu segir hann að
fráleitt sé að halda því fram að hann
hafl falið sig fyrir fjölmiðlum. Nei, hann
ætlaði bara ekki að láta ná í sig, þessi
formaður stjómarandstöðu- flokks,
þjóðkjörinn alþingismaður, en ekki
faldi hann sig. 0 nei, var víst á fjöllum
og að sinna fjölskyldunni. Ekki veitir af.
Það er ekki ekki nóg að maðurinn sé að
fara í frí núna og verði í fh'i fram til loka
janúar. Nei, hann þarf á meiri fntfma
að halda fyrir fjölskyldu og fjöll.
Ef starfsmaður venjulegs fyrirtækis
úti í bæ - hugsanlega í yfirmannsstöðu
eins og Steingrfmur - segði þessa vit-
leysu þegar yfirmenn hans kæmu og
bæðu hann skýringa á því af hverju
hann væri að skíta á sig í ákveðnu máli
sem eigendunum þætti mjög stórt - ja,
þá held ég að hausar myndu fjúka. Ef
þetta er hugarfarið, við hverju eigum
við þá að búast frá Steingrími? Að hann
muni alltaf vera til í að rífa kjaft þegar
hann nennir og er ekki á fjöllum eða
hefur engra beinna hagsmuna að gæta
en þegar kemur að buddunni hans,
helmings launahækkun kannski, rjúki
hann bara á fjöll?
Össur mætti ekki heldur
Auðvitað stóð Steingrímur ekkert
miklu verr en aðrir stjórnarandstöðu-
formenn. Össur Skarphéðinsson var
einhvers staðar í útlöndum þegar
greidd voru atkvæði um eftirlauna-
frumvarp Davíðs og Guðjón A. Krist-
jánsson var í fríi. En Davíð og Halldór
mættu báðir. Sýndu þó þann dug að
horfa framan í þjóðina þegar þeir sam-
þykktu frumvarpið. Vom ekki hræddir
og komu ekki af fjöllum. Þeir leyfðu
fjölmiðlum meira að segja að ná í sig
og földu sig ekki. Kannski ekki vamm-
lausir í sinni afstöðu en við vitum þó
hvar við höfum þá.
Steingrímur J. Sigfússon á líka að
vera fulltrúi þeirra sem minnst mega
st'n. Nægar em yfirlýsingamar frá hon-
um og flokksfólki hans um fyrir hvað
þau standa. Og maður getur því rétt
ímyndað sér að Ögmundi Jónassyni,
flokksbróður Steingríms, lfði eins og
formaðurinn hafi stungið hann í bakið.
Það hlýtur allavega að vera einkenni-
legt fyrir skörulegan formann verka-
lýðshreyfingar að sitja í flokki með for-
manni sem rýkur á fjöll þegar jafn stórt
mál og eftirlaunafrumvarp Davíðs er
tekið fyrir. Og sami maður ætlast svo til
þess að allt sé í góðu eftir á af því að
hann nagar sig í handarbökin. Hvaða
vitleysa er þetta? Nagar sig í handar-
bökin! Skárra væri það nú. Maður sem
rýkur á fjöll rétt áður en hann fer í
mánaðaríangt frí og skorast þannig
undan því að að mæta í vinnuna sína á
þingi. Nema hann hafí ekki ratað á
þing þegar hann kom af fjöllum. Því
hann kom af fjöllum. Já, það er meira
en að segja það að láta blindan leiða
blindan.
Mikael Torfason