Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2003, Qupperneq 22
Sport DV
Yfirburðamaður f Katalóníu BrasUiumaðurinn
Ranaldinho er einn af fáum leikmönnum
Barcelona-liðsins sem geta borið höfuðid hátt
yfir frammistöðu sinni á þessu timabili,
Ronaldinho kom frá franska liðinu Paris St.
Cermain fyrir timabilið og hefur sýnt það og
sannað að hann er einn af betri leikmönnum
heims um þessar mundir.
22 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003
■ ■
Þrátt fyrir að spænska stórliðið Barcelona hafi eytt tugum milljóna punda í leikmenn h
vera í skugganum af erkiQendum sínum í Real Madrid sem kaupa alla bestu leikmennii
titlana á meðan Barcelona húkir um miðja deild á Spáni og tekur þátt i Evrópukeppni f
Spænska stórliðið Barcelona,
stolt Katalóníu, hefur gengið í
gegnum miklar þrengingar á und-
anfömum árum. Félagið hefur ekki
unnið spænska meistaratitilinn síð-
an 1999 né lent ofar en í fjórða sæt-
inu undanfarin þrjú keppnistfma-
bil. Á sfðasta ári endaði liðið í sjötta
sæti og komst með naumindum í
Evrópukeppni félagsliða. Núna er
liðið í níunda sæti deildarinnar,
þrettán stigum á eftír vinum sínum
í Real Madrid, og til að bæta gráu
ofan á svart beið það, á dögunum,
lægri hlut fyrir Real Madrid á
heimavelb sínum, Camp Nou, í
fyrsta sinn síðan 1983.
Það er til gamalt máltæki á Spáni
sem segir að erfiðleikar í spænsku
knattspyrnunni ferðist fram og til
baka í hraðflugi á milli Barcelona og
Real Madrid. Ef Barcelona vann Real
Madrid þá var höfuðborgin í sárum
en ef dæmið snerist við voru Kata-
lóníubúar með böggum hildar. í dag
er þetta reyndar ekki svona einfalt
því að þessi tvö lið hafa ekki þá yfír-
burði yflr önnur lið sem þau höfðu
hér á árum áður. Erfiðleikarnir virð-
ast líka hafa tekið sér varanlega ból-
festu í Barcelona, borginni við sjó-
inn með nútímalega byggingarstíl-
inn og knattspyrnulið sem virkar
engan veginn eins og staðan er í dag.
Fyrsta tapið í 20 ár
Fyrir ellefu dögum tapaði
Barcelona fyrir Real Madrid á
heimavelli í fyrsta sinn í tuttugu ár.
Tapið gerði það að verkum að liðið
var komið niður fyrir miðja deild.
Það fór inn í jólamánuðinn þriðja
árið í röð með þá vissu að draumur-
inn um titil væri fokinn út í veður
og vind og eina markmiðið væri að
ná fjórða sætinu, sem gefur sæti í
forkeppni meistaradeildarinnar.
Barcelona er ekki með í þeirri
keppni í ár og einhverjir hefðu
kannski haldið að sú fjarvera þýddi
að botninum hefði verið náð og
endurreisn liðsins væri handan við
hornið. Nýr forseti, hinn ungi og
kappsfulli Joan Laporta, var valinn,
þeir réðu Hollendinginn Frank
Rijkaard sem fimmta þjálfara liðs-
ins á fjórum árum en samt virðist
allt vera við það sama. Barcelona
virðist upplifa sama daginn aftur og
Ricky Davis til
Boston Celtics
Cleveland Cavaliers
sendi í gær einn sinn besta
mann, bakvörðinn Ricky
Davis, yfir til Boston
Celtics ásamt Chris Mihm
og Michael Stewart í
skiptum fyrir Eric Willi-
ams, Tony Battie og Ked-
rick Brown. Davis, sem
hefur skorað 15,5 stig að
meðaltali það sem af er
þessu tímabili, átti ekki
upp á pallborðið hjá Paul
Silas, þjálfara Cleveland.
Að auki var talið að rangt
hugarfar Davis væri ekki
góð fyrirmynd fyrir hinn 18
ára gamla nýliða Cleve-
land, LeBron James, sem er
helsta vonarstjarna liðsins.
Guðmundur
velur hóp í dag
Guðmundur Guð-
mundsson, landsliðs-
þjálfari í handknattleik,
mun í dag velja 28 manna
æfingahóp sem fyrsta stig í
lokaundirbúningi liðsins
fyrir Evrópumeistaramótið
í Slóveníu í janúar.
Ljóst er að tveir
leikmenn liðsins, Aron
Kristjánsson, sem leikur
með TVIS Holsterbro í
Danmörku, og Roland
Eradze, markvörður Vals,
verða ekki með í Slóveníu
vegna meiðsla en Aron er
meiddur á hné og Eradze
sleit krossbönd í hné í leik
með Val í september.
Ronaldovann
Zidane
Liö Ronaldos bar sigur-
orð af liði félaga síns hjá
Real Madrid, Zinedine
Zidane, í góðgerðarleik fyrir
Sameinuðu þjóðarnir í
fyrrakvöld en leikurinn fór
fram í Basel fyrir framan
þrjátíu þúsund áhorfendur.
Lið Ronaldos vann, 4-3,
í leik þar sem alvaran vék
fyrir skemmtuninni.
Zidane skoraði tvö mörk
fyrir sitt lið og Luis Fabiano
eitt en Robinho skoraði tvö
mörk fyrir lið Ronaldos.
Diego skorað eitt mark og
Savio gerði sigurmark
leiksins. Mikill áhugi var á
þessum leik og má ætla að
miklir peningar hafi safnast
í sjóði Sameinuðu þjóð-
anna.
i