Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2003, Side 23
DfV Sport
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003 23
3ldur liðið áfram að
ía og vinna stærstu
élagsliða.
aftur og það virðist litlu máli skipta
hverjir koma að málum þar á bæ.
Flest .bestu félagslið Evrópu
ganga í gegnum skeið þar sem lítið
gengur upp og uppskeran er frekar
rýr en það er þó ekkert lið sem get-
ur jafnað hnignun og slappleika
Barcelona á þessrii öld sem er ný-
hafin, ekki einu sinni ítalska liðið
Inter Milan, sem hefur í það
minnsta komist nálægt ítalska
meistaratitlinum. Síðan Barcelona
varð meistari árið 1999 hefur liðið
hafnað í öðru, tvívegis í fjórða og nú
síðast sjötta sæti í spænsku deild-
inni, komist einu sinni í undanúr-
slit meistaradeildarinnar; afrek sem
þeir vilja sennilega ekki muna eftir
þar sem þeir voru slegnir út af Real
Madrid.
Léleg leikmannakaup
Ef skömm Barcelona er skil-
greind frekar og félagið borið sam-
an við erkifjendurna í Real Madrid,
þá eru það leikmannakaup liðsins
sem fá versta einkunn. Real Madrid
hefur haft þá stefnu undanfarin ár
að eyða miklum peningum ( einn
stjörnuleikmann á hverju sumri en
Barcelona hefur eytt f ieikmenn án
þess að nokkur hugsun hafi verið
að baki. Það1 er ekki mikil sam-
keppni þegah meta á hvort liðið
hefur eytt peningum í leikmenn af
meiri skynsemi. Ekkert lið hefur
eytt meira í leikmannakaup en
Barcelona síðan sumarið 2000; ekki
Real Madrid, ekki Cheisea, og af-
rakstur þessarar eyðslu er enginn -
í það minnstalekki fram til dagsins í
dag.
Þegar desembermánuður geng-
ur í garð fara þeir, sem ekki hafa
staðið undir væntingum, í sjálfs-
skoðun. Taugaveiklaðir stjórnar-
menn vita að leikmannamarkaður-
inn er að opnast á nýjan ieik en
segja að þeir neyðist ekki til að
kaupa leikmenn þótt ástandið sé
slæmt. Þrátt fyrir það er leikmönn-
um eins -og Hollendingnum Jimmy
Floyd Hasselbaink hjá Chelsea ýtt í
áttina að þeim sem bjargvætti fyrir
framan markið þar sem hvorki
landi Hasselbainks, Patrick Klui-
vert, né hinnf22 ára Javier Saviola
hafa náð að verða þær gullgæsir
sem búist var við af þeim.
Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem
Hasselbaink er
orðaður við
Barcelona því að í
fyrra leit út fyrir að
hann myndi ganga
til liðs við félagið.
Þá strönduðu fé-
lagsskiptin á
því að þáverandi
þjálfari
Barcelona, Louis
Van Gaal, vildi
ekki fá nýja leik-
menn og ekki þyk-
ir ólíkjegt að núver-
andi stjórn myndi
bregðast eins við, sérstaklega í
ljósi þess að félagið skuldar 130
milljónir punda.
200 milljónir punda
Barcelona hefur eytt um 200
milljónum punda í leikmenn síðan
árið 2000, rriárgfalt hærri upphæð
heldur en drekkt hefur liðum eins og
Fiorentina og Leeds í skuldum á
sama tíma, en þessi tala hefur hækk-
að verulega að undanförnu eftir að
núverandi stjórn fór ofan í saumana
á gjörðum forvera sinna. í síðasta
mánuði birti Sport, sem er staðar-
blað í Barcelona, grein um það að
Barcelona hefði borgað fimm millj-
ónir punda í umboðslaun þegar fé-
lagið keypti unglinginn Javier
Saviola frá River Plate - ofan á þær
19 milljónir punda sem hann kost-
aði. Þessar upplýsingar gerðu
Saviola að dýrasta leikmanni
Barcelona frá upphafi, dýrari en
Marc Oversmars sem bar þann
bagga áður. Það hlýtur að vera léttir
fyrir Overmars því að hann hefur að-
eins byrjað inná í helmingi leikja
liðsins síðan hann byrjaði og skorað
íjögur mörk að meðaltali á tímabili
- lítið fyrir mikið á vel við í hans til-
viki. Saviola hefúr heldur ekki reynst
góð fjárfesting. Hann hefur ekki átt
fast sæti í liðinu síðan hann kom en
kemur þó ekki til greina sem verstu
kaupin. Þar trónir á toppnum
franski varnarmaðurinn Phillippe
Christanval, sem var keyptur frá
Mónakó fyrir 10 milljónir punda en
fór fh'tt til Marseille tveimur árum
síðar. Brasilíumaðurinn Geovanni
er ekki iangt undan en hann kostaði
15 milljónir punda til þess eins að
fara í lán til Benfica. Þá má einnig
nefna Fabio Rochemback sem kost-
aði níu milljónir punda en er nú í
láni hjá Sporting Lissabon.
Nýir leikmenn hafa klikkað
Það væri hægt að halda lengi
Saviola hefur heldur
ekki reynst góð fjár-
festing. Hann hefur
ekki átt fast sæti í lið-
inu síðan hann kom
en kemur þó ekki til
greina sem verið
verstu kaupin. Þar
trónir á toppnum
franski varnarmaður-
inn Phillippe Christan-
val, sem var keyptur
frá Mónakó fyrir 10
milljónirpunda en fór
frítt til Marseille
tveimur árum síðar.
áfram en það verður þó að segjast
Joan Laporta, nýjum forseta liðsins,
til vorkunnar að leikmannakaúpin
á hans valdatíma hafa ekki verið
jafn vafasöm og forvera hans.
Laporta talar kannski meira en
hann framkvæmir og missti af Dav-
id Beckham yfir til erkifjendanna
en hann náði þó að krækja í Ron-
aldinho, leikmann sem með snilli
sinni hefur varpað skugga á aðra
nýja leikmenn liðsins. I leiknum
gegn Real Madrid voru aðeins tveir
af sex nýjum
leik-
mönnum
liðsins í
byrjunarlið-
inu; staðreynd
sem gefur til
kynna álitið
sem Frank
Rijkaard,
þjálfari
liðsins,
hefur á
nýju leik-
mönnun-
um.
Giovanni Van
Bronckhorst, sem
komst ekki í liðið hjá
Arsenal en var lánaður til
Barcelona út tímabilið, hefur staðið
sig einna best af nýju leikmönnun-
um. Tyrkneski ntarkvörðurinn
Rustu Recber, sem var valinn annar
besti markvörður heimsmeistara-
keppninnar á síðasta ári, og Rafael
Marquez, fyrirliði Mexíkóa, hafa
ekki náð að heilla Rijkaard það sem
af er tímabilinu.
Á sama tíma hafa leikmenn eins
og Patrick Kluivert og Luis Enrique,
sem hafa verið lykilmenn í liðinu
undanfarin ár, verið fjarri sínu
besta. Kluivert, sem hefur verið sex
ár hjá félaginu, hefur ekki beinlínis
dulið áhuga sinn á því að spila í
ensku úrvalsdeildinni á meðan
hann er enn á toppi ferilsins og
kostar tvær milljónir punda, en
hann tók launalækkun hjá félaginu
gegn því að hann gæti farið ef tilboð
upp á tvær milljónir punda kæmi í
hann. Verðmætasti leikmaður liðs-
ins er hins vegar varnarmaðurinn
Carlos Puyol. Manchester United ,
sem hefur mikinn áhuga á að fá
Sá verðmætasti Spænski landsliðs-
maðurinn Carlos Puyol hefur vakið mikla
athygli og óhætt er að segja að hann sé
verðmætasti leikmaður Barcelona í dag.
Verðugt verkefni Hollendingurinn Frank Rijkaard tók við Barcelona fyrir þetta timabil og
hefur ekki tekist aðná neinu útúr liðinu frekar en forverum hans á undanförnum ár. Hans
biður það verðuga verkefni að koma Barcelona á toppinn á nýjan leik.
hann, gerði tilboð í hann í fyrra og
þrátt fyrir að Barcelona hafi hafnað
því stefnir í að Puyol færi sig um
set. Hann er byrjaður í enskutímum
og hefur sjálfur lýst yfir áhuga sín-
um á að spila í Englandi.
Lítið aðdráttarafl
Barcelona hefur þó ekki áhuga á
því að selja sína bestu leikmenn.
Miklar skuldir em nokkuð sem menn
þar á bæ hafa ekki miklar áhyggjur af.
Stærstu bankarnir í Katalóníu styðja
við bakið á sínu félagi og eru alltaf til-
búnir að breyta skuldum og sjá til
þess að nægir peningar séu til leik-
mannakaupa ár hvert. Laporta er
hrifinn af Thierry Henry og er ekki
einn um það. Vandinn hjá Laporta er
hins vegar sá að liðið hans er ekki
nógu gott til að draga að leikmenn í
sama gæðaflokki og Henry.
Frank Rijkaard er í það minnsta
viss í sinni sök þegar hann segir að
það þurfi að gera eitthvað fyrir
Barcelona. Hann sagði í viðtali við
ítalska blaðið Gazzetta dello Sport í
síðustu viku að lið hans vantaði
gæðaleikmenn. Hann sagði einnig
að leikmenn sínir væru ekki með
hugarfar sigurvegarans. „Þeir hafa
verið svo lengi í félaginu án þess að
vinna nokkurn skapaðan hlut. Þeg-
ar þeir mæta erfiðleikum takast
þeir ekki á við þá,“ sagði Rijkaard.
Rijkaard kallaður heigull
Rijkaard sjálfur hefur mátt þola
sinn skammt af gagnrýni á þessu
tímabili. Hann var kallaður heigull í
staðarblöðunum í Barcelona eftir
tapið gegn Real Madrid fyrir að
spila aðeins með einn framherja,
nokkuð sem þótti ekki sæmandi
fyrir lið eins og Barcelona á heima-
velli, en þegar nánar er skoðað hef-
ur hann tekið margar ákvarðanir
sem hafa einkennst af hugrekki.
Hann var ekki hræddur við að taka
Patrick Kluivert, fyrrum félaga sinn
hjá Ajax, út úr liðinu, og ekki heldur
við að taka leiðtoga liðsins, Luis En-
rique, út þegar honum fannst vera
þörf á því.
Rijkaard, sem á að baki frábæran
feril sem leikmaður hjá Ajax, AC Mil-
an og hollenska landsliðinu, kom til
Barcelona í sumar eftir misjafnan
árangur sem þjálfari. Hann kom hol-
lenska landsliðinu í undanúrslit Evr-
ópukeppninnar 2000 en náði engu
út úr liði Spörtu frá Rotterdam í hol-
lensku deildinni. Hann sagði íviðtali
að hann gerði sér grein fyrir því að
það væri erfitt starf að vera þjálfari
Barcelona en að það tæki tíma að
byggja upp nýtt lið - tíma sem hann
fær ekki ótakmarkaðan hjá óþolin-
móðum stjórnendum Barcelona.
oskar@dv.is
Heimild: The Sunday Times
«r