Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2003, Síða 24
24 MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003
Sport DV
ÞETTA KOSTA STIGIN
Knattspyrnustjórarnir í ensku
úrvalsdeildinni hafa eytt
mismiklum peningum í að ná þeim
markmiðum sem þeir hafa sett sér
hjá sínum félögum. Það er
athyglisvert að skoða hvað hver
hinna 20 knattspyrnustjóra í
deildinni hefur eytt og hvað það
hefur skilað honum mörgum
stigum.
Arsene Wenger Arsenal
Hefur eytt 14,7 milljarðar
Stig 553
Stigið kostar 26,6 milljónir
David O'Leary Aston Villa
Hefur eytt S76 milljónir
Stig 17
Stigið kostar 33,9 milljónir
Steve Bruce Birmingham
Hefur eytt 3,2 milljarðar
Stig 71
Stigið kostar 45,1 milljón
Graeme Souness Blackburn
Hefur eytt 4,9 milljarðar
Stig 123
Stigið kostar 39,8 milljónir
Sam Allardyce Bolton
Hefur eytt 550 milljónir
Stig 105
Stigið kostar 5,2 milljónir
Alan Curbishley Charlton
Hefur eytt 4,5 milljarðar
Stig 204
Stigið kostar 22,1 milljónir
Claudio Ranieri Chelsea
Hefur eytt 19,6 milljarðar
Stig 222
Stigið kostar 88,3 milljónir
Chris Coleman Fulham
Hefur eytt 84,5 milljónir
Stig 35
Stigið kostar 2,4 milljónir
David Moyes Everton
Hefur eytt 1,1 milljarður
Stig 89
Stigið kostar 12,4 milljónir
Eddie Gray Leeds
Hefur eytt Ekki krónu
Stig 7
Stigið kostar Ekki krónu
Micky Adams Leicester
Hefur eytt Ekki krónu
Stig 22
Stigið kostar Ekki krónu
Gerard Houllier Liverpool
Hefur eytt 14,5 milljarðar
Stig 356
Stigið kostar 40,7 milljónir
Kevin Keegan Man. City
Hefur eytt 6,2 milljarðar
Stig 70
Stigiö kostar 88,2 milljónir
Alex Ferguson Man. Utd
Hefur eytt 24,3 milljarðar
Stig 945
Stigið kostar 252!miiljónir
Steve McClaren Middlesbrough
Hefur eytt 4,6 milljarðar
Stig 114
Stigið kostar 40,5 milljónir
Bobby Robson Newcastle
Hefur eytt 8,4 milljarðar
Stig 266
Stigið kostar 31,5 milljónir
Harry Redknapp Portsmouth
Hefur eytt 627 milljónir
Stig 16
Stigið kostar 39,2 milljónir
Gordon Strachan Southampton
Hefur eytt 2,4 milljarðar
Stig 114
Stigið kostar 20,8 milljónir
David Pleat Tottenham
Hefur eytt Ekki krónu
Stig 14
Stigið kostar Ekki krónu
David Jones Wolves
Hefur eytt 2,9 milljarðar
Stig 11
Stigið kostar 269 milljónir
—I---e—■■
¥
Dýrt er drottins stigið Leikmanna-
kaup Dave Jones hafa ekki skilað miklu.
Eyðslukló en aflalítill Kevin Keegan, knattspyrnustjóri Manchester City, hefur verið
duglegur við að kaupa leikmenn dýrum dómum en eitthvað hefur árangurinn látið á sér
standa hingað til.
svipaðri línu þegar kemur að
kostnaði á hvert stig. Ferguson hefur
eytt 25,7 milljónum á hvert stig en
Wenger 26,6 milljónum. Þessir tveir
herramenn hafa átt tvö bestu lið
Englands allar götur síðan Wenger
kom til Englands árið 1997.
Nýju mennirnir, David Pleat hjá
Tottenham og Eddie Gray hjá Leeds,
hafa ekki náð að eyða einni einustu
krónu enda hefur leikmanna-
markaðurinn verið lokaður þann
tíma sem þeir hafa verið störf. Ekki
er hægt að búast við þvf að Gray
verði afkastamikill þegar leik-
mannamarkaðurinn opnar á nýjan
leikí janúar- fjárhagsstaöa félagsins
leyfir það bara ekki. oskar@dv.is
Sdgið kostar
88 milljónir
hjá Keegan
Breska blaðið The Sun hefur birti
fyrir helgina lista yflr hvað
knattspyrnustjórarnir í ensku
úrvalsdeildinni hafa eytt í ieikmenn
þann tíma sem þeir hafa verið við
stjórnvölinn hjá liðum sínum.
Jafnframt var skoðað hversu mörg
stig stjórarnir höfðu halað inn á
sama tíma og metið hvað stigið
hefði kostað.
DV Sport birtir nú þennan lista
uppfærðan með leikjum helginnar
en þar má sjá að félögin hafa úr
misjafnlega miklum peningum að
spila auk þess sem uppskeran er æði
misjöfn.
Jones með yfirburði
Dave Jones, knattspyrnustjóri
nýliða Wolves, hefur mikla yfirburði
þegar kemur að því hversu mikið
stigin hans kosta. Jones hefur eytt
2,9 milljörðum í lið sitt, nokkuð sem
hefur aðeins skilað honum 11
stigum á þessari leiktíð og
botnsætinu í úrvalsdeildinni. Hvert
stig sem Wolves hefur halað inn
hefur kostað litlar 269 milljónir en
þó liðið hafi spilað ilia að
undanförnu eru þó allar líkur á þessi
tala minnki þegar líða tekur á
veturinn, svo framarlega sem Jones
fer ekki hamforum þegar
leikmannamarkaðurinn opnar aftur
í janúar.
Af þeim sem hafa eytt
einhverjum tíma í úrvalsdeildinni
bera tveir knattspyrnustjórar,
Claudio Ranieri hjá Chelsea og
Kevin Keegan hjá Manchester City,
höfuð og herðar yfir aðra knatt-
spyrnustjóra. Ranieri hefur eytt 19,6
milljörðum í leikmenn, mestöllu
fyrir þetta tímabil en hafa skal í huga
að liðið er í toppbaráttunni í ensku
deildinni og komið f 16 liða úrslit
Meistaradeildarinnar. Stigið hjá
Ranieri hefur kostað 88,3 milljónir,
litlu meira en hjá Kevin Keegan.
Hann hefur eytt 6,2 milljörðum,
skilað sjötíu stigum í hús og dólað
með liðið um miðja deild eða neðar
þann tíma sem hann hefur stjórnað
liðinu. Stigið hjá Keegan hefur
kostað rétt rúmar 88 milljónir en
Manchester City er um miðja deild
og dýrustu leikmennirnir, Nicolas
Anelka og Robbie Fowler, hafa verið
að spila langt undir getu.
Ekki er hægt að segja annað en að
Sam Allardyce, knattspyrnustjóri
Bolton, láti verkin tala á vellinum.
Hann hefur ekki verið aðsópsmikill
á leikmannamarkaðnum og stigið
hjá honum hefur aðeins kostað 5,2
milljónir, 16 sinnum minna en hjá
kollega hans Keegan.
Allardyce nær þó ekki Micky
Adams, knattspyrnustjóra Leicester,
sem hefur ekki eytt einni einustu
krónu síðan hann kom liði sínu upp
í úrvalsdeildina. sparsamur maður
Adams enda vanur að stjórna liðum
þar sem skóinn kreppir að.
Ferguson með langflest stig
Alex Ferguson, knattspyrnustjóri
Manchester United, hefur eytt
langmestum pening af öllum
stjórunum enda hjá ríkasta félaginu.
Það er þó ekki hægt að saka
Ferguson um að hafa kastað
peningunum á glæ því að liðið hefur
fengið 945 stig undir hans stjórn,
næstum helmingi meira en næsti
maður, góðvinur Fergusons, Arsene
Wenger, hefur fengið með liði sínu
Arsenal. Ferguson og Wenger eru á
Skagamaðurinn ungi og efnilegi Grétar Rafn Steinsson er að komast í gang
Undraverður bati á 14 vikum
Knattspyrnumaðurinn Grétar
Rafn Steinsson er farinn að æfa
knattspyrnu á nýjan leik, aðeins
fjórtán vikum eftir að hann var
skorinn upp vegna slitins
krossbands í hné. Grétar Rafn, sem
er staddur í Hollandi, fór á sína
fyrstu alvöruknattspyrnuæfingu í
gærkvöld og er óhætt að segja að
batinn sé undraverður miðað við
það að íþróttamenn eru yfirleitt sex
mánuði að jafna sig eftir slík
meiðsli.
Grétar Rafn, sem gekk frá því við
Skagamenn í síðustu viku að hann
myndi spila með þeim næsta
sumar, sagði í samtali við DV Sport
í gær að hann hefði lagt gífurlega
hart að sér í sumar við að halda
löppinni við og það ætti sjálfsagt
einhvern þátt í því að hann er svona
fljótur að jafna sig.
Ætla að ná langt
„Ég hef alla tíð verið staðráðinn í
því að ná langt sem knatt-
spyrnumaður og þegar ég meiddist
í sumar þá hugsaði ég með mér að
ég ætlaði ekki að láta alla vinnu
undanfarinna ára fara í súginn.
Þess vegna æfði ég eins og brjálaður
og það skilar sér núna,“ sagði
Grétar Rafn.
Hann sagðist ætla aftur út til
Hollands í janúar og dvelja þar í
nokkurn tíma til að verða tilbúinn í
slaginn þegar Islandmótið hefst í
maí.
„Ég verð hjá einkaþjálfara þarna
úti og ætla síðan að æfa með
nokkrum liðum. Stefnan er sett á að
komast í atvinnumennskuna en
hvort það gerist eftir áramót veit ég
ekki. Ég mun þá koma heima og
spila með ÍA og hlakka mikið til
þess. Það er mikill hugur í okkur
fyrir næsta tímabil," sagði Grétar
Rafn.
oskar@dv.is
Fljótur að ná sér GrétarRafn Steinsson er
að verða klár i slaginn á nýjan leik eftir að
hafa slitið krossbönd. Nú eru aðeins fjórtán
vikursíðan hann varskorinn upp en hann
mætti á sína fyrstu fótlboltaæfingu i gær i
Hollandi.