Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2003, Blaðsíða 25
DV Sport
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003 25
Becks leitarað
„jólakúlum"
Argentínumaðurinn
Lionel Scaloni, leikmaður
Deportivo, er ekki ánægður
með David Beckham þessa
dagana. Upp úr sauð milli
þeirra „félaga" er Real lék
gegn Deportivo um helgina
og mátti litlu muna að
Scaloni spólaði í Becks.
Ástæðan er sú að Becks
kleip í Scaloni á
viðkvæmasta stað og það
sætti hann sig illa við.
„Dómarinn sagði okkur að
sættast. Becks bauð
hendina en það var engin
meining á bak við
afsökunarbeiðnina. Hann
var með takta. Ég meina
hann greip í „kúlurnar" á
mér. Finnst ykkur það
viðeigandi?" sagði Scaloni
sem einnig reifst við Becks
eftir leikinn ásamt öðrum
góðvini Beckhams, Aldo
Duscher.
Kallið mig
Allardicci
Framkvæmdastjóri
Bolton, Sam Allardyce,
segir að hann fái ekki
almennilega viðurkenningu
á afrekum sínum þar sem
hann sé enskur en ekki
erlendur. „Ef ég héti
Allardici þá myndu
örugglega allir halda að ég
væri langbesti stjórinn,"
sagði Allardyce. „Það að
vera enskur virðist draga úr
möguleikum manna að
þjálfa eitt af bestu liðunum.
Það halda allir að erlendu
þjálfararnir séu að finna
upp bestu aðferðirnar og
séu þeir einu sem þora að
reyna eitthvað nýtt en það
er algjört kjaftæði."
Fergie vill
kaupa Saha
Sir Alex Ferguson, stjóri
Man. Utd, er tilbúinn að
greiða Fulham 7 milljónir
punda fyrir franska
framherjann Louis Saha
sem farið hefur hamförum
í vetur. Efst á lista
Ferguson í janúar er að
kaupa góðan framherja
sem getur létt álaginu af
Van Nistelrooy og hann sér
Saha sem rétta manninn
til starfans. Fulharn getur
ekki leyft sér að neita slíku
boði en Chris Coleman,
stjóri Fulham, fær
væntanlega að versla fyrir
hluta fjárins.
Ameríski ruðningskappinn Joe Horn, sem spilar með New
Orleans Saints, stal senunni um síðustu helgi með einhverju
eftirminnilegasta fagni sem sést hefur í áraraðir. Horn var í
fínu formi í leiknum og þegar hann skoraði sitt annað
snertimark í leiknum gerði hann sér lítið fyrir og náði í síma
sem hann hafði falið undir dýnunni á markstönginni. Símann
notaði hann síðan til þess að hringja heim til sín þar sem
hann átti stutt spjall við móður sína og börnin sín.
Fagnaðarlætin féllu í grýttan jarðveg hjá þjálfara liðsins sem
og hjá stjórnendum NFL-deildarinnar sem ætla að sekta Horn
fyrir vikið og einnig kemur til greina að setja hann í leikbann
vegna atviksins sem mörgum finnst vera algjört grín.
Horn hafði augljóslega
planað fagnið lengi því hann
faldi símann fyrir leik og
fékk síðan félaga sinn,
Michael Lewis, til
þess að aðstoða sig
við að ná símanum.
„Ég bað
krakkana
mína
um að
vera
heima og horfa á leikinn.
Ég sagði svo við
mömmu mína að
hún skyldi vera
klár í að svara
símanum ef mér
tækist að skora
tvö
snertimörk,"
sagði Horn sem
reyndar gerði
gott
betur og skoraði fjögur snertimörk í
leiknum.
Þjálfari Horn, ]im Haslett, var
ekki par hrifinn af uppátæki Horns
og hann hellti sér yfir spéfuglinn er
hann snéri til baka á
varamannabekkinn.
„Þú gerir bara ekki svona. Ég veit
að þetta var planað og að leikurinn
var sýndur í sjónvarpi en þetta er
ekki til fyrirmyndar. Ég ætla samt
ekki að sekta hann en ég geri
fastlega ráð fyrir því að deildin geri
það," sagði Haslett sem hafði runnið
reiðin í leikslok og því leyfði hann
sér að grínast aðeins eftir leikinn.
„Hann á eftir að læra og þroskast
enda er hann bara 32 ára,“ sagði
Haslett og glotti.
Fékk dæmt á sig víti
Dómarar leiksins voru ekki
ánægðir með tilburði Horn og
skelltu umsvifalaust á hann 15
metra víti fyrir óíþróttamannslega
hegðun.
Leikmenn New York Giants, sem
Saints voru að spila við og sigruðu
með yfirburðum, höfðu misjafnar
skoðanir á uppátæki Horns.
„Ég ber mikla virðingu fyrir
Horn en mér fannst þetta ekki
frumlegt. Terrell Owens á þegar
besta fagnið," sagði Michael
Strahan.
Leikstjórnandinn Jesse Palmer
fannst fagnið aftur á móti
þrælfyndið en útherjinn Amani
Toomer sagði aftur á móti að
,Eg mundi
geraþetta
hiklaust aftur.
Ég vissi allan
tímann hvað
ég var að
gera. Ég skil
það líka vel að
ég fái sekt
sem er allt í
lagi.
fagnið hans Horn væri það síðasta
sem þeir þyrftu að hugsa um enda
búnir að tapa sex leikjum í röð.
Horn er ekki á því að biðjast
afsökunar á athæfi sínu, enda finnst
honum í lagi að menn skemmti sér
endrum og sinnum.
„Ég mundi gera þetta hiklaust
aftur. Ég vissi allan tímann hvað ég
var að gera. Ég skil það líka vel að ég
fái sekt sem er allt í lagi," sagði Horn
sem einnig vakti mikla athygli fyrr í
vetur með öðru fagni. Þá þóttist
hann draga upp byssu eftir að hann
skoraði og skaut síðan félaga sína
sem féllu að sjálfsögðu með miklum
tilþrifum.
Fleiri spéfuglar
Þetta fagn er þegar umtalað sem
eitt það besta allra tíma en fleiri
spéfuglar hafa látið til sín taka í
vetur. Chad Johnson hjá Cincinnati
hljóp beint út af vellinum þegar
hann skoraði fyrr í vetur. Þar náði
hann í skilti og hljóp með það aftur
inn á völlinn. Á því stóð: „Kæru
stjórnendur NFL. Ekki sekta mig
aftur. “ Hann fékk að sjálfsögðu nýja
sekt fyrir athæfið.
Það fagn sem flestir eru hrifnir af
á útherji San Francisco 49ers, Terrell
Owens. Eftir að hafa skorað gegn
Seattle tók hann upp penna sem
hann var með falinn í sokknum.
Áritaði boltann sem hann hafði
skorað með og kastaði honum sfðan
til fjármálastjórans síns og sagði
honum að selja hann. henry@dv.is
Spéfuglar Félagarnir Michael Lewis og Joe Horr. sjást hér á minni myndinni
hjálpast að við að ná slmanum undan stönginni en á þeirri stærri er Horn
kominn i beint samband við móðursina ísímanum og það i beinni útsendingu.