Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2003, Side 27
DV Fókus
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003 27
Ozzy Osbourne á batpvegi
Grætur og biðjir hjukkurnar
að kvæaast ser
Ozzy Osbourne er byrjaður að
grínast í hjúkkunum á spítalanum
þar sem hann liggur og hefur beðið
tvær þeirra að kvænast sér. Það mun
þó að líkindum taka hann um sex
mánuði að ná sér að fullu eftir að
hann lenti í slysi á fjórhjóli í síðustu
viku, að sögn Sharon eiginkonu
hans.
Rokkarinn Ozzy liggur enn á gjör-
gæsludeild en er á hægum batavegi.
„Hann snýr aftur, hann er ekki að
fara neitt,“ sagði Sharon við fjöl-
miðla fyrir utan spítalann. „Hann
mun halda áfram að skipa öllum fyr-
ir, ekki hafa áhyggjur af öðru,“ sagði
hún.
Ozzy Osbourne, sem er 55 ára,
var tekinn úr öndunarvél á mánu-
dag. Hann viðbeinsbrotnaði, auk
þess sem átta rifbein og hálsliður
brotnuðu. Ozzy gekkst undir aðgerð
því viðbeinið klemmdi æð og stöðv-
aði blóðflæði út í handlegg.
„Hann er vakandi og lætur öllum
illum látum. Hann reytir af sér
Sharon Osbourne SegiraðOzzysé
vaknaður og láti öllum illum látum. Segir
enn fremur að hann hafi grátið þegar hann
frétti að lag hans og Kelly dóttur þeirra væri
á toppi breska vinsældalistans.
brandarana og hefur þegar
beðið tvær hjúkkur að
kvænast sér,“ sagði Sharon
Osbourne. Hún sagði að
eiginmaðurinn hefði vakn-
að viku eftir slysið og þá
fengið þær fréttir að smá-
skífan Changes, þar sem
hann syngur dúett með
Kelly dóttur þeirra, væri á
toppi breska vinsældalist-
ans.
„Hann hefur aldrei átt
topplag og í mínum huga
þýðir þetta bara hversu
mikið fólk elskar hann.
Hann gat ekki komið upp
orði en tárin flæddu,"
sagði Sharon Osbourne.
Ozzy Osbourne Erallur
að koma til en verður ekki bú-
inn að ná sér að fullu fyrr en
eftir hálft ár. Er þó duglegur
að rugla i hjúkrunarkonun-
um á spítalanum þar sem
hann liggur..
Sími 550 5000
askrift@dv.is
www.visir.is
Nýtt DV sex morgna vikunnar.
Ekkert kynningartilboð.
Engin frídreifing.
Mánaðaráskrift 1.995 krónur.
.ÉT