Dagblaðið Vísir - DV - 17.12.2003, Blaðsíða 29
DV Fókus
MIÐVIKUDAGUR 17. DESEMBER 2003 29
Sandra sigraði Survivor
Fór alltaf hinn
gullna meðalveg
16 strandaglópar Allir þátttakendurnir
samankomnir i upphafi. Sandra sigur-
vegari er lengst til hægri i neðri röö.
Eftir 39 daga, 16 strandaglópa,
fjóra ættbálka, fjölmörg bandalög
sem leystust upp, einn sem hætti,
dauða ömmu sem er í raun ekki
dáin, er það Sandra Diaz-Twine sem
stendur ein eftir, sigurvegari í sjö-
undu seríunni af Survivor. Úrslitin
voru ljós á sunnudagskvöldið og úr-
slitaþátturinn var sýndur á mánu-
dagskvöldið á Skjá einum. Eins og
flestum ætti að vera kunnugt er
Sandra því milljón dollurum ríkari
eftir erfiðið. Sandra er 29 ára gömul,
gift og á tvö börn, ættuð frá Púertó
Rfkó. Hún starfar sem aðstoðarmað-
ur á skrifstofu í Ft. Lewis í Was-
hington-ríki.
A sfðasta ættbálkaþinginu lýsti
Sandra því yfir við kviðdóminn að
hún hafi gengið í hvaða bandalag
sem henni bauðst án þess að spyrja
neinna spurninga. Hún sagðist
aldrei hafa verið fyrir neinum, hafa
haldið sig tfi baka, fór alltaf hinn
gullna meðalveg og hún ætti það
fýllilega skilið að sigra í leiknum.
Kviðdómurinn féllst á hennar rök
því hún fékk sex atkvæði á móti einu
og sigraði þar með örugglega.
Kænskubrögð Jons
dugðu ekki
Mikil spenna var fyrir lokaþátt-
inn. Fjórir keppendur voru eftir, þau
Darrah (22 ára líksnyrtir frá Miss-
issippi), Lill (51 árs skátaforingi frá
Ohio) og Jon (29 ára listráðunautur
frá Virginiu) auk sigurvegarans
Söndru. Stjórnandi þáttarins færði
þeim morgunmat og ‘ kampavín í
morgunsárið og eftir það fengu þau
öll að lesa bréf frá ættingjum sínum.
Jon fannst hann ekki vera í góðri
stöðu sem eini karlmaðurinn eftir.
Hann lýsti því strax yfir að konurnar
væru ákveðnar í að kjósa sig út og
náði að koma af stað deilum á milli
Lill og Darrah. Þess vegna sannfærði
Lill Söndru um að það væri öllum í
hag að kjósa Darrah út. Það gekk eft-
ir. Kænska Jons var ótrúleg í þáttun-
um og gefur þetta bragð ekkert sér-
staka mynd af honum; hann gekk
eitt sinn svo langt að ljúga því að
amma hans væri nýdáin til að fá
góða máltíð.
Þjarmað að skáta-
foringjanum
Þau þrjú sem eftir voru kepptu
því í erfiðri þraut um hvert þeirra
ynni friðhelgi þegar sfðasti kepp-
andinn yrði kosinn út. Þrautin var
að halda jafnvægi á planka úti á sjó
án þess að mega styðjast við hnén
eða afturendann. Eftir fimmtán
mínútur voru Jon og Sandra þegar
komin í vandræði og Sandra datt
fljótlega út. Jon missti svo jafnvægið
þegar yfir tvær klukkustundir voru
liðnar og Lill vann sér inn friðhelgi.
Það kom því hlut hennar að kjósa
á milli þess hvort Jon eða Sandra
færi með henni í tveggja manna úr-
slitin. Lill kaus Jon út úr leiknum og
því tók hún Söndru með sér í úrslit-
in. Þegar þangað var komið gagn-
rýndu kviðdómendurnir Lill mikið
og sögðu hana sviksama. Það endur-
speglaðist í atkvæðagreiðslunni,
Sigurvegarinn Sandra Diaz-Twinesigraðii
sjöundu þáttaröðinni afSurvivor, fór alltaf
hinn gullna meðaiveg og gekk i hvaða
bandalag sem bauðst.
Sandra fékk sex atkvæði og eina
milljón dollara í sigurlaun en Lill
einungis eitt atkvæði og 100 þúsund
dollara í huggun.
Stjörnuspá
Jón Kalman Stefánsson rithöfundur er
fertugur í dag. „Hér þarfn-
ast maðurinn breyt-
inga. Hann ætti alls
ekki að leyfa kunnug-
legu mynstri og vana
að stjórna gjörðum
sínum heldur læra
að taka meðvitað-
ar ákvarðanir í
byrjun janúar
' 2004," segir (
stjörnuspá
hans.
Jón Kalman Stefánsson
Vatnsberinn (20.jan.-i8.febr.)
VV --------------------------------------
Ef þú ert ekki sátt(ur) við
ástand mála ættir þú ekki að hika við að
segja hug þinn. Ef þú hefur tileinkað
þér að umla skaltu öskra af alefli sem
fyrst og sjá, þér opnast nýr heimur sem
uppfyllir dagdrauma þína ef þú aðeins
losar um þitt tilfinningaflæði því hér
birtast einhverskonar stíflur.
F\skm\r (19. febr.-20. mars)
Þú hefur hér tilhneigingu til
að vera áhorfandi af einhverjum ástæð-
um en þar með dregur þú úr eigin til-
finningum. Hugur þinn, líkami og andi
ættu að vinna betur saman og þú veist
það svo sannarlega sjálf/ur
Hrúturinn (21.mrs-19.apnl)
Hugaðu að leikgleðinni sem
býr sannarlega innra með þér en þú ert
fær um að beita orku þinni (marga hluti
í einu og ættir að nýta þann eiginleika
vel næstu misseri. Ef þú ert ekki
ánægð/ur með sjálfið ert þú fær um að
gera eitthvað í málinu.
M
T
ö
NaUtÍð (20. april-20. mal)
Ef þú finnur fyrir álagi eða
daglegri streitu um þessar mundir, ættir
þú að hlaða orkustöðvarnar með því að
horfa mun betur inná við. Stjörnu
nautsins er ráðlagt að keyra ekki sjálfið
með því að fara yfir þröskuldinn þegar
kemur að þreytumörkum.
Tvíburarnir(2! . mal-21.júni)
n
Aðstæður fara stöðugt batn-
andi þegar stjarna þfn birtist. En hafðu
hugfast að ef þú ekki nærð að virkja jafn-
vægi þitt og lagfæra það sem aflaga fer í
þínu eigin fari gætir þú átt það á hættu
að missa af annars stóru tækifæri sem
kemur hér fram samhliða stjörnu þinni.
Krabbinn/22 .júnl-22.júll)
Hér birtast geysilegir hæfileik-
ar í fari þínu til að sigra miðað við
stjörnu krabbans.
Ljónið (2J./UÍ-22. égústj
Ef þú hefur það á tilfinning-
unni að þú sért eitthvað öðruvisi en
aðrir um þessar mundir er það ekki rétt
en gleymdu eigi að sérviska þín er öflug
og jákvæð fyrir fólk eins og þig.
Meyjan (23. ágúst-22.sept.)
Þér er ráðlagt að vera ekki
eigingjarn/eigingjörn á ástúð annarra
eins og á hlutina sem þú átt eða
dreymir um að eignast þessa dagana
jafnvel.
T15
n Vogín (23.sept.-23.okt.)
Sálarró þín eflist með tíman-
um ef þú temur þér að finna merkingu í
hversdagslegum hlutum tilveru þinnar.
Virtu tilfinningar annarra betur og
temdu þér háttvísi. Ekki láta falskar von-
ir fara með ímyndunarafl þitt næstu
misseri. Skilgreindu alla möguleika áður
en þú framkvæmir í starfi þínu.
HL
Sporðdrekinn 124.okt.-21.n6v.)
Þér er ráðlagt að ýta stolti
þínu til hliðar um stund og hlúa að
hjartastöðvum þínum varðandi ætt-
menni af einhverjum ástæðum um
þessar mundir. Nýttu það sem eftir lifir
af árinu til að koma verkefni, sem teng-
ist þér persónulega, á laggirnar.
/
Bogmaðurinn(22./Kíi'.-2WB.)
Ekki líta á ástina sem sjálfsagð-
an hlut og hlustaðu á elskhuga þinn fyr-
ir alla muni. Nýttu þér starfskrafta sam-
starfsfólks þíns og/eða félaga þinna og
sýndu þeim mun meira traust en þú
hefur tileinkað þér undanfarið.
Steingeitin (22jes.-19.jan.)
Z
Ekki láta þér detta í hug að
neita innra með þér að njóta stundar-
innar af því að hún er ekki eins og þú
hefðir kosið að hún væri.
SPAMAÐl 'R.IS
—
«