Dagblaðið - 14.11.1977, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 14.11.1977, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 14. NOVEMBER 1977. '4 Raddir lesenda eru á bls. 2-3 og 4 í dag Erfarin aðefast umað MANNRETTINDISEU Raddir lesenda IHEIÐRIHOFÐ AISLANDI Bella Sigurjónsson, Framnes- vegi 11, hringdi: Hún sagðist vera skozk að ætt og uppruna en hafa verið búsett á islandi í tuttugu og sex ár. Hefði hún alltaf álitið að mannréttindi væru í heiðri höfð á Islandi, en nú læddist að Ekki fæst leyfi tll að taka Ijósmyndir i klefum i Sióumúlafangelsinu. Ragnar Lár teiknaði þessa eftir Ijósriti af Ijósmynd sem fylgdi eftlrriti rannsóknarlnnar. Rétt er að taka fram að maðurlnn i gólfinu var ekki i Ijósmyndinni heldur er hann telknaður Inn i eftlr lýslngu dómarans. henni grunur um að svo væri ekki. Er það eftir lestur greina í Dagblaðinu um aðbúnað og meðferð á föngum í Síðumúla- fangelsinu. „Mér er alveg sama þótt um sé að ræða sakamenn," sagði Bella. „Þeir eiga rétt á mann- sæmandi meðferð rétt eins og hver annar.“ Bella sagðist ekki trúa því að óreyndu að opinberir aðilar gripu ekki í taumana til þess að koma í veg fyrir að föngum sé misþyrmt í íslenzkum fang- elsum. Bella sagði að sér þætti það skjóta nokkuð skökku við að svona fanga-misþyrming skuli eiga sér stað á Islandi á meðan forráðamenn þjóðarinnar básúna hve lýðræði sé í miklum hávegum haft á íslandi. Bella minntist einnig á Amnesty International og sagði að þótt hún vissi fullvel að sá félagsskapur sinnti aðeins póli- tískum föngum, væri þeim nær að snúa sér að því að sinna íslenzkum föngum í stað þess að vera að eltast við erlenda fanga. Kona nokkur úr Keflavík hringdi. Sagðist hún hafa keypt nokkra happdrættismiða sem á stendur „Litsjónvarpshappdrætti ÆSl“ í vor. Á happdrættis- miðanum er þess getið að dregið sé 15. maí 1977. Þar er einnig símanúmer sem veitir upplýsingar. Númerið er 14053, og er hjá Æskulýðssambandi íslands. Konan sagðist hafa margsinnis hringt í þetta símanúmer en þar VIÐ ÞJONUM STOR-REYKJAVIKURSVÆÐINU r r GALLAFATNAÐURIURVALI LEECOOPER GALLABUXUR, DÖMUSNIÐ SLETTFLAUELS- BUXURFRÁ U.F.O. SVARTAR BARNABUXUR FRÁ BÓT Ath. Verð oggæði Verzlunln Strandgötu 31 Hafnarflröl, síml 53534 Hvert var vinningsnúmerið í happdrætti ÆSÍ — ekki svarað í uppgefið símaniímer á happdrættismiðanum hefði aldrei verið svarað. Blm. DB hefur gert ítrekaðar tilraunir til þess að ná sambandi við símanúmer þetta en án árangurs. Þætti konunni, og sjálfsagt ýmsum fleirum sem keyptu þessa happdrættismiða, vænt um ef for- ráðamenn ÆSÍ hefðu samband við lesendasíðuna sem gjarnan vill koma vinningsnúmerunum á framfæri. Hreppurinn inn- heimtirútsvar sem greiðandinn telurverafymt Guðmundur Garðarsson skrifar: „Ég flutti frá Búðum í Fáskrúðsfirði í janúarmánuði 1971 ásamt fjölskyldu minni. Flutti ég mitt lögheimili strax til Reykjavíkur og hef búið þar síðan. Ekki vissi ég annað en að ég væri skuldlaus við sveitar- félagið þar (Búðahrepp). Síðastliðið sumar fór ég á staðinn f mínu sumarleyfi. Bauðst mér þá að fara á annan togarann á staðnum í afleysingum og fór ég þrjá túra á togaranum. Síðan fæ ég sent uppgjörið suður og þá rak mig í rogastanz þegar ég fann kvittun frá Búðahreppi í Fáskrúðsfirði að ég hafi greitt útsvar til Búðahrepps kr. 46.882, undirritaða af fyrrverandi póst og símstjóra, Margeiri Þórormssyni, sem dubbaður var upp sem skrif- stofumaður hjá Búðahreppi eftir að hann lét af störfum hjá pósti og sfma. Ég hringdi strax í Margeir og spurði hvernig á þessu stæði. Segir hann þetta vera gamla skuld frá árinu 1971, sem verið hafi kr. 23.856. Sfðan hafi komið vextir og vaxtavextir á upphæðina. Ég hef aldrei fengið neina rukkun eða tilkynningu um að ég skuldi útsvar eða annað í Búða- hreppi. Ég hef reynt að ná tali af sveitarstjóranum, Helga Guðmundssyni, undanfarna daga en það hefur ekki borið neinn árangur. Ég hringdi aftur í fyrr- verandi póst- og símstöðvarstjóra Margeir Þórormsson, og spurði hann hvort þeir myndu ekki borga þessa upphæð til baka því þó svo væri að ég hefði skuldað útsvar væri skuldin löngu fyrnd. Hann neitaði því en viður- kenndi að þetta væri fyrnt og sagði að ég yrði að hafa fyrir þvf að fá mér lögfræðing og yrði hann að hafa fyrir því að ná þessu út. Þá yrði lítið eftir af þessum peningum. Ég spurði hann hvort sveitar- stjórinn væri honum sammála f þessu og sagði hann svo vera. Annars kæmi honum ekkert við hvað hann rukkaði inn og hann hefði sjálfur tekið sér bessaleyfi og skrifað kvittunina. Síðan hló hann sfnum smitandi hlátri. Er mafían að spretta upp á Fáskrúðs- firði? Svar: Haft var samband við Margeir Þórormsson, sem er starfsmaður á skriistofu Búðahrepps. Vildi hann ekkert um málið segja annað en að Guðmundur Garðars- son hefði skuldað útsvar frá árinu 1971. eik

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.