Dagblaðið - 02.05.1978, Blaðsíða 16
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. MAl 1978.
16
23. skoðanakönnun Dagblaðsins: Teljið þér, að herða eigi eða draga úr eftirliti með
klámi i kvikmyndahúsum eða hafa eftirlitið eins og verið hefur?
„Hvað er klám?”
„Hvað er klám, veit það ein-
hver?” (Konaí Vík).
„Erum við ekki öll orðin til í
klámi? Ég held, að það sé
miklu skaðlegra fyrir börn og
unglinga að horfa á allt of-
beldið í sjónvarpinu heldur en
þótt þau sjái svolítið klám.”
(Kona í Þorlákshöfn).
„Leyfa allt klám en hækka
aldurstakmörkin upp i 20 ár.”
(Karl á Akureyri).
„Leyfa fólki sjálfu að
mynda sér skoðanir. Ekki að
banna fullorðnum.” (Kona,
Gerðum).
„Svarið hlýtur að mótast af
því, hvaða skilning maður
leggur í klám. Ég er á móti því,
að kynferðisleg brenglun og
sadismi sé sýndur hér í kvik-
myndahúsum. Hins vegar tel
ég að allt sé í lagi með svokall-
að listrænt klám.” (Karl á
Vestfjörðum).
„Það ber að herða eftirlitið,
sérstaklega með efni í sjón-
varpinu.” (Kona á Vestur-
landi).
„Við eigum að fara að dæmi
frænda okkar Dana og gefa
klámið frjálst. Það verður þá
ekkert spennandi lengur og all-
ir missa áhugann.” (Karl á
Suðurnesjum).
„Útiloka klámið alveg.”
(Karl í sveit).
„Kvikmyndaeftirlitið þarf
að herða í sjónvarpi. Blöð og
Hækkun
á dmttarvöxtum
Veðdeildarlána
(Húsnæðismálastjórnarlána)
Frá og með 1. maí hækka dráttarvextir á
öllum veðdeildarlánum, sem tekin hafa verið eftir
1. júlí 1974 og bera bókstafinn F.
D,E og F lán falla í gjalddaga 1. maí
og verða áfram 1% dráttarvextir á D og E lánum.
Dráttarvextir F lána hækka hinsvegar úr 1% í 3%
fyrir hvern mánuð og byrjaðan mánuð.
Athugið að þessi breyting tekur gildi 1. maí n.k.
Veðdeild Landsbanka íslands
Áklæði—Áklæði
FRÁ PLUSH BELGÍU HÖFUM VIÐ FYRIRLIGGJANDI HIN VIÐUR-
KENNDU DRALON ÁKLÆÐI í 10 LITUM OG MUNSTRUM.
ÖLL BETRI HÚSGÖGN SEM BELGIR SELJA ÚR LANDI ERU MJÖG
GJARNAN KLÆDD DRALON ÁKLÆÐI FRÁ PLUSH.
EF ÞÉR EIGIÐ VIRKILEGA VÖNDUÐ HÚSGÖGN, SEM ÞARFNAST
KLÆÐNINGAR, VELJIÐ ÞÁ Á ÞAU ÁKLÆÐI, SEM ER FALLEGT,
NÍÐSTERKT OG AUÐVELT ER AÐ ÞVO ÚR BLETTI.
ÚTVEGUM ÚRVALS FAGMENN SÉ ÞESS ÓSKAÐ.
FINNSK AKLÆÐI Á SÓFASETT OG SVEFNSÓFA.
Verð aðeins kr. 1680.- metrinn
Opiö frá 1 til 6 — Póstsendum
B. G. Áklæði, Mávahk'd 39
Sími 10644 - Aðeins á kvöldin
Niðurstöður skoðanakönnunarinar urðu þessar:
Herða eftirlitið............................76 eða 25 1/3%
Draga úr eftirliti..............................90 eða 30%
Óbreytt.......................................102 eða 34%
Óákveðnir...................................32 eða 10 2/3%
Ef aðeins eru teknir þeir, sem tóku afstöðu, verða niðurstöð-
urnar þessar:
Herða..................28,4%
Draga úr...............33,6%
Óbreytt...............38%
„Ég vona, að þessi fyrirspurn beri
ekki með sér að Dagblaðið líti á mig
sem einhvers konar sérfræðing i
klámi,” sagði Thor Vilhjálmsson rit-
höfundur, þegar DB bað hann um um-
sögn í tilefni niðurstaðna skoðana-
könnunarinnar. „Til þess hef ég litla
verðskuldun. En það féll í minn hlut
að heyja harða snerru í sjónvarpi i
vetur til að reyna að koma í veg fyrir,
að lögreglustjóri bannaði sýningu á
japanskri kvikmynd á kvikmynda-
hátiðinni.
Mín afstaða byggðist á því,
þárna væri um listaverk að ræða,
ætti að leyfa fullorðnu fólki að ákveða
sjálft, hvort það teldi sér óhætt að
horfa á myndina. Ég er enginn áhuga-
maður um klám. Ég vil láta þá i friði,
sem þurfa á klámi að halda, ef það er
tiltölulega saklaust og skaðar ekki
aðra. Núna getur hver maður fengið
allt það klám, sem hann vill, hvort sem
hann kýs lifandi myndir eða lesmál, og
margur þarf jafnvel að sæta meiru en
hann kærir sig um.
Mjög virkir klámbankar kvikmynda
eru úti um alla borg, í mörgum opin-
berum fyrirtækjum og kannski úti um
allt land, auk þess sem einkaaðilar
geta leigt sér sýningarmenn með hið
ferlegasta klám til að sýna i heimahús-
um.
Klám hefur verið vinsæl iþrótt á
tslandi um aldaraðir.
Það þarf að gera greinarmun á
klámi og list og hver á að skera úr um
það? Að mínum dómi á að kalla til
Thor Vilhjálmsson um skoðanakönnun DB:
„Ég vil láta þá í
friði sem þurfa á
Kiami að halda”
J,