Dagblaðið - 02.05.1978, Side 21

Dagblaðið - 02.05.1978, Side 21
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 2. MAÍ 19/8. 21 Iþróttir íþróttir íþróttir íþróttir Fyrsti meist- aratitill ÍA í ár — sigruðu Breiðablik stórt, 4-1 Íslandsmeistarar ÍA unnu stóran og næsta auðveldan sigur á Breiðabliki i Litlu-bikarkeppninni á laugardag, 4—1. Þá sigraði Keflavik lið FH 3—1 I Kefla- vík — en meistarar Skagamanna hafa þegar unnið sinn fyrsta titil I ár og allar líkuráaðþeir verði og meistarar meist- aranna. Breiðablik byrjaði liflega — en fljót- lega var eins og allur vindur væri úr Blikunum. ÍA náði forustu á 20. minútu er Kristinn Björnsson skoraði. Pétur Pétursson skoraði síðan á 30. mínútu er hann skallaði knöttinn í netið. Karl Þórðarson skoraði þriðja mark ÍA eftir mikinn einleik — lék á 4 varnarmenn Blikanna. 3—0. Pétur Pétursson skoraði síðan fjórða mark ÍA um miðjan síðari hálfleik — og komst skömmu síðar einn í gegn en skaut naumlega framhjá. Ólafur Friðriksson minnkaði muninn fyrir blikana í 4—1. í Keflavík áttu heimamenn ekki i erfiðleikum með FH, sigur, 3—1. Þórir Sigfússon 2 og Steinar Jóhannsson skoruðu mörk ÍBK en Janus Guðlaugs- son svaraði fyrir FH. Staðan i Litlu-bikarkeppninni er: Akranes 4 3 10 11—2 7 Breiðablik 4 2 11 8—5 5 ÍBK 3 111 3-2 3 Haukar 2 10 1 4—7 2 FH 4 0 1 3 3—9 1 Stórthjá Val gegn ÍBV, 4-1 — í Meistarakeppni KSÍ á Melavellinum Valu vann sannfærandi sigur á ÍBV I Meistarakeppni KSÍ á Melavellinum á laugardag 4— 1. en ÍBV bar hærri hlut I viðureign félaganna I Eyjum, 2—0. Íslandsmeistarar ÍA og ÍBV eiga nú einungis eftir að mætast — og í A nægir jafntefli svo titillinn hafni á Skaganum. Ingi Björn Albertsson kom Val yftr á Melavellinum en örn Óskarss. svaraði fyrir ÍBV. En Valsmenn voru ekki á að gefa sinn hlut — og þrjú mörk fylgdu í kjölfarið, Atli Eðvaldsson, Jón Einars- son og Guðmundur Þorbjörnsson skoruðu fyrir bikarmeistara Vals án svars ÍBV. Staðan í Meistarakeppni KSÍ er: Akranes 3 1 2 0 5—4 4 Valur 4 12 1 6—5 4 ÍBV 3 1 0 2 5-7 2 Preston í 2. deild Preston North End, „Proud Preston” eins og félagið var kallað forðum ávann sér I gær rétt í 2. deild þó án þess að leika. Meistarar 3. deildar, Wrexham mættu Peterborough — og til að komast upp I 2. deild þurfti Peter- borough að sigra. Jafntefli varð hins veg- ar, 0—0 I Wrexham. Preston komst þvi upp I 2. deild undir stjórn Nobby Stiles — en þegar höfðu tryggt sér sæti I 2. deild, Wrexham og Cambridge — annað árið I röð að Cambridge flyzt á milli deilda. Sigraði I 4. deild árið áður — glæsilegt hjá Cambridge, aðeins nokkur ár siðan félagið hóf að leika I deildakeppninni ensku. Páll Pálmason horfir á eftir knettinum, fer hann inn eða fer hann framhjá má lesa úr svip hans. DB-mynd Bjarnleifur. Þá vann Plymouth stóran sigur á I bjarga sér á siðustu stundu undir stjórn Bradford City, 6—0 — en félagið var ,Malcolm Allison. lengi I mikilli fallhættu en tókst að Hverfafundir borgarstjóra í apríl - maí 1978. Birgir ísleifur Gunnarsson borgarstjóri flytur ræðu og svarar fyrirspurnum fundargesta Laugameshverfi Langholt Þriðjudaginn 2. maí kl. 20.30 Glæsibær — Álfheimum 74. Á fundunum verður: 1. Sýning á líkönum og uppdráttum af ýmsum borgarhverfurn og nýjum byggðasvæöum. 2. Litskuggamyndir af helztu fram- kvæmdum borgarinnar nú og að undanförnu. Fundarstjóri; Þorsteinn Gislason, skipstjóri, Fundarrttarar Ók>f Benadiktsdóttir, kannari og Sigmar Jónsson, framkvœmdastjóri. KR kaf- sigldi Víking, Reykvíkingar — tökum þátt í fundum borgarstjóra — íReykjavíkur- mótinu. Valur ogÞróttur skildu jöfn, 1-1 KR vann næsta auðveldan og óvæntan stórsigur gegn Viking i Reykjavikur- mótinu i knattspyrnu á sunnudag, 3—0. Vikingar voru nánast ótrúlega slakir — vörnin óákveðin og vantaði Diðrik Ólafs- son markvörð áþreifanlega. Miðjumenn liðsins sáust vart — og framlínan mátt- laus. Þá léku I gær á Melavellinum Þróttur og Fram, jafntefli varð 1—1. Eðlilega vakti viðureign Vikings og 2. deildariiðs KR mesta athygli — baráttan á toppnum. KR fékk óskabyrjun — Vilhelm Fredriksen skoraði af 20 metra færi þegar á 5. mínútu. KR-ingar voru ávallt fljótari á knöttinn, börðust betur, léku betur. Þegar á fyrstu mínútu siðari hálfleiks skoraði Sverrir Herbertsson annað mark KR, 2—0. Víkingar sköpuðu sér vart tækifæri í leiknum og vörn KR var sterk. Þriðja mark KR var siðan nánast skorað beint úr aukaspyrnu — löng sending frá hægri. Þrir varnarmenn Víkings ásamt markverði hoppuðu allir upp, einnig Sigurður Indriðason og í net- inu hafnaði knötturinn. KR-ingar fögn- uðu Sigurði, sennilega hefur knötturinn sleikt kollinn á honum. 1 gær fór síðan fram viðureign Fram og Þróttar — jafntefli varð, 1 — 1. íþróttir Hartbariztá sumardaginn fyrsta Sumardagsmót TBR var haldið i TBR-húsinu á sumardaginn fyrsta. Keppt var I öllum flokkum unglinga. Sýndu unglingarnir að mikill áhugi er á badminton hér á landi og voru margir leikirnir jafnir og skemmtilegir. Úrslit I einstökum flokkum urðu sem hér segir: Hnokkar (12 ára og yngril: Haraldur Sigurðsson TBR sigraði Árna Þór Hallgrímsson 1A 11:0 6:11 og 11:7. Hér eru á ferðinni tveir bráðefnilegir leikmenn. Tátur (12 ára og yngri): Þórdis Erlingsdóttir TBR sigraði Katý Jónsdóttur ÍA I l:l og 11:4. Sveinar (12—14 áral: Þorsteinn Páll Hængsson TBR sigraði Hauk BirgissonTBR 11:9 og 11:7. Meyjar (12-14 ára): Þórunn Óskarsdóttir KR sigraði Ingu Kjartansd TBR 11:9 og 11:2. Drengir (14—16 ára): Þorgeir Jóhannsson TBR sigrað' Gunnar Jónatansson Val 11:12 11:6 og 11:8. Teipur (14—16 árak Arna Steinsen KR sigraði Kristinu Magnúsdóttur TBR 11:4 og 11:8. PHtar (16-18 érak Broddi Kristjánsson TBR sigraði Guðmund Adolfsson TBR 18:13 og 17:15.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.