Dagblaðið - 22.06.1978, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 22.06.1978, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1978. 3 Raddir lesenda Ætlarþúað skrifa bréf ÍDB? Enn einu sinni sjáum við okkur knúin til að minna þá sem skrifa ætla bréf á lesendasíður DB á að senda okkur fullt nafn sitt, heimilis- fang og símanúmer. Ef þessi skilyrði eru ekki uppfyllt verða bréf ekki birt. Ef sérstaklega stendur á er hægt að semja um það við umsjónar- menn lesendasíðnanna að bréf verði birt undir dulnefni. En það er algjört grundvallaratriði að DB viti hverjir skrifa i blaðið. Nú liggja hjá okkur fjölmörg bréf sem annaðhvort eru nafnlaus eða vantar heimilisföng og sima- númer bréfritara. Höfundar þeirra vita hér með ástæðuna fyrir þvi að þau hafa ekki birzt. VIUUM VERKALYÐS- FORINGJA EN EKKI FÍNAN PRÓFESSOR — aðeins 1860 útstrikanir þarf til að Guðmundur Jakifariáþing Við höfum rætt um það, vinnufé- lagarnir. að það sé hrein móðgun við verkafólk i Reykjavík að setja pró- fessorinn Ólaf Ragnar Grimsson. sem er vist doktor líka. ofar á lista Alþýðu- bandalagsins en formann Verka- mannasambands íslands, — Guð- mund J. Guðmundsson varaformann Dagsbrúnar. Guðmundur er þraut- reyndur forustumaður verkalýðs- hreyfingarinnar og verkamenn i Reykjavík þekkja veístörf hans. Hann er líka borinn og barnfæddur Reykvik- ingur. Hins vegarer þessi prófessor utan af landi og er þar að auki búsettur utan Reykjavíkur til þess að borga minni skalta. Hann þekkir ekki kjör vcrka- fólks i landinu og hefur aldrei deilt kjörum með venjulegu fólki. Nú er það svo að menn geta gert breytingar á listum. Við höfum reikn- að það út að miðað við þau ca 13.600 atkvæði. sem Alþýðubandalagið fékk i borgarstjórnarkosningunum þurfi að- eins 1860 verkamenn að strika þennan prófessorút til þessaðGuðmundur J. Guðmundsson taki sæti hans. Ef Al- þýðubandalagið fær minna. sem eng- inn vonar. þá þarf vitanlega minna. Þvi skorum við á stéttvist verkafólk i Reykjavík. kjósendur Alþýðubanda- lagsins, að strika yfir nafn þessa pró- fessors um leið og merkt er við G-ið. svo Guðmundur J. Guðmundsson verði fulltrúi þess á alþingi en ekki rik- ur prófesxor úr öðru bæjarfélagi. Dagsbrúnarmenn. Halda kommarnir að ríkiskassinn standi betur en borgarsjóður? Borgarstarfsmaður hringdi: Þegar Alþýðubandalagið komst í yfirburðastöðu í borgarstjórn, þeim að óvörum. voru þeir fljótir til að lýsa yfir að vandinn væri allur eftir. Minnugir stóryrða sinna úr kosningabaráttunni svo sem „samningana i gildi strax’’ sáu þeir að þeir voru komnir i vanda „vandinnerallureftir". Hvað gerðist svo? Nýi borgar- stjórnarmeirihlutinn hefur nú staðfest að kjaraskerðing skuli áfram i gildi hjá starfsmönnum borgarinnar með þvi yfirklóri að slikt skuli afnumið i áföngum. Reyna þeir nú að telja trú um að þeir hafi aftur tekið samning- ana i gildi, en á því geta þeir ekki staðið fyrr en það er fyllilega komið til framkvæmdar. Afsökunin fyrir |>essum „svikum” segja þeir stöðu borgarsjóðs og þykjast ekki hafa vitað hana fyrir. Hvað skyldu þeir hafa lagt sig eftir þvi á sín- um tima og halda alþýðubandalags- menn virkilega aðstaða rikissjóðs, sem þeir úthrópa. sé svo miklu betri að þeir geti staðið við „samningana í gildi strax”?' 1 Guðrún Helgadóttir tekur i hönd Birgis ísleifs Gunnarssonar á fyrsta fundi borgarstjórnar eftir kosningar. DB-mynd Hörður. Leikvöllurinn við Fífusel: Honum verður að Ijúka Jóhanna Björnsdóttir í Flúðaseli hringdi: Vildi hún spyrja hina nýju borgar- stjórn að því hvort halda ætti fram- kvæmdum við leikvöllinn við Fífusel áfram í sumar. Jóhanna sagði að unnið hefði verið vel og dyggilega að vellinum fyrir kosningar en siðan eftir þær hefði ekki nokkur maður sézt þar viðvinnu. . Jóhanna kvað það mjög bagalegt að völlurinn væri látinn standa hálf- karaður því ekkert leiksvæði væri fyrir börnin i Seljahverfinu. Jóhönnu fannst það afskaplega furðulegt að völlur þessi á að kosta um 68 milljónir. Kvað hún þetta allt of hátt verð þvi börn væru miklu frekar fyrir hið einfaldara ogódýrara. SJALFSTÆÐI GEGN SOSIALISMA ÚTIFUNDUR SJÁLFSTÆÐISMANNA í REYKJAVÍK Á LÆKJARTORGI Íkvöld22. jún'kL 18.00 Fundurinn hefst med ávarpi Birgis ísl. Gunnarssonar, borgarfulltrúa, sem veröur fundarstjóri. Þá munu þau Geir Hallgrímsson, forsætis- rádherra, Pétur Sigurðsson, alþingismaður og Ragnhildur Helgadóttir, alþingismaður, flytja stutt ávörp. Lúðrasveitin Svanur leikurfrákl. 17.30. FRAM TILSIGURS >f< Spurning dagsins Hefur þú farið í fjallgöngur? Sigrún Skúladóttir tækniteiknari: Ég hcf ekki farið á þessu ári, en ég hef gengið á fjöll til dæmis Akrafjall og í Breiðdal á Austfjörðum. Ég er i göngufélagi og er ég heldur ódugleg við að fara á fjöll. Ég færi örugglega í fjallgöngur um helgaref veðrið væri einhvern tíma almennilegt. Kristinn Guðmundsson, vinnur i Faco: Nei, það hef ég ekki gert og áhuginn i minna lagi. Ég er frekar litill göngumaður. Ingólfur Jónsson, gerir hitt og þetta: Nei, það er nóg að ganga á láglendinu. þó maður fari nú ekki að klífa fjöll. Ólafur St. Sveinsson bankamaður: Nei. ég get ekki sagt að ég hafi farið i venjulega fjallgöngu. En ýmsa tinda hefur maður þó klifið. Ef maður hefði tima þá væri gaman að geta klifið fjöll. Ég held að ég sé ekki burðugur fjall- göngumaður, enda hef ég ekki stundað slíka likamsrækt. Páll Ómarss.. 10 ára: Nei. ég hef aldrei farið gangandi á fjall, en ég hef farið í bil upp á stórt fjall, sem ég man ekki hvaó heitir. Ég ætla heldur ekki að verða fjall- göngumaður þegar ég verð stór. Hilmar Þór Sigurðsson safnvörður: Já. ég læt þaðsjaldan í friði!!!

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.