Dagblaðið - 22.06.1978, Blaðsíða 22

Dagblaðið - 22.06.1978, Blaðsíða 22
22 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. JÚNl 1978. I Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir D ÍBK gerði jafntefli við Fram íslandsmótið l-deild, Keflasikurvullur, ÍBK—Fram 1—1(0—11 Heldur birti yfir hjá ÍBK eftir undan- gengna ósigra er því tókst að ná jafntefli við Fram á heimavelli i Rærkveldi. Hvort liðið skoraði eitt mark og voru það sannnjörn úrslit. Framarar sóttu ívið mcira, en heimamenn áttu þó mun opnari tækifæri. Framarar hafa nú hlotið 9 stig úr átta leikjum og fylgja toppliðunum eins og skuggi — ef eitthvað fer úr- skeiðis. IBK er hins vegar í þriðja sæti neðan frá og þeir verða aö halda vel á spöðunum, ef fallið á ekki að blasa við. Aðstæður voru heldur kaldranalegar í Keflavik í gærkvöld. norðan rok og kuldi, en svolítið lægði i seinni hálfleik. Framarar léku undan vindi fyrri hálf- leikinn — reyndu að spila en hvorki gekk né rak. hættulegustu færin komu heldur seinheppni, að ÍBK skoraði ekki. Þegar langt var liðið á leikinn réttu Framarar svolitið úr kútnum. Pétur Ormslev, sem litið hafði komið við sögu í leiknum. smaug i gegnum ÍBK-vörnina og átti Þorstein markvörð einan eftir og þar strandaði skot hans, Þorsteinn varpaði sér á knöttinn eins og Ijón á bráð, hélt honum þó ekki. Kristinn Jörundsson kom þá aðvifandi og skaut, en Þorsteinn varði aftur. Kristinn átti 'rétt fyrir lokin opið færi en Þorsteini hefur fundizt nóg að fá á sig markið frá Kristni i fyrri hálfleik og varði glæsilega. Skúli Rósantsson tengiliður er mjög vaxandi leikmaður þótt hann sé aðeins 17 ára, leikinn og úthaldsgóður. Sigurður Björgvinsson var eins og klettur i vörninni. Einar Ásbjörn er aftur að ná sér á strik en lánið lék ekki Engu er líkara en þeir Rúnar Georgsson og Kristinn Jörundsson séu að dansa ballctt, Svanavatnið eða eitthvað slíkt, þar sem þeir herjast um knöttinn i leik Fram og ÍBK í Kcflavík i gærkvöldi. — DB-mynd Þóra Björg. úr aukaspyrnum. frá Eggerti Stein grimssyni. en Þorsteinn Bjarnason varði mcistaralega í bæði skiptin. Loksins á 37. rninútu náðu Framarar forustunni með marki Kristins Jörundssonar. sem var á réttum stað þegar Guðjón Guðjónsson bakvörður ÍBK ætlaði að „drepa" knöttinn með bringunni en knötturinn hrökk af henni beint fyrir fætur Kristins. sem lét sér ekki slikt tækifæri úr greipum ganga og skoraði með hörkuskoti sem hafnaði út við marksúlu. En Guðjóni tókst að hefna harma sinna þegar nokkrar minútur voru liðnar af seinni hálfleik. Með harðfylgi krækti hann i knöttinn frá mótherja út við hliðarlinu hægra megin og renndi hon- um á milli varnarmanna Fram, beint fyrir fætur Steinars Jóhannssonar. sem skoraði með snöggu lágskoti. I — I. Framvörnin fór mjög úr jafnvægi við markið og urðu henni á ntörg mistök næsta stundarfjórðunginn og var það fyrir hrcina óheppni — eða kannski óllu við hann i seinni hálfleik þegar hann slóð svo til fyrir opnu ntarki en skotið geigaði. Gísli Torfason og Ólafur Július- son voru ekki eins sprækir og oft áður. en Steinar varsiógnandi. / Trausti Haraldsson var sannarlega traustur i Framvörninni en nokkurs mis skilnings gætti á milli Sigurbergs Sig- steinssonar og Kristins Atlasonar og ntarkvarðarins Guðntundar Baldurs- sonar. sem hefði getað kostað Frant sigurinn ef lánið lék við liðið. Rafn Rafnsson átti mjög góða kafla. sérstak- lega i seinni hálfleik þegar þeir náðu saman hann og Pétur Orntslev. Ásgeir Eliasson var eitthvað miður sin svo að óvenjulitið bar á honum. Gunnar Guðmundsson var santi vinnuhesturinn og áður. dró aldrei af sér. þótl ekki hefði hann ávallt erindi sem erfiði. Dóniari var Magnús Pétursson, — kannski fullvægurá handaslátt Framara i knöttinn — innan vitateigs. -emm. Skallaö aö marki FH. — DB-mynd Bjarnleifur. Heldur birtir til í Keflavík Meistaraheppni fylgdi Skagamönnum í Eyjum íslandsmeistarar IA sigruóu Kyja- menn I hörkuskemmtilegum leik í gær- kvöld í Kyjum, 3—2. Leikurinn var mjög vel lcikinn af báóum lióum og mikió um opin tækifæri. Mátti varla á rnilli sjá hvort liðið heföi betur í þessari viöureign en Skagamenn höfóu sannkallaða meist- araheppni meó sér i þetta sinn og sneru því heim með tvö dýrrnæt stig í poka- horninu, máttu þar vel vió una. Eyjamenn sóttu undan nokkrum vindi i lyrri hálfleik og strax á 8. minútu urðu Þórði Hallgrimssyni á hrikaleg varnarmistök er honum mistókst að hreinsa frá marki án þess að nokkur hætla virtist á ferðum. Pétur Pétursson var réltur maður á réttum stað og skor- aði örugglega, I —0 fyrir meistara ÍA. Aðeins tveimur minútum siðar var aftur hætta á ferðum við mark ÍBV eftir góða fyrirgjöf frá Matthíasi Hallgrims- syni en Kristinn Björnsson varsekúndu broti of seinn. Á 14. minútu tók Örn Óskarsson aukaspyrnu utan við vilatcig ÍA. hægra ntegin. Skot hans var firna fast og Jón Þorbjörnsson, ntarkvörður ÍA. varði vel en hélt ekki knettínum og Karl Sveinsson fylgdi vcl á eltir og skor aði örugglega. I — I. Það var siðan á 17. minútu að Jón Alfreðsson tók aukaspyrnu fyrir utan vitateigshorn iBV eftir að varnarmenn ÍBV höfðu klemntt Pétur á ntilli sin. Jón lyfti knettinum vel fyrir markið og Pétur var enn á lerðinni. stökk hærra en allir aðrir og skallaði knöttinn í netið. 2— I — glæsintark. Á 22. minutu varði Jón Þorbjörnsson hörkuskot frá Valþóri Sigþórssyni af stuttu færi. Þar fór gott tækifæri for görðunt. Sigurlás Þorleifsson komst i mjög gott færi á 34. mínútu en Jón varði enn snilldarlega. Eyjantenn pressuðu nú stift en kontust litið áleiðis gegn sterkri vörn ÍA. Skagantenn áttu af og til hæltuleg og vel útfærð skyndiupphlaup. Oftast var það hinn bráðsnjalli Karl Þórðarson sent þar átti stærstan hlut að máli. Staðan i leikhléi var 2—I lyrir Skagamcnn og þvi á brattann að sækja fyrir heimamenn gegn vindinunt. Leikntenn fóru sér fremur hægt i byrj un siðari hálfleiksen á 50. rninútu bjarg aði Ársæll Sveinsson vel er hann hirti knöttinn af höfði Matthiasar. En Ársæll var ekki eins vel á verði aðcins minútu siðar þegar Matthias átti Itörkuskol langt utan af kanti. Svo virtist sem Ár- sæll hefði ntöguleika á að verja cn i nei möskvununt -.hafnaði knötturinn. svo fast var skot kvlatta sem skoraði þarna sitt 10. mark i leildinni. 3—I. Aðeins fjórtim minútum siðar komst Sigurláseinn inn fyrir vörn Skagamanna i dauðafæri en skot hans fór hátt yfir. Á 41. minútu sendi Örn Óskarsson knötl inn vel fyrir markið. beint á höfuð Karls Sveinssonar sem henti sér fram og skall- aði knöttinn í netið. glæsilegt mark hjá Karli — 3—2. Heimamenn sóttu töluvert og á sið- ustu minútum leiksins skall hurð nærri hælunt við bæði mörkin. Pétur Pcturs son átti hörkuskot á mark ÍBV, knóttur- inn fór i þverslána og þcyttist niður á marklinuna. Eyjamenn náðu að hreinsa frá. Þeir hófu siðan stórsókn og voru óheppnir að jafna ekki metin þegar leik- menn veltust hver um annan þveran i markteig ÍA. Leiknum leuk þvi meðsigri ÍA.3-2. Naumur sigur, jafntefli hefði verið sanngjörn úrslit. Heimamenn sóttu mun meira í leiknum þegar á heildina er litið. Skagamenn áttu þó einnig mörg opin marktækifæri. Þeir höfðu heppnina með sér — 3 mörk — en ekki er hægt að segja hið sama um heimamenn. Beztu menn ÍA voru Jón Þorbjörnsson sem varði oft snilldarlega og Karl Þórðarson átti einnig snilldarleik. Vörnin var sterk og flestir leikmanna ÍA áttu góðan dag. í liði heintamanna var Karl Svcinsson rnjög góður og þá var Örn Óskarsson hreint frábær á köflum. harður og skemmtilegur leikmaður. Annars gilti hiðsama hjá leikmönnum ÍBV og ÍA — flestir skiluðu sinu hlutverki með prýði. skemnttilegur leikur tveggja góðra liða. Áhorfendur voru um 800. Ágætur dómari leiksins var Kjartan Ólafsson. FÓV. Valþór I færi en Jón Þorbjörnsson, markvörður IA, varði. — DB-mynd RS. FH MISSTIAF SIGRI Á ELLEFTU STUNDU FH missti af sinum fyrsta sigri í I. deild i sumar á elleftu stundu er FH mætti Vikingi i Kaplakrika í gærkvöldi. Liðin skildu jöfn, 3-3, hinn ungi Lárus Guðmundsson skoraði jöfnunarmark Víkings skömmu fyrir lcikslok og þannig beinlinis rændi FH sigri. FH hefði verð- skuldað sigur gegn Vikingi en örlögin eru oft grimm þegar lið eiga í fallbaráttu. Það fengu FH-ingar aö reyna i gær- kvöldi eftir að hafa sýnt ágætan leik, sennilega einn sinn bezta i sumar. Já. FH ingar eru menn án sigurs og það eftir að hafa haft yfir gegn Vikingi i leikhléi. 2—0. FH-ingar léku undan norðaustan strekkingsvindi i fyrri hálf- leik og sóttu mun meira en Víkingar. Leifur Helgason skoraði á 25. minútu. Janus Guðlaugsson renndi knettinum laglega í gegnum vörn Vikings og l.cifur vann kappklaup við Diðrik Ólafsson markvörð. renndi knettinum i net- möskvana. Aðeins þremur minútunt sið- ar hafði FH skorað sitt annað mark. Varnarmönnum Vikings tókst ekki að hreinsa frá. höfðu þó alla möguleika til þess. að knötturinn féll fyrir fætur Jan usar Guðiaugssonar sem sendi knöttinn með þrumuskoti efst i þaknetið, 2—0. Skömmu siðar munaði litlu að FH-ing- um tækist að skora sitt þriðja mark en Diðrik Ólafsson varði meistaralega hörkuskalla Janusar af stuttu færi. Staðan i leikhléi var því 2—0 — og vindinn lægði nokkuð i siðari hálfleik. Það tók Vikinga aðeins 10 minútur að minnka muninn. Róbert Agnarssie: áui góða sendingu yfir vörn FH ug Arnór Guðjohnsen skauzt fram og skallaði knöttinn laglega fram hjá Þorvaldi Þórs- syni. markverði FH. 2—I. Fintmta niark hins 16 ára gamla unglingalands liðsmanns. sannarlega gott. Og Vikingar létu ekki staðar numið — aðeins mínútu siðar þurfti Þorvaldur aftur að hirða knoltinn úr netmöskvun um. Þrumuflevgur Ciunnars Arnar Kristjánssonar lenti efst i þaknctið — hans fimmta rnark i sumar — og Viking- ar höfðu jafnað. Athygli er vert að mörk FH og Vikings voru keimlik og skoruð með stuttu millibili. Vikingar virtust ætla að kalsigla FH. sóttu stift á næstu minútum og Þorvaldur varði vel skalla frá Arnóri Ciuðjohnsen af stuttu færi. FH-ingar höfðu þó ekki ságt sitt sið asta orð — á 22. minútu náðu þeir aftur forustu. Þórir Jónsson. þjálfari FH. tók aukaspyrnu rétt utan vitateigs Víkinga. sendi á kollinn á Ólafi Danivalssyni. sem nikkaði knettinum i netið þrátt fyrir að- gæzlu þeirra Diðriks Ólafssonar og Ró- berts Agnarssonar — honum miklu stærri menn. Laglegt hjá Ólafi — og nú tviefldust FH-ingar. Þcir náðu góðum tökum á lciknum. léku laglega úti á vellinum. virkilega vel, en tókst þó ekki að skapa sér hættuleg marktækifæri. Vikingar virtust á hinn bóginn missa nokkuð móðinn. Þeim tókst ekki að skapa sér marktækifæri og þvi stefndi i sigur FH. sanngjarnan sig- ur. Svo átti þó ekki að verða. örlögin gripu í taumana. Þau eru iðulega grimm liði i fallbaráttu. JanusGuðlaugsson ætl- aði að senda knöttinn aftur til Þorvalds Þórssonar. Bæði var að sending Janusar var slæm. auk þess sem knötturinn skoppaði illilega yfir hönd hans er hann ætlaði að kasta sér á knöttinn. Lárus Guðmundsson. hinn 16 ára nýliði Vik- inga. fylgdi vel eftir og skoraði af miklu harðfylgi þrátt fyrir að varnarmenn reyndu að konta i veg fyrir ntark. 3—3. Vikingar sluppu þvi nteð skrekkinn úr Kaplakrika. FH-ingar þurfa þó ekki að hengja haus. Augljós batamerki eru á liöinu og ntiðjan er sterk nteð þá Janus Guðlaugsson og Þóri Jónsson. Framlin- an helur braggazt ntikið með tilkomu Leifs Helgasonar. Hann hefur nú skorað fjögur mörk og er Ólafi Danivalssyni ntikill styrkur. Ágætur dóntari var Guðntundur Har- aldsson. Hann hafði góð tök á leiknum, yfirferð hans góð og greinilegt að hann vissi hvenær gulu spjöldin skyldu brúk- uð. H.Halls.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.