Dagblaðið - 22.06.1978, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 22.06.1978, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1978. 1 1 ALBERT ÞORIR AD SEGJA MEININGU SÍNA Ellert og Matthías tsta fylgið af S jálfstæðisf lokknum Einar S. J ónsson hringdi: fslenzkir stjórnmálamenn eru sennilega þeir allra mestu þjóðnýting- arblesar sem til eru. Þeir mæna á ríkis- jötuna sem allra meina bót. Það er aðeins einn maður sem hefur þorað að segja meiningu sina og viljað gera úr- bætur sem að gagni mættu koma. Sá maður er Albert Guðmundsson, enda hefur hann verið úthrópaður af and- stæðingum sínum. Þó tekur út yfir allt þegar ráðherra Sjálfstæðis- flokksins sem niðir niður Reykvíkinga fyrir vestan þó þeir vegna góðfnennsku sinnar hafi leyft honum að dveljast sl. 4 ár hér í borg, segir í sjónvarpsviðtali um daginn ásamt pabbadrengnum Schram, að þeir geti svarað fyrir alla þingmenn Sjálfstæðis- flokksins að þeir hefðu ekki greitt at- kvæði með tillöguAlberts um bann við verkföllum. Albert útskýrði hins vegar I sjónvarpsþætti að tillagan hefði ekki gengið út á það að banna verkföll heldur að koma í veg fyrir skemmdar- starfsemí með verkföllum. Það eru svona menn eins og tvímenningarnir Matthías Bjarnason og Ellert Schram sem tæta fylgið af Sjálfstæðisflokknum. Það er aðeins einn maður sem hefur þorað að segja meiningu sina og það er Albert Guðmundsson, segir bréfritari. ER VERIÐ AÐ NOTA VERK AFÓLKIÐ í BÚH SEM VOPN í PÓUTÍSKRIBARÁTTU? Kunnug skrifar: Að undanförnu hefur mál eitt oft borið á góma i fjölmiðlum, en það er verkstjóramálið hjá Bæjarútgerð Hafnarfjarðar. Verkafólkið lagði niður vinnu í upphafi til að mótmæla tilfærslu eftir- litskonu í annað starf, a.m.k. að þvi er sagt var. Komið hefur fram að verk- stjórar hafi ekki verið ánægðir með störf hennar, en hún mun minna hafa fundið að verkum starfsfólksins en tvær aðrar samstarfskonur hennar. Mér er spurn: Til hvers er starf eftir- litsmanna innan frystihúsanna? Er það til þess að bæta gæði fram- leiðslunnar og afköst fólksins, eða er það eingöngu til að komast í mjúkinn hjá starfsfólkinu með því að finna sem minnst að. Annað hefur einnig komið mér spánskt fyrir sjónir, en það er sú tvísaga, sem hefur virzt koma fram annars vegar frá starfsfólkinu, eða nær væri að segja frá formanni verka- lýðsfélagsins, en þar er margtuggið að sambandið milli verkstjóranna og starfsfólksins hafi verið ópersónulegt. Einnig fylgja ýmsar dylgjur um hörku þessarra manna, án þess þó að nokkur einn hafi sagt sína sögu um hörkuaðgerðir verkstjóranna gegn sér persónulega. Þætti eflaust fleirum en mér forvitnilegt að heyra nánar um það frá viðkomandi aðilum hver dauðasynd þessara manna er. Hins vegar eru svo orð fram- kvæmdastjóra BÚH, Guðmundar Ingvasonar, sem segir verkstjórana hafa staðið sig mjög vel og komið i framkvæmd stórkostlegum breytingum til batnaðar. Einhvern veginn finnst mér þetta allt stangast á. Læðzt hefur að mér sá grunur að þarna sé verið að nota verkafólkið i BÚH sem vopn. i pólitískri baráttu innan Hafnarfjarðar og hálf finnst mér þetta ógeðfelldar aðfarir til atkvæðasmölunar, að nota Verkafólk f Bxjarútgerð Hafnarfjarðar ræðir vinnudeiluna. kjaftagang og illmælgi til að eyðileggja gott starf tveggja manna fyrir kannski nokkur atkvæði kosningunum framundan. BJALKINN OG FUSIN 1 einhverju dagblaðanna í Reykja- vík birtist mynd af þeim Guðrúnu Helgadóttur, Guðmundi Þ. Jónssyni og Öddu Báru Sigfúsdóttur eftir að. kosningu lauk til borgarstjórnar Reykjavíkur. Réðu þessir kommúnist- ar sér varla fyrir kæti yfir unnum sigri, sérstaklega Guðmundur Þ„ en öllu alvarlegri svipur var á þeim öddu Báru og Guðrúnu Helgadóttur. Nú hefst vandinn (fyrst), sagði Guðrún Helgadóttir, og hefur þetta sannazt áþreifanlega á siðustu dögum, þegai kommúnistarnir í borgarstjórn fóru að þurfa að standa við kosningaloforð sin. Einhvers staðar í hinni „þykku” bók er dæmisagan um flísina í auga bróðurins og bjálkann i eigin auga. Það datt mér i hug þegar borgarstjórn- armeirihlutinn fór að rífast um fengin völd. Á meðan þessir menn voru i minnihluta sáu þeir aðeins „flísina” í auga meirihlutans en tóku ekki eftir bjálkanum i eigin auga. Allt var „flísinni” að kenna. Það var „flisin” sem ekki vildi bæta launþegum fullar vísitölubætur. Það var „flísin”sem var óvinur þeirra lægst launuðu. Nú hefur borgarstjórnarmeiri- hlutinn tekið við hlutverki „flisarinnar”, en eftir sem áður situr gamli „bjálkinn” rígfastur í meirihlut- anum, svo blýfastur að honuni verður ekki haggað. Það er sitt hvað að finna að öllu og kenna „flísinni” um heldur en þegar kommúnistar þurfa sjálfir að skammta á heimilinu. Það getur nefnilega skammtazt illa upp úr pottinum þegar munnarnir eru margir en kjötið lítið. Það er kannski ekki svo vitlaust að láta nýja menn spreyta sig á skömmtuninni um hríö, en þessi tilraun getur orðið borgarbúum of dýr, því hvar ætlar borgarstjórnar- meirihlutinn að fá það fjármagn sem á vantar til þess að geta staðið við hin digurbarkalegu loforð sín fyrir kosningarnar? Alþýðuflokksmenn, þeir sem kalla sig vinstrimenn, fengu að spreyta sig á stjórn tveggja bæjarfélaga, þ.e. á lsa- firði og í Hafnarfirði, þar sem þessi flokkur réð lögum og lofum um langt árabil. Afleiðingamar urðu þær að ísafjörður nær stóð I stað eftir að krat- ar fengu stjórn bæjarins i hendur og rambaði auk þess sifellt á barmi gjald- þrots. Hafnarfjörður varð í raun og veru gjaldþrota, þegar bæjar- stjórnin tók að greiða vinnulaun með verðlausum „gulum seðlum” sem svo voru kallaðir. Mér datt þetta (svona) í hug. SIGGIflug. 7877-8083. Raddir lesenda Eghef verið blekktur Laxness líka Ég er iðnverkamaður sem allt mitt líf hefi þurft að spara og gæta hvers fengins eyris. Frá því ég fyrst fékk kosningarétt fyrir 46 árum hefi ég ávallt kosið flokkinn sem kallað hefur sig flokk okkar verkalýðsins. — Fyrst kaus ég Kommúnistaflokk Islands, síðan Sósíalistaflokkinn og síðustu árin Alþýðubandalagið. Hvers vegna? Jú, ég trúði því að þeir væru alltaf að berjast fyrir okkur þessa lægst launuðu. Núna siðustu dagana hefi ég komizt að öðru. Þeir vilja ekki bara að við lægst launuðu fáum vísitölubætur heldur ætla þeir að láta t.d. alla „toppana” hjá borginni fá fullar vísitölubætur, það þýðir að þegar við þessir lægst launuðu fáum tiu þúsund krónur aukalega þá eiga þeir hæst launuðu að fá 30 þúsund krónur auka- lega á mánuði. Er þetta launajafnrétt- ið sem talað hefur verið um? Mér finnst sem Alþýðubandalagið sé núna seinni árin orðið floþkur mennta- manna — hálaunamanna þjóðfélagsins — og fyrir þá er flokkurinn sýnilega að berjast, ekki okkur þessa menntasnauðu og fátækari. íg hefi verið blekktur — það var Laxness líka. Hann sá að sér í tíma og afneitaði þessum flokki. Það munu fleiri gera að þessu sinni, og ég er einn af þeim. — Mitt atkvæði fer aldrei oft- ar til Alþýðubandalagsins. Iðnverkamaður. 1920 mannsá fundi herstöðva- andstæðinga Stærðfræðingur hringdi: Talan sem DB birti um fjölda á útifundi herstöðvaandstæðinga á Lækjartorgi er ekki rétt. Ég hef reitað niður myndinrsem blaðið birti og niður- staðan er sú að á fundinum hafi verið 1920manns. Framsóknarkýrin verður leidd til slátrunar Filip W. Franksson skrifan í sjónvarpsumræðum sl. sunnudag komu fram á skjánum mörg kunnug andlit auk nokkurra nýrra. En af öllum þeim andlitsmyndum, sem varpað var yfir alþjóð á siðdegi þessu, var ein sem vakti hvað mesta athygli sökum hreinleika og einlægni. And- litið fór um skerminn á svo miklum kostum og af svo mikilli snilli að önnur eins tungulipurð hel ur vart scst svo lengi sem menn muna. —Ásjónu þessa átti gæðingur nokkur Guðmundur Þórarinsson að nafni, sem býður sig fram til Alþingis íslendinga fyrir „fyrrverandi bænda- flokk", sem kennir sig við framsókn. Ekki var kappanum stirt um tungutak og mælti hann alla sína visku fram blaðalaust og af þvilíkum krafti, að hann mátti hafa sig allan við að halda jafnvægi, enda missti hann það áöur en yfir lauk. Ekki vandaði fram- bjóðandinn Alþýðubandalaginu kveðjurnar, en svo var helst að heyra að Alþýðubandalagið hefði verið eitt við völd í tíð vinstri stjórnar 71—74, en „fyrrverandi bændaflokkur” hafi þá svifið góðglaður skýjum ofar. Hafði gæðingurinn mörg og afar hástemmd orð um hvílíkur óráðsíuflokkur Alþýðubandalagið væri og hefði alltaf verið. Vesalings litli Alþýðuflokkurinn fékk auðvitað sinn skerf, hárbeittan með tilheyrandi hnykk. Og viti menn, i miðjum fúkyrðaflaumnum gat allt í einu að líta visifingur ræðumanns (nánar tiltekið hægri handar), sem hann beindi af mikilli innlifun og einbeitni í átt til áhorfenda, sem vísast hafa orðið dauðskelkaðir, ekki sist er á eftir potinu fylgdi einhver sú mesta skrumskæling sem sést hefur af brosinu hans Óla Jó. Varla var hið bliða bros stirðnað er út vall þvilikt lof um „fyrrverandi bændaflokk” i tið vinstri stjómar, að um annað var vart að ræða en hann heföi verið einn um stjórn landsmála i þá mund, og þvi mættu menn niuna „betri tíð með blóm i haga” er „fyrrverandi bænda- flokkur” réð landi. Er með einsdæm- um hversu frábæru góðyrða- og sann- leikssamræmi frambjóðandinn hélt ræðu sína á enda, og er slíkt á allan hátt til fyrirmyndar. En svo voru góðyrðin frábærlega fram sett, að maður fékk vatn i munninn við tilhugsunina eina um það hversu vel hún myndi bragðast framsóknarkýrin eftir að kjósendur hefðu leitt hana til slátrunar, undir öruggri og góðri leiðsögn Guðmundar Þórarinssonar á sunnudaginn þann næsta. E.S. Það skal hér engum getum að því leitt, hvort áðurnefnt hægrihand- arpot Guðmundar sé táknrænt fyrir duldar hvatir Framsóknar. Borgaraf undur ræði deiluna í BÚH Markús B. Þorgeirsson hringdi: Hann sagði að fjöldi hafnfirzkra launamanna hefði haft samband við sig og beðið sig að koma á framfæri við verkalýðsleiðtoga í Hafnarfirði, i Hlíf og Framtiðinni, áskorun um að haldinn verði almennur borgara- fundur i bænum til að ræða hið alvar- lega ástand sem skapazt hefur í kjölfar vinnudeilunnar í Bæjarútgerð Hafnar- fjarðar. Þessu er hér með komið á framfæri.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.