Dagblaðið - 22.06.1978, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 22.06.1978, Blaðsíða 12
12 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1978. MMBIADW frýálst, úháð dagblað Útgefandi: Dayblaöið hf. Framkvæmdqstjóri: Sveinn R. EyjóMsson. Ritstjóri: Jónas Kristjánsson. Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson. Rrtstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrifstofustjóri ritstjómar Jóhannes Reykdal. íþróttir: Hallur Simonarson. Aöstoöarfréttastjórar: Atli Steinarsson og Ómar Valdimarsson, Handrit: Ásgrimur Pálsson. Blaðamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómasson, Bragi Sigurösson, Dóra Stefónsdóttir, Gissur Sigurðs- son, Guömundur Magnússon, Haliur Hallsson, Helgi Pétursson, Jónas Haraldsson, Ólafur Geirsson, Ólafur Jónsson, Ragnar Lár., Ragnheiöur Kristjánsdóttir. Hönnun: Guðjón H. Pálsson. Ljósmyndir: Ari Kristinsson Ámi Páll Jóhannsson, Bjamleifur Bjamleifsson, Höröur Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurösson, Sveinn Þormóðsson. Skrifstofustjóri: Ólafur EyjóHsson. Gjaldkeri: Þráinn Þorieifsson. Sölustjóri: Ingvar Sveinsson. Dreifing- arstjóri: Már E.M. Hnlldórsson. Ritstjórn Siðumúla 12. Afgreiösla, áskriftadeild, auglýsingar og skrifstofur Þverholti 11. Aöalsimi blaðsins er 27022 (10 linur). Áskrift 2000 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 100 kr. eintakið. Setning og umbrot Dagblaðið hf. Siðumúla 12. Mynda- og plötugerö: Hilmir hf. Siðumúla 12. Prentun: Arvakur hf. Skeifunni 10. Við viljum frið Við viljum fá að vera í friði á kjördegi. Við viljum fá að gera upp hug okkar á þeim degi án aðstoðar stjórn- málaflokkanna. Við viljum, að stjórn- málaflokkarnir Ijúki kosningabaráttu sinni á laugardagskvöldi og láti kjósend- ur alveg í fr:ði á sunnudegi. Slíka mannasiði kunna forustumenn stjórnmálaflokka í mörgum nágrannaland- anna. Við vuium fá að veia i friði fyrir simhringingum á kjördegi. Við teljum okkur ekki þurfa á að halda hamingjuóskum /lokkssnata út af nýfengnum kosninga- rétti. Og við teljum okkur ekki heldur feng í áminningu flokkssnata um að fylgja eftir fyrri þátttöku í prófkjöri. Allra sízt viljum við, að vinum og kunningjum sé beitt fyrir símhringingavélar stjórnmálaflokkanna. Þetta fólk hefur aðgang að annars friðhelgum heimilum okkar af allt öðrum ástæðum en flokkspólitískum. Ef stjórnmála- flokkarnir reyna að notfæra sér þennan aðgang, eru þeir að rjúfa friðhelgi heimilanna. Við skulum einfaldlega hringja í lögregluna, ef við verðum fyrir ónæði í síma eða dyrasíma á kjördegi. Við skulum kvarta um, að viðkomandi kosningaskrifstofa, sem við eigum ekki hið minnsta vantalað við, sé að rjúfa friðhelgi heimilisins. Við viljum einnig fá að vera í friði fyrir stjórnmála- flokkunum á kjörstað. Við viljum ekki, að nöfn okkar séu lesin upp, svo að flokksnjósnarar geti skráð þau í bækur eyrnamerktra flokkssauða. Við viljum ekki einu sinni hafa flokksnjósnarana inni í kjördeildinni, meðan við erum að kjósa. Við teljum það vera brot á mannréttindum okkar, að fjölmennt lið stjórnmálaflokkanna hafi með höndum kjörskrár, þar sem svo að segja hver einasta sál er dregin í pólitíska dilka eins og sauður á réttardegi. Við viljum láta banna slíkar merkingar með lögum. Við tcljum. að stjörnmálaflokkarnir megi hafa menn á kjörstað til að fvlgjast með, aðengin brögð séu höfð í tafli við framkvæmd kosninganna, einkum við meðferð og geymslu kjörkassa og kjörgagna. En við teljum, að þeim komi ekki við, hver kaus hvenær og hver kaus ekki hvenær. Við skulum því krefjast þess af kjörstjórn, að hún láti flokksnjósnara víkja meðan við kjósum. Neiti kjör- stjórn þessu, krefjumst við þess, að kjörstjórn fari með persónuskilriki okkar sem trúnaðarmál og láti njósnara flokkanna ekki vita um innihald þeirra, hvorki meðan við erum í kjördeildinni, né eftir að við erum farin. Ef kjörstjórn neitar annaðhvort að vísa njósnurunum út eða að halda nöfnum okkar leyndum fyrir þeim, skulum við umsvifalaust kæra hana fyrir yfirkjörstjórn. Ef nógu margir taka saman höndum um þetta, endar það með því, að kjósendum tekst að reka njósnarana af höndum sér. Kjarni málsins er sá, að stjórnmálaflokkarnir eru að missa tökin á kjósendum. Hinum hreinu flokkssauðum fer fækkandi. Þetta tækifæri geta kjósendur notað, ef þeir eru nógu ákveðnir. Þeir geta bæði losnað við flokks- njósnarana úr kjördeild og við flokkssnatana úr síman- um á kjördegi. Við viljum ná því marki, að kosningabaráttu stjórn- málaflokkanna ljúki á laugardagskvöldi og að lands- • nenn fái allir að vera í friði á kjördegi. TIL HVERS ERU K0SNINGAR? þetta krafizt sérhæfingar og fag- mennsku. m.a. við stjórn þjóðfélagsins, sem litt hefur samrýmzt almennum atbeina að lausn niála. Nú vilja menn hvorugu hafna ávöxtum.tæknivæðingar né lýðræði. og þá grípa lýðskrumarar til slagorða um forræði fólksins sjálfs yfir fram leiðslutækjunum. þar sem hver og einn sé virkur þátttakandi i ákvarðanatöku og annað eftir þessu. Auðvitaðer lýðskrumurunum Ijóst. að þetta er merkingarleysa og til þess að finna orðum sínum áþreifanlegri stað hafa þeir valið santvinnufélög á sviði margs konar framleiðslu. sem töfra lausn. Er þó harla vandséð. hvernig r Vanþakklátir kjósendur? Varla hefur það farið framhjá neinum. að alþingiskosningar eru i nánd, og allir viðurkenna að réttur til að kjósa teljist til dýrmætustu mannréttinda. Með þvi hefur kjós andinn áhrif á skipun æðstu valda- stofnunar landsins, Alþingis. sem setur þjóðfélaginu lög og ræður rikis- stjórn. En þrátt fyrir þetta getur vart að hitta venjulegan kjósanda. að hann láti sér ekki fremur fátt urn finnast: kosningar skipti i reynd harla litlu ntáli; það sé sama hver fari með stjórn; allt verði að lokum svikið hvort sem er. Hafa slik viðhorf verið höfð til marks um sljórnmálaþreytu. Skrifræði — lýðræði Ástæður þessa leiða eru vafalaust margar: Staglkenndar. kauðalegar og efnisrýrar umræður valda vafalau-.t miklu. alkunnir ágallar fulltrúa- kerfisins. skipulag flokkanna og kosningatilhögun einhverju. en mestu veldur þó efalaust -- að öllum áfellis- dómum slepptum — sá vandi, sem fólginn er í þvi að sætta tæknivæðingu og lýðræði. Góð lífskjör eru ávöxtur framfara i tækni bæði i vélamenningu og við stjórn þjóðfélagsins. Og tæknivæðingunni hefur fylgt skrif- ræði. sern allir kannast við. Allt hefur GERIÐ SAM- TÖKIN STERK — púið á gamla sönginn um vonleysið Nú i kosningaharáttunni hel'ur verið látið að þvi liggja. að atkvæði greidd Samtökununt konti ekki að gagni. Rétl er þvi að rifja upp stutta sögu Samtakannu og geta þeirra áhrifa sent þau hafa haft. Sannökin voru stofnuð 1969. Þau tóku fyrst þátt i kosningunt 1970 og voru það sveitarstjómarkosningar Þá hófst söngurinn unt ónýtu atkvæðin. einkunt og sér i lagi hér i Rcykjavik. En reynslan varð önnur. Steinunn Finnbogadóttir var kjörin horgarfull trúi Santtakanna. Árt siðar var kosið til Alþingis. Þá buðu Santtökin frant i öllunt kjördæmunt utan einu. Og nú var talkór andstæðinga okkar sam hljóma: Öll atkvæði greidd Santtökun um fara til ónýtis. En hvað gerðist? Santtökin fengu 5. ég segi og skrifa 5 þingntenn. Viðrcisnarstjómin. scnt setið hafði að völdunt i 12 ár. féll. Stjórnarandslaðan sent þá var. Alþýðuhandalagið og Frantsókn. hafði rev nt i 12 ár. hafði reynt i tvenn ttnt kosníngunt áður að fella þessa stjórtt. en reynst getulaus. Sanuökin reyndust þess ntegnug með sinunt ..ónýtu" atkvæðum að fella |x'ssa riktsstjórn og gera það kleift að ný Hættulegur leikur Fáir munu netta því. aðrir en þeir sem beinlinis vilja vinna að þvi að koma íslandi úr samfélagi hinna vest- rænu þjóða að rikisstjórn þeirri sem nú hefur larið með völd sl. fjögur ár undir forystu Sjállsiæðisflokksins. hefur tekizt að koma tveimur veiga miklum þáltum i utanrikismálum okkar i höfn. Þessi mál eru landhelgismálið og varnarmálin. Auk þessara ntála hefur þessi rikisstjórn haft það að rnegin- markntiði allt kjörtimabilið að halda uppi fullri atvinnu. og er það eitt sér ærið verkefni. svo nijög sem sótt hefur verið að rikisstjórninni frá óþjóðholl- um öfgaöflum með sjálfskipaöa for- ystu ýmissa verkalýðssamtaka i farar- broddi. Ópnaröld á Islandi ef... Um það þarf engum blöðum að fletta. art ef <Sp»»fa V#*rAlir nfon oA vinstri llokkunum með Alþýðubanda lagið í fararbr<xldi tekst að berja sant an rikisstjóm — og Sjálfstæðisflokkur inn verður utan stjórnar — mun það verða hlutskipti þessarar þjóðar að kynnast slikri ógnarstjóm. sem svo mjög hrjáir þær þjóðir. sem við höfum helzl spurnir af i okkar álfu. Evrópu. og hafa ekkt náð að brjótast undan valdi kommúnista. siðan heimsstyrj öldinni siðari lauk. Enn eru til þeir menn hér á landi. <*»m halda. að slikt geti i raun aldrei

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.