Dagblaðið - 22.06.1978, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1978.
AUGLÝSING
MALA
FLOKKURINN
Þúsundir kjósenda krefjast gjaldtöku
af NATO—x S er þeirra flokkur
Fyrsta tillaga alþingismanna Stjórnmúlaflokksins á þingi,
verður krafa um endurskoðun
á vamarsamningi okkar við NATO
Hinn óttalegi leyndardómur
Sá málaflokkur á stefnuskrá okkar stjórnmálaflokksmanna, sem
hvaö mest angrar forustu gömlu flokkanna, er krafa okkar um
gjaldtöku af herstöðvum Nato hér á landi og tafarlaust afnám
tollverndar og annarra fríðinda þeim til handa. Samstaöa þessara
annars sundurlyndu hópa manna er táknræn. Þeir hafa allir staðið
að stjórn landsins undanfarin tvö kjörtímabil í lengri eða skemmri
tíma og bera því allir sameiginlega ábyrgð á þeirri óstjórn og því
losi, sem nú þjakar íslenska þjóð. Ósamkomulag þeirra, jag og
gífuryrði eru eins og illa gerðir leikþættir, fluttir í þeim tilgangi að
villa um fyrir hinum almenna kjósanda.
Hafa menn tekið eftír þvi að, þessir forustumenn gömlu
floklianna minnast alls ekki á afstöðuna til gjaldtöku af varnarliði
Nato-ríkjanna hér á landi i fjölmiðlum eða á mannfundum? Hver
skyidi ástæðan svo vera? Hún er í fáum orðum sú, að allir hafa þeir
hagnast — á einn eða annan hátt — á veru varnarliðsins hér Á
BAK VIÐ TJÖLDIN. Þeir eru þvi allir samsekir og hafa komið
sér saman um, að ræða ekki þessi mál. Það er höfuðástæðan fyrir
útilokun okkar Stjórnmálaflokksmanna úr fjölmiðlum af ótta við
ört vaxandi fylgi við okkar góða og sjálfsagöa málstað.
Sl. haust skrifaði formaður Stjórnmálaflokksins grein í Dag-
blaðið undir fyrirsögninni „HINN ÓTTALEGI LEYNDAR-
DÓMUR.” Þar var því lýst yfir, aö unnið væri af kappi að því að
upplýsa þá miklu leynd, sem yfir aliri hersetu hér á landi hvíldi.
Segja má, að nú sé þjóð okkar loks að gera sér grein fyrir hinum
óttalega leyndardómi.
Það er nú flestum Ijóst, að til íslensku þjóðarinnar rennur gífur-
legt fé frá varnarstöðvum Nato hér og öll sú leynd sem yfir þeim
viðskiptum hefur hvílt, stafar af því, að þeir sem ríkjum ráða hverju
sinni, vilja einnig ráða í hvaða vasa fjármunirnir renna.
KJOSENDUR!
Refsið gömlu flokkunum fyrir valdníðslu þeirra, fyrir spillingu
þeirra og fyrir úrræða- og getuleysið.
Styðjið nýja menn með ný og fersk stefnumál.
STUÐLIÐ AÐ STERKRI STJÓRN í LANDINU. Kjósið S-
listann.
Reykvíkíngar,
Reyknesingar!
Hnekkjið einokun
gömlu vaidníðslu-
flokkanna, sendið
þessamennáþing.
Sij>urður G. Steinþörsson,
gulismiður.
Steinunn Ólafsdóttir,
uppeldisfrxðingur.
Eirikur Rósberg,
tæknifræðingur.
Kópavogi.
Sveinn Sigurjónsson,
verkamaður,
Keflavik.
Vilborg Gunnarsdóttir,
hósmóðir,
MosfeUssveit.
xS — erykkarlisti STERK STJORN
)