Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 22.06.1978, Qupperneq 14

Dagblaðið - 22.06.1978, Qupperneq 14
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. JÚNl 1978. ----~^ 14 r Er kosningarétturinn svikinn? Nú er kosningar nálgast kemur upp 1 hugum manna spurningin um rétt kjósandans i almennum kosningum. Það er spurningin um hvaða rétt menn hafi í raun og veru til pess að velja og hafna þeim mönnum sem eru i fram- boði. Sumir segja að kosningarétturinn sé nánast helgur réttur einstaklingsins í hinu svokallaða lýðfrjálsa þjóðfélagi, rétturinn til þess að velja einn og jafn- framt hafna öðrum þeim, sem í fram- boðieru hvertsinn. En hver er hinn eiginlegi „réttur” þá í raun og veru? Er hann jafngóður og af er Iátið, eða er hann svikinn og nán- ast nafnið tómt? Þessar spurningar virðast vera óvenju áleitnar nú, ekki síst þar sem fregnir hafa borist af óvenju miklurn útstrikunum í siðustu kosningum, og jafnframt ef höfð eru i huga undan- gengin fjármálaafglöp, en þar ber einna hæst mistökin við Kröflu-virkj- un, sem raunar var í beinu framhaldi af Laxár-mistökunum. Eftir því sem ég hefi komist næst, þá munu verkfræðingar þegar í upp- hafi hafaáætlað að skemmsti hugsan- legi tími til þess að fullgera Kröflu- virkjun, væri um tvö ár til þess að bora eftir gufu, og síðan um tvö ár í viðbót til þess að reisa hús og vélar. Nú er það hinsvegar Ijóst að báðir þessir verk- þættir voru unnir hlið við hlið, sam- tímis, og stöðvarhúsi valinn staður og það reist áður en vitað var hvort gufa væri fáanleg á þeim stað, eða ekki. Að mínu áliti er þetta hin eiginlegu mistök við Kröfluvirkjun, og þessi ákvörðun hlýtur að hafa verið tekin af Kröflu- nefnd, með vitund og samþykki orku- ráðherra. Það er Ijóst af viðtölum við fólk, og af lestri blaða, að fjölmargir eru þeirrar skoðunar, að tími sé til þess kominn að opinberir embættismenn séu látnir bera ábyrgð gerða sinna, ef þeir hlunnfara þjóðina um stórfé með mistökum í starfi. Verði þessir emb- ættismenn, í það minnsta, að sæta ábyrgð gerða sinna með þeim hætti að þeir segi af sér, eða, að þeim sé vísað brott úr starfi af yfirboðurum sínum. Nú ber svo við, að sumir Kröflu- nefndarmanna voru jafnframt þing- menn, og eru þeir, ásamt orkuráð- herra, í framboði á ný í næstu kosning- um. Sumir þeirra tróna þar í efsta sæti Kjallarinn Tryggvi Helgason á sínum lista, og það jafnvel án þessað kjósendur hafi fengið tækifæri til þess að velja þá, eða hafna þeim í prófkosn- ingum. Útstrikanir En þá komum við aftur að upphaf- legu spurningunni, um hinn helga rétt kjósandans til þess að velja og hafna í sjálfum alþingiskosningunum. Sam- kvæmt kosningalögunum þá er mönn- um heimilt að strika út hvaða nafn eða nöfn sem þeir vilja, af þeim lista sem viðkomandi ætlar að kjósa, og mega að auki tölusetja röð hinna eftir eigin geðþótta. Ef til vill finnst einhverjum, að þetta sé nægileg sönnun þess, að kosningarétturinn sé alfullkominn hér á landi. En svo er þó ekki. Lögin kveða svo á um talningu at- kvæða, að fyrsta manni séu gefnir 2/3 af atkvæðinu, jafnvel þótt hinn sami fyrsti maður sé strikaður út af seðlin- um. Þetta þýðir í raun að 2/3 hlutar at- kvæðis hvers kjósanda eru frá honum teknir og fengnir uppstillingarnefnd- um flokkanna til ráðstöfunar. Þetta þýðir einnig, að núna þarf þrisvar sinnum fleiri útstrikanir til þess að gera þá breytingu sem kjósandinn ósk- ar eftir. Miðað við mitt kjördæmi, Norðurland eystra, (6 þingmenn) þá þarf nú 23,1% útstrikanir að lág- marki til þess að koma manni efst á lista niður í annað sæti og 46,2% út- strikun að lágmarki til þess að koma efsta nafninu niður i þriðja sæti. Með óskertum kosningarétti þá eru tilsvar- andi tölur7,7%og 15,4%. Ef við gæturri hugsað okkur að efsti maður á lista í sex manna kjördæmi væri strikaður út 100% (þetta er að vísu einungis tölfræðilegur möguleiki) þá færi sá maður í lengsta lagi niður i 5. sæti. Og þar sem það er hugsanlegt að listinn kæmi inn 5 mönnum, þá er það tölfræðilegur möguleiki, sam- kvæmt núgildandi kosningalögum, að maður í efsta sæti á lista gæti orðið „kosinn” á þing, þótt hann fengi ekki eitteinastaatkvæði. Þessi kosningalög eru fráleit, og tel ég þau vera brot á kosningaréttinum og lýðræðishugsjóninni. Finnst mér að næsta Alþingi ætti að breyta þessum lögum á þann veg, að kjósendur fái aftur óskertan kosninga- rétt, ef við eigum að geta talið okkur búa við vestrænt lýðræði og frelsi. Þá vil ég að lokum beina þeirri ósk til kjörstjórna, að kjósendum verði gerð glögg grein fyrir rétti sinum til að strika út og breyta röð á atkvæðaseðli í komandi alþingiskosningum. Tryggvi Helgason flugmaður. Fylgishrun Magnúsar H. Magnús- sonar í bæjarstjórnarkosningunum í Eyjum er ekki hægt að skýra öðruvisi en persónulegt vantraust á hann. Hefur gert allar vonir hans um að komast á þing að engu. Alþýðuflokk- urinn hefur allstaðar í Suðurlandskjör- dænti tapað fylgi, og áhugi sunnlend- inga á lýðskrumi pabbadrengjanna í Alþýðuflokknum er engn - Sá hat- ramnii áróður alþýðullokKsmanna á bændastéttina fellur ekki saman við skoðanir sunnlendinga á málefnum landbúnaðarins. Menn skulu hafa það hugfast að flestir þéttbýliskjarnar á Suðurlandi byggðust upp í kringunt landbúnaðinn. Selfoss, H.ella, Hvols- völlur og Vík svo eitthvað sé nefnt eru þjónustustaðir fyrir sveitirnar. Þóað frambjáðendur Alþýðuflokks- ins i þeim kjördæmum þar sem land- búnaður er mikill, reyni sjálfsagt að beita lævíslegunt áróðri í kosningabar- áttu sinni til að höfða til bænda og þeirra sem vinna við landbúnaðar- störf, sjá menn vonandi í gegnum þesskonar blekkingar. Það vitum við Það vitum við, sem störfum og bú- um hér á Suðurlandi að ef landbúnað- arins nyti ekki við, þá væri harla lítið að starfa hér og sjálfgefið þá með bú- setu. Nauðsyn er að landbúnaður sé stundaður i sveitum landsins, eins og gert hefur verið i þau ellefu hundruð ár sem þjóðin hefur búið í þessu landi. Nú veit ég að bændur eru það vel gerðir að þeir láta ekki deigan siga. heldur halda þeir áfram að berjast fyrir réttlætismálum sinum og víst er að þeir eiga marga stuðningsmenn. Vandamál landbúnaðarins eru fyrst og fremst afleiðing af stjórnarstefnu sem leitt hefur af sér óðaverðbólgu sem við nú búum við. Mál er að linni. Sunnlendingar sameinumst Atvinnumál Suðurlands eru nú mjög ískyggileg um þessar mundir. Það ætti að vera okkur kappsmál að hlúa að því sem fyrir er. Ein af kröfum okkar hlýtur að vera að fullvinnsla SUÐURLAND landbúnaðarafurða fari fram innan héraðs. Þetta er sameiginlegt hagsmunamál Sláturfélagsins, bænda og allra sunn- lendinga. Sofandaháttur þingmanna okkar er óþolandi. Þeir ættu að leiða þessa baráttu. Margskonar athuganir og áætlanir hafa verið gerðar fyrir Suðurland svo sem Aætlun um þróun þéttbýlis- kjarna á Árborgarsvæðinu. Þar er bent sérstaklega á fiskirækt sem má stórauka á svæðinu, aðstæður allar eru mjög heppilegar. Stórauka mætti svo fiskirækt á svæðinu að hún gæti orðið stór tekjuliður i þjóðarbúskap okkar. Ylrækt er töluvert mikið stunduð á Suðurlandi en margfalda má þessa framleiðslu. Ylrækt matjurta, blóma og græðlinga fyrir blómarækt er sú framleiðslugrein. sem er hvað áhuga- verðust með hliðsjón af aðstæðum á svæðinu. Möguleikinn á lágum orku- kostnaði er fyrir hendi við rekstur á yl- ræktunarstöðvum, sem er meginkost- urinn. Við ættum að leggja mun meiri áherslu á að nýta þennan kost og þá fagþekkingu sem er nú þegar fyrir hendi hér. Sunnlendingar, við höfum óþrjót- andi tækifæri, við þurfum aðeins að standa betur saman að okkar hags- munamálum. Samtökin vilja Að iðnaður sitji við sama borð og aðrir atvinnuvegir hvað varðar að- gang að lánsfé til stofnkostnaðar og rekstrar og njóti hliðstæðra lánakjara ogþeir. Búa skal iðnaðinum rekstrarskilyrði sem skapa honum aðstöðu til að keppa við erlenda framleiðslu. Innlend hráefni. Leggja skal megináherslu á að koma upp nýiðnaði til sem fyllstrar vinnslu á hráefnum sem til falla í landinu sjálfu. Kjallarinn Andrés Sigmundsson Rannsóknir og þróun. Samræma ber og efla starf að rann- sóknum í þágu iðnáðar og tækniþró- unar. Jafnframt skulu sköpuð skilyrði til að uppgötvanir og iðnaðarnýjungar sem verða til í landinu eigi þess kost að hasla sér völl á framleiðslustigi. Engin forréttindi útlendinga. Binda verður enda á þá ósvinnu að erlend stóriðjufyrirtæki fái með und- anþágum frá opinberum gjöldum hag- stæðari skilyrði til stofnunar og rekstr- ar en innlendum iðnaði stendur til boða. Staðan nú Hvað sem allri pólitik líður, þá verður ekki gengið fram hjá því að sá þingmaður Suðurlandskjördæmis, sem hvað best hefur unnið fyrir kjördæmið er Ingólfur Jónsson. Nú þegar hann kveður þá er sunnlendingum mikill vandi á höndum, því þeir þingmenn sem hafa verið að gefa nú aftur kost á sér til kjörs eru allir undantekningar- laust litlir vinnuhestar fyrir kjördæm- ið. Þeir hafa hugsað meir um hag síns eigin flokks en kjördæmisins, saman- ber það að þeir skuli ekki hafa sameig- inlega knúið það fram að brú yfir Ölf- usá við Óseyrarnes kæmist á brúarlög. Þar hefur brú samgöngumálaráðherr- ans haft algeran forgang. Lagning var- anlegs slitlags austur að Vik hefur nær ekkert gengið eftir að sunnlendingar misstu sinn samgöngumálaráðherra. Lögð hefur verið meiri áhersla á Grundartanga og Kröflu. Bíllinn er eina samgöngutækið fyrir Suðurlands- undirlendið og nauðsyn á góðu vega- kerfi augljós. Þjóðvegurinn milli lands og Eyja sem Herjólfur er, kemur ekki að þeim notum eins og flestir vonuðu. Það er mikið öryggi í að hafa slíka samgöngu- bót sem Herjólfur- er, en of há fargjöld koma i veg fyrir það að fólk „skreppi” á milli eins og vonir stóðu til. Lagður var niður sá tollur sem tekinn var af hverjum bil sem fór um Keflavíkur- veginn. Af hverju sitja Vestmannaey- ingar ekki við sama borð? Það er nú eitt sinn svo að „allar leiðir liggja til Reykjavíkur”. — Vit- laust rekstrarfyrirkomulag hefur alla tíð verið á Herjólfi, bæði gamla og nýja. Vestmannaeyingar eiga þá kröfu að fá að keyra eins oft (með Herjólfi) og Selfyssingar eða Keflvíkingar til Reykjavíkur fyrir sama gjald. Er það skoðun ráðamanna að hefna skuli Vestmannaeyingum á þennan hátt (og reyndar margan annan) fyrir það að búa í Eyjum? Sú var tíðin Sú var tíðin, að jafnvægi í byggð landsins voru vinsælustu orðin sem sögð voru í sölum Alþingis. Eftir hinn mikla kosningasigur sem Samtökin unnu 1971, sem gerði þá kleift, að mynduð var vinstri stjórn og hrundið af stóli áratugs gamalli íhaldsstjórn Sjálfstæðis- og Alþýðuflokks, var blað- inu snúið við í byggðamálum. Fólks- flótti úr dreifbýlinu var stöðvaður og kröftug uppbygging hafin. En hvernig er umhorfs nú? Samstjórn Sjálfstæðis- og Fram- sóknarflokks hefur afrekað að koma byggðamálum í sama horf og þegar Viðreisnarstjórnin var við völd. Fram- sóknarflokkurinn hefur verið leiðitam- ur í samstjórn með Sjálfstæðisflokkn- um, og engu er likara en að hann sé farinn að trúa málflutningi gömlu andstæðinga sinna þ.e.a.s. Sjálfstæðis- flokknum. Og stórfurðulegt má það teljast að Framsóknarflokkurinn sem var málsvari bænda og launþega skuli nú vera nær sammála sínum gamla andstæðing. En þetta er talandi dæmi um það hve Framsóknarflokkurinn hefur kúvenst. Þeir uppskera væntan- lega eins og þeir hafa sáð. Stjórnarmyndun eftir kosningar Ef stjórnarflokkarnir tapa ekki verulegu fylgi nú og þar með þingsæt- um þá mun það vera ætlun Geirs og Ólafs að halda áfram stjórnarsam- starfi, þrátt fyrir allar yfirlýsingar um að flokkar þeirra gangi óbundnir til kosninga. Nú hefur það margsinnis komið fram að æðsti draumur Alþýðuflokks- ins er að mynduð verði eftir kosningar ný nýsköpunarstjórn. Alþýðubanda- lagið fýsir í slíka stjórn. En fyrst þurfa þeir að ryðja úr vegi óþægilegum far- artálma þar sem Samtökin eru. Miklar þollaleggingar hafa verið hjá Alþýðu- bandalaginu um myndun nýrrar ný- sköpunarstjórnar t.d., í Rétti. Einar Olgeirsson gaf yfirlýsingu í Alþýðu- blaðinu sem styður þetta. En ef Samtökin koma sterk út úr þessum kosningum þá munu forkólfar Alþýðubandalags og Alþýðuflokks ekki þora að ganga í eina sæng með íhaldinu. Andrés Sigmundsson bakarameistarí, Selfossi. Auglýsing X SJÁLFSTÆÐI GEGN SÓSÍALISMA X'

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.