Dagblaðið - 22.06.1978, Side 16

Dagblaðið - 22.06.1978, Side 16
16 DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1978. Stef num á raunveru- lega verkalýðsstjóm Sennilega er meirihluti islensku þjóðarinnar þeirrar skoðunar að nú- verandi rikisstjórn sé „vond stjórn”. Engu að síður munu núverandi stjórn- arflokkar vafalaust halda meirihluta sínum meðal kjósenda og meirihluta sínum á Alþingi í kosningunum 25. júní. Þeir möguleikar, sem eru á nýrri ríkisstjórn byggjast þess vegna á þeim möguleika að annar, eða báðir, stjórn- arflokkarnir tapi það miklu fylgi, að þeir treysti sér ekki til þess að halda áfram í sams konar ríkisstjóm. Eftir kosningarnar munu forystu- menn stóru flokkanna kanna niður- stöður kosninganna og velta fyrir sér hvaða áhættur varðandi kjörfylgi og pólitískan styrk flokka þeirra fylgi þátttöku í rikisstjórn. Forysta stóru verkalýðsflokkanna, Alþýðubanda- lagsins og Alþýðuflokksins, gerir sér án efa grein fyrir þvi að stór hluti af þeirri atkvæðaaukningu, sem þeir fá, túlkar frekar vaxandi óánægju með þá flokka, sem standa að núverandi ríkis- stjórn, heldur en vaxandi trú á þeim „nýju” leiðum, sem þeir bjóða upp á. Þetta fylgi er „laust”. Þeir gera sér einnig grein fyrir því að sennilega lýkur þeirri efnahagslegu þenslu sem enn varir innan skamms. Þrátt fyrir öll fallegu loforðin þá mundi ríkisstjórn, sem þeir ættu sæti í, ráðast á kjörin eins og viðreisnin og vinstristjórnin gerðu. Þeir gera sér aftur á móti einnig grein fyrir því að kjörtímabil þeirra er fjögur ár. Þótt tvö fyrstu árin yrðu kannski slæm, þá gæti verið að sveifl- ur markaðarins og fiskgengdin gæfi þeim tækifæri til þess að leika „góða stjórn” rétt fyrir kosningar. Þeir gætu talið það áhættunnar virði. Það er Ijóst að enginn af möguleik- unum á ríkisstjórn eftir kosningar er beint fýsilegur — hvorki fyrir verka- fólk né heldur þá flokka, sem gætu tekið þátt í slikri ríkisstjórn. Áfram- hald núverandi ríkisstjórnar, eftir mik- ið atkvæðatap í kosningunum, er ekki girnilegur valkostur fyrir forystu þess- ara flokka, jafnvel þótt þeir haldi meirihluta sinum. Ríkisstjórn annars, eða beggja stóru verkalýðsflokkanna með öðrum kaupránsflokknum er ekki heldur girnileg. Þau atkvæði, sem mótmæltu kjararáninu frá i vor, færu þannig í að halda öðrum kaupráns- flokknum í ríkisstjórn. Virka stjórnarandstöðu Hvorki Alþýðubandalagið né Al- þýðuflokkurinn hafa sett fram í þess- um kosningum neinar þær grundvall- arbreytingar á skipan efnahagsmála, sem gætu gert þeim kleift að uppfylla þau glæstu loforð, sem stefna þeirra í efnahagsmálum lofar verkafólki. Skipulag efnahagslífsins, völd atvinnu- rekenda og markaðarins verða óbreytt. Sú tekjuskipting sem þetta skipulag skapar verður óbreytt. Verka- fólk mun áfram hafa 150—200 þús. kr. á mánuði, eftir þvi hve mikil yfir- vinna býðst, meðan aðrir raka saman milljón á mánuði, auk verðbólgugróða — gjarnan skattfrjálst. Þeir síðar- nefndu munu halda áfram að furða sig Kjallarinn ÁsgeirDaníelsson á skorti á „samstöðu gegn verðbólg- unni” hjá verkafólki, sem berst fyrir kjarabótum. Verðbólgan og skipulags- laus sóun mun halda áfram. Þessi atriði eru innbyggð í það efnahags- kerfi er hér ræður ríkjum. Um leið og „ytri áföll”, eða árangursrík kjara- barátta verkafólks, ógnar tekjum þeirra, sem mest hafa, þá mun sú rikis- stjórn, sem ríkir í þessu efnahagsskipu- lagi gripa til kjararánsaðgerða. Hin leiðin — að breyta efnahágsskipulag- inu — verður alla vega ekki fram- kvæmd af neinni af þeim ríkisstjórn- um, sem til greina koma eftir kosning- ar. Á undanförnum áratugum hefur verkafólk þurft að gjalda þess dýru verði, að stóru verkalýðsflokkamir hafa verið innbyrðis sundraðir og gengið til stjórnarsamstarfs á víxl við flokka atvinnurekenda. Þessi þróun hefur veikt verkalýðshreyfinguna og pólitískan og atkvæðalegan styrk stóru verkalýðsflokkanna. Allt bendir til þess að i næstu kosn- ingum muni stóru verkalýðsflokkarnir vinna verulega á atkvæðalega og ná aftur því atkvæðamagni, sem þeir hafa. mest haft áður. Pólitískur styrkur þeirra mun þó ekki aukast í sama mæli. Tengsl þeirra við verkafólk og möguleikar þeirra til að halda uppi sjálfstæðu starfi innan verkalýðshreyf ingarinnar hafa ekkert aukist. Þeir geta því ekki orðið annað i rikisstjórn en leiksoppur atvinnurekenda og flokka þeirra. Þess vegna er það nauð- synlegt að verkalýðsöflin í stóru verka- lýðsflokkunum berjist fyrir þvi að þeir fari ekki í ríkisstjóm með öðrum kaup- ránsflokknum til að þjóna skamm- tímahagsmunum forystumannanna, heldur snúi sér að því að byggja upp verkalýðshreyfinguna, sem virkt afl og stefni á raunverulega verkalýðsstjórn; stjórn sem getur breytt þessu þjóðfé- lagi þannig að grundvöllur þess sé ekki gróðafikn einstakra fjármálamanna, heldur félagslegur jöfnuður og þarfir verkafólks. Þessi valkostur felur það ekki i sér að við eigum að bíða þolinmóð uns þessi stund rennur upp. Þvert á móti. Með aðgerðum sínum í fyrra sýndi verkalýðshreyfingin hvers hún er megnug, ef samstaða og einhver bar- áttuandi skapast. Þeir ávinningar sem náðust fram voru bæði launahækkanir og pólitískir ávinningar, eins og t.d. skattabreyting. Þessi árangur náðist þrátt fyrir óvinveitta ríkisstjórn. Þetta dæmi sýnir, að verkalýðshreyfingin getur verið öflugt vopn. Það er einnig Ijóst, að án öfiugrar og virkrar verka- lýðshreyfingar verður engin raunveru- leg verkalýðsstjórn mynduð. Framboð R-listans R-listinn, listi Fylkingarinnar, hvetur til uppbyggingar verkalýðs- hreyfingarinnar sem virks stjórnar- andstöðuafls og krefst þess af stóru verkalýðsflokkunum að þeir efli þessa stjórnarandstöðu inni á Alþingi. . R-listinn gefur engin kosningaloforð önnur en þau að beita því afli, sem við höfum yfir að ráða til að efla baráttu verkafólks. Það er einungis slik sjálf- stæð barátta, sem getur bætt kjör verkafólks og aukið þjóðfélagsleg völd þess í dag. Þau atkvæði, sem R-listinn fær verða stuðningsyfirlýsingar við þessa stefnu og viðvörun til þeirra for- ystumanna innan verkalýðshreyfing- arinnar, sem helst af öllu vildu fara í rikisstjóm með öðrum kaupráns- flokknum og stjórna þjóðfélaginu fyrir atvinnurekendur. Ásgeir Daníelsson kennarí. Lög fyrír hvern? Qft hefur verið á það bent að lög séu sett af ráðandi stétt hvers rikis og til verndar hagsmunum hennar. Þessu hefur lika verið mótmælt og þá sagt að í lýðræðisríkinu íslandi hafi allir sama rétt og sé hann verndaður með lögum T.d. ríki hér skoðanafrelsi og málfrelsi . og lögum samkvæmt megí ekki mis muna mönnum eftir litarhætti, kyn þætti, kynferði eða stjórnmálaskoðun um. En hvernig fer ef þessi lög eru brotin? Eru þá einhver lög sem gefa þér kost á að ná rétti þínum? Æ.. þarna stendur hnífurinn í kúnrii. Við eigum ósköp falleg lög um lýðréttindi, en ekki um framkvæmd þeirra. Útvarpsráð brýtur lög Þann 25.5. sl. var boðaður fundur með starfsmönnum sjónvarpsins og fulltrúum þeirra flokka sem bjóða fram við næstu alþingiskosningar. Þar kom i Ijós að lengi var búin að vera starfaridi samstarfsnefnd starfsmanna sjónvarþsins og þingflokkanna tll að undirbúa kösningadágskrá Sjónvarps- ins. Á ftindi þessurti var einnig kynnt kosningadagskrá hljóðvafps og sjön- varps. í henni var þeim flokkum sélVt; búðu fram í I—2' kjbrdæmúm, — y6 listum’an,lVlu-t'kániffl<aðáF,5“7 lf2r mín. hverjum i flokkakynningu i sjón- varpinu og svo ekkert meir. Hins veg- ar fengu þingfiokkarnir 30 min. hver í flokkakynningu og marga klukkutíma i alls konar umræður. Þessari ákvörð- un útvarpsráðs var mótmælt harðlega og varð það til þess að útvarpsráð lengdi tíma nýju framboðanna í 10— 15 mín. öllum lögfróðum mönnum sem ég hef leitað til ber saman um að þessi ákvörðun útvarpsráðs sé brot á 2. og 3. mgr. 3. gr. útvarpslaga, en þar segir svo: „.. .Útvarpsefni skal miða við fjölbreytni íslensks þjóðlífs, svoog við óskir og þarfir minnihluta sem meirihluta. Veita skal alla þá þjónustu sem unnt er með tækni útvarpsins, og almenningi má að gagni koma. Ríkisútvarpið skal i öllu starfi halda i heiðri lýðræðislegar grundvallarregl- ur. Það skal virða tjáningarfrelsi og gæta fyllstu óhlutdrægni gagnvart öll- um flokkum og stefnum í opinberum málum, stofnunum, félögum og ein- staklingum” Þáttur Ólafs Ragnars Grímssonar Fyrir kosningarnar 1974 viðhafði útvarpsráð svipuð vinnubrögð og nú. Skulu hér birtar tilvitnanir úr fundar- gerð útvarpsráðs, er sýna hvernig mál- in þróuðust þar: ,-,2098. fundur út- varpsráðs, mánudaginn 27. maí 1974 ... Skýrt var frá viðræðum fram- kvæmdastjóra og dagskrárstjóra hljóðvarps og sjónvarps, við fulltrúa stjórnmálafiokkanna um kosningaút- varp fyrir alþingiskosningar. Var niðurstaða þeirra sú, að nokkur sam- staða virtist um eftirfarandi: 11 Flokkakytmm..^rði nieð syirttAqi ’ um hætti og sTðaSl,’ éfe 'úm’ÍÖ mín. I' sjónvarpi fyrir hvern flokk, sem býður fram í einueða fleiri kjördæmum.” „20^9. fundur útvarpsráðs fimmtu- daginn30. maí 1974. a. Stjórnmálaumræður vegna al- þingiskosninganna. b. Samþykkt flokkakynning I sjón- varpi. Flokkar sem bjóða fram í öllum kjördæmum fá 30 mín. til umráða. Ólafur Ragnar Grímsson lagði til að þeir flokkar sem bjóða fram i færri kjördæmum skuli fá 10 mín.til um- ráða, var það fellt með 3:4 atkvæðum. Samþykkt var að veita þessum flokk- um 15 mín. með 5 atkvæðum sam- hljóða.” „2100. fundur útvarpsráðs, fimmtu- daginn 6. júni 1974. Þá kynnti formaður tvö bréf frá Fylkingunni baráttusamtökum sósíal- ista og frá frambjóðendum Lýðræðis- flokksins í Reykjavík þar sem mót- mælt er þeirri ákvörðun að mismuna fiokkum þátttöku í stjórnmálaum- ræðum. Leo Löve lýsti samúð sinni með smærri fiokkum og taldi þá órétti beitta í þessum efnum. Þó væri erfitt að breyta þessu, þarsem stutt væri til stefnu. Útvarpsráö sá ekki ástæðu til að endurskoða fyrri ákvarðanir.” 1 vél- ritaðri fundargerð er strikað yfir eftir- farandi I ummælum Leós: „þá órétti beitta í þessum efnum. Þó væri”. Þetta er mikilvæg breyting á merkingu orða Leós. Ekki veit ég hvérnig þessi út- strikun er til komin, en með henni 1 var fundargerðin lögð fram sem mál- skjal í máli sem Kohimúnistasamtökirt (KSML) höfðuðú gegn útvarpsráði í : júni 1974. Auðvitað gat útvárpSráð illa variðsitttnál'fýrirdómí,1 fneð þéim bókuðu umriiælum að vissuíégá væíL' hér -verið áð fréritjá’'óVéttléétiÚén'þöö '1 nenriti bara'eitgiFirt'að géríá^rteiít'4'ÞVí!'111 Það vekúr’líká ktHýgli' á&’hinn sami Ólafur Ragnar Grímsson og beitti sér fyrir skerðingu á málfrelsi 1974 var mættur sem fulltrúi Alþýðubandalags- ins á áðurnefndum fundi í sjónvarpi og beitti sér þar manna harðast gegn því að tími nýju framboðslistanna yrði lengdur um eina minútu, hvað þá meira. Ólafur Ragnar beitir sér líka gegn því innan Alþýðubandalagsins að á nokkurn hátt verði komið til móts við kröfur róttækara fólks. Alþýðu- bandalagið biðlar enda stöðugt til hægri, en við baráttufúst fólk er sagt: kjósið okkur helvítin ykkar og hættið að gagnrýna Alþýðubandalagið, ann- ars eruð þið svikarar við verkalýðs- völdin og nýja þingmanninn okkar. En nýi þingmaðurinn á einmitt að verða Ólafur Ragnar. Réttlætis leitað Þegar útvarpsráð takmarkaði ræðu- tíma smærri framboða við 15 mín. fyrir alþingiskosningarnar ’74 reyndu KSML að leita réttar síns hjá dómstól- um. Lögfræðingur samtakanna fietti i lagaskruddum og komst að þeirri niðurstöðu að aðeins væri um tvær leiðir að ræða sem væru nógu fijót- virkar til að dómur gæti fallið áður en kosningar færu fram. Var valin sú leið að krefjast lögbanns á þá þætti þar sem KSML fengu ekki að koma fram til jafns við önnur samtök. í dómi borgarfógeta segir svo: „ .. .1 lög- bannsmáli þessu verður ekki lagður á það neinn dómur hvort rétt var að neita Kommúnistasamtökunum marx- istunum-lenínistunum um kynningar- tima til jafns við sum önnur stjórn- málasamtök, sém bjóða fram við al: ' þingiskosningarnar. Eri þó segja mætti að samtök þessi séu að'einhverju van: haldin af útyárpsráði í þessu éfni, leiðir engan vegin.ri af þvi að 'þau éigi rétt til að kynriiri^a.r annarra stjófn- málasamtaka skúíi falla niður. Þegar af þessarf ásfæðu þýkír ekki rétt að taká iögbánnsbeiðni þessa til greina.” Sem sagt hvort sem lög hafa veriö brotin eða ekki, þá er þessi leið ekki fær til að ná rétti sírium. Nú i ár reyndi Kommúnistaflokkurinn aðra leið til að ná lagalegum rétti sínum. Þess var freistað að krefjast inn- setningar, þ.e. að fá sig dæmdan inn i dagskrá sjónvarpsins. En.... því miður, það er ekki hægt að dæma lögbrjóta til að fara að lögum! Þessi leið var því heldur ekki fær og fallið var frá að reyna hana Hvað er þá til ráða þegar útvarpsráð brýtur lög? Hvernig er hægt að koma Kjallarinn Soffía Sigurðardóttir lögum yfir slíka lögbrjóta? Eitt er vlst að ekki er til nein nógu skjótvirk leið til þess að ná rétti sínum á þeim tima sem líður frá þvi útvarpsráð tekur ákvörðun sína um tilhögun kosninga- dagskrár og tit þess tima er kosningar fara fram. Þéss rtiá íilta get^ að jafnvel þótt einriver cíórríur Héfði fáúið riú, hefði honum liklega verið áfrýjað og máiíð síðan tekið fýrir aftur i haúst þegar dömstólarnir koma úr sumarfrii. En Kommúnistaflokkuririri ætlar ekki að láta við svo búið sitja og lögspek- ingar leitá nú ráða til að kæra útvárps- ráð. Slik málaferli múnu efiaust taítá nokkur ár og fara alla leið fyrir Hæsta- rétt. Óvist er einu sinni hvort þeim verður lokið fyrir næstu kosningar. Þessi málaferli munu verða söguleg. Annaðhvort verður útvarpsráð i fyrsta skipti dæmt fyrir lögbrot, eða dómkerfið mun afhjúpast og lögin um lýðréttindin sömuleiðis. Oft hefur verið á það bent að lög séu sett af ráðandi stétt hvers rikis og til verndar hagsmunum hennar. Soffia Sigurðardóttir starfsmaður.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.