Dagblaðið - 22.06.1978, Page 17
17
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. JÚNl 1978.
V
Eru þetta þínir menn?
Samkvæmt leikreglum lýöræðisins
eiga allir að hafa sama rétt til að tjá
hugsanir sinar og skoðanir á
opinberum vettvangi, m.a. í
fjölmiðlum þeim er áhrifamestir eru
og við eigum sameiginlega t.d.
sjónvarpið. Þcir aðilar er nú sitja
Alþingi skipa þær nefndir og ráð er
ákvaða hvernig skuli standa að
kosningasjónvarpinu nú fyrir komandi
alþingiskosningar, hverjir skuli fá að
tala og hverjir eiga að þegja.
Þessir höfðingjar gengu þannig frá
málunum að þessu sinni að eingöngu
þeir sem nú þegar eiga fulltrúa á
Alþingi öðlast þann dýrmæta mögu-
leika að láta Ijós sitt skina á þessum
vettvangi.
Við fáum ekki að taka þátt i hring-
borðsumræðum formanna flokkanna,
þrátt fyrir að við uppfyllum öll þau
skilyrði sem þar að lúta, utan það eitt
að bjóða fram i öllum kjördæmum.
Við viljum vekja athygli á því að við
bjóðum þó fram í þeim tveimur
kjördæmum er innihalda meir en
helming allra kjósenda á landinu.
Fyrst þarf að mismuna okkur væri
rétt að það væri þá í hlutfalli við ibúa-
fjölda, t.d. að við fengjum almennt
helmingi styttri tima, eða fengjum að
svara helmingi færri spurningum.en
að útiloka okkur frá þátttöku er vald-
niðsla af grófasta tagi, algjör fyrir-
litning á þeim mannréttindum er við
státum okkur af. Það er koniin einhver
Morgunblaðs/Rússalykt af þessu.
Þá er rétt að vekja athygli á þvi, að
þingflokkarnir stóðu að þessu allir sem
einn, jafnt vinstri og hægri. þar áttu
hvorki við né aðrir nýir framboðs-
aðilar málsvara.
Okkur stendur ekki til boða að segja
einu sinni lokaorð i sjónvarpsal, þrátt
fyrir að við erum jú í framboði eins og
fleiri og við héldum á jafnréttisgrund-
velli. Við fáum ekki að sitja fyrir
svörum í sjónvarpssal til þess að
almenningur geti kynnst málstaö
okkar, valið hann eða hafnað.
Hvarer lýðræðið?
Meira að segja er samstaða þessara
lítilmenna slík gegn okkar tlokki og
öðrum nýjum framboðum að jafnvel
Morgunblaðið' „blað allra lands-
manna" óháð öllum flokkum að eigin
sögn, neitaði Stjórnmálaflokknum um
birtingu auglýsingar þar sem flokkur
okkar var nefndur á nafn og listabók-
stafurinn S.
Lesandi góður. ég legg fyrir þig
samviskuspurningar: Á hvaða \illi
götum er málfrelsið og ritfrelsið og
hverjir standa að þessu gerræði? Lru
þetta þinir menn?
Dagblaðið á heiður skilið fyrir að
starfa frjálst og óháð.
Sigurður G. Steinþórsson
gullsmiður.
Kjallarinn
SigurðurG.
Steinþórsson
Heimssögulegt bréf frá
Alþýðubandalaginu
Á dögunum barst mér merkilegt
bréf. Það var fjölritað og sendandinn
var kosningskrifstofa Alþýðubanda-
lagsins i Reykjavik. Það þykir kannski
ekki tiðindum sæta, að slíkar sending-
ar berist manni þegar kosningar
standa fyrir dyrum, jafnt þótt úthafið
skilji mann frá kjörkössunum.
En hitt er harla merkilegt sem I
bréfinu stendur og stilað er til allra ís-
lendingaerlendis.
Þar er hvergi vikið svo mikið
sem einu orði að atefnumálum og
fyrirætlunum Alþýðubandalagsins.
Viðtakanda bréfsins er einungis
tilkynnt að Alþýðubandalagið hafi
unnið kosningasigur i sveita. og bæjar-
stjórnarkosningunum og þess krafist
að hann styðji flokkinn til frekari sigra
í alþingiskosningunum. Þessi krafa er
studd bæði gylltum loforðum og lang-
sóttum hótunum. Viðtakanda bréfsins
er umbúðalaust tilkynnt að atkvæði
hans valdi slíkum og þvílíkum tima-
mótum i tslandssögunni, aö ríkisvaldi
borgarastéttarinnar verði velt úr sessi
og alræði verkalýðsstéttarinnar stofn-
sett.
Ég geri mér i hugarlund að þá sem
þetta bréf hafi fengið, hafi sett hljóða
við þessi ógnvænlegu tiðindi. Manni
rennur kalt vatn milli skinns og
hörunds við þá tilhugsun að bera
ábyrgð á þvilíkri umbyltingu aleinn!
öðrum þræði er þetta loforð og mun
áður hafa verið lofað minna. Tak
kúlupenna þinn og skrifa G — og sjá,
öllu arðráni mun hætt verða, hlekkir
launaþrældómsins munu falla brotnir
til jarðar og sósialiskt lýðveldi stíga
upp eins og tibrá á sumardegi. Á hinn
bóginn er þetta hó.tun. Ef þú kýst
Kommúnistaflokkinn eða önnur smá-
framboð berðu einn alla ábyrgð á
áframhaldandi ógæfu hins vinnandi
fjölda. Þá ertu sá sem forsmáðir
dýrðarriki Alþýðubandalags-
sósialismans, þegar það var i dögun.
Og mér þykir liklegt að viðtakendur
þessa heimssögulega bréfs staldri við
og skoði hug sinn itarlega áður en þeir
taka svo örlagaþrungna ákvörðun.
Þeir munu kalla fram I huga sér ímynd
þeirrar umbyltingar sem vera mun ef
þeir velja að steypa auðvaldinu af
stóli. i huganum munu þeir fylgjast
með sneyptum en hlýðnum
auðjöfrum. þar sem þeir tiria saman
persónulega muni sina af palesanders-
skrifborðunum, sem nú væru i rikis-
eign og troða þeim ofan í svartar
skjalatöskurnar. Meðan þeir lita
saknaðaraugum yfir auð og tómleg
hásæti sín i síðasta skipti og ganga hin
þungu skref út í almenninginn,
stendur hinn nýi valdhafi við dyra-
stafinn með Þjóðviljann í höndum,
þar sem kosningaúrslitin eru gjörð
heyrum kunn, því til sönnunar að
verkalýðsstéttin sé hinn rétti valdhafi.
Niðri við höfn eru eyrarkarlarnir á
fundi. Þeir eru nýbúnir að kveðja Ótt-
ar Möller og bjóða honum vinnu við
hlið sér og hlýöa með athygli á rétt-
kjörinn formann verkamannaráðsinsá
höfninni, sem tekur sæti Óttars á sama
kaupi og hinir. Fyrsta verkefnið er að
koma aftur á kaffitímanum, sem
Alþýðubandalagið og Eimskipafélags-
stjórnin afnámu fyrir daga sósialism-
ans.
Bændur i Flóanum hafa myndað
með sér fyrstasamyrkjubúiðog álverið
i Straumsvik hefur verið þjóðnýtt og
sett undir stjórn verkalýðsins. Niðri á
skattstofu er mikiö um aó \era. tekju-
skatturinn hefur verið afnuminn eins
og i öðrum sósialiskum ríkjum.
Flokksráð Sjálfstæðisflokksins er lika
á fundi og leggur á ráðin um að koma
aftur á kapitalisma. með því að vinna
þetta örlagaþrungna atkvæði til baka
meðeinhverju móti.
Auðsveipið ís-
lenskt auðvald?
Og manni verður hugsað til alþýðu
Rússlands, sem glataði hundruð
þúsunda mannslífa i blóöugum
hildum sem spönnuðu marga ára-
tugi, áður en henni tókst að hrinda af
sér oki rússneska keisaraveldisins og
stórrússneska auðvaldsins. Og stóð
bláfátæk og illa vopnuð frammi fyrir
gapandi byssukjöftum 14 auðvalds-
rikja i 5 ár, áður en umheimurinn
neyddist til að samþykkja sósialiska
byltingu hennar. Þvi kaus hún ekki
heldur sósíalismann?
Milljónir kinverja lögðu líf sitt i
sölurnar i hálfrar aldar umbrotum
stríðs og byltingar til þess að verða
herrar heimalands sins og brjóta ógn-
arveldi erlendrar heimsvaldastefnu og
innlendra mandarina á bak aftur. Því
skyldu þeir ekki hafa kosið sósialisma
yfirsig?
Eða allir þeir alþýðusynir. sem
fórnuðu lifi sinu á Spáni. i Vietnam
eða i Hitlers-Þýskalandi. Hvers vegna
létu þeir ógert að-Jýósa sósialismann?
Það skyldi þó aldreivira að islenska
auðvaldið sé svo auðsveipið og
löghlýðið, að það liði stéttar-
féndum sinum þá dul. að svipta sig
öllum völdum og það i helgasta véi
sinu — sjálfu Alþingi? Eða að
heimsauðvaldið sýndi alveg sérstakt
afskiptaleysi gagnvart NATO-landinu
Islandi?
Þessar og þvilikar spurningar munu
eflaust leita á hug þeirra v m
fjölrit Alþýðubandalagsins ofan í póti-
kassana sína að morgni dags i júni.
Viðtakendum bréfsins hlýtur lika að
verða hugsað til þess. að hinar miklu
sósialisku byltingar 20. aldarinnar
skópu óviöjafnanlega foringja eins og
Lenín og Stalín i Sovétrikjunum og
Maó og Chou En-lai i Kína. Og maður
byrjar að svipast um eftir íslenskum
jafningjum þeirra í forystuhjörð
Alþýðubandalagsins. Það er mikil
Kjallarinn
Kristján Guðlaugsson
hersing og frið. Utgcrðarmenn.
prófessorar. rithöfundar og blýants-
nagarar að ógleymdum alþýðu-
foringjunum Guðmundi J. og Eðvarð.
Hvar i veröldinni skyldi vcrkalýðurinn
eiga á aðskipa sliku forystuliöi?
Hver er sósíalismi
Alþýðubanda-
lagsins?
Þvi næst 'ilýtur þeirri voðalegu
grunsemd að Ijósta niður i huga
viðtakcndanna. að kennimeistarar
Alþýðubandalagsins hal'i 'kriöið þeim
megin hryggjar. sem allir borgaralegir
andstæðingar kommúnismans hafa
haldið sig — allt frá dögum Napóleons
3. fram á vora daga. Sú efasemd hlýtur
að vakna. að sósíalismi Alþýðubanda-
lagsins sé ekkert nema orðin tóm. eins
konar tilgangslaust hismi. utan um
úldinn og visnaðan kjarna. Hvað felst
eiginlega i þessum sósialisma er Al-
þýðubandalagsforystan ætlar aö koma
á með tilstyrk atkvæðanna? Hvernig
vcrður umhorfs á Íslandi. cftir að
timamótasigur Alþýðubandalagsins er
kominn i höfn? Skyldi yfirlýstum
stuðningsmönnum heimsvaldastefn-
unnar og verjendum þjóðarmoröa i
Suður Afriku. Chile og Eritreu verða
meinað að reka áróður fyrir hugsjón-
um sinum i rikisútvarpi islenskrar al-
þýðu? Ætli Vinnuveitendasambandið
verði lagt niður þegar verkalýðsstéttin
veltir ríkisstjórn eignastéttarinnar úr
sessi? Verður Island sagt úr NATO og
bandariski herinn rekinn burt. tafar-
laust og án umbúða? Hætta stærstu
fyrirtækin að vera skattfrjáls? Verður
álverið i Straumsvik þjóðnýtt? Skyldi
verkafólk kjósa stjórnir atvinnufyrir-
tækjanna úr eigin röðum og á lýðræð-
islegan hátt?
Einhvern veginn læðist sá grunur
að manni. að ekkert af þessu verði.
jafnvel þótt Alþýðubandalagið fengi
alla 60 þingmennina kjörna. En það
verða breytingar. um það er engum
blöðum að fletta. Það verða stofnuð
ný embætti hjá ráðuneytunum
Tryggingastotnuninri og rikisnefnd
irnar fá fleiri fulltrúa Þeir sem skipa
þessiembæti1 \erða mklakiir háskóla
borgarar. sem gengu i Alþtðubanda-
lagið á stúder.tsárum sinum ■>:: hafa
ekki tima til að biða þess að ihalds-
mennimir eða kratarnir sem sitja i
þessunt stofnunum og nefndum í dag
hrökkvi upp af eða láti af störfum fyrir
elli sakir. Og það verður komið á
islenskri atvinnustefnu með auknum
lánum til atvinnurekenda og auknum
ívilnunum rikisbankanna til gjald
þrota eignamanna. I utanrikismálum
verður stefnan i austur. Stóraukin
viðskipti við Sovétrikin. Vináttuheim-
sóknum sovéskra vísindaskipa fjölgar
uns þeir fá hér fasta aðstöðu,
heilsuferðum Alþýðubandalags-
foringjanna á Krimskagann fjölgar
lika (vonandi fá þeir líka fasta aðstöðu
þar). lnnan verkalýðshreyfingarinnar
verður því lýst yfir, að nú sitji sósialisk
stjórn við völd og vinnudeilur séu
bannaðar. Samið verður til 4 ára til að
tryggja vinnufriðinn, samtímis þvi að
visitalan verður tekin aftur úr sam-
bandi og gengið margfellt.
Þessi lýsing er ekki gripin úr lausu
lofti. Hún á sér fyrirmynd í starfi og
stefnu Alþýðubandalagsins meðan
það hefur setið i stjórn. Og þótt hún sé
harkalegur dómur yfir sósialisma
Alþýðubandalagsins. er hún hundrað-
falt sannari en loforð Alþýðubanda-
lagsins um að eignastéttinni verði velt
úr sessi þann 25. júni, með stuðningi
við G-listann. Alþýðubandalags-
forystan hefur sakað Sjálfstæðis-
flokkinn um að tala við kjósendur eins
og þeir hugsi ekki. En hvað á að segja
um þetta bréf Alþýðubandalagsins?
Er það bjóðandi hugsandi mönnum?
Eða sækir Alþýðubandalagið stuðning
til þeirra sem hugsa ekki.
Sérhverjum hugsandi manni má
vera það Ijóst að þingkosningarnar
skapa engan sósialisma. Það er verk
verkalýðsstéttarinnar sjálfrar. Og þótt
henni sé mikill stuðningur að
skeleggum talsmönnum á þingi. skiptir
það ekki sköpum. Kommúniskir þing-
menn geta stutt byltingarbaráttu
verkalýðsins á margvislegan hátt, en
þeireruekkibyltingin.
Ekki sósíalistar
Þeir sem rugla þessu tvennu saman
á jafn vonlausan hátt og áróðursmeist-
arar Alþýðubandalagsins. eru ekki
sósíalistar. hvað svo sem þeir kalla sig.
Þegar slikir menn taka sér orð eins og
„sósialismi” eða „verkalýðsbylting” i
munn, er það einvörðungu gert til þess
að njóta góðs af þeim stuðningi og
samúð. sem sósialisminn á meðal hins
vinnandi fjölda.
Þetta makalausa fjölrit Alþýðu
bandalagsins hlýtur að vekja sérhvern
þann sem sér það, til umhugsunar um
þýðingu sósíaliskrar haráttu. Þ:ið
hlýtur að verða til þess að opna augu
allra hugsandi manna fyrir því. að
Alþýðubandalagið berst i raun og verti
ekki fyrir sósíalisma. heldur fyrir
traustri aðstöðu skjólstæðinga sinna i
rikisbákni auðvaldsins.
Og það hlýtur þar af leiðandi lika að
hvetja lesandann til að beina augum
sinum i aðrar áttir — hangað sem
kosningastarfið er aðeins hluti af al
hliða baráttu verkaiyósstetiarinnar. cn
ekki þungamiðjan og markmiðiö i
sjálfu sér.
Þeir sem lesa þetta bréf, verða aö
opna augun fyrir þeirri staðreynd að
Alþýðubandalagið mun aldrei koma a
sósialisma, hversu öflugt sem það
verður á þingi. Vilji menn styðja bar
áttuna fyrir sósialisma á íslandi.
verða þeir að hætta stuðningi sinum
við Alþýðubandalagið og styðja
Kommúnistaflokkinn. ekki aðeins i
kosningum heldur fyrst og fremst i
baráttunni utan þingsins. Baráttan
fyrir sósialisku íslandi er fólgin í þ\i.
að verkalýðsstéttin skipuleggi baráttu
sina á öllum sviðum. faglega jafnt sem
pólitiskt. Nái frambjóðandi Kommún-
istaflokksins kjöri. verður verkefni
hans fyrst og fremst að tala niáli stétt-
arinnar, styðja baráttu hennar utan
þingsins — en ekki að falast eftir feit
um embættum i samkrulli við ihald og
framsókn.
Ólafur Ragnar
Framboð Kommúnistaflokksins
nýtur ekki jafns réttar i ríkisfjölmiðl-
um i umræðunum fyrir kosningarnar.
Til þess sjá fulltrúar auðsins i útvarps-
ráði — og fyrst og fremst fulltrúi Al-
þýðubandalagsins. Ólafur Ragnar
Grímsson. Sá hinn sami og keypti sig
inn á framboðslista Alþýðubandalags-
ins i Reykjavik. fram fyrir fólk sem ár-
um saman hefur starfað fyrir flokkinn.
Þarna er sósialismi Alþýðubandalags-
ins kominn i hnotskurn.
Framboð Kommúnistaflokksins er
„smáframboð" sem Alþýðubandalag-
ið varar sérstaklega við. Ekki lalla at
kvæði K listans á ihaldið. Hvers vegna
varar Alþýðubandalagið þá við hon-
um? Vegna þess að það minnkar vonir
þess um að geta komist i ráðherrastól
ana. Þetta er beinn og opinn áróður
gegn vinstriþróuninni meðal verka-
lýðsins og sist af öllu skylt við sósial-
isma. Væri Alþýðubandalagsforystan
sósíalistar. myndi hún fagna þing-
manni Kommúnistaflokksins — þó
ekki væri nema með bandamanni i
baráttunni gegn NATO og hernum.
En húnóttast hann.
Ég hvet alla þá sem þessar linur lesa
og sem raunverulega vilja efla barátt-
una fyrir sósíalisku þjóðskipulagi á Is-
landi að styðja Kommúnistallokkinn i
Alþingiskosningunum og i starfi hans i
heild.
Kommúnistaflokkurinn smiðar
engin loforð fyrir kosningarnar —
hann heitir á verkafólk aö l'ylgja sér til
baráttu fyrir ríkisvaldi verkalýðsins á
íslandi. að skapa öfluga fjöldahreyf-
ingu gegn kjararánsherferð auðvalds-
ins, gegn stéttasamvinnu i verkalýðs-
hreyfingunni, gegn aðild Islands að
NATO og veru bandariska hersins
hérlendis og gegn vaxandi striðsógn-
unum risaveldanna i austri og vestri.
Að kjósa K listann er að kjósa bar-
áttuna.
Kristján Guðlaugsson
Lundi, Svíþjóð.