Dagblaðið - 22.06.1978, Síða 18
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. JÚNÍ 1978.
Rétt beiting
atkvæðaseðilsins
18
Sjónleikurinn „kosningaloforð” er
leikinn dátt frammi fyrir landslýð um
þessar mundir. Efnisþráðurinn er,
þrátt fyrir mismunandi utgáfur, „ef
nógu margir kjósa vorn flokk, þá mun
vænkast hagur launafólksins, og þó
einkum láglaunafólksins”. Þegar
kemur að spurningunni, hvernig þetta
á að geta þróast upp úr krossi á réttum
stað, verður allt óljósara. svo ekki sé
nú dýpra tekið í árinni.
Stjórnarandstöðuflokkarnir Al-
þýðubandalag og Alþýðuflokkur vilja
komast i nýja stjórn, en segja minna
um hvers konar stjórn, vilja ekki einu
sinni gefa upp með hverjum þeir helst
vilja vera í slíkri stjórn.
Það er útilokað í stuttri blaðagrein
að gegnumlýsa alia þessa umræðu.
Eitt er þó augljóst. Þau átök, sem nú
ber mest á í sjónvarpi og blöðum eru í
reynd innri átök islenskrar borgara-
stéttar, eða nánar tiltekið innbyrðis
átök um það eftirsótta hlutverk að fá
að stjórna þjóðfélaginu í þágu auð-
valdsstéttarinnar. Leiðtogarnir dilla
sér framan í launafólkið til að fá
stuðning þess i þessari baráttu sinni.
Það sem verra er, kjarabaráttu verka-
fólks er fórnað fyrir þetta valdatafl.
Kjarabarátt-
unni f órnað
í krafti eigin samtakamáttar knúðu
ASÍ og BSRB fram kjarasamninga sl.
sumar og haust, sem voru mikill sigur.
miðað við ástand verkalýðshreyfingar-
innar. Þessi sigur var ekki sist að
þakka eflingu vinstriandstöðuhóps i
verkalýðssamtökunum fyrir og á síð-
asta ASÍ-þingi. Fylkingin og ýmsir
aðrir af þessum vinstri öflum vöruðu
ákaft við þvi, að rikisstjórnin mundi
rjúfa þessa samninga með lagaboði,
þegar henni mundi best henta. Við
lögðum áherslu á, að samtökin yrðu
að búa sig undir að brjóta slíkt vænt-
anlegt lagaboð á bak aftur með alls-
herjaraðgerð strax. Við höfðum bara
ekki nægilegt afl til að koma slíku i
kring. Samtök launafólks undirbjuggu
sig því ekki. Frá kjaraskerðingu hafa
öll viðbrögð verkalýðssamtakanna
verið veikluleg, og ekkert reynt til að
virkja heildarstyrk hreyfingarinnar til
samstilltsátaks.
Ef menn halda, að hér hafi verið
staðið að verki af aulaskap eða fá-
visku, þá er það misskilningur. Þetta
var unnið samkvæmt áætlun Alþýðu-
bandalags og Alþýðuflokksforingj-
anna í verkalýðssamtökunum. Áætl-
unin var sú að halda málinu rétt vak-
andi til þess aðgeta nýtt óánægjuna til
fullnustu í kosningum undir kjörorð-
inu „hin eina raunhæfa kjarabarátta
nú fer fram við kjörkassana”. Það er
líka miklu betra að kjarabætur séu
ekki framkvæmdar fyrr en eftir að
maður kemst í stjórn, því þá getur
maður þakkað henni það, ef nauðsyn-
lega þarf að gefa eftir fyrir launafólki.
En eftir kosningar
En hvað skeður eftir kosningar? Sitji
sama stjórn áfram verða allar að-
stæður til að knýja hana til að láta af
hendi aftur eitthvað af ránsfengnum
miklu verri en fyrir kosningar. Verði
mynduð önnur stjórn, er hinn raun-
hæfi möguleiki augljóslega samsteypu-
stjórn verkalýðsflokkanna með Íhaldi
(sem virðist líklegra) eða með Fram-
sókn. Ákvörðun nokkurra bæjarfélaga
um að borga i „áföngum" samkvæmt
gerðum kjarasamningum á að gefa
smjörþefinn af því, hvað kynni að
verða uppi á teningnum ef vinstri
stjórn yrði mynduð. En sannleikurinn
er sá, að hik þessara vinstri flokka að
uppfylla þessar kröfur nú rétt fyrir
kosningar lofar ekki góðu um hvað
yrði eftir kosningar kæmist vinstri
stjórn á laggir.
Nei, við getum verið viss um, að
samstéypustjórn verkalýðsflokka með
auðvaldsflokki ræðst ekki á gróða at-
vinnurekenda til að leysa efnahags-
vandann. Auðvaldið tekur ekki þátt í
neinu samsæri gegn sjálfu sér. Þvert á
móti sækist það sérstaklega eftir að ná
stjórnarsamstarfi með verkalýðsflokk-
um á tímum sem þessum, einmitt til
að klafbinda verkalýðssamtökin, til að
geta leyst eigin vanda á kostnað verka-
lýðsins. Aðferð vinstri stjórnar til að
koma vanda íslenska auðvaldsins á
axlir verkalýðsins yrði sjálfsagt eitt-
hvað önnur en aðferð núverandi
stjórnar. En það er ekkert, sem bendir
til þess. að hún mundi reyna að leysa
þann vanda á kostnað gróða atvinnu-
rekenda. Við skulum ekki gleyma þvi,
að siðasta vinstri stjórn rauf einnig
gildandi kjarasamninga á kostnað
launafólks.
Að beita atkvæðinu
Launafólk getur slegið tvær flugur i
einu höggi með atkvæðaseðli sínum í
kosningunum. Það þarf að beita
honum til að hirta kaupránsflokkana
með því að kjósa gegn þeim, og um
leið að hainla gegn þvi, að stóru verka-
lýðsflokkarnir noti atkvæði sín til að
makka sig inn i samsteypustjórn með
auðvaldsflokki. Þetta tvennt er hægt
að sameina með þvi að kjósa Fylking-
una, þar sem hún býður fram, í
Reykjavík. Mótmælin verða hörðust
með þvi að kjósa Fylkinguna, einmitt
vegna þeirrar baráttustefnu, sem hún
Kjallarinn
RagnarStefánsson
hefur rekið innan verkalýðssamtak-
anna. En að auki er Fylkingin eini
verkalýðsflokkurinn, sem ber fram
kröfuna um enga samsteypustjórn
verkalýðsflokka með auðvaldsflokk-
um, um samfellda stjórnarandstöðu.
þar til möguleiki er á hreinni stjórn
verkalýðsaflanna á grundvelli þýðing-
armestu krafna verkalýðsstéttarinnar.
Fylkingin getur sjálfsagt ekki búist
við mörgum atkvæðum. En hvert at-
kvæði til hennar vegur þungt og ekk-
ert fer til ónýtis, fyrir slíku eru stóru
verkalýðsflokkarnir afar viðkvæmir.
Atkvæðaaukning Fylkingarinnar
hamlar gegn hægra skriðinu á þessum
flokkum, gegn stéttasamvinnumakki
þeirra við auðvaldið. Hún er hávær
krafa um uppbyggingu verkalýðssam-
takanna sem virks og lýðræðislegs bar-
áttutækis til sjálfstæðrar og óvæginn-
ar baráttu við auðvaldið, er krafa um
að verkalýðsflokkarnir beiti styrk sin-
um til stuðnings þeirri baráttu, i stað
þess að reyna að stinga sérhverjum
vísi slíkrar baráttu undir eigin rass. At-
kvæðaaukning Fylkingarinnar er
krafa um baráttu fyrir sósialisma.
Jafnframt því, sem við beitum at-
kvæðaseðlinum þannig sem vopni,
skulum við gera okkur grein fyrir þvi,
að kosningarnar, hvernig svo sem þær
fara, munu ekki leysa vanda alþýðu-
heimilanna. Þaðgetur launafólkið ein-
göngu gert sjálft með virkri baráttu á
grundvelli eigin samtakamáttar. Það
geta engir þingmenn gert fyrir það.
Möguleikar verkafólks til að snúa
rás stéttabaráttunnar sér í hag felast í
því að það ber uppi framleiðsluna og
getur ráðið þvi. hvenær hún fer fram
og hvernig. Það er vegna þessa, sem
verkalýðurinn getur með sjálfstæðri
skipulagningu sinni haft æ fleiri
ákvarðanir hins borgaralega ríkisvalds
að engu og knúið í framkvæmd fagleg-
ar og pólitískar kröfur sjálfs sin.
Sjónarmið, sem hér er bryddað á,
fengu aðeins að koma fram í 10 mín-
útna kynningarþáttum í rikisfjölmiðl-
unum. Stóru verkalýðsflokkarnir
studdu auðvaldsflokkana dyggilega í
að banna að slíkt fengi að koma fram í
umræðu- og fyrirspurnaþáttum. Þeir
vita sem er, forystumenn þessara
flokka, að verkalýðurinn mundi fljótt
finna að þeir væru gagnslausir og
mundi setja þá á safn, ef verkalýðs-
samtökin tækju upp sjónarmið sem
þessi í starfi sinu.
Ragnar Stefánsson
jarðskjálftafræðingur.
Opii bréf til
Ólafs Ragnars Grímssonar
Kæri Ólafur.
í þýska kommúnistablaðinu Die
rote Fahne stóð eitt sinn 1923: „að
nota lygina sem baráttutæki. eins og
kommúnistar gera i dagblöðunum,
það er ekki að Ijúga. það er bláköld
nauðsyn”. Síðan hefur mikið vatn
runnið til sjávar, en svo virðist vera að
enn þann dag i dag sé skoðun þessi
hátt skrifuð hjá kommúnistum. og
jafnvel nýgræðingar í kommúnista-
flokkum eins og þú hafa tamið sér
slíka háttu.
1 Þjóðviljanum sl. laugardag gaf að
lesa svargrein eftir þig varðandi „Rik-
ið og flugfélögin”. Þú byrjar greinina
með þinni alkunnu röksemdafærslu:
„ÉG VEIT ALLT, ÞÚ VEIST EKK
ERT” (sbr. framkomu þína i sjónvarp-
inu fyrir skömmu). Þú segir það eina
meginreglu i Evrópu að flugfélög séu
rekin af rikinu til þess að tryggja ör-
uggar samgöngur og tiltekur þar Bret-
land, Norðurlöndin og Frakkland.
Það er alveg greinilegt að þér er ekki
kunnugt um að BEA, breska flugféiag-
ið, er eitt hið óhagkvæmasta flugfélag
I heiminum hvað rekstur snertir. Og
svo upphefur þú anda Dic rote Fahne
á fullu. Þú heldur því fram að Flug-
leiðir reki ævintýramennsku með
rekstri Atlantshafsflugs sins og að
þetta'hafi m.a. verið gert með því að
halda flugfargjöldum milli íslands og
annarra landa óhóflega dýrum, og
þannig sé almenningur á íslandi að
I orga að hluta til brúsann af „ævin-
tyramennsku” Flugleiða í öðrum
heimsálfum, svo ég noti þin eigin orð.
Þér er velkomið að ferðast frá Íslandi
til Evrópulanda með SAS (skandin-
avísku ríkisfyrirtæki), en ég efast um
að fargjaldið verði hagkvæmara. Þá
vildi ég gjarnan veita prófessornum
smá staðreyndir, þó svo að þú sért ekki
of gjarn á notkun þeirra. Fljúgi Ólafur
Ragnar Grímsson með rikisreknum
flugfélögum, svo sem SAS eða BEA
milli London og Kauprhannahafnar,
þá má hann borga kr. 48.990 fyrir
ferðina (miðast við aðra leið), eða
801.80 kr./per flogna mílu. Fljúgi
hann með Flugleiðum frá London til
Reykjavíkur borgar hann kr. 48.750
fyrir ferðina, eða 411.04 kr./per mílu.
Fari Ólafur ineð SAS milli Kaup-
mannahafnar og Stokkhólms ber hon-
um að greiða kr. 30.306 (912.80-
kr./per mílu) eða fljúgi hann milli
Kaupmannahafnar og Osló grciðir
hann.kr. 30.306 (990.00 kr./per milul.
I
Kjallarinn
Erlendur Magnússon
F.n fari Ólafur með einkafyrirtækinL
Fluglciðum frá Kaupmannahöfn til
Revkiayíkur þá borgar hanr kr
73.700 (556.65 kr./per milu). Og bara
svo að þú farir nú ekki að reyna að
rengja tölur þessar, þá vil ég taka fram
að þær eru fengnar úr alþjóðlegum
handbókum um flugfargjöld, og flug-
verð frá London er reiknað út frá
breskum pundum og flugverð frá
Kaupmannahöfn i dönskum krónum.
Ja, mikið er óhófið og okrið, prófessor
Ólafur.
Alvitur
um flugmál?
Jæja, Ólafur minn, hvað segir þú
núna, eða er það eins með þig og aðra
blindtrúaða, þér svíður ekki undan
sannleikanum, og áfram skal merki
rauða fánans.
Að lokum er það klausa úr „patent-
lausnar” bók ykkar alþýðubandalags-
manna, sem þú hefur mjög svo vitnað
i. sem mig langar til að fara nokkrum
orðum um. Þar stendur orðrétt:
„Skipulag og rekstur Flugleiða verði
tekið til endurskoðunar". Jahá, það
var nefnilega það, ætlar nú Alþýðu-
bandalagið að fara að skipta sér af
rekstri einkafyrirtækis komist það i
stjórn. Þú mátt vita það, Ólafur, að ég
og líklega töluvert margir aðrir starfs-
menn Flugleiða (ég vil ekki leyfa mér
að tala fyrir allan hópinn, slikt gera
eingöngu lýðskrumarar eins og pennar
Þjóðviljans) viljum ekki hafa krumlur
rikisvaldsins i rekstri fyrirtækis þess,
sem við erum launamenn við. Það er
hitt og þetta í rekstri Flugleiða, sem
betur mætti fara, eins og víðast hvar,
en það er ekki í valdi sjálfskipaðra al-
vitra að skipta sér af því, heldur eru
það eigendur, framkvæmdastjórar og
STARF : K fyrirtækisins, sem
eiga að annast gagnrýni innan fyrir-
tækisins, til lagfæringar á rekstri þess.
Með jafnlitla þekkingu á flugmáL
um, eins og þú greinilega hefur, hefðir
þú aldrei átt að skrifa um þau mál og
opinbera þar með vanþekkingu þína á
samgöngumálum, hvað þá að ætla þér
að skipta þér af rekstri Flugleiða i
framtiðinni. Nei, við starfsfólkið
getum víst ekki annað en brosað
vorkunnsamlega að þessum loddara-
leik þinum til að sýnast alvitur um
flugmál.
Með bestu kveðju og von um
að þú munir ekki kvelja
Alþingi meðsetu
á þeim stað,
Erlendur Magnússon
starfsmaður hjá Flugleiðum
og LAUNÞEGI.
Auglýsing
ATVINNUÖRYGGI í STAÐ ATVINNULEYSIS