Dagblaðið - 22.06.1978, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 22. JÚNl 1978.
19
/*
V
HVERTSKAL
STEFNA?
— þú hnípna þ jóð í vanda
Enn á ný gengur íslensk þjóð til
kosninga, alþingiskosninga. Að þessu
sinni koma fram nokkur ný framþoð,
auk framþoða gömlu. stöðnuðu flokk
anna, og þeirra eftirtektarverðast er
framþoð Stjórnmálaflokksins, sem
býður fram i tveim stærstu kjördæm-
um landsins, þar sem búsettur er
meira en helmingur þjóðarinnar, ná-
Iægt60%.
Stjórnmálaflokkurinn er ungur
flokkur, en hefur þó fullmótað höfuð-
stefnumál sín en þau eru: Stjórnar-
skrárbreyting: Það er hugsjónamál,
sem stuðla mun að sterkri stjórn i
landinu. Gjaldtaka af herstöðvum
Nato hér á landi: Það er réttlætismál,
sem stuðlar að fullkomnu nútímasam-
göngukerfi hér á landi, sem kemur
öllum landsmönnum til góða i nútið
og framtið. Gjörbreyting á skattafyrir-
komulagi og einföldun í framkvæmd:
Það er hagkvæmnismál, sem léttir
skattabyrði landsmanna.
Valdníðsla við
afnot sjónvarps
Þessi stefnuatriði höfum við stjórn-
málaflokksmenn kynnt bæði í ræðum
og riti, en eins og kunnugt er hafa
gömlu valdníðsluflokkarnir gerst sekir
um aðlokaað mestu áhrifarikasta fjöl-
miðli okkar, sjónvarpinu, þvert ofan i
reglugerðir og lög Þessi yfirgangur er
þvi furðulegri, sem það er alþjóð Ijóst,
að landsmenn eiga að hafa jafnan rétt
að þessum ríkisfjölmiðli, svo sem bæði
lög og andi stjórnarskrár okkar boða.
En þetta er vist hið nýja lýðræði, sem
núerfariðað predika.
Greinilegt er, að þetta einræðisbrölt
gömlu valdniðsluflokkanna mætir
mikilli andúð og hneykslun alls þorra
manna og að markmiðið er fyrst og
fremst að útiloka okkur stjórnmála-
flokksmenn fráþví að koma skoðunum
okkar á framfæri, af ótta við ört vax-
andi fylgi okkar. Það fcr ekki milli
mála, að forkólfar valdníðsluflokk-
anna hafa skipað útvarpsráði fyrir
verkum og krafist þess, að þeir felldu
ranga úrskurði. Eflaust verður látið
reyna á, hvort þeir geta einnig skipað
dómsvaldi okkar fyrir verkum.
íslendingar! Rödd okkar stjórn-
málaflokksm'anna verður ekki þögguð
niður. Engar hótanir eða valdníðsla
eru þess megnug. Við munum berjast
fyrir okkar málstað þjóðfélaginu til
heilla.
Tökum gjald
af NATO
Sá málaflokkur á stefnuskrá okkar
stjómmálaflokksmanna. sem hvað
mest angrar forustu gömlu flokkanna.
Kjallarinn
ÓlafurE. Einarsson
er krafa okkar um gjaldtöku af her-
stöðvum Nato hér á landi og tafar-
laust afnám tollverndar og annarra
friðinda þeim til handa. Samstaða
þessara annars sundurlyndu hópa
manna er táknræn. Þeir hafa allir
staðið að stjórn landsins undanfarin.
tvö kjörtimabil í lengri eða skemmri
tíma og bera þvi allir sameiginlega
ábyrgð á þeirri óstjórn og þvi losi, sem
nú þjakar islenska þjóð. Ósamkomu-
lag þeirra, jag og gifuryrði eru eins og
illa gerðir leikþættir, fluttir i þeim til-
gangi að villa um fyrir hinum almenna
kjósanda.
Hafa menn tekið eftir því. að þessir
forustumenn gömlu flokkanna minn-
ast alls ekki á afstöðuna til gjaldtöku
af varnarliði Nato-rikjanna hérá landi
í fjölmiðlum eða á mannafundum?
Hver skyldi ástæðan svo vera? Hún er
i fáum orðum sú, að allir hafa þeir
hágnast — á einn eða annan hátt — á
veru vamarliðsins hér á bak við tjöld-
in. Þeir eru þvi allir samsekir og hafa
komið sér saman um að ræða ekki
þessi mál. Þetta er höfuðástæðan fyrir
útilokun okkar stjórnmálaflokks-
manna úr fjölmiðlum af ótta við ört
vaxandi fylgi við okkar góða og sjálf-
sagða málstað.
Leyndardómurinn
ógurlegi
Sl. haust skrifaði undirritaður grein
í Dagblaðið undir fyrirsögninni Hinn
r
óttalegi leyndardómur. Þar var þvi lýst
yfir, að unnið væri af kappi að þvi að
upplýsa þá miklu leynd, sem yfir allri
hersetu hér á landi hvíldi. Segja má, að
nú sé þjóð okkar loks að gera sér grein
fyrir hinum óttalega leyndardómi.
Það er nú flestum Ijóst, að til is-
lensku þjóðarinnar rennur gífurlegt fé
frá varnarstöðvum Nato hér og öll sú
leynd sem yfir þeim viðskiptum hefur
hvilt, stafar af þvi, að þeir sem rikjum
ráða hverju sinni vilja einnig ráða i
hvaða vasa fjármunirnir renna.
Kjósendur!
Refsið gömlu flokkunum fyrir vald-
niðslu þeirra, fyrir spillingu þeirra og
fyrir úrræða- og getulevsið.
Styðjið nýja menn með ný og fersk
stefnumál.
Stuðlið að sterkri stjórn í landinu.
KjósiðS-listann.
Ólafur E. Einarsson
forstjóri.
Lögtaksúrskurður
Að kröfu innheimtu ríkissjóðs í Hafnarfirði, Garða-
kaupstað og Kjósarsýslu úrskurðast hér með að lögtök
geti farið fram fyrir ógoldnum fyrirframgreiðslum þing-
gjalda sem féllu í gjalddaga 1. febrúar, 1. mars, 1. apríl,
1. maí og 1. júní 1978, svo og nýálögðum hækkunum
þinggjalda ársins 1977 og fyrri ára.
Lögtök til tryggingar framangreindum gjöldum á-
samt dráttarvöxtum og kostnaði geta farið fram að liðn-
um átta dögum frá birtingu úrskurðar þessa.
HafnarfirAi 15. júni 1978.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði
og Garðakaupstað.
Sýslumaðurinn í Kjósarsýslu.
*. *
TRAMPS—SKÓR
NÝKOMNIR
Handsaumaðir og skinnfóðraðir
Litur: natur-leður.
Stærðir: nr. 36—45.
Verð kr. 9.680.
Kirkjustrœti 8 v/Austurvöll. Sími 14181.
Skóverzlun
Þórðar Péturssonar,
PÓSTSENDUM
Nýkomið!
myndsegulbandstæki sem fer
sigurför um heiminn...
VIDE0H0ME SYSTEM
VHS
Spilunar-
b'mi3klst
afeinni
kassettu.
Verðkr. 655.185.-
Skipholti 19 — Reykjavík — Sími 29800
Okkur vantar bíla á skrá. — Hjá okkur seljast allir bílar efþeir eru
á staðnum. — Glæsilegur og bjartur sýningarsalur.
BÍLASALAN SKEIFAN
SKEIFUNNI11 - SÍMAR 84848 0G 35335