Dagblaðið - 01.12.1978, Síða 2
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1978.
Á
VERSLUNIN VERSLUNIN VERSLUNIN VERSLUNIN
•3 flilKIO K/VS TAI.IMM FEYKin ITALB/SR
LAUGAVEGI 8 BERGSTAÐASTRÆTI 4A LAUGAVEGI 27 HVERFISGÖTU 32 H
L
PARTNER
ER NÝTT VÖRUMERKI
FVRIR VANDAÐAN
OG ÞÆGILEGAN FATNAÐ
BARÁTTUHÁTÍÐ í
GLÆSIBÆ 2. DESEMBER
Baráttuhátíð hreyfingarinnar verður i Glæsibæ,
stóra salnum i kjallaranum, laugardaginn 2. des. kl.
15.00. Á dagskrá hennar vcrður fjölbreytilegt efni.
alvara og grín, pólitík og menningarefni. M.a. verður
eftirfarandi á dagskrá:
1. Stutt ávörp um sjálfræðisbaráttuna og starf hreyf-
ingarinnar.
ÚTIFUNDUR 1. DES.
Kl. 17.00 siðdegn þann 1. des verður stuttur úti-
fundur hreyfingarinnar i Austurstrœti (á göngu-
götunni). Þar verður flutt stutt ðvarp, lesið Ijóð
og sunginn fjöldasöngur.
BLÓMSVEIGUR VIÐ STY7TU
JÓNS SIGURÐSSONAR
Af útifundinum i Austurstræti verður farið á Austur-
völl, að styttu Jóns Sigurðssonar og lagður þar blóm-
sveigur frá hreyfingunni. Stutt ávarp verður flutt þar
og loks sunginn fjöldasöngur.
2. Samfelld dagskrá um siálfræðisbaráttuna og
baráttu gegn erlendri ásælm nteð upplestri, leik og
söng.
3. Vísnavinir koma fram og skemmta hátíðargestum.
4. Nafnlausi sönghópurinn verður meðsérstaka söng-
dagskrá.
5. Smásaga eftir Ara Trausta Guðmundsson.
6. Fjöldasöngur.
Kaffiveitingar. Fjaröflun. Barnagæzla.
MÆTUM ÖLL í AÐGERÐIR HREYFINGARINNAR
MIKLATORGI
SÍMAR - 19775 - 22822
• Glæsilegur
jólamarkaður
• Aðventukransar í
mikluúrvali.
Opiðkl 9-21
MMBIAÐIÐ óhát
t
Fátækur símnotandi telur fráleitt að simnotendur greiði afnotagjöld af simum til
ðryrkja og ellilífeyrisþega. Eðlilegra sc að gjöld þcssi greiðist í gegnum trygginga-
kerfið eða með sérstakri fjárveitingu frá Alþingi.
DB-mvnd Bjarnleifur
SÍMAGJÖLD
ÖRYRKJA OG
ELLILÍF-
EYRISÞEGA
— eðlilegast að þau séu greidd f gegnum
tryggingakerfið
Ég hefi heyrt þvi fleygt að nú standi
til að láta símnotendur greiða afnota-
gjald af símum til öryrkja og ellilif-
eyrisþega með aðeins tekjutryggingu.
Þetta mun kosta póst og síma ca I50
milljónir króna til að byrja með, eftir
þvi sem mér er sagt. Þessari upphæð
verður stofnunin að ná inn með hækk
uðum gjöldum á símnotendur, þvi
eftir því sem póst- og símamálaráð-
herra tjáði okkur fyrir stuttu, vantar l
milljarð hjá pósti og sima til að endar
nái saman.
Fyrir nokkrum árum var Póstur og
sími, eða öllu heldur simnotendur,
látnir greiða allverulegan beinan styrk
til dagblaðanna. Mig minnir að
Hannibal Valdimarsson hafi stöðvað
þá vitleysu, þegar hann var póst- og
simamálaráðherra. Nú fá blöðin
beinan styrk úr ríkissjóði, sem er
miklu eðlilegra heldur en að láta sim-
notendur greiða hann.
Nú á aftur að vega að símnotendum
með fyrrgreindri ráðstöfun. Mér finnst
eðlilegt að öryrkjar og ellilífeyrisþegar
með aðeins tekjutryggingu njóti þess-
ara hlunninda, en þau eiga að greiðast
i gegnum tryggingakerfið eða með sér-
stakri fjárveitingu frá Alþingi. Það er
út i hött að dreifa þessum kostnaði á
símnotendur, það væri eðlilegra að
láta áfengisneytendur greiða þetta
gjald, heldur en símnotendur og þar
með taka þetta gjald af ÁTVR ef ríkis-
stjórnin ætlar að láta eitthvert rikis-
fyrirtæki greiða umrEétt gjald.
Símnotendur eru ekki allir rikir og
surnir hverjir myndu selja hluta af inn-
búi sínu til að geta haldið i simann.
Þessu fólki finnst því alveg nóg að
greiða þessar sífelldu hækkanir vegna
aukins rekstrarkostnaðar Pósts og
sima, auk þess sem það greiðir alla
fjárfestingu og uppbyggingu stofn-
unarinnar, þótt því sé ekki gert að
greiða bein gjöld til þeirra sem rikis-
sjóður eða öllu heldur alþingi á að sjá
um.
Raddir
lesenda
ENSKT SÆLGÆTI
í FRÍHÖFNINNI
Ólafur Thordarsen. frihöfninni Kefla-
vik, hringdi:
Ferðalangur skiiiaði i DB 23. nóv-
ember og spyr þar hvort frihöfnin á
Kefla víkurflugvelli sé okurstofnun.
Hann segist hafa kcypt 370 gr súkku-
laðistykki i frihöf.iinni á 4.50 dollara.
Síðan segist hann liafa keypt súkku-
laði i Glasgow, 200 gr á 64 penny.
Hann hlýtur að hafa keypt Lindt eða
Sprungli súkkulaði. sem er dýrt súkku-
laði en það kostar 4.50 dollara i fri-
höfninni. Við erunt hins vegar einnig
rneð 400 gr enskt súkkulaði sern
kostar 3 dollara.
Tölur sem l'erðalangur nefnir um
Casio tölvur geta passað. Við höfðum
samband við umboðsaðila tölvanna og
þessar tölvur hafa lækkað um 23.26%
frá því að við fengum okkar sendingu.
Það mun vera eðlileg þróun í þessum
smátölvum, þær lækka stöðugt I verði.
Bæði verzlunin í Glasgow og umboðið
i Bankastræti hafa þvi haft nýrri send-
ingar á boðstólum en við.
Þriðja dæmið nefnir ferðalangur en
það er verð á Maclntosch dós sem
kostar 6.50 dollara í frihöfninni. Þetta
er kilódós. Hann segist hafa keypt
sambærilega dós út úr búð i Glasgow
og hafi sú dós kostað tvö pund. Sam-
kvæmt upplýsingum íslenzk-erlenda
verzlunarfélagsins, sem er með umboð
fyrir' þessa vöru, eru þær dósir sem
kosta tvö pund i Glasgow hins vegar
681 gr. I Bretlandi eru ekki til kilódósir
af Maclntosch. Sú dós sem næst kemst
er 907 grömm og kostar tvö og hálft
pund. Þá er einnig hægt að fá dósir
sem eru 1304 gr og kosta þær 3.90
pund.
Hins vegar er rétt að benda fólki á
að enskt sælgæti er ekki ódýrara i fri
höfninni en i Bretlandi. Enskt sælgæti
er mjög ódýrt og þar eru engir tollar á
sælgæti þannig að frihöfnin veitir
aðeins þá þjónustu að hafa enskt sæl-
gæti á boðstólum fyrir þá sem ekki eru
að koma frá Bretlandi eða hafa ekki
viljað þvælast með það í farangri.