Dagblaðið - 26.02.1979, Page 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1979.
9
„hinna ungu” harðlega.
Upp úr miðjum fundi gerðist svo sú
tilraun til kosningasvika, sem lýst var
hér að framan. Blaðamaður Dag-
blaðsins upplýsti Guðjón fundar-
stjóra, að blaðið hefði í höndum
sönnunargögn um málið. Guðjón
tjáði honum þá, að atkvæði þessi
yrðu ógilt.
Lét fundarstjóri opna kjörkass-
ann og rífa atkvæðin, sem i honum
voru. Jafnframt sagði hann að þeir,
sem hefðu á þann hátt misst at-
kvæði sín, gætu fengið nýja at-
kvæðaseðla.
í viðtali við blaðamann Dag-
blaðsins eftir fundinn, sagði Guðjón
fundarstjóri, að þetta hefðu verið
30—40 seðlar, en ljósmyndaranum
hefði talizt þeir vera margfalt fleiri.
Sömuleiðis sagði Guðjón, að
engin búnt atkvæðaseðla hefðu
komizt í umferð með ólöglegum
hætti. Stangaðist þetta á við það,
sem blaðamaður og Ijósmyndari
töldu sig sjá og sem ljósmyndarinn
festi á filmu.
Undir lokin fór fram atkvæða-
greiðsla um tvo menn í stjóm og þrjá
menn í varastjórn. Tók Guðjón at-
kvæðaseðlana með sér af fundinum
án þess að þeir væru taldir. Tjáði
hann blaðamanni Dagblaðsins síðar
um daginn, að meirihluti stjórnar
hefði talið seðlana og komizt að raun
um, að Einar Logi Einarsson og Haf-
steinn Guðmundsson hefðu náð kjöri
með 230 atkvæðum hvor, en Óskar
Guðmundsson og Guðfinnur Jakobs-
son fallið með 75 atkvæðum hvor.
Hinir nýkjörnu stjórnarmenn
voru frambjóðendur „hinna ungu”
og koma þeir i staðinn fyrir aðra tvo
úr sama armi, þannig að valdahlut-
föll í stjóminni eru hin sömu og áður.
Vegna tímaskorts var ekki unnt að
kjósa fulltrúa á aðalfund
. . með fullan úlpuvasa af seðlum, sem blm. sýndust líkjast atkvæðaseðlum. Gegnum rifuna neðan við borðplötuna
sá blm. manninn rétta stúlkunni bunkann.”
Náttúrulækningafélags íslands. Urðu
það mikil vonbrigði þeim, sem
smöluðu, því að það var í rauninni
kosningin, sem máli skipti. Með 32
fulltrúum Reykjavíkurfélagsins hefði
verið fenginn tryggur meirihluti í
landsfélaginu og þar með yfiráð yfír
Heilsuhæli náttúrulækningamanna í
Hveragerði.
Verður því að hefja eina
smölunarherferðina enn fyrir annan
fund til að velja þessa fulltrúa. Má
því enn búast við fleiri skrípafundum
af því tagi, sem fundurinn i Háskóla-
bíói var á laugardaginn.
Fulltrúar „hinna gömlu” héldu
því fram á fundinum, að fundurinn
væri ólöglegur og yrði reynt að fá
honum hnekkt. Eftir fundinn sagði
Egill Ferdinandsson við blaðamann
Dagblaðsins, að atkvæðagreiðslan og
talningin væru ógild að mati þeirra,
sem urðu undir.
-JK.
KANARIEYJAR
sólskinsparadís allan ársins hring
Jón Gunnar Hannesson læknanemi, sem sagður var hafa staðið á bak við
,,stórsmölunina" í NLFR, afgreiðir atkvæðaseðla á fundinum.
FERÐASKRIFSTOFAN SUNNA
BANKASTRÆTI 10 - SÍMI 29322.
Sunna býfiur upp á bestu hótelin, ibúðirnar og smáhýsin sem láanleg eru á Kanaríeyjum.
KOKA - ROCA VERDE - CORONA BLANCA - SANTA FE - LOS SALMONES - HOTEL EVGENIA VICTORIA
Sum þessara hótela eru þegar orðin vel þekkt meðal Islendinga. Sunnuskrifstofa meö islensku starfsfólki á staðnum, veitir
Sunuufarþegum öryggi og þjónustu. Hægt er aö velja um 1, 2 og 3 vikna feröir.
Brottfarardagar: 16., 23. feb. - 9., 16., 30. mars - 6., 20., 27. apríl - 18. mai - 13. júni - 4., 25. júli - 15. ágúst - 5., 26. sept.
Þúsundir ánægöra viðskiptavina velja SUNNUFERÐIR ár eftir ár.
Guðjón B. Baldvinsson, gjaldkeri NLFR, gerir grein fyrir reikningum félags-
ins. Þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir fékkst hann ekki til að skýra frá hver hefði
fært sér listana með nöfnum um 800 nýrra félagsmanna. Hægra megin á
myndinni er Marinó L. Stefánsson, formaður stjórnar NLFR.