Dagblaðið - 26.02.1979, Qupperneq 11
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1979.
Til að elska þarf mikinn kjark . . .
ris engin mannlega vera undir því að
valda ekki vonbrigðum á einhverju
sviði.
„Þegar draumurinn brestur verður
maður að reyna af öllum mætti að
verða ekki bitur. Og þetta er allt
saman erfitt mál, þvi til að elska þarf
líka mikinn kjark,” segir Ása
Sólveig.
Skáld með brjóst
í góðri grein um „kerlingabæk-
ur”, sem Helga Kress skrifaði nýlega
í tímarit Máls og menningar (4-78)
tekur hún Ásu Sólveigu sem dæmi
um skáldkonu, sem reynir að skrifa
um reynslu kvenna og þeirra líf. Ása
Sólveig orðar þetta svo: „Mig langar
til að skrifa um það sem karlmenn
vita ekki og konur hafa alltaf þagað
um.”
Fjölmargar harmsögur rekja
dapurleg örlög skáldkvenna frá fyrri
tíðum — vinnuaðstaða þeirra var erf-
ið og það sem þeim tókst þrátt fyrir
það að skrifa var lítilsvirt og hætt. En
Ása Sólveig segist ekki hafa mætt.erf-
iðleikum sem rithöfundur þótt hún sé
kona. „En ég hef verið mjög hepp-
in,” bætir hún við og bendir á að
með nýstofnuðum launasjóði rithöf-
unda hafi starfsaðstaða allra rithöf-
unda batnað geysilega. Eins að hún
hafi byrjað að skrifa á tíma sem skít-
kast í kvenrithöfunda fór mjög
minnkandi.
„Karlmenn koma mér samt sífellt
á óvart með því að meta konur
ævinlega fyrst og fremst sem kynver-
ur,” segir Ása Sólveig. Hún leit inn i
Hollywood um daginn og þar tók
hana tali ungur piltur og efnilegur.
Hann var vel heima í menningar-
málum og hafði séð sjónvarpsþáttinn
Vöku þegar hún kom þar fram. Hann
sagði henni sitt álit á málflutningi
hinna ýmsu þátttakenda og hún beið
spennt eftir að heyra hvað honum
hefði fundizt um hana sjálfa. Loks
kom að því: „Hvernig getur staðið á
því, spurði hann mjög vingjarnlega,
„að ég hélt endilega að þú hefðir
stærri brjóst?”
Og Ása Sólveig hlær: „Mér finnst
þetta alltaf jafnfyndinn eiginleiki hjá
karlmönnum,” segir hún, „en þetta
getur gert mann ergilegan þegar
maður er að hugsa um alvarleg mál
IHH.
LJÖSMYNDIR:
RAGNAR TH.
SIGURÐSSON
Nú getur þú valið úr um
það bil þrjátíu gerðum af
sófasettum, —
borgað 30% út og eftir-
stöðvarnar á tíu eða jafnvel
tólf mánuðum.
HÚSGAGNAVERZLUN
GUÐMUNDAR GUÐMUNDSSONAR
HAGKAUPSHÚSINU Simi 82898
Komdu sem fyrst,svona til-
boð býðst ekki á hverjum
degi.
Þú getur að minnsta kosti
skoðað úrvalið. Það kostar
ekkert!