Dagblaðið - 26.02.1979, Page 12
!
i
12
r
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1979.
HRINGURINN KRINGUM
IDIAMIN ÞRENGIST
Þekkt er það fyrirbrigði er feður gefa sonum sínum leikföng sem þeir vilja gjarnan leika sér með sjálfir, t.d. bilabraut-
ir eða jámbrautir.
Sumir menn verða æstir i slík leikföng og vart getur fullkomnari leikfangajárnbraut en getur að líta á þessari mynd.
Nokkrir félagar í Winnenden í V-Þýzkalandi, í námunda Stuttgart, tóku sig til fyrir fimm árum og stofnuðu klúbb til
þess að leika sér að slíkum járnbrautaakstri.
Leikfangabrautin þeirra nær nú yfir 150 fermetra svæði og brautarteinarnireru um tveir km á lengd. Stjórn lestanna
er í höndum tölvu, svo ekkert fari úrskeiðis og geta fjörutíu lestir verið á ferð i einu.
Áhugamenn um þennan leik eru velkomnir og hafa fjölmargir á fimmtugsaldrinum lagt leið sína til þessarar Mekka
leikfangajárnbrautanna, víðs vegar að úr heiminum.
Danmörk:
Fjölskyldan fórst
öll í bflslysinu
Það er varla hægt að sjá að þetta flak hafi verið bíll, svo illa er hann leikinn
eftir árekstur við flutningabíl. Slysið varð við Haderslev i Danmörku og i litla
bilnum var fjögurra manna fjölskylda sem fórst í slysinu.
N-Ameríka:
Ský fyrir al-
myrkva sólar
Óttazt var í morgun, að ský kæmu í
veg fyrir að menn sæju síðasta
almyrkva sólar, sem hægt er að sjá í
Norður-Ameríku á þessari öld.
Tugþúsundir áhugamanna og at-
vinnumanna í himnaskoðun hafa beðið
almyrkvans með óþreyju, en hann átti
að sjást um morgunverðarleyti í
morgun. En himinn er skýjaður víðast
hvar í N-Ameríku, allt frá Washington
og Oregon til íshafssvæða Kanada.
Skýin gætu komið i veg fyrir hin miklu
áhrif af því er máni fer í veg fyrir sólu.
Víða annars staðar er hlutamyrkvi á
sólu sjánlegur. Vísindamenn eru
tilbúnir með rannsóknir á því hvað
gerist er tunglið kemur skyndilega í veg
fyrir geislun sólar og hvað gerist er þeir
siðan brjótast í gegn á ný.
Mekka leikfangajárnbrautanna
— Tanzaníuher sækir stöðugt nær höf uðborginni studdur útlægum Úgandamönnum
Idi Amin Úgandaforseti lýsti því
yfir í útvarpi í gærkvöldi, að hann
myndi aldrei gefast upp fyrir innrás-
arherjum frá nágrannaríkinu
Tanzaníu. Forsetinn sagði að tuttugu
þúsund manna herlið frá Tanzaníu,
Ýmsar blikur eru á lofti varðandi
framtið Idi Amins Ugandaforseta og
hætt er við að honum dugi ekki spjót-
ið atarna til að berja á andstæðingum
sínum innanlands og utan.
stutt útlögum frá Úganda, hefði her-
tekið borgina Masaka.
Innrásarliðið sækir nú að
borginni Mbarara og stefnan verður
síðan tekin á höfuðborgina Kampala,
sem er í 130 km fjarlægð í norðri.
Fjöldi Úgandamanna er nú á flótta í
átt að höfuðborginni, undan innrás-
armönnunum.
í útvarpsávarpi sínu sagði Amin
Úgandaforseti að þrátt fyrir
alvarlegt ástand myndi Úganda aldrei
gefast upp. í útvarpinu var síðan
greint frá því að forsetinn myndi
verða í höfuðborginni með fjölskyldu
sinni og stjórna aðgerðum.
Bardagar milli Tanzaniu og
Úganda hafa nú staðið yfir í fjóra
mánuði, enhafaharðnaðmjögundan-
farna viku. Amin hefur nú beðið
vinveitt nágrannaríki um aðstoð.
Amin verður nú æ varari um sig.
Hann hefur sloppið frá fjölmörgum
morðtilræðum frá því að hann komst
til valda. Hann skiptir nú svo oft um
$amastað, að jafnvel beztu vinir hans
eiga í erfiðleikum með að finna út
hvar hann dvelst.
Dr. Miltin Obote fyrrum þjóðar-
l^iðtogi í Uganda sem Amin steypti af
stóli fyrir átta árum hefur hvatt and-
spyrnuöfl innan Uganda til að steypa
forsetanum. Obote er nú útlægur í
Tanzaníu.
Danmörk:
Burhvalurinn strandaði
— og það kostaði kranabfl og f imm stálvíra að ná skepnunni
Það kostaði fimm stálvíra og einn
kranabíl að koma þessari risaskepnu á
land. Ferlíkið, sem er 15 metra langur
búrhvalur, strandaði á sandrifi skammt
utan við norður-józka bæinn Tversted í
Danmörku.
Þegar tókst að draga skepnuna á
landi voru komnir fulltrúar frá dýra-
görðunum í Kaupmannahöfn og
Árósum, sem ekki ætluðu að missa af
hinum merka feng. Langt er nú liðið
síðan búrhvalur strandaði síðast við
strendur Danmerkur, en árið 1941
strandaði þvílík skepna við Hirtshals,
sem er um 15 km sunnan við Tversted.
Sovézkir geim-
farar áleiðis
til Salyut 6
Tveimur sovézkum geimförum var Geimfarið Soyus 32, verður tengt geim-
skotiðábrautumhverfisjörðuígærog stöðinni á morgun og verður áhöfn
í nótt hringsóluðu þeir kringum þess sjöunda áhöfn sovézkra geimfara,
jörðina. Þeir eiga síðan að fara um Sem gistir stöðina. Þetta er 38.
borð í geimstöðina Salyut 6. mannaða geimfar Sovétríkjanna.
Geimfararnir heita Vladimir Lyakhov, Ekki er vitað hve lengi geimfararnir
37 áragamall og Valery Ryumin, 39ára eiga að vera i för sinni en sovézkir
gamall. geimfarar, Vladimir Kovalyonek og
Geimskotið er liður í þeirri viðleitni Alexander Invanchenkov, settu
Sovétmanna að hafa stöðugt mannaða geimferðarmet í nóvember sl. er þeir
geimstöð á ferð umhverfis jörðu. voru 140dagaúti i geimnum.
HR