Dagblaðið - 26.02.1979, Síða 12

Dagblaðið - 26.02.1979, Síða 12
! i 12 r DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1979. HRINGURINN KRINGUM IDIAMIN ÞRENGIST Þekkt er það fyrirbrigði er feður gefa sonum sínum leikföng sem þeir vilja gjarnan leika sér með sjálfir, t.d. bilabraut- ir eða jámbrautir. Sumir menn verða æstir i slík leikföng og vart getur fullkomnari leikfangajárnbraut en getur að líta á þessari mynd. Nokkrir félagar í Winnenden í V-Þýzkalandi, í námunda Stuttgart, tóku sig til fyrir fimm árum og stofnuðu klúbb til þess að leika sér að slíkum járnbrautaakstri. Leikfangabrautin þeirra nær nú yfir 150 fermetra svæði og brautarteinarnireru um tveir km á lengd. Stjórn lestanna er í höndum tölvu, svo ekkert fari úrskeiðis og geta fjörutíu lestir verið á ferð i einu. Áhugamenn um þennan leik eru velkomnir og hafa fjölmargir á fimmtugsaldrinum lagt leið sína til þessarar Mekka leikfangajárnbrautanna, víðs vegar að úr heiminum. Danmörk: Fjölskyldan fórst öll í bflslysinu Það er varla hægt að sjá að þetta flak hafi verið bíll, svo illa er hann leikinn eftir árekstur við flutningabíl. Slysið varð við Haderslev i Danmörku og i litla bilnum var fjögurra manna fjölskylda sem fórst í slysinu. N-Ameríka: Ský fyrir al- myrkva sólar Óttazt var í morgun, að ský kæmu í veg fyrir að menn sæju síðasta almyrkva sólar, sem hægt er að sjá í Norður-Ameríku á þessari öld. Tugþúsundir áhugamanna og at- vinnumanna í himnaskoðun hafa beðið almyrkvans með óþreyju, en hann átti að sjást um morgunverðarleyti í morgun. En himinn er skýjaður víðast hvar í N-Ameríku, allt frá Washington og Oregon til íshafssvæða Kanada. Skýin gætu komið i veg fyrir hin miklu áhrif af því er máni fer í veg fyrir sólu. Víða annars staðar er hlutamyrkvi á sólu sjánlegur. Vísindamenn eru tilbúnir með rannsóknir á því hvað gerist er tunglið kemur skyndilega í veg fyrir geislun sólar og hvað gerist er þeir siðan brjótast í gegn á ný. Mekka leikfangajárnbrautanna — Tanzaníuher sækir stöðugt nær höf uðborginni studdur útlægum Úgandamönnum Idi Amin Úgandaforseti lýsti því yfir í útvarpi í gærkvöldi, að hann myndi aldrei gefast upp fyrir innrás- arherjum frá nágrannaríkinu Tanzaníu. Forsetinn sagði að tuttugu þúsund manna herlið frá Tanzaníu, Ýmsar blikur eru á lofti varðandi framtið Idi Amins Ugandaforseta og hætt er við að honum dugi ekki spjót- ið atarna til að berja á andstæðingum sínum innanlands og utan. stutt útlögum frá Úganda, hefði her- tekið borgina Masaka. Innrásarliðið sækir nú að borginni Mbarara og stefnan verður síðan tekin á höfuðborgina Kampala, sem er í 130 km fjarlægð í norðri. Fjöldi Úgandamanna er nú á flótta í átt að höfuðborginni, undan innrás- armönnunum. í útvarpsávarpi sínu sagði Amin Úgandaforseti að þrátt fyrir alvarlegt ástand myndi Úganda aldrei gefast upp. í útvarpinu var síðan greint frá því að forsetinn myndi verða í höfuðborginni með fjölskyldu sinni og stjórna aðgerðum. Bardagar milli Tanzaniu og Úganda hafa nú staðið yfir í fjóra mánuði, enhafaharðnaðmjögundan- farna viku. Amin hefur nú beðið vinveitt nágrannaríki um aðstoð. Amin verður nú æ varari um sig. Hann hefur sloppið frá fjölmörgum morðtilræðum frá því að hann komst til valda. Hann skiptir nú svo oft um $amastað, að jafnvel beztu vinir hans eiga í erfiðleikum með að finna út hvar hann dvelst. Dr. Miltin Obote fyrrum þjóðar- l^iðtogi í Uganda sem Amin steypti af stóli fyrir átta árum hefur hvatt and- spyrnuöfl innan Uganda til að steypa forsetanum. Obote er nú útlægur í Tanzaníu. Danmörk: Burhvalurinn strandaði — og það kostaði kranabfl og f imm stálvíra að ná skepnunni Það kostaði fimm stálvíra og einn kranabíl að koma þessari risaskepnu á land. Ferlíkið, sem er 15 metra langur búrhvalur, strandaði á sandrifi skammt utan við norður-józka bæinn Tversted í Danmörku. Þegar tókst að draga skepnuna á landi voru komnir fulltrúar frá dýra- görðunum í Kaupmannahöfn og Árósum, sem ekki ætluðu að missa af hinum merka feng. Langt er nú liðið síðan búrhvalur strandaði síðast við strendur Danmerkur, en árið 1941 strandaði þvílík skepna við Hirtshals, sem er um 15 km sunnan við Tversted. Sovézkir geim- farar áleiðis til Salyut 6 Tveimur sovézkum geimförum var Geimfarið Soyus 32, verður tengt geim- skotiðábrautumhverfisjörðuígærog stöðinni á morgun og verður áhöfn í nótt hringsóluðu þeir kringum þess sjöunda áhöfn sovézkra geimfara, jörðina. Þeir eiga síðan að fara um Sem gistir stöðina. Þetta er 38. borð í geimstöðina Salyut 6. mannaða geimfar Sovétríkjanna. Geimfararnir heita Vladimir Lyakhov, Ekki er vitað hve lengi geimfararnir 37 áragamall og Valery Ryumin, 39ára eiga að vera i för sinni en sovézkir gamall. geimfarar, Vladimir Kovalyonek og Geimskotið er liður í þeirri viðleitni Alexander Invanchenkov, settu Sovétmanna að hafa stöðugt mannaða geimferðarmet í nóvember sl. er þeir geimstöð á ferð umhverfis jörðu. voru 140dagaúti i geimnum. HR

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.