Dagblaðið - 26.02.1979, Side 13

Dagblaðið - 26.02.1979, Side 13
Nýr yfirmaður NATO í Evrópu Carter Bandaríkjaforseti hefur enn ýtt á eftir leiðtogafundi ísraels og Egyptalands. Hann vill fá leiðtoga þessara rikja til viðræðna við sig síðar í j)essari viku, til þess að fjalla um nýjan friðarsamning landanna. Carter er í stöðugu sambandi við leið- toga beggja ríkjanna um þessar mundir. Búist er við að Menachem Begin forsætisráðherra Israels komi á fund- inn og Mustapha Khalil forsætis- ráðherra Egyptalands. Aðilar beggja þjóðanna, sem starf- að hafa í friðarnefndunum í Wash- ington munu fljúga heim til viðræðna við leiðtoga sína fyrir fundinn. Ekkert hefur heyrzt um viðbrögð leiðtoga ísraels og Egyptaiands vegna fyrirhugaðs fundar. V-Þýzkaland: Kanslarinn liðtækur í skák Helmut Schmidt kanslari V-Þýzkalands er allþokkalegur skákmaður. Kanslarinn tefldi nýlega við stórmeistarann Lothar Schmid í fjöltefli og stórmeistarinn hafði það ekki fyrr en eftir þrjá og hálfan tíma. íslendingar kannast vel við Lothar Schmid, síðan hann var aðaldómari í hinu fræga einvígi milli Spasskys og Fischers í Laugardalshöll árið 1972. Lothar var einnig aðaldómari í einvígi þeirra Karpovs og Kortsnojs i fyrra. Lothar Schmid tefldi við þrjátíu manns i fjölteflinu og sex náðu því að gera jafntefli við meistarann. Meðal þeirra sex var Loki Schmidt, eiginkona kanslarans, sem skaut þar bónda sínum ref fyrir rass. Þau hjónin eiga því þarna sameigin- legt áhugamál, svo leiða má getum að því hvað þau gera, ef þau geta ekki sofið. DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1979. Erlendar fréttir REUTER Carter boðar leiðtoga ísraels og Egypta til fundar Carter Bandaríkjaforseti hefur út- nefnt Bernard Rogers sem nýjan yfir- mann bandaríska hersins og NATO í Evrópu, í stað Alexanders Haig hers- höfðingja, sem lætur af störfum 1. júní nk. Alexander Haig var áður aðalráðgjafi Nixons fv. Bandaríkjafor- seta í innanríkismálum, einmitt meðan Watergatemálið stóð sem hæst. Hann hefur látið að því liggja að hann sækist eftir útnefningu Repúblikanafiokksins fyrir forsetakosningarnar í Banda- ríkjunum á næsta ári. Hinn nýi yfirmaður, Bernard Rogers, er 57 ára gamall, viðurkenndur hernaðarsérfræðingur og ópólitiskur, að því er sagt er. Undir hans stjórn verða 4,1 milljón manna undir vopnum. Tveir helztu ráðherrar í Bandaríkjastjórn: „Grípum til vopna ef nauðsyn krefur — til verndar olíuhagsmunum okkar í Miðausturlöndum Helztu ráðherrar í stjórn Carters Bandaríkjaforseta hafa lýst því yfir að Bandaríkjamenn séu tilbúnir tjl að grípa til vopna til þess að verja hags- muni sína vegna olíukreppunnar í íran. James Schlesinger orkuráðherra og Harold Brown varnarmálaráðherra sögðu í gær, að ef nauðsyn krefði myndu Bandaríkin beita her sínum til þess að vernda olíuhagsmuni sína í Miðausturlöndum. Ráðherrarnir gáfu þessar sam- hljóða yfirlýsingar sinn í hvoru við- talinu. Þetta eru hörðustu yfirlýsing- ar bandarískra ráðamanna til þessa, vegna þess ástands sem skapazt hefur í orkumálum Bandaríkjanna vegna ástandsins í íran. Schlesinger sagði að Bandaríkin hefðu mikilvægra hagsmuna að gæta á þessu svæði og „við verðum að reyna að gæta þeirra hagsmuna, þar sem það er okkur lífsnauðsyn að gera það,” sagði ráðherrann. „Þess vegna hefur hernaðaríhlutun verið íhug- uð,” bætti hann við en neitaði að gefa frekari skýringar á orðum ! sínum. Um 20% af þeirri oliu sem Banda- ríkjamenn nota, kemur frá þessu svæði. Harold Brown varnarmála- ráðherra sagði i viðtalinu að olía frá Miðausturlöndum væri Bandaríkja- mönnum lífsnauðsyn og ef þyrfti að verja olíulindir i Saudi-Arabíu yrði að grípa til allra tiltækra meðala, einnig hernaðaríhlutunar. Flugvéla- móðurskip stórveldanna af stað Nýjasta flugvélamóðurskip Sovét- manna, Minsk, sem er 45 þúsund tonn að stærð er nýfarið í gegnum Bosphorus og Dardanellessund á leið sinni til Miðjarðarhafs. Ekki er vitað um ákvörðunarstað. Þá hefur flugmóðurskip Banda- ríkjamanna, Constellation, sem er 80 þúsund tonn að stærð, lagt af stað frá fiotastöð á Filippseyjum. Tals- maður Bandaríkjastjórnar segir að ferðir skipsins séu ekki tengdar stríði Kínverja og Víetnam. — sokn Kmverja heldur áfram inn íVíetnam—f undum Öryggisráðs S.Þ. frestað til morguns Kínverskt herlið hefur hertekið landamærabæinn Dong dang eftir mikla baráttu við úrvalssveitir víet- namska hersins að þvi er segir í frétt- um frá Kína. Bærinn er mjög mikilvægur hernaðarlega og beittu Víetnamar þeim hersveitum sínum, sem kallaðar eru Fljúgandi tígrisdýrin. Don dang er útvörður land- leiðarinnar til Hanoi, en þangað liggur bæði aðalvegurinn og járn- 41 Rússneski björninn er aðeins farinn að bylta sér vegna innrásar Kínverja í Víetnam. brautarlínur. Heimildir Tokyo og Bankok greina að í vænduni sé stór orusta í bænum Lang Song og eigi sér stað miklir hergagnaflutningar þangað. Hanoi útvarpið hefur greint frá þvi að bardagar séu þegar hafnir i fjöllunum í kring um Lang Song. Mjög gott orð fer af kínversku hermönnunum. Þeir eru sagðir gæta eigna óbreyttra vietnamskra borgara, eftir að þeir hafa hertekið bæi og þorp og fari þeir um bæina snerta þeir ekki eigur manna. Harðar deilur voru milli kinversku og sovézku fulltrúanna í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna vegna innrásar Kínverja og hafa þær deilur staðið i 3 daga, án sjáanlegrar niðurstöðu. Fundum öryggisráðsins hefur verið frestað til morguns.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.