Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 26.02.1979, Qupperneq 23

Dagblaðið - 26.02.1979, Qupperneq 23
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1979. 23 d Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir D KR í kröppum dansi gegn ÍR - KR sigraði ÍR 85-84 í Hagaskóla á laugardag íleik mikillar taugaspenna íslandsmeistarar KR sluppu með skrekkinn gegn ÍR í úrvalsdeildinni i Hagaskóla á laugardag. Unnu nauman sigur í leik mikillar taugaspennu og það var fyrst og fremst leikreynsla, meiri breidd KR sem skóp sigurinn, nauman sigur og KR trónir nú eitt í efsta sæti úrvalsdeildarinnar. KR-ingar byrjuðu leikinn gegn ÍR af miklum krafti og engu líkara en þeir ætluðu beinlínis að kafsigla ÍR-inga, komust í 17—8, en leikurinn jafnaðist, KR-ingar slökuðu á í vörninni og staðan í leikhléi var 50—42 KR í vil. Siðari hálfleikur var mjög jafn, spennandi og taugaspennan þrúgaði Sovétmenn sigruðu B-lið ítala Sovézka landsliðið í knattspyrnu flýr nú hinn harða sovézka vetur og hafa Sovétmenn leitað í sólina á Ítalíu. Um helgina mættu Sovétmenn B-liði Itala og sigruðu Sovétmenn 3—1, eftir að staðan hafði verið 2—0 í leikhléi. Þeir Oleg Blokhin og Makhivokov komu Sovétmönnum yfir. En Italir sóttu stift, ákaft hvattir af 19 þúsund áhorfendum í Bolognía en sterk vörn Sovétmanna átti ekki í erfiðleikum. Á 73. mínútu minnkaði varamaðurinn Altobelli en Gazzajev jók forustu Sovétmanna í 3—1 aðeins tveimur mín- útum síðar. Þetta var þriðji sigur Sovétmanna á 10 dögum á Ítalíu. bæði lið. Liðin skiptust á um forustu en í lokin voru það KR-ingar, sem stóðu uppi sem sigurvegarar. Þeir voru sterkari á taugum. Eins og svo oft áður i vetur þá voru það þeir Jón Sigurðsson og John Hudson, sem lögðu grunn að sigri KR. Hudson með hittni sinni, Jón með snjöllum sendingum. En Einar Bolla- son var og drjúgur, miðlaði af allri sinni miklu reynslu. Hins vegar komu landsliðsmennirnir Eiríkur og Birgir lítið við sögu. Hjta KR skoraði Hudson 32 stig, Jón Sigurðsson 14. Paul Stewart var stigahæstur ÍR-inga með 28 stig, sýndi góðan leik og mikla baráttu. Þeir Kolbeinn Kristinsson og Kristinn Jörundsson voru drjúgir í spilinu. Kolbeinn skoraði 14 stig, Kristinn 12. H. Halls. Staðan í úr- valsdeildinni Úrslit leikja í körfunni. Þór-Njarðvík 83—103 KR-ÍR 85—84 Valur-ÍS 75—76 Staðan i úrvalsdeildinni er nú: KR 16 12 4 1493- -1332 24 Valur 16 11 5 1405- -1390 22 Njarðvík 17 11 6 1743- -1593 22 ÍR 17 8 9 1547- -1510 16 ÍS 15 4 11 1277- -1372 8 Þór 15 2 13 1212- -1480 4 í baráttu um knöttinn, Tim Dwyer, Valsmaðurinn sterki og skapmikli í baráttu við Inga Stefánsson. Stúdentar lögðu Vals- menníHagaskóla! — Stúdentar sigruðu Val 76-75 íHagaskóla ígærkvöld og KR trónir nú eitt í efsta sæti Stúdentar settu heldur betur strik í reikninginn hjá Reykjavíkurmeisturum Vals þegar liðin mættust í úrvals- deildinni í Hagaskóla í gærkvöld. Stúdentar sigruðu Valsmenn 76—75 og var sá sigur veröskuldaður. Stúdentar náðu einum sínum bezta leik í vetur, börðust vel, en Valsmenn hins vegar voru með aldaufasta móti og því ósigur og möguleikar á meistaratign dvínuðu nokkuð þótt engin ástæða sé til að af- skrifa Valsmenn. Síður en svo — til þess er úrvalsdeildin of jöfn. En ósigur gegn einu af neðstu liðunum beinlinis má ekki henda topplið. Þróttur í næstneðsta — Stjarnan sigraði Þrótt 26-21 íHöllinni Stjarnan sigraði Þrótt 26—21 i 2. deild íslandsmótsins í handknattleik í Laugardalshöll og hefur Stjarnan þar með aukið verulega á möguleika sina um eitt af efstu sætum 2. deildar en Þróttur vermir nú næstneðsta sæti 2. deildar. Stjörnunni, undir stjórn Viðars Simonarsonar, hefur vegnað mjög vel undanfarið, unnið athyglisverða sigra eftir slæma byrjun. Þrótti hefur hins vegar gengið afleitlega undanfarið og i raun má orðið afskrifa möguleika Þróttar á einu af efstu sætunum, þó varast beri að spá um 2. deildina, svo mikið hefur verið um óvænt úrslit. Stúdentar léku prýðisvel, börðust um hvern bolta og fyrr en varði höfðu þeir náð góðri forustu. Komust í 23—9, síðan 31 —15, og 41—25, en staðan i leikhléi var 45—31 ÍSívil. Valsmenn byrjuðu síðari hálfleik af fítronskrafti og á sex fyrstu minútum leiksins höfðu þeir skorað 12 stig, ÍS aðeins 2 — Valsmenn höfðu jafnað, 47—47 og héldu þá áhorfendur að stúdentar væru kveðnir í kútinn. En þeir náðu aftur naumri forustu, og í fyrsta sinn komust Valsmenn yfir, 62— 61. Síðan var jafnt, 65—65, 70—70 og hálf önnur mínúta eftir. Stúdentar komust i 74—70 og síðan 76—73, en siðasta orðið áttu Valsmenn og sigur stúdenta staðreynd. Með sigri sinum hefur ÍS þokað sér af mesta hættusvæði úrvalsdeild- arinnar og staða Þórs fer nú að verða æði vonlítil. Bandaríkjamaðurinn Trent Smock sýndi góð tilþrif, skoraði 31 stig. Þá var Gísli Gíslason góður og Ingi Stefánsson átti sinn bezta leik í vetur, skoraði 13 stig, Bjarni Gunnar 12. Hjá Val var Tim Dwyer stigahæstur með 26 stig, en hann lét hið mikla skap sitt óspart í ljósi og var greinilega ekki sáttur við úrslitin. Kristján skoraði 15 stig, Þórir Magnússon 11. H. Halis. Staða Þórs nú orðin vonlítil eftir enn eitt tapið á Akureyri Njarðvík sigraði Þór 103-83 Sífellt sígur á ógæfuhliöina hjá Þórs- urum í úrvalsdeildinni. Á laugardag töpuðu Þórsarar fyrir Njarðvíkingum á Akureyri, 103—83. Það var aldrei spurning hvort liðið væri sterkara. í raun var það hetjuleg barátta Mark Christiansen gegn Njarðvikingum með alla sína breidd. Og eins og að líkum lætur varð Mark að sætta sig við ósigur í þeirri viðureign. Hann einfaldelga hefur enga með sér i liði Þórs — breiddin alls ekki fyrir hendi. Það var aðeins einu sinni að Þórsarar höfðu yfir, þá 2—0 en eins og hendi væri veifað höfðu Njarðvíkingar náð öruggri forustu, 14—2. Staðan i leik- hléi var 57—34 Njarðvík í vil. Njarð- vikingar notuðu ungu mennina óspart, allir fengu að reyna sig. Þessu ber að fagna, og á áreiðanlega eftir að koma Njarðvíkingum til góða. Lokastaða varð 103—83 en skor Njarðvíkinga var mjög jöfn. Ted Bee skoraði mest, 21 stig. Gunnar Þor- varðsson 15, Geir Þorsteinsson 14. Hjá Þór bar Mark Christiansen ægishjálm yfir aðra, skoraði 38 stig en Jón Indr- iðason 16. Ódýrír æfmgabúnmgar VOIT kraftaæfmgatæki Stærðir24—32kr. 8.550. - Stærðir34-44kr. 10.645.- SPEEDO sundskýlur sundboiir ALL STAR Körfuboltaskór Verðkr. 7.410.- GOLA íþróttaskór Verð frá kr. 7.160.- ADIDAS æfingaskór Margar gerðir Verzlið hagkvæmt Póstsendum Sími 13508 St.A.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.