Dagblaðið - 26.02.1979, Qupperneq 28
28
—Breið snjódekk—i
HR. 78x15
G-60-14
ásamt
165x13
BR. 78x13
B. 78x14
DR. 78x14
ER. 78x14
195/75R x 14
205/70RX 14
FR. 78x14
HR. 78x14
600x15
F. 78x15
FR. 78x15
GR. 78x15
LR. 78x15
Póstsendum
Nýkomin amerísk dekk á mjög hagstæðu verði
GÚMMÍVINNUSTOFAN
SKiPHOL Ti 35 - SÍMI31055
„Snorri
Snari
skírður var
í skírnarveislu
í janúar..."
Stundaskrárkeppninni hjá
Olivetti lauk um sl. áramót
og þau sem hlutu 1., 2. og
3. verðlaun eru eftirtalin
börn:
Ingibjörg Arnardóttir
Höfðavegi 6 — Vestmeyjum,
Jón Árnason
Hraunbæ 170— Rvk.
Ásta V. Njálsdóttir
BólstaðarhKð 68—Rvk.
»5
Hittumst svo hress og
kát næst þegar skóli
hefst aö hausti og glím-
um þá viö nýja keppni
á Olivetti stundaskrá.”
Skrifstofutækni hf.
Tryggvagötu - Sími 28511
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1979.
Sjór f olíutönkum
skipa veldur skaða
Kemst oft þangað vegna trassaskapar
starfsmanna olíufélaganna
„Orsakir skemmda í olíukerfum
skipa eiga mjög oft rót sina að rekja
til þess að sjór kemst í olíuna,” sagði
Kristján Finnbogason vélstjóri í
viðtali við DB. „Sjórinn kemst í
olíutanka skipa fyrst og fremst vegna
þess að hann er i olíutönkum er þau
fá afgreitt frá í landi. Sjór getur líka
komizt niður um loftstúta olíutanka,
t.d. ádrekkhlöðnum loðnuskipum.”
Afleiðing þess að sjór kemst í oliu
eru stórskemmdir á olíudælum, sem
leiða aftur til þess að nýtni vélarinn-
ar hraðminnkar og eldsneytis-
kostnaðurinn stígur upp úr öllu valdi.
Kristján sagði að sjór í
olíutönkum í landi væri alger trassa-
skapur starfsmanna olíufélaganna.
Er sett væri á geymana væri leiðsla
tæmd með því að reka oliuna úr
leiðslunni með sjávardælingu. Þá
færi alltaf eitthvert magn af sjó i
olíutankinn, sem í væri dælt. Lág-
mark væri að bíðá í 3 sólarhringa til
að geta táppað þessu sjávar- eða
vatnsmagni úr tankinum áður en af-
greiðsla gæti hafizt. Þessi biðtími
væri oft sniðgenginn og afgreiðsla
hafin strax eða kannski eftir
sólarhring með þeim afleiðingum að
sjór væri í oliu skipstankanna og
hann eyðilegði eða ylli stórskaða á
olíudælunum. Kostaði þessi trassa-
skapur útgerðir mikið fé.
-ASt.
Húsfyllir var við bamasamkomu sem haldin var i Lágafellskirkju á laugardagsmorguninn, en hún var fyrsti liðurinn i
viku hátiðarhöldum i tilefni af 90 ára afmæli kirkjunnar. Á myndinni er sr. Birgir Ásgeirsson sóknarprestur að tala við
börnin, en á bakvið eru börn úr skólahljómsveitinni sem léku á samkomunni, en auk þeirra komu fram félagar úr
æskulýðsfclagi Grensássóknar. DB-mynd JR.
MosfeMttgar halda upp
á afmæli LágafeUskirkju
Níutíu ár eru nú liðin frá því að
Lágafellskirkja í Mosfellssveit var vígð,
og þar með sameinaðar kirkjusóknirn-
ar að Gufunesi og Mosfelli.
í tilefni afmælisins halda Mosfelling-
ar nú veglega kirkjuviku, en kirkju-
vikur hafa um árabil verið árlegur við-
burður í Lágafellssókn. Kirkjuvikan
hófst síðastliöinn laugardag, á sjálfan
afmælisdaginn. Þá annaðist Æskulýðs-
félag Lágafellssóknar barnamessu með
aðstoð hóps æskufólks úr Grensássókn
og lúðrasveitar barna undir stjórn
Lárusar Sveinssonar. í gær var flutt
hátíðarmessa, sem sóknarpresturinn,
séra Birgir Ásgeirsson, annaðist en
séra Bragi Friðriksson prófastur, að-
stoðaði.
Annað kvöld, 27. febrúar, verður
flutt dagskrá i Lágafellskirkju kl. 21.
Ræður flytja þeir Gunnlaugur Stefáns-
son alþingismaður og Pétur Bjarnason
skólastjóri. Tónlistarhliðina annast
Ragnar Björnsson organisti og Sólveig
Björling söngkona. Ragnar mun enn-
fremur flytja orgeltónlist áður en dag-
skráin hefst, þannig að gestir munu
koma að dynjandi tónlist.
Föstudagskvöldið 2. marz verður
önnur dagskrá í kirkjunni. Þá flytur
Wiliiam Jon Holm tónlist meðan gestir
koma, en síðan leikur Barokkvintett
Kammersveitar Reykjavíkur. Gunn-
fríður Hreiðarsdóttir syngur við undir-
leik Páls Kr. Pálssonar og Kirkjukór
Lágafellssóknar við undirleik Sighvatar
Jónassonar. Ræðumenn verða dr.
Björn Björnsson prófessor og Gréta
Aðalsteinsdóttir yfirkennari.
Kirkjuvikunni lýkur siðan með
Æskulýðsmessu sunnudaginn 4. marz.
Félagar úr Æskulýðsfélagi Lágafelis-
sóknar munu annast messugjörðina að
mestu leyti og Elva Björk Jónatans-
dóttir, fyrrverandi formaður félagsins,
flyturávarp.
Kirkjuvikan er að sjálfsögðu öUum
opin, innan sveitar og utan. _óv.
„Pólitík og hrossakaup”,
segir nemendasambandið
Lárus F. Guðjónsson blaðamaður á
Alþýðublaðinu var nýiega ráðinn
starfsmaður Menningar- og fræðslu-
sambandsa alþýðu. Tólf umsækjendur
voru um starfið.
Stjóm nemendasambands Félags-
málaskóla alþýðu hefur gagnrýnt þessa
ráðningu þar sem hún „lykti af flokks-
pólitik og hrossakaupum en hagsmunir
Menningar- og fræðslusambands
alþýðu og verkalýðshreyfingarinnar í
landinu séu fyrir borð bomir.”
Ástæðan til þessarar gagnrýni er sú
að hafnað var umsækjanda sem hefur
gegnt starfinu sem auglýst var, Snorra
Konráðssyni. Telur nemendasam-
bandið að með því hafi verið gengið á
snið við reglugerð sambandsins. Snorri
hafi reynzt hæfur maður með nokkra
þjálfun í námskeiðahaldi og kennslu í
þágu verkalýðshreyfingarinnar.
Telur stjórn nemendasambandsins
að fulltrúar Sjálfstæðisflokks,
Alþýðuflokks og Framsóknarflokks
hafi með sínum þrem atkvæðum gegn
tveim atkvæðum fulltrúa
Alþýðubandalagsins hafnað Snorra af
pólitískum ástæðum.
,,Ég hef starfað í nokkra mánuði,
meðal annars við námskeiðshald fyrir
trúnaðarmenn á vinnustöðum,” sagði
Snorri Konráösson í viðtali við DB.
Hann kvaðst hafa sótt um starfið af
því að hann hefði áhuga á því. Annar
maður hefði orðið fyrir valinu. Að
öðru leyti vildi hann ekki ræða málið.
Mjögdökkar horfur
íbyggingariðnaði
Horfurnar framundan í byggingar-
iðnaði eru mjög dökkar. Gera má ráð
fyrir að starfsmönnum i iðnaðinum
fækki enn frekar á fyrstu mánuðum
þessa árs frá því sem þegar er orðið, og
að atvinnuleysi sé framundan i
byggingariðnaði, segir m.a. í niður-
stöðum ársfjórðungslegrar könnunar á
byggingarstarfsemi sem Landssamband
iðnaðarmanna gengst fyrir.
Samkvæmt könnuninni kom sl. ár
heldur lakra út fyrir byggingariðnaðinn
en árið á undan. í heild var um 0.4%
samdrátt að ræða. Mestur varð sam-
drátturinn á síðasta ársfjórðungi og
hefur starfsmönnum í byggingar-
iðnaði fækkað hlutfallslega mest á
höfuðborgarsvæðinu og atvinnuleysis
er þegar farið að gæta, segir i frétta-
tilkynningu um könnunina. -ÓV.