Dagblaðið - 26.02.1979, Side 29

Dagblaðið - 26.02.1979, Side 29
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1979. 29 Dagblað án ríkisstyrks Varðlæknaþjónustan fær sennilega inni í nýrri álmu Borgarspítalans K. Jónsson tekur á sig alla ábyrgðina — segja síldarmats- menn Framleiðslu- eftirlits sjávarafurða Síldarmatsmenn Framleiðslueftir- lits sjávarafurða hafa sent frá sér at- hugasemd varðandi þá síld, sem Niðursuðuverksmiðja K. Jónsson & Co lét salta hjá söltunarstöð Fiski- mjölsverksmiðju Homafjarðar. í at- hugasemdinni segir m.a. að i samn- ingi um síldarsöltunina fyrir K. Jóns- son &Co standi orðrétt: „Fyrir afskipun skal síldin skoðuð og samþykkt af eftirlitsmanni kaup- anda. Skal yfirtaka hans vera endan- leg og bindandi hvað snertir gæði sildarinnar. Verða engar kvartanir teknar til greina eftir að yfirtakan hefur farið fram, enda verði eftirlits- maður kaupanda viðstaddur við sölt- un síldarinnar og fullt tillit tekið til ábendinga hans varðandi meðferð síldarinnar að ósk kaupanda.” Telja matsmennirnir að með þessu ákvæði samningsins taki K. Jónsson & Co á sig alla ábyrgð á gæðum síld- arinnar enda hafi hann eftirlit með söltun hennar og yfirtöku. Matsmennirnir leggja fram spum- ingar til forstjóra K. Jónsson & Co í fjórðum liðum. 1. Hvað var mikið salt notað við söltun síldar í Höfn 1977? Spurt er hvort rétt sé að aðeins hafi verið notuð 14 kg. eða 2—3 kg minna en talið er lágmarks- skammtur í kryddsíld. 2. Eru tU mælingar á saltinnihaldi sUdarinnar áður en tunnurnar voru slegnar upp sl. sumar tjl að létta á þeim og bæta í þær salti og fullsterkum pækli? 3. Hvers vegna voru s'Udartunnurn- ar slegnar upp, létt á þeim.salti og sterkum pækli bætt í? 4. Er það rétt að beðið hafi verið um aukið saltmagn í s'Ud saltaða 1978 og aukið í það sem talið er lágmark. Sé svo hvers vegna var þessi breyting gerð? Sjúkrasamlag Reykjavíkur hefur í framhaldi af samþykkt heilbrigðisráðs Reykjavíkur samþykkt að taka upp viðræður við Læknafélag Reykjavíkur og stjórn Borgarspítalans um að varðlæknaþjónustan flytji þangað, að því er Adda Bára Sigfúsdóttir form. heilbrigðisráðs tjáði DB. Varðlæknaþjónustan hefur verið til húsa í Heilsuverndarstöðinni og verið þar í hálfgerðri einangrun. Nú er hins vegar, að sögn Öddu Báru, verið að taka í notkun þjónustuálmu Borgar- spítalans og því tímabært að hefja umræður um að varðlæknaþjónustan fái inni þar í nánu sambýli við slysa- varðstofuna. Gaffalbitamálið: Þá hefur Sjúkrasamlag Reykjavíkur einnig samþykkt að auglýsa eftir hjúkrunarfræðingi til að hafa yfir- stjórn símavaktar varðlækna- þjónustunnarmeðhöndum. Ergertráð fyrir að það starf hefjist 1. maí. I framhaldi af því verður unnið að þeirri samþykkt heilbrigðisráðs að öll símtöl varðlæknaþjónustunnar verði hljóðrituð, en þær hljóðritanir verða notaðar sem sönnunargögn um það hvað farið hefur á milli varðlækna- þjónustunnar og þeirra sem í hana hringja. Hefur borið á misræmi i frá- sögnum fólks um hvað þar hafi farið á milli. Um- þessar mundir eru bilar varðlæknaþjónustunnar að tengjast móðurstöð talstöðvaþjónustu sem er í turni Borgarspitalans. Tryggir það mun betur en verið hefur talsamband við varðlæknabílana. Enn er ekkert farið að ræða um minnkun starfssvæðis varðlækna- þjónustunnar. Heilbrigðisráð hafa fjallað um hugsanlega nauðsyn þess, m.a. með því hugsanlega að Seltjarnar- nes og Kópavogur yrðu skorin af starfssvæðinu. Með nýjum lögum er Seltjarnarnes tekið út úr læknis- umdæmi Reykjavíkur og sett undir Reykjanes. Að sögn Öddu Báru þykir að minnsta kosti ekki ástæða til breytingu á þessu fyrr en eftir að fyrir- huguð heilsugæzlustöð er tekin í notkun á Seltjarnarnesi. -ASt. Borgarspílalinn: V a ðlæknaþjónustan færsennilega inni í nýju álmunni. PRAKTICA, PENTAX SP-11, SP, SL, YASHICA ELECTRO-X, IHS, FFT PENTAX K, ME, MX, K2, KX, KM, RICOH XR-1, XR-2, XR-500 PENTAX ES-11, ES, SPF CANON EF, AE-1, A1 CANON EP, FT, FTb, FX, PELLIX, TL, FX, AT-1 KONICA FTA, T3. TC, Acom 1 NIKON FM, EL2, F2, Photomic a, FT3, FE NIKON F, NIKKORMAT EL, FT2, FT MINOLTA SR, SRT MINOLTA SUPER, XK, XE, XG-E OLYMPUS 0M1, 0M2 TOPCON DM, RE-SUPER, SUPER-DM, RE200, RE300 FUJICA ST605 / 701 / 801 / 901, AZ-1 MAMIYA DSX, MSX, SEKOR DTL CONTAX RTS, YASHICA FX-1, FX 2, FR ROLLEI SL35, SL35ME, VOIGTLANDER VSL-1, VSL-2, VSL-3 MINOLTA XD LIIMSUR SEM HÆGT ER AÐ NOTA Á EFTIRFARANDI SLR—MYNDAVÉLAR UNSUR, LOKSINS TIL A ÍSLANDI. SELTJARNARNES OG KÓPAVOGUR NJÓTA ENN UM SINN VARÐ- LÆKNAÞJÓNUSTU ALLT TIL LJÓSMYNDUNAR Austurstræti 6 — Sími 22955

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.