Dagblaðið - 26.02.1979, Qupperneq 29
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1979.
29
Dagblað
án ríkisstyrks
Varðlæknaþjónustan fær sennilega inni í nýrri álmu
Borgarspítalans
K. Jónsson
tekur á
sig alla
ábyrgðina
— segja síldarmats-
menn Framleiðslu-
eftirlits sjávarafurða
Síldarmatsmenn Framleiðslueftir-
lits sjávarafurða hafa sent frá sér at-
hugasemd varðandi þá síld, sem
Niðursuðuverksmiðja K. Jónsson &
Co lét salta hjá söltunarstöð Fiski-
mjölsverksmiðju Homafjarðar. í at-
hugasemdinni segir m.a. að i samn-
ingi um síldarsöltunina fyrir K. Jóns-
son &Co standi orðrétt:
„Fyrir afskipun skal síldin skoðuð
og samþykkt af eftirlitsmanni kaup-
anda. Skal yfirtaka hans vera endan-
leg og bindandi hvað snertir gæði
sildarinnar. Verða engar kvartanir
teknar til greina eftir að yfirtakan
hefur farið fram, enda verði eftirlits-
maður kaupanda viðstaddur við sölt-
un síldarinnar og fullt tillit tekið til
ábendinga hans varðandi meðferð
síldarinnar að ósk kaupanda.”
Telja matsmennirnir að með þessu
ákvæði samningsins taki K. Jónsson
& Co á sig alla ábyrgð á gæðum síld-
arinnar enda hafi hann eftirlit með
söltun hennar og yfirtöku.
Matsmennirnir leggja fram spum-
ingar til forstjóra K. Jónsson & Co í
fjórðum liðum.
1. Hvað var mikið salt notað við
söltun síldar í Höfn 1977? Spurt
er hvort rétt sé að aðeins hafi
verið notuð 14 kg. eða 2—3 kg
minna en talið er lágmarks-
skammtur í kryddsíld.
2. Eru tU mælingar á saltinnihaldi
sUdarinnar áður en tunnurnar
voru slegnar upp sl. sumar tjl að
létta á þeim og bæta í þær salti og
fullsterkum pækli?
3. Hvers vegna voru s'Udartunnurn-
ar slegnar upp, létt á þeim.salti og
sterkum pækli bætt í?
4. Er það rétt að beðið hafi verið
um aukið saltmagn í s'Ud saltaða
1978 og aukið í það sem talið er
lágmark. Sé svo hvers vegna var
þessi breyting gerð?
Sjúkrasamlag Reykjavíkur hefur í
framhaldi af samþykkt heilbrigðisráðs
Reykjavíkur samþykkt að taka upp
viðræður við Læknafélag Reykjavíkur
og stjórn Borgarspítalans um að
varðlæknaþjónustan flytji þangað, að
því er Adda Bára Sigfúsdóttir form.
heilbrigðisráðs tjáði DB.
Varðlæknaþjónustan hefur verið til
húsa í Heilsuverndarstöðinni og verið
þar í hálfgerðri einangrun. Nú er hins
vegar, að sögn Öddu Báru, verið að
taka í notkun þjónustuálmu Borgar-
spítalans og því tímabært að hefja
umræður um að varðlæknaþjónustan
fái inni þar í nánu sambýli við slysa-
varðstofuna.
Gaffalbitamálið:
Þá hefur Sjúkrasamlag Reykjavíkur
einnig samþykkt að auglýsa eftir
hjúkrunarfræðingi til að hafa yfir-
stjórn símavaktar varðlækna-
þjónustunnarmeðhöndum. Ergertráð
fyrir að það starf hefjist 1. maí. I
framhaldi af því verður unnið að þeirri
samþykkt heilbrigðisráðs að öll símtöl
varðlæknaþjónustunnar verði
hljóðrituð, en þær hljóðritanir verða
notaðar sem sönnunargögn um það
hvað farið hefur á milli varðlækna-
þjónustunnar og þeirra sem í hana
hringja. Hefur borið á misræmi i frá-
sögnum fólks um hvað þar hafi farið á
milli.
Um- þessar mundir eru bilar
varðlæknaþjónustunnar að tengjast
móðurstöð talstöðvaþjónustu sem er í
turni Borgarspitalans. Tryggir það mun
betur en verið hefur talsamband við
varðlæknabílana.
Enn er ekkert farið að ræða um
minnkun starfssvæðis varðlækna-
þjónustunnar. Heilbrigðisráð hafa
fjallað um hugsanlega nauðsyn þess,
m.a. með því hugsanlega að Seltjarnar-
nes og Kópavogur yrðu skorin af
starfssvæðinu. Með nýjum lögum er
Seltjarnarnes tekið út úr læknis-
umdæmi Reykjavíkur og sett undir
Reykjanes. Að sögn Öddu Báru þykir
að minnsta kosti ekki ástæða til
breytingu á þessu fyrr en eftir að fyrir-
huguð heilsugæzlustöð er tekin í
notkun á Seltjarnarnesi.
-ASt.
Borgarspílalinn: V a ðlæknaþjónustan færsennilega inni í nýju álmunni.
PRAKTICA, PENTAX SP-11, SP, SL, YASHICA
ELECTRO-X, IHS, FFT
PENTAX K, ME, MX, K2, KX, KM, RICOH XR-1,
XR-2, XR-500
PENTAX ES-11, ES, SPF
CANON EF, AE-1, A1
CANON EP, FT, FTb, FX, PELLIX, TL, FX, AT-1
KONICA FTA, T3. TC, Acom 1
NIKON FM, EL2, F2, Photomic a, FT3, FE
NIKON F, NIKKORMAT EL, FT2, FT
MINOLTA SR, SRT
MINOLTA SUPER, XK, XE, XG-E
OLYMPUS 0M1, 0M2
TOPCON DM, RE-SUPER, SUPER-DM, RE200,
RE300
FUJICA ST605 / 701 / 801 / 901, AZ-1
MAMIYA DSX, MSX, SEKOR DTL
CONTAX RTS, YASHICA FX-1, FX 2, FR
ROLLEI SL35, SL35ME, VOIGTLANDER VSL-1,
VSL-2, VSL-3
MINOLTA XD
LIIMSUR
SEM HÆGT ER AÐ NOTA
Á EFTIRFARANDI
SLR—MYNDAVÉLAR
UNSUR, LOKSINS TIL A ÍSLANDI.
SELTJARNARNES OG
KÓPAVOGUR NJÓTA
ENN UM SINN VARÐ-
LÆKNAÞJÓNUSTU
ALLT TIL
LJÓSMYNDUNAR
Austurstræti 6 — Sími 22955