Dagblaðið - 26.02.1979, Side 33

Dagblaðið - 26.02.1979, Side 33
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1979. 33 Tónlist Skrýtinn staður Akureyri. Það eru ekki aðeins náttúrufegurðin, veðrið og kea, sem gera manni bilt við, heldur líka þetta slangur af fallegu fólki, sem þrátt fyrir að vera dálítið óaðgengilegt, eins og útkjálkamönn- um sæmir, hefur með guðs hjálp tekist að byggja upp samfélag, sem er eins lukkulegt og hugsast getur í prót- estantísku landi. Þetta eru auðvitað engar stórfrétt- ir, bæjarbragurinn á Akureyri er löngu orðinn heimsfrægur á íslandi. En oft hefur maður heyrt misjafnt úr gullkjöftum Reykjavíkur, um þennan „höfuðstað” Norðurlands. Þessa dagana er undirritaður oft að bauka við að kenna eitthvað sem mætti kalla grundvallaratriði tón- skáldskapar, harmóníu, kontra- púnkt, formfræði osfrv. og gengur þá vitaskuld á ýmsu, þó engu stór- hættulegu. Þetta fer fram á einu af mörgum menntasetrum staðarins, sem heitir Tónlistarskóli Akureyrar. Þar stunda alla daga á fimmta hundr- að nemendur músík, undir hand- leiðslu um 20 kennara. Sívakandi eldhugar Þetta eru lygilegar tölur, en þær eru alls ekki ýktar, nema síður sé. Skólastjórinn heitir Jón Hlöðver Áskelsson. Hann er einn af þessum sívakandi eldhugum, sem finnast svo sjaldan norðan Alpanna. Þegar það gerist, blómstrar hins vegar allt i kring- um þá. Undir hans leiðsögn fer tón- listarlíf Akureyrar sívaxandi að magni og gæðum. Má nefna til starf- semi Passíukórsins, sem Norðmaður- inn Kvam stjórnar af mikilli kunn- áttu, árlega tónlistarhátíð í maí, þar sem fram koma bestu fáanlegir lista- menn, innlendir og erlendir o.m.fl. En skólinn sjálfur, uppeldisstöð fyrir verðandi tónlistarmenn og neyt- endur, er auðvitað grundvöllur alls hins. þar er hægt að læra á flest hljóðfæri, sem beitt er í vestrænni músík, þar er söngdeild, með kenn- ara á heimsmælikvarða (Demetz) og þar eru haldnir nemendatónleikar á hverjum laugardegi. Berkofsky, nemandi og Jón Hlöðver Áskelsson við stjóm. ALLT í ÁTTINA Tilsögn hjá Berkofsky. Músík frá fyrri öldum Og ekki má gleyma nemenda- hljómsveitinni, sem starfar af kappi undir leiðsögn Michael Clarkes, og leikur oft opinberlega músík frá fyrri öldum. Eitt af síðustu stórfyrirtækj- um skólans var að fá hingað einn af betri píanistum vesturheims, Martin Berkofsky, til að halda námskeið fyrir kennara og.nemendur. Berk- ofsky þessi er fæddur í Bandaríkjun- um, en á ömmu, sem var kvalin upp í Minsk í Rússlandi. Semsé gyðingur. Þessi skemmtilegi náungi, sem segir að dulrænir kraftar í Eyjafirði hjálpi sér við píanóspilið, var hér hátt í tvær vikur, síkennandi börnum og unglingum, á milli þess sem hann spilaði Scarlatti, Debussy og Ives fyrir okkur hin, sem erum dálitið farin að kalka. Svona námskeið hafa verið nokkuð fastur liður í starfsemi skólans undanfarin ár. Berkofsky var hér líka í fyrra, Hafliði Hallgríms- son, Guðný konsertmeistari og Philip Jenkins, sem býr nú i London, en var einu sinni talsverður Akureyring- ur, voru hér með námskeið í kamm- ermúsík, fyrir tveim þrem árum. Slagsíða Eitthvað þessu líkt var raunar haft í Reykjavík í fyrra, undir forustu stórfiðlarans Paul Zukofskí, og gafst svo vel, að það verður víst endurtekið í vor. Já, þetta er allt í áttina! En hér var það semsé Bcrkofsky, en námskeiðinu hans lauk um síðustu helgi. Undirritaður spurði hann hvort hann hefði orðið var við teljandi árangur af starfi sinu þennan stutta tíma, og svaraði hann af bragði, að fólk væri hér svo næmt og vakandi, að það væri minnsti vandi í heimi að segja því til. Heldur kom nú á mann slagsíða við þessar upplýsingar, því ekki hefur itroðslan gengið alltof vel á köflum, þó ástandið sé ekki bein- línis „desprerat”. En þetta er víst spursmál um hæfileika. Sumir eru kennarar, a'ðrirekki. LÞ. Breyttwr opnunartím! OPÍD KL. 9-9 i Allar skraytingar unnar af fag- mönnum. Nag bllastcaðl a.m.k. ó kvöldla i?i<)\iíA\ixrml HAFNARSTRÆTI Simi 12717 GÓLFIÐ VERÐUR STERK SEM STÁL! OEf þú notar THORO gólfhersluefni Eftir aralangar tilraunir og prófanir hefur bandariska fyrirtækiö STANDARD DRY WALL PRODUCTS, komiö meö þessi frábæru efni á markaöinn. sem eru nú mikiö notuÖ i Bandarikjunum og hafa þegar rutt sér rúm hér á íslandi. Nauösyn er fyrir vinnustaöi, þar sem mikiö mæöir á gólfi, aö ganga frá gólfunum þannig aö ekki þurfi aö vera aö gera viö þau i tima og ótima. Hafiö þvi fyrirhyggju og gangíö frá slitfleti gólfsins strax. THORO STÁLGÓLF veröa þannig til aö stálflögum sem samanstanda af mörgum mismunandi geröum er blandaö i yfirborö blautrar steypunnar, og falla agnirnar þannig saman aö slitþol gólfsins margfaldast og höggstyrkur eykst um 50%. Hentar þetta efni best á gólf, þar sem er t.d. þungaiönaöur.á verksmiöjur, bifreiöaverkstæöi, bilageymslur, vélsmiöjur, hleöslupalla, brýr, hafnargaröa o.fl. THORO KVARS (harðsteypa) er svipaö uppbyggt efni og THORO STÁLGÓLF, en hentar best fyrir matvælaiönaö og léttan iönað, s.s. frystihús, fiskvinnslustöövar, sláturhús, mjólkurstöövar o.fl. P&W GÓLFHERÐIR er settur á gólfiö eftir aö þau hafa veriö steypt. Hann þrefaldar slitþol gólfsins og höggstyrkur eykst um 25%. THORO GÓLFHERSLUEFNIN fást i litum. Verö frá 450 kr. á fermeter. Leitiö nánari upplýsinga, þaö er þess viröi aö kynnast THORO efnunum nánar, þér veröiö ekki fyrir vonbrigöum. ÞÚSUNDIR fermetra hafa þegar sannad gædin. I| steinprýði DUGGUVOGI 2 SIMI 83340 IGEGN FRÁ HINU HEIMSÞEKKTA FYRIRTÆKISEM ALLIR ÞEKKJA njóta mikilla vinsœlda um allan heim, enda hefur RANK ávallt verið ífararbroddi með nýjungar á tœknisviðinu. Inline blackstripe myndlampi, spennuskynjari, snertirásaskipting, aöeins 6 einingar í stað 14, kalt kerfi, spónlagður viðarkassi í stað plastfilmu sem flest önnur tœki eru með. Frábær mynd- og tóngœði, sannfœrizt sjálf. SJÓNVARP & RADIO VITASTÍG 3 SÍM112870 Verö 22" frákr. 425.500 26" frá kr. 513.000. Gerió verósamanburð.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.