Dagblaðið - 26.02.1979, Qupperneq 42
42
Reykjavíkurdeild R.K.Í.
afhendir merki á neðantöldum útsölustöðum frá kl.
9.30..
Börnin fá 10% söluiaun og þau söluhæstu fá sérstök
verðlaun.
Merkjasala
W
a
öskudag
Vesturbær:
Skrifstofa Reykjavíkurdeild RKÍ, Öldugötu 4
Verzlunin, Vesturgötu 53.
Melaskólinn v/Furumel
Skjólakjör, Sörlaskjóli 42
Skerjaver, Einarsnesi 36
Verzl. Perlon, Dunhaga 20
Austurbær:
Skrifstofa Rauða kross íslands, Nóatúni 21
Silli og Valdi, Háteigsvegi 2
Sunnukjör v/Skaftahlíð (Lídó)
Hlíðaskóli v/Hamrahlið
Austurbæjarskólinn
Verzl. Skúlaskeið, Skúlagötu 54.
Smáíbúða- og
Fossvogshverfi
Álftamýrarskóli
Verzl. Sporið, Grímsbæ v/Bústaðaveg
Laugarneshverfi:
Laugarnesapótek, Kirkjuteigi 21.
Laugalækjarskóli v/Sundlaugaveg.
Kleppsholt
Langholtsskóli
Vogaskóli
Þvottahúsið Fönn, Langholtsvegi 113.
Árbær:
Árbæjarskóli
Hraðhreinsun Árbæjar, Rofabæ 7.
Breiðholt:
Breiðholtsskóli, Arnarbakka 1
Fellaskóli, Breiðholti III
Hólabrekkuskóli v/Suðurberg/V esturberg
Ölduselsskóli v/Öldusel.
Hópurinn, sem mest mæddi á við Jólakonsert '78. Frá vinstri eru Páll Ásgeirsson yfirlæknir á barnaspítala Hringsins,
Ómar Einarsson fulltrúi, Guðni Garðarsson formaður Umsjónarfélags einhverfra barna, sem veittu gjafafénu viðtöku,
Björgvin Halldórsson tónlistarmaður, Ómar Valdimarsson fréttastjóri og Jón Ólafsson forstjóri.
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 26. FEBRÚAR 1979.
JólakonsertJ8
HAGNAÐURINN VARD TÓLF
HUNDRUÐ ÞÚSUND KRÓNUR
Hagnaður af Jólakonsert ’78, sem
haldinn var í Háskólabíói þann 3.
desember síðastliðinn, varð
1.211.644 krónur. Hann rennur
óskiptur í meðferðarheimilissjóð
fyrir einhverf börn.
í fréttatilkynningu, sem Sam-
starfsnefndin um hljómleikahaldið
lét frásér fara, segir að í upphafi hafi
ekkert útlit verið fyrir að þetta
framlag gæti orðið þó þetta hátt. En
fyrir fórnfýsi og örlæti fjölda fólks
og þá ekki síður skilning opinberra
aðila hafi þó tekizt að safna saman
um tólf hundruð þúsund krónum. Til
dæmis gáfu flestir sem að hljóm-
leikunum stóðu vinnu sina, alls um
eitt hundrað manns.
Af þessum sökum urðu
kostnaðarliðirnir vegna hljóm-
leikanna merkilega litlir, utan einn.
Háskólabíó innheimti fulla leigu af
húsnæðinu 1.100.000 krónur.
í tilkynningu samstarfsnefnd-
arinnar segir að engar skýringar eða
skilgreining hafi af bíósins hálfu
fengizt á útreikningi þess verðlags-
grundvallar.
-ÁT-
ROXY MUSIC — eins og hún er skipuð i dag. Á myndina vantar þó nýjan hljómborðsleikara hljómsveitarinnar, sem
ekki hefur verið látið uppskátt um enn hver er.
Tvær gamlar og góðar hljómsveitir vaktar upp
Roxy Music og Bad Company láta
í sér heyra í
Tvær heimsþekktar hljómsveitir
koma fram í dagsljósið í næstu viku
eftir langa fjarveru. Á fimmtudaginn
stígur rokkhljómsveitin Bad
Company á fjalirnar eftir tæplega
tveggja ára þögn og heldur nokkra
hljómleika i Englandi. Á
föstudaginn kemur síðan út ný plata
með endurreistri Roxy Music. Sú ber
nafnið Manifesto. Þrjú ár eru nú
liðin síðan síðasta Rocy Music platan
kom út.
Bad Company er enn skipað sömu
mönnum og stofnuðu hljómsveitina
árið 1973, þeim Paul Rodgers, Simon
Kirke, Boz Burrell og Mick Ralphs.
Þeir hafa stundað æftngar og
prufupptökur allt siðan fyrir jól.
Fastlega er reiknað með hljóm-
plötu frá Bad. Co. í tengslum við
hljómleikaferðina. Enginn út-
gáfudagur hefur þó verið nefndur né
heldur kunngert um nafn plötunnar.
Sama þögn virðist þvi rík'ja í
kringum Bad Co. og Led Zeppelin
næstu viku
Sami maður, Peter Grant, sér um
málefni beggja hljómsveitanna.
Roxy Music var vakin upp seint á
síðasta ári. Meginkjarninn, sem
myndaði hljómsveitina hér fyrr á
árum, er nú saman kominn á ný.
Bryan Ferry er á sinum stað,
sömuleiðis Andy McKay, Phil
Mauzanera og Paul Thompson. Nýr
maður í sveitinni er bassaleikarinn
Gary Tibbs. Hann lék áður með
hljómsveitinni Vibrators.
Að vonum þykir nokkuð á skorta,
að hvorki Brian Eno né Eddie Jobson
taki þátt í uppvakningu Roxy Music.
Þeir höfðu hvorugur tíma né áhuga á
að vera með, að því er komið hefur
fram í blöðum. Enn hefur ekki verið
upplýst hvaða hljömborðsleikari taki
þátt í hljómleikaferð Roxy Music um
heiminn. Tæpast hefur þó elnhver
aukvisi verið valinn til þeirra starfa.
Roxy Music leggur upp í heims-
ferð sína fljótlega i næsta mánuði.
Fyrst í stað verða nokkur
Paul Rodgers og Mick Ralphs
liðsmenn Bad Co.
Evrópulönd heimsótt, áður en lagt
verður upp í ferð um Bandaríkin.
Þaðan liggur leiðin síðan til Japan
og/eða Ástralíu. Ferðin endar í
Englandi í maí næstkomandi.
Cr MELODY MAKERog viðar.