Dagblaðið - 26.02.1979, Síða 48

Dagblaðið - 26.02.1979, Síða 48
frfálst, úháð daghlað Radíóvitinn á Raufarhöfn brann ífyrrinótt: MÁNUDAGUR 26. FEBR. 1979. Innbrots- þjófar víða á ferð Milli tíu og tuttugu innbrot og smá- stuldir voru framin í Reykjavík um helgina. í Alaska var stolið um 20 þúsund krónum, spólum á Baldursgötu 22 A, grilli og ljósum af bíl í Jórufelli, 22 lengjum af vindlingum í Nesti við Elliðaár, brotnar 8 rúður í Félagsmála- stofnun Reykjavíkur í Vonarstræti, svo eitthvað sé nefnt. Ákveðinn grunur hafði beinzt að tveimur er þarna áttu hlut að máli en málin eru í rannsókn. -ASt. V Raupið^V, lS TÖLVUR I* OGTÖLVIIÚP ®l BANKASTRÆTI8 27^ Deildarmyrkvi síðdegis: Tunglið hylur77% af þvermáli sólarinnar Deildarmyrkvi á sólu verður seinnipartinn í dag. Á Suðvesturiandi hefst hann klukkan fimm og stendur til rúmlega hálfsjö. Þegar myrkvinn verður mestur, mínútu fyrir klukkan sex, mun tunglið hylja um 77% af þver- máli sólarinnar. Myrkvinn verður mun skýrari í norðanverðum Bandaríkjunum, Kanada og á Grænlandi. Vísindamenn og áhugamenn um stjarnfræði hafa flykkzt þangað að undanförnu til að fylgjast með. Þar er hins vegar, líkt og á íslandi, lélegt skyggni til slíkra kannana. Fari svo ólíklega að deildarmyrkv- inn sjáist í kvöld, þá er fólk varað við því að horfa beint á sólina með berum augum eða sjónauka. -ÁT- Loðnuskip strandaði — losnaði aftur eftir 40 mínútur Loðnuskipið Arnarnes HF—52 úr Hafnarfirði strandaði á grynningnum á Hvitingum um tvær sjómílur undan Hvalsnesi um hálfsjöleytið í gær- morgun. Skipið, sem mælist 288 tonn, var á leið á loðnumiðin eftir löndun á Seyð- isfirði er það tók niðri. Björgunar- skipið Goðinn og fleiri skip voru nær- stödd og héldu þegar í átt til strandaða skipsins. Um fjörutíu mínútum siðar losnaði það af sjálfsdáðum en gat ekki siglt vegna þess að stýrið hafði laskazt og var fast. Goðinn tók Arnarnesið í tog og er á leið með það til Reykja- vikur. Engin slys urðu á mönnum við strandið og virðast litlar eða engar aðrar skemmdir hafa orðið á skipinu, skv. upplýsingum Slysavarnafélags íslands. -ÓV. „MJÖG ALVARLEGT ÁSTAND” — segir Flugfélag Noröurlands — Vitamálastjóri lofar skjótum úrbótum Radíóvitinn á Raufarhöfn brann í fyrrinótt. „Þetta var eini blindflugsvit- inn á Raufarhöfn og þarna hefur því skapazt mjög alvarlegt ástand,” sagði Sigurður Aðalsteinsson, flugmaður og framkvæmdastjóri hjá Flugfélagi Norðurlands í viðtali við DB. ,,Það er ekki hægt að stunda áætlunarflug til staðar sem ekki hefur blindflugsvita.” ,,Vita- og hafnarmálastjórn átti þennan vita og hefur rekið hann með miklum myndarskap,” sagði Siguröur. Hann kvaðst enn ekki hafa heyrt neitt um hvað gert yrði í málinu. Flugfélag Norðurlands flýgur fjórum sinnum í viku hverri til Raufarhafnar að vetrinum, en fimm sinnum í viku á sumrin. ,,Ég hefi ekkert heyrt um eldsupp- tök,” sagði Jónas Friðrik Guðnason, fréttaritari DB á Raufarhöfn. „Mér skilst að þarna hafi brunnið það sem brunniðgat,” sagði hann. Radíóvitinn stóð uppi í ásnum ofan við þorpið. Ekki var aðstaða til þess að koma slökkvitækjum á staðinn til þess að bjarga þarna neinu. „Kópaskersvitinn getur að einhverju leyti komið inn í dæmið þannig að þangað er hægt að fljúga blindflug og þaðan sjónflug, ef veðurástæður leyfa,” sagði Sigurður Aðalsteinsson, ,,en að öðru jöfnu verður ekki haldið uppi áætlunarflugi fyrr en úr hefur verið bætt.” „Við gerum allt, sem við getum til þess að bæta úr þessu, svo fljótt sem við verður komið,” sagaði Aðalsteinn Júlíusson, vita- og hafnarmálastjóri í viðtali við DB. ,,Um það sem þarna gerðist vitum við ekki annað en að vit- inn hafi brunnið niður. Ákveðnar tíma- setningar á úrbótum liggja enn ekki fyrir,” sagði Aðalsteinn. BS. Allt innanlandsflug lá niðri I gær vegna veikinda flugumferðarstjóra í flug- turninum í Reykjavík — nema hvað að eftir vaktaskipti um kvöldmatarleytið voru farnar tvær ferðir til Akureyrar. Þriðja vélin var að leggja af stað, farþeg- ar ailir komnir út i vél með beltin spennt, þegar hætta varð við flugið vegna hálku á flugbrautum á Reykjavikurflugvelli. „Það voru tveir flugumferðarstjórar af þremur veikir og ekki tókst að fá af- leysingamenn,” sagði varðstjóri í flugturninum í samtali við DB í morgun. „Við göngum hér fjórskiptar vaktir, svo það er ekki upp á marga að hlaupa.” Ellefu ferðir voru áætlaðar innanlands í gær en aðeins tvær farnar. I morgun var ekki annað fyrirsjáanlegt en að hægt yrði að fljúga samkvæmt áætlun — nema hvað ófært var til Vestmannaeyja. -OV. KLOFNINGUR1 — í af stöðu r til frum- MIÐSTJORN ASÍ varps Ólafs Ekki er búizt við einingu í afstöðu til frumvarps forsætisráðherra á miðstjómarfundi Alþýðusambands- ins, sem haldinn verður í dag. Klofn- ingur hefur þegar orðið í nefnd, sem miðstjórnin skipaði til að fjalla um málið. Gert er ráð fyrir, að mið- stjórnin klofni eftir flokkspólitískri afstöðu en samþykkt verði af meiri- hluta afstaða, sem sé í samræmi við afstöðu ráðþerra Alþýðubandalags- ins til frumvarpsins. Í nefnd ASÍ em Eðvarð Sigurðsson (AB), Snorri Jónsson (AB), Karl Steinar Guðnason (A), Jón Helgason (A), Bjöm Þórhallsson (S) og Jón Agnar Eggertsson (F). Eðvarð og Snorri hafa lagt fram uppkast að áliti, sem mun fara fyrir miðstjóm ASÍ í dag án þess að atkvæði gangi i nefndinni. í uppkastinu er hafnað til- lögum um kjaramálaráð og enn- fremur „neglingu” prósentna fyrir fjárfestingu í landinu og hlut ríkisins í ár og næsta ár, en þetta eru einhver mikilvægustu atriðin í frumvarpi Ólafs Jóhannessonar. Eðvarð og Snorri telja, að slík negl- ing muni leiða til atvinnuleysis. And- stæðingar þeirra í ASÍ segja, að með þvi að snúast gegn tillögum um að hafa hemil á fjárfestingu og ríkisút- gjöldum sé ASÍ að taka ábyrgð á óðaverðbólgunni, sem komi verst við hina lægst launuðu. -HH. Lögreglumaður átti f ótum fjör að launa — en ökumaður sem eltur var sá ekki lögreglumanninn Laust fyrir kl. 3 í fyrrinótt munaði litlu að lögreglumaður við skyldu- störf í Keflavík væri ekinn niður. Tókst honum með naumindum að bjarga sér undan bíl sem stöðva átti, en ökumaður bílsins kveðst aldrei hafa séð lögreglumanninn og einung- is ætlað að flýja lögreglubílinn. Málavextir voru þeir að í fyrrinótt var lögreglunni í Keflavik tilkynnt um að ekið hefði verið utan í kyrr- stæðan bít og var gefin lýsing á jeppa, sem talinn var eiga í hlut. Skömmu síðar sáu lögreglumenn á eftirlitsferð jeppa, sem gat átt við lýs- inguna. Lögreglumenn töldu sig þekkja ökumanninn og stöðvuðu hann. Einn lögreglumannanna steig út úr lögreglubílnum og ætlaði að hafa tal af ökumanninum. í sama mund gaf ökumaður jeppans vel í og átti lög- reglumaðurinn fótum fjör að launa. Jeppinn hvarf út í náttmyrkrið og komst undan með því að aka veg- leysur innan bæjarmarkanna. Fannst bíllinn síðar mannlaus. í gærmorgun fannst ökumaðurinn, maður á fimmtugsaldri. Viðurkenndi hann ákeyrslu á kyrrstæða bílinn og flóttann undan lögreglunni, en telur sig aldrei hafa séð lögreglumanninn í myrkrinu og alls ekki hafa verið ætl- un hans að aka hann niður. -ÓV/ASt. Það var rólegt á vaktinni i flugtuminum á Reykjavíkurflugvelli í gærdag, enda lá allt farþegaflug niðri vegna veiklnda tlugumteroarsijora. uu-myno Kagnar í n. VEIKINDIFLUGUMFERDARSTJÓRA STÖDVUÐUINNANLANDSFLUGIÐ

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.