Dagblaðið - 21.01.1980, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 21. JANÚAR 1980.
9
Erlendar
fréttir
Veðrið jók
frjósemi
fótboltaliðsins
Avon Dynamos, áhugamannalið í
Bristol á Englandi, var óheppið með
veður á keppnistímabilinu í fyrra. Féllu
óvenju margir leikir liðsins niður vegna
jressa og voru leikmenn liðsins þvi
meira heima við en ella hefði orðið.
Árangurinn lét ekki á sér standa.
Ekki þó á knattspyrnuvellinum. Eigin-
konur tiu leikmanna af ellefu hafa
nýtega eignazt barn. Sá ellefti er þó
hinn ánægðasti með að hafa sloppið,
enda piparsveinn.
Kólombía:
78 létust og 800
særdust er áhorf-
endapallur féll
Að minnsla kosti sjötíu og átta
manns létusl og átta hundruð
slösuðust í borginni Sincelejo I
Kólombíu i gærkvöldi er áhorfenda-
pallar hrundu. Að sögn lögregluyfir-
valda i þessu Suður-Ameríkuriki
hafði pöllunum verið komið upp til
bráðabirgða vegna fyrirhugaðs
nautaats. Óttazt er að tala látinna
eigi eftir að hækka mikið vegna þess
hve margir hinna slösuðu eru illa
haldnir.
Margir létust er þeir tróðust undir
eftir að pallarnir hrundu. — Það var
hræðilegt að sjá bæði konur og börn
troðast undir án þess að ncinn reyndi
að hjálpa þeim — sagði einn sjónar-
votta. í fregnum frá höfuðborginni
Bogota sagði að tala látinna gæti vel
verið rúmlega eitt hundrað.
Slysið varð á uppskeruhátið þar
sem ávallt er efnt til nautaats þar sem
bæði atvinnu og áhugamenn i íþrótt-
inni berjast við ung naut. Sjónar-
vottar sögðu að greinilegt hefði verið
að áhorfendapallarnir hefðu ekki
þolað þunga þess mannfjölda sem
kominn hefði verið upp á þá. Yfir-
völd segja að verið geti að undirstöð-
urnar hafi verið veikari en ella vegna
þess að mikil rigning hafi komið rétt
áður en nautaatið átti að hefjast.
Hafi jarðvegur þá hugsanlega
skolazt frá undirstöðunum.
Heilbrigðisráðherra Kólombiu
lýsti yfir neyðarástandi á þvi svæði
landsins sem snýr að Karabiska
hafinu en borgin Sincelejo, þar scm
slysið varð, er á þeint slóðum. Var
öllum sjúkrahúsum á svæðinu
skipað að vera viðbúin að taka við
slösuðum.
Búið er að senda fjölda lækna og
hjúkrunarlið til aðstoðar og cinnig
hal'a verið send tjöld og annar
búnaður á slysstaðinn.
Skákmótið í Hollandi:
Heimsmeist-
arinn efstur
Bandariski skákmaourinn Yassir
Seirawan er t fyrsta sæti á skák-
mótinu i Hoogovens i Hollandi.
Hann sigraði Hollendinginn
Hans Böhm í fimmtu umferðinni og#
er þá með 4,5 vinninga. Seirawan,
sem er ekki nema 19 ára gamall, er
handhafi titilsins heimsmeistari
unglinga (World junior Champion). í
fjórðu umferðinni sigraði hann
hollenzka stórmeistarann Jan
Timman. Fyrr á mótinu sigraði hann
Viktor Kortsnoj svo vel sést að hinn
ungi skákmaður siglir ótrauður til
sigurs á mótinu.
Landi hans Lev Alburt er i öðru
sæti með 3,5 vinninga en hann
sigraði Ligternik frá Hollandi i
l'immtu umferð og Guðmund Sigur-
jónsson i fjórðu umferð.
Á morgun er fridagur hjá
keppendum á skákmólinu.
Önnur úrslit úr fimmlu umferð
urðu þessi: Timman og Kortsnoj
gerðu jafntefii, Ree frá Hollandi
gerði jafntefli við Sunie frá Brasilíu,
Bandarikjamennirnir Byrne og
Browne gerðu jafntefli, biðskák er
hjá Kovacevic og Guðmundi Sigur-
jónssyni.
Staðan eftir fimm umferðir er þá
þessi:
1. Seirawan með 4,'5, 2. Alburt
með 3,5, 3.-5. Ree, Byrne og Brown
með 3 vinninga, 6. Kovacevic 2,5 og
biðskák, 7.-8. Kortsnoj og Böhm 2,5
9. Sunie 2, 10. Biyiasis 1,5 vinning
og biðskák, 11. Timrnan og Ligterink
1,5 og 13. Guðmundur Sigurjónsson
og Van der Wiet með I vinning og
biðskák.
Bitillinn McCartney er enn i haldi í Japan að þvi er við bezt vitum. Ekki er Ijóst h'vernig ksera á hendur honum fyrir að hafa
220 gr. af hassi í fórum sinum verður meðhöndluð. Hins vegar er búið að aflýsa ellefu hljómleikum, sem hann ætlaði að halda
i Japan ásamt hljómsveit sinni, Wings.