Dagblaðið - 02.04.1980, Side 1
friálst,
mm
narjhlan
6. ÁRG. - MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1980 - 79. TBL.
RITSTJÓRN SlÐUMULA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI11.—AÐALSÍMI27022.
Vítaverð meðferð á skepnum íHvassahrauni:
FÉÐ UGGUR FÓDURLÍTW
IOPNUM KOFARÚSTUM
—sem oft eru meira en hálffullar afsnjó
„Við höfum margoft bent á illa
meðferð þessa manns á sauðfé og i
fyrra kærði ég hann loksins til
sýslumannsins. En allt kemur fyrir
ekki. Svo virðist sem fólki líðist að
fara illa með skepnur af því að það
sjálft er gamalt og einmana,” sagði
Jórunn Sörensen, formaður
Sambands dýraverndunarfélaga á
islandi.
Málið sem rætt var við Jórunni
um er kæra hennar á hendur
kaupmanni sem rekur tízkuverzlun
en fæst við kindabúskap í
tómstundum sinum. Féð hefur hann í
Hvassahrauni í Vatnsleysustrandar-
hreppi.
„Það er ekki hægt að segja að
hann hafi það í húsum. Þarna eru
nokkrar kofarústir og hendir hann
einstaka sinnum heybagga þar við.
Að öðru leyti gengur féð laust jafnt
vetur sem sumar og er úti um allt
hraun. í fyrravor hleypti hann 6 eða 8
Iömbum út á frerann, sem við
kærðum og eftir það er hann með
þau í húsi í Hafnarfirði þar sem þau
geta ekkert komizt út.
Hann er með á milli 40 og 50 sauði
en lætur aldrei baða nema hluta af
þeim. Þvi má hann ekki láta neitt af
þeim frá sér af ótta við riðuveiki en
gerir það auðvitað samt.
Ég ásamt dýralækni einum kærði
meðferðina til sýslumannsins í
Hafnarfirði. Kærði ég þá bæði
manninn, forðagæzlumenn í
hreppnum og sveitarstjórnina, sem er
auðvitað ábyrg fyrir að slikt líðst. En
ekkert hefur gerzt í málinu og virðist
það vera voðalega erfitt viðureignar.
Lögin eru fyrir hendi sem banna
svona og nákvæmlega tilgreint hver
viðurlögin eru, en það virðist ekki
duga,” sagði Jórunn.
Kæra Jórunnar er nú til
rannsóknar í Hafnarfirði og eru yfir-
heyrslur hafnar.
DS/A.St.
Neytendasíða
í tilefni páska
— sjá bls.4
Páskadagbók
— bls. 18og23
Páskadagskrár
útvarps
ogsjónvarps
— sjá bls. 34,35,36
og37
Stuttvarídauð-
annhjá mörgum
-sjábls.7
Amarvarpmis-
fórstað mestu
leytisLvor
— sjá bls.6
Páskakross-
gátan
-sjábls.25
Kvikmyndir
umpáskana
— sjá bls. 16 og 17
Carterog
Reagantakaaf-
gerandiforystu
— sjá erl. fréttir
ábls. 11
Páskabros yfir páskablómum
Með páskum styttist í voríð og sumaríð. Blómin byrja að sprínga út, páskalilj-
urnar fyrstar af öllum. Kuldinn í vor hefur að visu gert það að verkum að enn
nóg að gera undanfarna daga eins og aðrir blómasalar en hún brosti full til-
hlökkunar þegar páskana bar á góma. Með fangið fullt af páskaliljum og
eru páskaliljur ekki farnar að skjóta upp kollinum i görðum manna. En i öðrum vorboða er líka full ástæða til að brosa.
blómabúðum er nóg af páskaliljum og hefur fólk keypt mikið af þeim núna Gleðilega páska, gott fólk, og brjótið nú engin bein á skiðum og passið að
undanfarna daga. Unnur ‘Magnúsdóttir hjá Blómastofu Friðfinns hefur haft linurnar fari ekki mikið úr skorðum.
- DS / DB-mynd Bj.Bj.
Dagblaðið óskar öllum lands-
mönnum gleðilegra páska
— næsta blaö kemur út þriöjudaginn 8. apríl