Dagblaðið - 02.04.1980, Side 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. APRlL 1980.
9
Teiknaö í litinn
Palricia Halley-Celebdcigil — Mynd, olía (Ljósm. Þorri).
Sýningaraðstaðan á Mokka hefur
fyrir margt löngu öðlast fastan sess í
vitund margra borgarbúa. Þar hafa
bæði mætir myndlistarmenn og
föndrarar fengið ráðrúm til sýninga,
eftir því lýðræðislega fyrirkomulagi,
sem yfirvöld staðarins hafa þróað og
kristallast í máltækinu ,,Allt er betra
en auðir veggir”.
Þar heíur verið fátt um fína
drætti í vetur en nú er þar sýning,
sem er vel þess virði að menn taki á
sig krók til að grandskoða hana yfir
bolla af expressó-kaffi. Patricia
Halley-Celebdcigil sýndi þarna fyrir
ári og er nú komin aftur með sams
konar vinnubrögð og er það vel.
Listakonan er mikill landshorna-
flakkari og hefur kennt myndlist í
herstöðvum Bandaríkjamanna viða
um heim, gerir slíkt hið sama hér. Á
ferðum sínum hefur hún drukkið í sig
ýmis áhrif en þó er að sjá sem dvölin í
Frakklandi hafi sett mestan svip á
verk hennar.
Gull og silfur
Franskur módernismi virðist
nefnilega vera sú undirstaða, sem hún
byggir á, með kostum sínum og
göllum, og beitir hún helstu for-
sendum hans af miklu öryggi í hverju
því sem hún tekur sér fyrir hendur.
Mörg verka hennar virðast í fljótu
bragði vera fullkomlega óhlutbundin
Myndlist
\
en við nánari skoðun kemur í ljós að
kveikja þeirra er umhverfið: hús,
bátar, náttúran. Listakonan hefur
gjarnan þann háttinn á að gefa sér
helstu atriði myndar í litsveipum eða
flötum og rissa ofan á þau smáatriðij
sem henni finnst skipta máli upp á:
heildina. Þannig tekst henni oft að:
gefa talsverða dýpt til kynna og
sameinar haganlega teikningu og Iit-
brigði. Vera hennar í Austurlöndum .
hefur enn fremur þokað henni í átt til
skreytilistar og inni i myndunum má
stundum finna gull- og silfurliti,
purpurarauða farva, svo og
fjólubláma. Slíkir taktar eru fljótir
að fara úr böndum, en P.H.C. heldur
þeim í skefjum, tekurenga áhættu.
Þetta er ekki átakamikil myndlist
en stendur við öll sín fyrirheit og það
sem gerir hana sérstaklega aðlaðandi
er hin ljóðræna og elskulega meðferð
málarans á myndefni sínu.
V
Fjölbreytt dagskrá.
Vitnisburðir vinanna í Hlaðgerðarkoti.
Tvísöngur: Garðar og Anna.
Kvartett Jórdan.
Kynning á nýjustu bók Samhjálpar, Hlauptu,
Á vörp og rœður. drengur,
Allir velkomnir. hlauptu.
koN'^
Á laugardaginn fyrir páska um kvöldið kl. 9 verður
Samhjálparsamkoma í Fíladelfíukirkjunni. ^
rómhjólp
NÝ BÓK - BÓK ÁRSINS
Saga Nicky Cruz,
stórkostleg
ogæsispennandi.
Nicky Cruz er ordinn íslendingum
kunnurafbókinni
KROSSINN OG HNÍFSBLAÐIÐ
en hún varseldí9000eintökum.
ÍHLAUPTU, DRENGUR, HLAUPTU
segirNickyCruz
sögunasjélfurogdregur
ekkertundan.
Sönn bók
og stórf engleg