Dagblaðið - 02.04.1980, Blaðsíða 19
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 2. APRÍL 1980.
23
Hvað er á seyöium helgina?
Fulltrúafundur Hjúkr-
unarfélags íslands
verður haldinn að Hótel Heklu, Rauðarárstig 18.
Reykjavík, 10. og 11. april.
Fundurinn hefst kl. 9 fimmtudaginn 10. april.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Sauðárkrókur
— Bæjarmálaráð
Fundur verður haldinn i bæjarmálaráði Sjálfstæðis
flokksins miðvikudaginn 2. april i Sæborg kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Skólamál. Framsögumaður Jón Ásbergsson.
2. önnur nál.
Allt sjálfstæöisfólk velkomiðmeðan húsrúm leyfir.
Þorlákshöfn
— nágrenni
Steingrimur Hermannsson sjávarútvegsráðherra
verður frummælandi á almennum fundi i Félags
heimilinu Þorlákshöfn, miövikudaginn 2. april kl. 21.
I.O.G.T.
Stúkan Einingin
Fundur i kvöld. Stúkan Freyja kemur i hcimsókn.
Gunnar Þorláksson sér um dagskrána. Kaffi eftii
fund.
Slysavarnadeildin
Hraunprýði, Hafnarfirði
heldur skemmtifund þriðjudaginn 8. april kl. 8.30 i
Gúttó. Fjölbreytt skemmtiatriði.
Alþýðubandalagið
í Neskaupstað
heldur félagsfund fimmtudagskvöldið 3ja april
klukkan 20.30. Hjörleifur Gottormsson ræðir stjórn-
málaviðhorfið.
Aðalfundir
leikunum loknum sér sóknarpresturinn sr. Jón Einars
son um stutta helgistund. Tónleikarnir hefjast kl.
14.00 og eru allir velkomnir.
Tónlistarskólinn
í Reykjavík
Hljómsveit Tónlistarskólans i Reykjavik heldur tón
leika i Bústaðakirkju á skirdag kl. 5 siðdegis. Stjórn
andi er Mark Reedman. Á efnisskránni verða
strengjaverk eftir Sibelius og Peter Warlock. einnig
Branderborgarkonsert nr. 6 eflir J.S. Bach og Diverti
mento fyrir strengjasveit eftir Béla Bartók sem er
meðal þekktuslu verka hans og er nú flutt i fyrsta sinn
á tónleikum hér á landi. Velunnarar skólans eru vel
komnirá tónleikana.
Skíðalyftur Víkings
Skiðalyftur Víkings í Sleggjubeinsskarði eru opnar alla
daga frá klukkan 9 til 22. (
Mosfellsdeild AA
AA-samtökin gangast fyrir kynningarfundi i Hfégarði
í Mosfellssveit föstudaginn langa kl. 4. Kynnt verður
starfsemi samtakanna.
Álafosshlaup
Aftureldingar
Hið árlega viðavangshlaup Aftureldingar verður
laugardaginn 5. apríl og hefst það kl. 14.
Skíðamót í
Sérstæðir popptónleikar verða á menningarvöku
Suðumesjamanna á laugardag. Þar verða saman
komnir gömlu jaxlarnir i Hljómum. Júdasi.
Óðmönnum, Geimsteini, Magnús og Jóhann. og Rut
Reginalds.
Tónleikarnir verða á laugardag kl. 2 i Stapa og
verður miðasala i dag frá kl. 5—7 og einnig á skirdag
og föstudaginn langa. Listamennirnir munu selja og
árita plötur sinar á staðnum.
Tónleikar í Saurbæ
á Hvalfjarðarströnd
Kór Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar heimsækir
Hallgrímskirkju að Saurbæ á Hvalfjarðarströnd á
föstudaginn langa. Efnisskráin er fjölbreytt ogað tón-
frumsýnir á morgun, skírdag, Þið munið hann Jörimd.
' eftir Jónas Árnason. Sýningin vcrður að Logalandi og
hefst hún klukkan 21. Næstu sýningar verða á laugar
dagskvöld ogannan páskadagkl. 15.
Safnaramarkaður
Ungmennafélag
Reykdæla
Hinn árlegi safnaramarkaður verður haldinn i Gyllta
salnum á Hótel Borg laugardaginn fyrir páska. Hefst
kl. 2e.h.
Þar verða félagar i alls konar safnarafélögum,
þ.á m. mynt- og frlmerkjasafnarar með fjölbreytt úr-
val af hvers kyns safngripum til sölu eða skipta.
1 fyrra þegar þessi markaður var haldinn í fyrsta
skipti sóttu hann hundruð manna. Komust færri aö en
vildu. Til þess að auðvelda fólki viðskiptin verður nú
sérstök upplýsingaþjónusta starfandi á markaðnum.
Þeir sem upplýsinga óska áður en markaðurinn er
haldinn vinsamlegast hafi samband viö Anton Holt,
sími 20658, eða Björgúlf Lúðviksson, sími 35273.
Lánskjaravísitala
Með tilvisun til 39. gr. laga nr. 13/1979 hefur Seðla-
bankinn reiknað út lánskjaravisitölu fyrir aprilmánuð
1980.
Lánskjaravísitala 147 gildir fyrir aprilmánuö 1980.
Fundir
kl. 12.20,14.30,15.55,19.30 og 23.50.
FÖSTUDAGURINN LANGI: Engar ferðir.
LAUGARDAGUR: Ekið verður eins og venjulega. »
PÁSKADAGUR: Engar ferðir.
ANNAR í PÁSKUM: Frá Reykjavik verður farið kl.
13.15, 15.20, 18.15 og 23.15. Frá Reykjalundi verður
farið 12.20,14.30,15.55,19.30 og 23.50.
Akstur um Hafnarfjörð
um páskana
SKÍRDAGUR: Akstur hefst kl. 10 og ekið verður til
kl. 00.30.
FÖSTUDAGURINN LANGI: Akstur hefst kl. 14.
Ekið verður til kl. 00.30.
LAUGARDAGUR: Ekiö eins og venjulega. Akstur
hefst kl. 7 og ekið verður til kl. 1 e.m.
PÁSKADAGUR: Akstur hefst kl. 14. Ekið verður til
kl. 00.30.
ANNAR I PÁSKUM: Akstur hefst kl. 10 og ekið
verður til kl. 00.30.
Ferðir sérleyfis-
bifreiða um páska
AKUREYRI: (Norðurleið hf). Ferðir til og frá Ak.
skírdag, laugardag 5. apr. og II. i páskum.
BISKUPSTUNGUR: (Sérl. Selfoss hf.). Ferðir
miðvikudag 2. apr., laugardag 5. apr. og II. í páskum.
BORGARNES: (Sæmundur Sigmundsson). Ferðir
alla daga. Ath. ennfremur aukaferð frá Rvik skírdag
kl. 09.00.
GRINDAVÍK (Þingvallaleið hf). Venjuleg vetrar-
áætlun en engar ferðir föstudaginn langa og páskadag
og morgunferð á skírdag fellur niður.
HÓLMAVlK: (Guðmjón isson hf.). Venjuleg vetrar-
áætlun en aukaferðir sklrdag kl. 08.00 frá Rvik og til
baka samdægurs, II. I páskum kl. 08.00 frá Rvík og.til
baka samdægurs.
HRUNA- OG GNÓPVERJAHREPPUR: (Land
leiðir hf.) Ferðir frá Rvik: Skírdag kl. 10.00, laugard.
5. apr. kl. 14.00 og II. í páskum kl. 21.00. Ferðir frá
Búrf.: Laugard. 5. apr. kl. 09.30 (aðeins frá Haga) og
II. í páskum kl. 17.00.
HVERAGERÐI: (Kristján Jónsson). Venjuleg vetrar-
áætlun en föstudaginn langa og II. í páskum er ekið
samkvæmt sunnudagsáætlun. — Páskadag er kvöld-
ferð kl. 22.00 frá Hverageröi og kl. 23.30 frá Rvík.
HVOLSVÖLLUR: (Austurleið hf). Venjuleg vetrar-
áætlun en aukaferð á skírdag frá Rvik kl. 13.30 og
ekið samkvæmt sunnudagsáætlun II. í páskum. —
Engar ferðir föstudaginn langa og páskadag.
HÖFN í HORNAFIRÐI: (Austurleið h.f.). Venjuleg
vetraráætlun en aukaferð skírdag kl. 08.30 frá Rvík og
baka kl. 09.00 II. i páskum.
LAUGARVATN: (Ólafur Ketilsson). Venjuleg vetrar-
áætlun en engin ferð verður páskadag og ekiö sam-
kvæmt sunnudagsáætlun II. i páskum.
KEFLAVlK: (S.B.K). Venjuleg vetraráætlun en skír-
dag og II. í páskum er ekið samkvæmt sunnudags-
áætlun. Föstudaginn langa og páskadag eru fyrstu
ferðir kl. 12.00 frá Kef. og kl. 13.30 frá Rvik.
KRÓKSFJARÐARNES: (Vestfjarðaleið h.0. Ferðir
skirdag kl. 08.00 frá Rvik og til baka samdægurs og
laugardaginn 5. april kl. 08.00 frá Rvík og til baka II. í
páskum.
MOSFELLSSVEIT: (Mosfellsleið h.f.). Venjuleg
áætlun en ekið samkvæmt sunnudagsáætlun skirdag
og II. i páskum. — Engar ferðir föstudaginn langa og
páskadag.
REYKHOLT: (Sæmundur Sigmundsson). Ferðir frá
Rvik miðvikudag. 2. apr., skirdag kl. 09.00,
föstudaginn langa og laugardag 5. apr. Frá Reykholti
skirdag kl. 12.15 og II. i páskum kl. 15.45.
SELFOSS: (Sérl. Selfoss hf.). Venjuleg vetraráætlun
nema föstudaginn langa og páskadag, þá frá Rvík kU
09.00 og 18.00, frá Stokkseyri kl. 09.00 og 18.00 og
frá Selfossi kl. 09.30 og 18.30. II. i páskum er ekið
samkvæmt sunnudagsáætlun.
STYKKISHÖLMUR—ÓLAFSVÍK —HELLIS-
SANDUR (Sérl.bil. Helga Péturssonar hf.): Venjuleg
vetraráællun en engin ferð páskadag og II. i páskum
ferð kl. 10.00 frá Rvík. kl. 18.00 frá Stykkishólmi. kl.
17.00 frá Hellisandi og kl. 17.30 frá Ólafsvik.
ÞORLÁKSHÖFN: (Kristján Jónsson) Venjuleg
vetraráætlun og ferðir í sambandi við m.s. Herjólf.
Föstudaginn langa og Il.í páskum er ekið samkvæmt
sunnudagsáætlun. — Páskadager engin ferð.
Skíðaferðir
um páskana í Hamragil og Sleggjubeinsskarð.
Akstur hefst á skirdag. Ekið frá Mýrarhúsaskóla kl.
9.30. J.L. hús. um Miklubraut, Umferðarmiðstöð. v.
Verzlunarbankann, Hamrahlið. Shell v. Miklubr.
Sogaveg, Garðsapótek v/Réttarholtsveg. Vogaver.
Breiðholtskjör.
Úlfar Jacobsen, ferðaskrifstofa, Austurstræti 9.
BLÁFJÖLL: Alla daga frá Rvik kl. 10.00 og 13,30.
SKÁLAFELL: Vinsamlegast hringið í sima 22195.
Skíðaferðir í Bláfjöll
frá Hafnarfirði. Garðabæ og Kópavogi verða alla
páskadagana kl. 10 og 13. Komið verður til baka kl.
18.
Farið verður frá föstum viðkomustöðum á vegum
Tónistundaráðs Kópavogs og Hafnarfjarðar og Teits
Jóhannssonar.
Tónleikar
Popptónleikar
Vestur-Skaftfellingar
Aðalfundur Sjálfstæðisfélags Vestur-Skaftafellssýslu
verður haldin að Eyrarlandi laugardaginn 5. april kl.
14.00.
Dagskrá:
1. Venjulegaðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Gestur fundarins er Eggert Haukdal.
Tilkynningar
Áætiun Akraborgar
Frá Akranésí Frá Reykjavik
Kl. 8.30 Kl. 10.00
Kl. 11.30 Kl. 13.00
Kl. 14.30 Kl. 16.00
Kl. 17.30 Kl. 19.00
2. mai til 30. júni verða 5 fcrðir á föstudögum og
sunnudögum. — Siðustu ferðir kl. 20.30 frá Akranesi
og kl. 22.00 frá Reykjavik.
1. júli til 31. ágúst verða 5 ferðir alla daga nema
laugardaga. þá 4 ferðir.
Spilakvöld
Góðtemplarahúsið
Hafnarfirði
Félagsvistin i kvöld, miðvikudag. 2. april.
Veriðöll velkomin.
Fjölmennið.
Bingó i kvöld
Bingó i Templarahöllinni. Eiriksgötu 5. kl. 20.30. 18
umferðir og 4 horn. Verðmæti vinninga 400.000.
Bingó til styrktar fötluðum á
skírdag
Fimmtudaginn 3. april mun Kvennadeild Styrktar-
félags lamaðra og fatlaðra standa fyrir bingói í Sigtúni
til eflingar starfsemi Æfingastöðvarinnar v/Háaleitis
braut. Þá gefst Reykvjkingum tækifæri til að leggja
sitt ai mörkum til að stuðla að bættri þjónustu
Æfingastöðvar SLF. Þar standa nú yfir byggingafram
kvæmdirenda varstækkun Æfingastöðvarinnarorðin
mjög aðkallandi vegna sivaxandi þarfar á meðferð
bæði vegna slysa svo og annarra orsaka. (ÞVÍ
MIÐUR). Til þess að geta tekið nýbygginguna i notk
un þarf aðauka tækjaeign SLF.
Allur ágóði af bingókvöldi mun renna til tækja
kaupa sem stuðla aö bættri liðan lamaðra og fatlaðra.
Kvennadeild SLF vonast eftir stuðningi almennings
nú sem áður.
Sleggjubeinsskarði
Skiöadeild Víkings heldur innanfélagsmót i skíðalandi
deildarinnar í Sleggjubeinsskarði dagana 5. og 6. apríl
nk. Keppt verður i svigi og stórsvigi. Þátttaka tilkynn-
ist i sima 38668 eða i skiðaskála Víkings.
Samtök sykursjúkra efna til
sumardvalar fyrir sykursjúk
böm og unglinga
Samtök sykursjúkra i Reykjavik munu i sumar efna
til nýrrar starfsemi fyrir öll sykursjúk börn á landinu.
Ráðgert er að efna til viku sumardvalar að heima-
vistarskólanum á Stóru-Tjörnum frá 7.—14. júni nk.
en aðstæður þar eru afar hentugar til slíkrar starfsemi
þar sem bæði er um sundlaug að ræða, góðan iþrótta-
sal og umhverfi allt hcntugt til útivistar og vettvangs
kannana.
Á Norðurlöndum hefur slik starfsemi verið reynd
um margra árabil og hefur reynslan sýnt að mikil þörf
er á slíku starfi þar sem sykursjúk börn geta notið
slikrar dsalar undir l'.'iðsögn sérfróðra og reyndra
manna. sem munu sjá |>eim fyrir verkefni. annasi
kvöldvökud. lylgjast með liðan þcirra og aðstoða þai
áallan háit.
öll slík starfsemi getur hjálpað þeim við að öðlast
félagslegt öryggi, stuðlað að sjálfsþekkingu þeirra og
aukið þekkingu á sjúkdómnum og hegðun hans.
Rétt er að taka það skýrt fram að öllum sykursjúk-
um börnum er boðin þátttaka i þessari sumardvöl
óháð þvi hvort þau eða aðstandendur þeirra eru
félagar i Samtökum sykursjúkra eða ekki. Kostnaði ^
verður reynt að halda í lágmarki en nauðsynlegt er að
fólk láti vita hið allra fyrsta. hvort það hefur hug á
þátttöku og verða allar nánari upplýsingar veittar hjá
eftirtöldumaðilum:
Bjarni Björnsson simi 82222 (81626)
Þór Þorsteinsssimi 8A166 (36904)
Þórir S. Guðbcrgvson simi 13525
örlygur Þórðarson simi 16811 (38829)
Skírdagsskemmtun
Barðstrendingafélagsins
fyrir fólk eldra en 60 ára, sem æltað er úr Barða
strandarsýslum eða hefur haft þar langa búsetur.
verður i Domus Medica við Egilsgötu, 3. april kl.
14.00.
Sjálfkjörið í stjórn
Starfsmannafélags
ríkisstofnana
Aðalfundur Starfsmannafélags rikisstofnana var
haldinn mánudaginn 24. 3. sl. og var hann fjölsóttur.
Á fundinum var kosið í stjórn lil najstu tveggja ára.
Aðeins ein tillaga kom fram. tillaga trúnaðarmanna
ráðs, og var þvi sjálfkjörið. Stjórnina skipa: For
inaður: Einar Ólafsson útsölustjóri ÁTVR.
Aðalsljórn: Sigurfinnur Sigurðsson fulltrúi, Vegagerð
rikisins, Jónas Ásmundsson skrifstofustjóri. Háskóla
Íslands. Birgir Sveinbergsson lciktjaldasmiður. Þjóð
leikhúsi Islands, Tómas Sigurðsson forstöðumaður,
Vita- og hafnarmálastj. Helga Ólafsdóttir meina
tæknir, Landsspitala. Ólafur Jóhannesson eftirlits-
maður, Veðurstofu Islands.
Varastjórn. Jón Ivarsson skattendursk. Skattstofu
Reykjavikur. Úlfar Þorsteinsson afgreiðslustjóri,
ÁTVR — Stuðlahálsi. Halldóra Lárusdóttir sjúkraliöi.
Kleppsspitala. Sigrún Aspclund gjaldkcri. Brunabóta
fél. ísl.
Ennfremur voru á fundinum samþykktar tillögur
um félags og kjaramál. Félagsmenn starfa viðá þriðja
hundrað stofnanir sem staðsettar cru um allt land frá
annesjum til innstu dala. Taka samningarnir til um
þrjú hundruð starfa. Á árinu varð félagið 40 ára og
voru af þvi tilefni 6 forgöngumenn þess heiðraðir með
merki félagsins úr gulli.
Rannveig Þorsteinsdóttir formaður 1948—1950
Ingólfur Jónsson formaður 1946—1948
Sverrir Júliusson formaður 1963— 1967
TryggviSigurbjarnarson formaöur 1967—1969
Páll Hafstaðformaður 1959—1963
Valborg Bentsdóttir var sérstaklega heiðruð fyrir
Iprgöngu sina og baráttu fyrir bættum kjörum
kvenna. Einum félagsmanni haföi áður hlotnast sá
heiður að bera merki félagsins úr gulli. en það er
Guðjón B. Baldvir.sson, núverandi formaður deildar
lifeyrisþega, en hann var formaður félagsins 1939—
1944ogsiðan 1950—1959.
Tekjur félagsins voru 102.710.167. krónur.
Listasöfn
Sýningar
ÞJÓÐMINJASAFN: Opið skirdag og laugardag frá
13.30-16.
ÁSGRÍMSSAFN; Bergstaðastrxti 74: Ný sýning á
málverkum, teikningum og vatnslitamyndum Ásgrims
Jónssonar. Opiðskirdag frá 13.30—16.
BOGASALUR ÞJÖÐMINJASAFNS: Forvarzla
textila og textilviðgerðir.Opiðskirdagog laugardag frá
13.30-16.
FÍM-SALURINN, Laugarnesvegi 112: Grímur M.
Steindórsson. Oliumálverk, vatnslitir, járnskúlptúrar.
Opnar skirdag kl. 16. Opið helgidaga frá 14—20.
virka daga frá 17—22.
LISTMUNAHÚSIÐ, Lxkjargötu 2: Temma Bell, ný
málverk. Opið skirdag og laugardag á vcnjulegum
verzlunartima.
GALLERÍ SUÐURGATA 7: Engin sýning um
páska.
SAFN EINARS JÖNSSONAR, Skólavörðuholti:
Lokað yfir páskana.
HÖGGMYNDASAFN ÁSMUNDAR
SVEINSSONAR: Opið skírdag og laugardag frá
13.30-16.
GALLERt GUÐMUNDAR, Bergstaðastrxti 15:
Málverk, grafik og teikningar eftir innlenda og crlcnda
listamenn. Opiö alla virka daga.
MOKKA KAFFI, Skólavörðustig: Patricia, Halley
Celebdcigil, málverk, klippimyndir. Opið skírdag og
laugardag frá 9—23.30.
MYNDLISTARSKÓLINN I REYKJAVlK: Vor
sýning. Opið skírdag, laugardag og annan i páskum frá
14-18.
ÁRBÆJARSAFN: Opið samkvæmt umtali. Sími
•84412 milli ki. 9 og 10 alla virka daga.
FESTI, Grindavik: Gunnar Þorleifsson, málverk.
'Opið frá og með skirdegi til annars i páskum.
KJARVALSSTAÐIR:Enginsýningtil 12. apríl. ,
NORRÆNA HÚSIÐ: Engin sýning 1 kjallara.
Anddyri: Dag Rödsand, grafik. Lokaö föstudaginn
langa og páskadag.
LISTASAFN ÍSLANDS: Ný grafík í eigu safnsins.
Málverk, grafík, höggmyndir og teikningar eftir
innlenda og erlenda listamenn. Opið skirdag og laugar-
dagfrá 13.30—16.
Sigurpáll sýnir
í Ásmundarsal
I dag, miðvikudag, kl. 14 opnar Sigurpáll A. Isfjörð
sýningu i Ásmundarsal. Á sýningunni eru sextíu verk,
oliu-, vatnslita- og krítarmyndir. Þetta er fjórða einka-
sýning Sigurpáls og hann hefur tekið þátt í nokkrum
samsýningum.
Óskar sýnir
í Akóges í Eyjum
Óskar W. Jónsson opnar i dag, miðvikudag 2. apríl,
fyrstu málverkasýningu sína. Á sýningunni eru olíu-
málverk, flest frá Eyjum. Sýningin er opin frá kl. 12—
22 í Akógeshúsinu til 7. apríl. Verkin eru flest til sölu.