Dagblaðið - 11.08.1980, Qupperneq 15
14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 11. ÁGÚST 1980.
1
DAGBLADID«MÁNJJDAGLLR.Í1.AGÚSXí98Q.
Sþróttir
Iþróttir
iþróttir
róttir
Iþróttir
Iþróttir
íþróttir
Iþróttir
Iþróttir
I
r Stórsigur íslands í Kalott-keppninni:
Áttum mesta afreksmerai
og jöfnustu liðsheildina
—Tvö íslandsmet voru sett í stangarstökki og langstökki kvenna
„Þetta var miklu stærri sigur en við
höfðum reiknað með,” sagði Örn Eiðs-
son, formaður Frjáisíþróttasambands
íslands, eftir að Island hafði sigrað
með nokkrum yfirburðum í Kalott-
keppninni á Laugardalsvelli um helg-
ina. ísland hiaut samtals 362 1/2 stig
eða 32 stigum meira en Finnland, sem
varð i öðru sæti. í keppni karla var ís-
lenzka liðið einnig i efsta sæti. Hlaut
207 stig en Finnar komu skammt á eftir
með 203 1/2 stig. í kvennakeppninni
hafði ísland mikla yfirburði — islenzku
stúlkurnar hlutu 155 1/2 stig en sænsku
stúlkurnar komu i öðru sæti með 130
1/2 stig. Það þarf auðvitað ekki að
taka fram, að i Kalott-keppninni eru
keppendur frá Norður-Finnlandi,
Noröur-Sviþjóð, Norður-Noregi auk
tslands.
,,Það brást ekkert hjá okkur og þess
vegna var sigurinn svona öruggur,”
sagði liðsstjóri íslenzka liðsins og
landsliðseinvaldur, Magnús Jakobs-
son, eftir keppnina. Lokastigin skiptust
þannig. Fyrst samtals
ísland 362 1/2
Finnland 330 1/2
Svíþjóð 262
Noregur 255
í karlakeppninni hlaut ísland 207
stig, Finnar 203 1/2 stig, Norðmenn
153 stig og Sviar 132 1/2 stig. í kvenna-
keppninni hlutu islenzku stúlkurnar
155 1/2 stig. Þær sænsku 130 1/2 stig,
finnsku stúlkurnar 127 stig og þær
norsku 102 stig.
Þetta er í annað sinn sem Ísland sigr-
ar í Kalott-keppninni. Sigraði áður í
Tromsö í Norður-Noregi 1975. Nú
aftur 1980 en í önnur skipti hafa Finnar
alltaf sigrað.
Tvö íslandsmet sett
„Þetta er í sjötta sinn, sem ég stekk
stangarstökk i sumar — á æfingum eða
í keppni — og íslandsmetið kom mér
þvi heldur betur á óvart. Hef litið getað
æft vegna meiðsla,” sagði Sigurður T.
Sigurðsson KR eftir að hann hafði
stokkið 4.62 m í stangarstökki í gær og
sigrað. Hann bætti eigið Islandsmet um
tvo sentimetra. Ekki byrjaði hann þó
vel. Braut stöngina í fyrsta stökki.'
Helga Halldórsdóttir, KR, setti ís-
landsmet i langstökki á laugardag.
Stökk 5.78 metra og sigraði. Eldra met-
ið átti María Guðjohnsen og var það
5.74 metrar.
Eftir keppnina völdu liðsstjórar
bezta íþróttafólk hvers lands. Helga og
Oddur Sigurðsson töldu þeir bezt hjá
íslandi — þau fengu áritaðan Glit-vasa
sem og aðrir þeir beztu. Hjá Finnum
voru það Matti Runanen, sem sigraði í
400 m hlaupi, og Helena Heikkinen,
sigurvegari i 3000 m hlaupi. Hjá Svium
Per Nilsson, kúluvarpari, og Birgitt
Baga, sigurvegari í 200 m hlaupi. Hjá
Norðmönnum Öystein Björbaek
Norðmaðurinn Terje Johansen sigrar i
1500 m hlaupinu i Kalott-keppninni i
gær. Jón Diðriksson lengst til vinstri
sigraði Svíann Taffan Lundström á
marklinunni. Fyrir aftan er Gunnar
Páll í harðri keppni við Kent Fredriks-
son og sigraði hann i lokin.
DB-mynd Þorri.
kringlukastari og Mona Evjen sprett-
hlaupari. Næsta Kalott-keppnin verður
i Finnlandi næsta sumar — í Tajana, 35
þúsund manna bæ, og verður 25.—26.
júlí. Þar veðrur þá vígður mikili völlur.
Byrjaði vel fyrir ísland
Kalott-keppnin byrjaði mjög vel
fyrir jsland á laugardag. Eftir fimm
fyrstu greinarnar hafði ísland náð 20
stiga forustu á Finna. Hlotið 64 stig en
Finnar 44. Þessi góða byrjun lagði
grunn að öruggum sigri — munurinn í
lokin 30 stig. í fyrstu greininni, 400 m
grindahlaupi, sigraði Stefán Hallgríms-
son á 53.45 sek. og Aðalsteinn Bern-
harðsson var þriðji. Það gaf íslandi 15
stig. í 200 m hlaupinu hlaut ísland
einnig 15 stig — Oddur sigraði. Var
langfyrstur og Sigurður Sigurðsson í
þriðja sæti. í 400 m grindahlaupi sigr-
aði Sigurborg Guðmundsdóttir þriðja
árið í röð í Kalott-keppninni. Hefur þó
lítið æft í ár — byrjaði reyndar að æfa
mánuði fyrir keppnina.
Erlendur Valdimarsson var fyrstur í
kringlukastinu og náði ágætum
árangri, 61.52 metra. Gott hjá Erlendi.
Norðmaðurinn öystein Björkbaek
bætti árangur sinn verulega. Kastaði í
fyrsta sinn yfir 60 metra á móti eða
61.18 m. Óskar Jakobsson varð að láta
sér nægja þriðja sætið. Gerði löng köst
ógiid.
Jón Diðriksson sigraði glæsilega í
800 m hlaupinu og dró félaga sinn,
Gunnar Pál Jóakimsson, i annað
sætið. Undirritaður hefur sjaldan eða
aldrei séð Jón halupa betur og hann
hefði örugglega getað bætt tíma sinn
verulega ef hann hefði aðeins einbeitt
sér að sigrinum. Hann hljóp á 1:52.09
mín. — og það urðu því mikil von-
brigði í gær, þegar Jón varð aðeins i
öðru sæti i 1500 m hlaupinu á mjög
slökum tíma. Hann ætlaði þar aðreyna
sama leik og í 800 m en það bara gekk
ekki upp. Jón og Gunnar lokuðust inni
í miðjum hóp, þegar um 200 metrar
voru eftir — og Jón fylgdist meira með
Gunnari en þeim fremstu. Þegar svo á
beinu brautina kom höfðu Norðmað-
urinn Terje Johnsen og Svíinn Staffan
Lundström náð um tíu metra forskoti.
Jón tókst að vinna Svíann á marklin-
unni en réð ekki við þann norska.
Upphaf hlaupsins var furðulegt.
Hlaupararnir beinlínis gengu af stað —
fyrstu 200 metrarnir hlaupnir á 37 sek-
úndum!! — og Jón varð um 20 sekúnd-
um frá sínum bezta tíma i vegalengd-
inni. Þetta voru raunverulega einu
verulegu vonbrigðin í keppninni.
í 1500 m hlaupi kvenna urðu þær
Lilja Guðmundsdóttir og Rut Ólafs-
dóttir að láta sér nægja fimmta og
sjötta sætið. Lilja lítið getað æft vegna
veikinda en er þó ákveðin í að halda
áfram næsta sumar. Rut á við meiðsli í
fæti að striða. Hún náði þriðja sæti í
800 m í gær. Þurfti talsvert að leggja að
sér í því hlaupi og var draghölt á eftir.
Þá var Lilja þriðja í 3000 m hlaupinu.
Rúsfnan
í pylsuendanum
„Ég beið þar til í síðustu umferðinni
með sigurstökkið, vildi ekkert vera að
æsa hina keppendurna upp,” sagði
íþróttamaðurinn snjalli, Jón Oddsson,
eftir að hann hafði sigrað i langstökki í
sinni síðustu tilraun, stokkið 7.21
metra. „Nokkuð æft langstökkið,”
spurðum við Jón. Hann hristi bara höf-
uðið. „Ekkert æft langstökkið en æft,
jú, fótboltann.” Jón leikur sem
kunnugt er í 1. deildar liði KR og í
körfubolta með Val.
Þá sigruðu íslenzku sveitirnar örugg-
lega í stuttu boðhlaupunum á laugar-
dag.
Veður var þá þolanlegt — lítið rigndi
en hiti var ekki mikill. Vindur löglegur.
í gær var hins vegar afleitt veður til
keppni — rok og rigning. Stytti up(*á
milli en erfitt átti sólin með að brjótast
gegnum skýjabólstrana. Helga Hall-
dórsdóttir náði betri tíma en gildandi
Íslandsmet í 100 m grindahlaupi og 200
m hlaupi. Árangur hennar gildir þó
ekki sem íslandsmet vegna of mikils
meðvinds. En hún halaði drjúgt inn
stigin þessi bráðefnilega iþróttakona.
Oddur var einnig drjúgur við að hala
inn stigin í hlaupunum. Sigraði í 100 m
og 200 m — var einum hundraðasta úr
sekúndu á undan Sigurði Sigurðssyni í
100 m. Þeir hlupu ekki í sama riðli.
Hins vegar varð Oddur að láta sér
nægja annað sætið í 400 m hlaupinu —
hans beztu vegalengd. Þar gripu Finnar
til heldur lúalegs bragðs. Létu sinn
betri hlaupara hlaupa í fyrri riðlinum,
Matti Rusanen varð þar fyrstur á 48.47
sek. í þolanlegu veðri. Hins >'egar var
slagveður, úrhellis rigning, þegar síðari
riðillinn var hlaupinn. Oddur var þar
langfyrstur en tókst ekki að ná tíma
Finnans úr fyrri riðlinum. Þar voru
áhorfendur sviknir um skemmtilega
keppni. „Þetta var ekki gott hjá Finn-
unum — mikil vonbrigði fyrir mig,”
sagði Oddur eftir hlaupið.
í spjótkasti karla bætti Einar Vil-
hjálmsson árangur sinn um rúma tvo
metra. Kastaði 75.52 m. Stutt fyrir
hann í íslandsmet Óskars Jakobssonar.
Sigurður Einarsson gat ekki beitt sér í
spjótkastinu vegna meiðsla.
í síðustu keppnisgreininni, þegar
boðhlaupin löngu eru frátalin, há-
stökki kvenna var tvöfaldur íslenzkur
sigur. Þar kom mjög á óvart að María
Guðnadóttir sigraði Þórdísi Gísladótt-
ur. María stökk 1.71 m en Þórdís var
nokkuð frá sínu bezta, stökk 1.68 m en
íslandsmet hennar frá því fyrr í sumar
er 1.81 m.
1 heild gekk keppnin nokkuð vel fyrir
sig og áfallalaust. Þeim til sóma, sem
að henni stóðu — og það þrátt fyrir
leiðindaveður. íslenzka landsliðið
hefur aldrei verið jafnara og betra en
nú. Hins vegar var lítið um afreksfólk
að þessu sinni frá hinum Norðurlanda-
þjóðunum. Ekki eins og oft áður að
miklir afreksmenn hafi sett svip sinn á
keppnina, og á það ekki síður við þá ís-
lenzku. Nú voru íslenzku keppendur
bæði mestir afreksmenn og jafnastir
sem liðsheild. Vonbrigði hér og þar þó
eins og í 1500 m og kúpuvarpinu, þó
svo að Óskar og Hreinn yrðu þar i
fyrstu sætunum, einnig að Erlendur gat
ekki keppt í sleggjukasti vegna meiðsla
og Elías Sveinsson keppti ekki í 110 m
grindahlaupinu. En þau vonbrigði voru
smávægileg miðað við alla Ijósu punkt-
ana. -hsim.
Jón Driðriksson sigraði átakalaust i 800 m hlaupinu á laugardag. Gunnar Páll i öðru sæti.
DB-mynd Þorri.
Urslit í öllum greinum
Keppnin var mjög jöfn og skemmti-
leg í mörgum greinum i Kalott-keppn-
inni á Laugardalsvelli um helgina. Hér
á eftir fara úrslit i öllum greinunum —
árangur allra keppendanna. Tveir
kepptu frá hverri þjóð i grein. í tveimur
greinum, hástökki karla og grinda-
hlaupi kvenna, deildu tveir keppendur
stigum. Þá felldi annar norsku kepp-
endanna i stangarstökki byrjunarhæö-
ina og fékk þvi ekki stig.
400 m grindahlaup karia
1. Stefán Hallgrimsson, í, 53,45 sek.
2. Elnar Hernes, N, 54,59
3. Aðalsteinn Bernharðsson, í, 54,70
4. Anders Jansson, S, 56,12
5. Esko Hutt-Hiltunen, F, 56,40
6. Arí Rasinkangas, F, 58,45
7. Ketill Henriksen, N, 59,31
8. Ulf Karlsson, S, 61,26
200 m hlaup karia
1. Oddur Sigurðsson, í, 21,65 sek.
2. Matti Rusanen, F, 22,03
3. Sigurður Sigurðsson, í, 22,12
4. Mats Hassbring, S, 22,93
5. Jukka Sihvonen, F, 23,04
6. Inge Bjöm Hansen, N, 23,14
7. Stig Salomonsen, N, 23,44
8. Magnus Eiriksson, S, 23,68
400 m gríndahlaup kvanna
1. Sigurborg Guðmundsdóttir, í, 63,96 sek.
2. Riitta Manninen, F, 64,14
3. Karin Bergdahl, S, 64,56
4. Inger Almps, N, 67,48
5. Lisbeth Rydso, N, 67,55
6. Hrönn Guðmundsdóttir, í, 68,06
7. Anita Ruthström, S, 71,16
8. Anne Kangastie, F, 78,06
400 m hlaup kvanna
1. Birgitta Báge, S, 55,19 sek.
Stefán Hallgrímsson lengst til vinstri, sigrar i sínum riöli í 110 m grindahlaupinu — og hann var öruggur sigurvegari í 400 m grindahlaupinu á laugardag. DB-mynd Þorri.
2. Mona Evjen, N, 55,56
3. Kaisa Ylimáki, F, 57,17
4. Sigriður KJanansdóttir, í, 57,75
5. Oddný Ámadóttir, í, 57,86
6. Irene Lusikka, F, 59,27
7. Lena Rönnmark, S, 59,53
8. Eva Hansen, N, 61,08
100 m hlaup kvenna 1. Mona Evjen, N, 11,99 sek.
2. Ann-sofi Áberg, S, 12,20
3. Helga Halldórsdóttir, í, 12,25
4. Birgitta Bága, S, 5. Oddný Ámadóttir, í, 12,35
12,37
6. Anne Krístiansen, N, 12,92
7. Taina Sopenlehto, F, 13,15
8. Jaana Syrjáláinen, F, 13,20
Krínglukast karia 1. Erlendur Valdemarsson, í. 61,52 m
2. Öystein Björbaek, N, 61,18
3. Óskar Jakobsson, í, 58,54
4. Pasi Porola, F, 55,66
5. Per Nilsson, S, 52,72
6. Hannu Kemppainen, F, 50,82
7. Björn Hellelund, N, 46,74
8. Benny Selberg, S, 46,42
Kúluvarp kvanna
1. Liisa Anttalainen, F, 13,66 m
2. Guðrún Ingólfsdóttir, í, 12,44
3. Helina Suorsa, F, 11,83
4. Helga Unnarsdóttir, í, 11,61
5. Ingela Brænmark, S, 11,24
6. Lotta Rosén, S, 11,22
7. Krístin Sjövoll, N, 10,73
8. Tove Halvorsen 10,06
Hástökk karia 1. Jan Aibrígtsen, N, 2,05 m
2. Jarmo Myllymáki, F, 2,03
3. Unnar Vilhjálmsson, í, 2,01
4. Henry Hatling, N, 1,98
5.-6. Kari Miettunen, F, 1,95
5.—6. Peter Lindmark, S, 1,95
7. Ingemar Nyman, S, 1,95
8. Stefán Friðleifsson, 1, 1,95
Langstökk kvenna 1. Helga Halldórsdóttir, í, 5,78 m
2. Merlene Tiger, S, 5,55
3. Krístin Gullhav, N, 5,51
4. Helena I.idnvall, S, 5,48
5. Anne Kyllönen, F, 5,47
6. Lisbet Kaisen, N, 5,32
7. Þórdís Gísladóttir, 1, 5,16
8. Anneli Oravalnen, F, 4,77
800 m hlaup karia 1. Jón Diðriksson, í, 1:52,09 mín.
2. Gunnar P. Jóakimsson, í, 1:52,79
3. Esko Huttu, F, 1:53,48
4. Ronny Londbom, S, 1:53,74
5. Kari Náppá, F, 1:56,00
6. Terje Johanesn, N, 1:56,11
7. Haarek Hansen, N, 1:57,49
8. Dick Vaksjö, S, 1:57,96
1500 m hlaup kvenna 1. Helena Heikkinen, F, 4:26,62 mín.
2. Irena Lausikka, F, 4:29,80
3. Birgit Bringslind, S, 4:33,07
4. Ulla Karlson, S, 4:33,72
5. Lilja Guðmundsdóttir, í. 4:34,38
6. Rut Ólafsdóttir, í, 4:34,98
7. Karín Gade-Lundlic, N, 4:45,52
8. Anne Trolie, N, 4:52,69
Spjótkast kvenna
1. Karín Bergdahl, S, 54,88 m
2. Arja Virolainen, F, 50,14
3. íris Grönfeldt, í, 43,22
4. DýrfinnaTorfadóttir, í, 42,18
5. Inger Högseth, N, 38,38
6. Heliná Suorsa, F, 38,18
7. Anne Norö, N, 37,38
8. Lotta Rosén, S, 36,58
5000 m hlaup karia
1. Vesta Káhkölá, F, 14:40,4 min.
2. Asko Isopoussu, F, 14:47,3
3. Atle Joakimsen, N, 14:50,1
4. Jim Johansen, N, 14:17,2
5. Peter Rehman, S, 15:24,5
6. Mikael Agren, S, 15:27,1
7. Steinar Friðgeirsson, í, 17:20,3
8. Stefán Fríðgeirsson, í, 17:20,8
Langatökk karia
1. Jón Oddsson, í, 7,21 m
2. Karí Joentakanan, F, 7,19
3. Ame Viberg, S, 7,10
4. Erik Karison, S, 7,08
5. Ingvald Falck, N, 6,85
6. Fríðrík Þ. Óskarsson, í, 6,85
7. Nils A. Hjelle, N, 6,29
8. Keijo Alaspáá, F, 5,01
4 x 100 m boflhlaup kvanna
1. ísland 49,06 sek.
2. Noregur 49,34
3. Svíþjóð 49,69
4. Finnland 50,87
4 x 100 m boflhlaup karia
1. ísland 42,60 sek.
2. Noregur 43,36
3. Finnland 43,38
4. Sviþjóð 43,69
SÍOARI DAGUR
Sleggjukast karia
1. Háge Möllstad, N, 55,48 m
2. Hannu Kesti, F, 55,12
3. Jukka Matinolli, F, 54,00
4. Óskar Jakobsson, í, 52,70
5. Steinar Andreassen, N, 50,98
6. Hákan Otter, S, 46,34
7. Sven-Erik Whilborg, S, 43,74
8. Stefán Jóhannsson, í, 37,02
Kringkikast kvanna
1. Guðrún Ingólfsdóttir, í, 49,86 m
2. Liisa Anttalainen, F, 43,46
3. Anne Britt Norö, N, 42,86
4. Ingela Bránmark, S, 34,30
5. Elin Gunnarsdóttir, Í, 34,24
6. Lotta Rosén, S, 33,90
7. Helina Suorsa, F, 33,42
8. Maalfrid Vannebo, N, 32,44
Kúluvarp karia
1. Óskar Jakobsson, í, 18,86 m
2. Hreinn Halldórsson, í, 18,78
3. Per Nilsson, S, 18,67
4. Kalevi Niemelá, F, 16,22
5. Matti Kemppainen, F, 15,73
6. Gustav Nyberg, S, 14,78
7. Nils Otto Pettersen, N, 14,66
8. Öystein Björbæk, N, 13,77
100 m grindahlaup kvenna
1. Helga Halldórsdóttir, í, 13,7 sek.
2. Karin Bergdahl, S, 14,6
2. Þórdis Gísladóttir, í, 14,6
4. Anne Kyllönen, F, 14,8
5. Riitta Manninen, F, 15,0
6. Toril Kristoffersen, N, 16,0
7. Tone Hatten, N, 16,8
8. Lena Rönnmark, S, 18,1
110 m grindahlaup karía
1. Einar Hernes, N, 13,9 sek.
2. Hannu Salmi, F, 14,5
3. Markku Pekkala, F, 14,6
4. Stefán Haligrimsson, í, 14,8
5. Jan-Erík Westman, S, 15,0
6. Hans Andersson, S, 15,2
7. Stefán Stefánsson, í, 15,6
8. Odd Ivar Sövik, N, 16,5
200 m hlaup kvanna
1. Mona Evjen, N, 24,3 sek.
2. Helga Halldórsdóttir, í, 24,4
3. Birgitta Bága, S,
4. Ann-Sofi Áberg, S,
5. Oddný Amadóttir, í,
6. Anne Krístiansen, N,
7. Taina Sopenlehto, F,
8. Rauni Lehtinieml, F,
Stangarstökk karia
1. Sig. T. Sigurðsson, í,
2. Tomas Widmark, S,
3. Kristján Gissurarson, í,
4. Risto Sankala, F,
5. Jan E. Gylterud, N,
6. Hannu Kemppainen, F,
7. Anders Nyberg, S,
100 m hlaup karla
1. Oddur Slgurðsson, í,
2. Sigurður Sigurðsson, í,
3. Einar Hernes, N,
4. Inge-Björn Hansen, N,
5. Jukka Sihvonen, F,
6. Jorma Lahtinen, F,
7. Mats Hassbríng, S,
8. Magnus Eriksson, S,
1500 m hlaup karta
1. Terje Johansen, N,
2. Jón Diðríksson, í,
3. Staffan Lundström, S,
4. Gunnar P. Jóakimsson, í,
5. Kent Fredrekson, S,
6. Jan Ankervold, N,
7. Pasu Hourula, F,
8. Taisto Tiri, F,
Þrfatökk karia
1. Jouko Niva, F,
2. Friðrik Þ. Óskarsson, í,
3. Erík Karlsson, S,
4. Eero Jormakka, F,
5. Jan Albrígtsen, N,
6. Peter I.indmark, S,
7. Kári Jónsson, í,
8. Frank Ottesen, N,
800 m hlaup kvanna
1. Irene Lusikka, F,
2. Kaisa Ylimáki, F,
3. Rut Ólafsdóttir, í,
4. Ulla Karlsson, S,
5. Karen Gadelundlien, N,
6. Kristina Sandqvist, S,
7. Marte Selfors, N,
8. Guðrún Karlsdóttir, Í,
Spjótkast karia
1. Ari Mursu, F,
2. Leif Lundmark, S,
3. Einar Vilhjálmsson, Í,
4. Oiva Keránen, F,
5. Jerry Holmström, S,
6. Sigurður Einarsson, í,
7. Björnar Tellmann, N,
8. Stein Rufsvoll, N,
3000 m hlaup kvenna
1. Helena Heikkinen, F,
2. Birgit Bringslind, S,
3. Lilja Guðmundsdóttir, í,
4. Anna Trolie, N,
5. Mona Aagnes, N,
6. Eva I.indfors, S,
7. Anneli Oravelinen, F,
8. Sigurbjörg Karlsd., í,
25,0
25.6
25.9
26,0
26.7
26.9
4,62 m
4,40
4,10
4,00
4,00
3,80
3,70
10.76 sek.
10.77
11,01
11,04
11,05
11,11
11,14
11,49
4:03,2 min.
4:03,4
4:03,4
4:05,1
4:05,1
4:05,8
4:06,6
4:09,3
15,16 m
15,05
15,02
14,71
14,46
13,95
13,89
13,70
2:12,76 mín.
2:13,27
2:14,36
2:14,50
2:16,78
2:18,06
2:26,27
2:28,46
77,58 m
75,98
75,52
70,44
63,86
62.24
58.24
57,74
9:41,5 mín.
9:45,7
10:15,8
10:19,0
10:28,8
10:38,5
10:38,6
11:30,3
Vegna þrengsla f blaðinu verða úrslil
annarra greina að bfða til morguns.
ISigurður T. Sigurðsson að sveifla sér upp á stönginni — hæðin 4.62 m oe hann fór yfir. Nýtt Islandsmet.