Dagblaðið - 05.02.1981, Side 18
18
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1981.
. 1ÉL
Veðrið
ignlngui
vestanj
norðan.
t meðj
SpáÖ er auðtcagrl átt meðrlgi
eöa alyddu sunnanlands og vestan,
en þurrt eð meetu fyrir
Slðdegis gengur I vestanátt
áljum sunnenlends, en norðanátt
fyrir norðen með snjókomu.
Klukken 6 ver sunnen 3, slydda og
1 stig í Reykjavlc, sunnan 6, rigning
og 2 sig é Qufcakáken, hssyfeg átt,
2, snjókoma og - atlg á Qaltarvita,
suðsuðeustan 1, skýjað og -10 sðg á
Akureyri, suðeustan 3, alskýjaö og
-10 sig á Raufarhöfiv brayQsg átt 1,
alskýjað og -6 stlg á Dalatanga,
norðan 3, alskýjað og -4 stig á Höfn
og suðaustan 4, rigning og 1 stig á
Stórhöfða.
I Þórshðfn var skýjað og -6 stlg, ál
og 2 stlg ( Kaupmannahöfn, skýjað
og -9 stlg í Osló, snjókoma og -2 stíg (
Stokkhóknl, láttskýjað og -1 stig I
London, láttskýjað og 0 stig (
Hamborg, heiðskírt og 0 stlg í Parfa,
heiðsklrt og 3 stig ( Madrid og
heiðskfrt og 6 stig (Lissabon.
Andlát
Olivert A. Thorstensen, sem lézt 25.
janúar, fæddist 27. júlí 1918 i Reykja-
vík. Foreldrar hans voru Ánine og Ole
Thorstensen.. Ungur að aldrei hóf
Olivert nám í Vélsmiðjunni Héðni og
vann þar i allmörg ár. Árið 1957
stofnaði hann ásamt félaga sínum járn-
smíðaverkstæði að Granaskjóli 9, sem
hann rak til dauðadags. Árið 1946
kvæntist Olivert Katrinu H. Sigurðar-
dóttur og áttu þau 4 syni.
Margrét Jörundsdóttir, sem lézt 29.
janúar, fæddist 15. nóvember 1888 á
Hliði á Álftanesi. Foreldrar hennar
voru Jóhanna Jónsdóttir og Jörundur
Jóhannsson. Margrét fór ung að vinna
og vann m.a. í fiskvinnslu og við'
heimilisstörf. Hún rak i mörg ár mat-
sölu í Reykjavik. Margrét bjó með
Filipusi Magnússyni í um 40 ár.
Ölvir Gunnarsson, Reykjabraut 14,
Þorlákshöfn, lézt 3. febrúar.
Helga Haraldsdóttir, Laxárnesi, Kjós,
lézt í Landakotsspítalanum 4. febrúar.
Jónina Kristjánsdóttir frá Þórshöfn,
Hvassaleiti 153, sem lézt 27. janúar,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni
föstudaginnó. febrúarkl. 13.30.
Beinteinn Bjarnason fyrrv. útgerðar-
maður, Lindarflöt 44, Garðabæ, lézt4.
febrúar sl.
Karl Auðunsson, Jaðarsbraut 31,
Akranesi, lézt í Landspítalanum 3.
febrúar.
Guðný Sveinsdóttir frá Sæbóli,
Aðalvik, sem lézt 25. janúar sl. verður
jarðsungin frá Fossvogskirkju 6.
febrúar kl. 10.30.
Þórey Þorsteinsdóttir kaupkona,
Snorrabraut 61, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju föstudaginn 6. febrúar
kl. 15.
Karólina Kristjánsdóttir, Vatnsnesvegi
25 Keflavík, verður jarðsungin frá
Keflavíkurkirkju 7. febrúarkl. 14.
ÝmisKegt
Sælkerakvöld með
austurlenzku ívafi
I kvöld, 5. febrúar, verður fyrsta sælkerakvöld ársins í
Blómasa! Hótels Loftleiða. Gestgjafinn verður enginn
annar en hinn þjóökunni ferðamálafrömuður og tón-
listarmaður Ingólfur Guðbrandsson.
Ingólfur er með viðförlustu Íslendingum og þvi
kunnugur matargerð margra þjóða. Hann mun
stjórna matseldinni að hætti Pekingbúa og verða
nokkrir af kínverskum eftirlætisréttum hans á mat
seðlum kvöldsins. Kinversk matargerðarlist er viðfræg
og kinverskir veitingastaðir vel sóttir viða um lönd.
Meðal þess sem Ingólfur hefur á matseðlinum verða
kinverskar rækjubollur, hænsnakjötsseyði, austur-
lcnzkur kjúklingaréttur, „sweet and sour pork” og kin-
verskt te.
Þetta fyrsta sælkerakvöld ársins verður meðaustur- j
lenzku ivafi. Linda Meehan frá Korean Airlines sem
kemur sérstaklega til sælkerakvöldsins mun færai
austurlenzkar smágjafir.
Kínverski gitarsnillingurinn Jósef K. Cheung Fungj
frá Hong Kong mun leika japanska og spænska gitar '
tónlist og sópransöngkonan Margrét Pálmadóttirj
syngur lög eftir John Dowland og J. Rodriques viðj
undirleik Jóseps. Margrét er nýkomin til landsins að
loknu fjögurra ára námi við tónlistarháskólann i
Vinarborg.
Samkomur
Þorravaka í Mennta-
skólanum við Sund
Dagana 5.—1 l.febrúar verður haldinsvokölluðþorra
vaka i Menntaskólanum við Sund. Þessa viku fellur
öll kennsla niður og verður skammt stórra högga á
milli hvað menningarviðburði snertir.
Dagskráin í dag og á morgun er sem hér segir:
Fimmtudagur 5. feb.: kl. 12.30: Þorravaka sett. Kór
skólans syngur. Kl. 21.00 Hljómsveitin Þeyrspilar.
Föstudagur 6. feb.: Kl. 12.30 Sveinbjörn Beinteinsson
allsherjargoði spjallar um ásatrú. Kl. 21.100 Leik-
listarsvið skólans, Thalia, flytur einþáttunginn Gum
og Goo eftir Howard Brenton. Opið hús, ýmsir
skcmmtikraftar.
Hvað er Baháí-trúin?
Opið hús aðÓðinsgötu 20 öll fimmtudagskvöld frá kl.
20.30. Allir velkomnir.
Leiklist
Frumsýning hjá
Alþýðuleikhúsinu
I kvöld, fimmtudaginn 5. febrúar, frumsýnir Al
þýðuleikhúsið I Hafnarbiói ærslaleikinn Stjórnleysingi
ferst af slysförum eftir Darió Fó.
Leikir Darió Fó eru íslendingum að góðu kunnir
sem uppspretta hláturs og eftirþanka,. alla vega frá
því að Þjófar, lik og falar konur var sýnt hjá LR fyrir
um tuttugu árum. Vinsældir leikja hans virðast vaxa
með hverju árinu ef marka má þann fjölda fólks sem
sá Við borgum ekki, við borgum ekki hjá Alþýðuleik-
húsinu.
Leikritið Stjórnleysingi ferst af slysförum hefur
verið sýnt við miklar vinsældir viða um Evrópu og
varð meðal annars til þess að Bretar vonum seinna
uppgötvuðu þennan meistara beinskeyttra farsaleikja
(Stjórnleysinginn gengur þar enn fyrir fullu húsi).
Leikritið er upprunalega tilkomið vegna atburða
sem gerðust 1969 — i upphafi þeirrar hryðjuverka
öldusem viðsjáumekkifyrirendanná.
Segja má að lögreglan leiki aðalhlutverkið i þessuni
leik sem gerðist á lögreglustöðinni i Milanó. á þeim
stað þar sem stjórnleysinginn eða anarkistinn Pinelli
féll út um glugga og beið bana eftir þriggja sólar-
hringa yfirheyrslur. Margir héldu því fram að lög-
rcglan hefði „hjálpað” honum út um gluggann, cn
talsmenn lögreglunnar sögðu hann hafa framiðsjálfs
morð.
Daríó Fó lætur brjálaðan (eöa leiksjúkan) mann
komast inn á lögreglustöðina og inn i herbergi þaðsem
Pinelli flaug út úr. Hinn leiksjúki, dárinn. bregður sér i
hlutverk rannsóknardómara útsendara hæstaréttar og
ýmis fleiri hlutverk leikur hann, til að velta hinum
ábyrgu lögreglumönnum upp úr þeim tvi-, þrí- og fjór
sögnum sem þeir hafa flækzt i mcðan málið var óúl
kljáð og eins við rannsókn sem gerö var af héraðsdónv
stólnum í Milanó.
Það er athyglisvert að Darió Fó notar aðeins raun
verulegar missagnir og falsanir lögreglunnar í Pinelli
málinu þegar hann skrifaði þennan sprellfjöruga
ærslaleik. Sannast þar hið fornkveðna að raunveru
leikinn getur orðið svo ótrúlegur að hann virðist
fáránlegur eða bráðskemmtileg dclla i bók eða á leik
sviði.
>5
fiv
ATLI RUNAR
HALLDORSSON
Áfangar, Bakkagerðisblús
og gamall djass
Gærkvöldið í ríkisfjölmiðlunum
var hvorki betra né verra en gengur
og gerist á miðvikudagskvöldum.
Það eru yfirleitt þau kvöld sem ég
helzt ekki kveiki á sjónvarpi nema
rétt á meðan fréttir rúlla í gegn.
Áfangar útvarps eru yfirleitt eini fasti
liðurinn sem fær mig til að halda þvi
opnu fram yfir kl. 20.
Fréttatímar á báðum stöðum liðu
án þess að eitthvað sérstakt yrði til
þess að eyrun sperrtust. Þó lagði ég
við hlustir þegar þingmaðurínn
Stefán Jónsson lýsti því í útvarpsvið-
tali hvers vegna hann vildi að útlend-
ingar, sem kjósa að flytja upp á þetta
auma sker, mættu halda sínum nöfn-
um en ekki vera þröngvað til að
skírast á ný til að verða löglegir
íslendingar. Ég held ég sé sammála
þingmanninum — og Salóme og Eiði
sem skrifuðu upp á frumvarpið með
honum.
Ég reyndi auðvitað að bregðast
ekki þungbærri skyldu minni að
sinna Qölmiðlarýni í gær og valdi mat-
seðil kvöldsins með hliðsjón af þessu
ábyrgðarstarfi. Þar sem ég kom ekki
j heim úr vinnu fyrr en rétt fyrir kvöld-
. fréttir útvarps, þurfti maturinn að
verða til fljótt svo hann yrði bærilega
ætur þegar kæmi að sjónvarpsfrétt-
um. Fyrir valinu varð kjötfars sem í
eru settar tvær dollur af Kotasælu-
osti frá KEA, salt á hnífsoddi og
rifnar gulrætur. Öllu dengt inn í ofn
óg beðið þangað til fingramálið
byrjar í sjónvarpinu. Þá er sett rönd
af kartöflumús meðfram 1 eldfasta
mótinu, paprikudufti stráð yfir og
bakað í 10 mínútur í viðbót. Þá er
rétti tíminn til að setjast að borði og
horfa á fréttirnar. Á öllum venjuleg-
um heimilum stendur borðhald á
miðvikudagskvöldum ekki lengur en
sjónvarpsfréttir af hefðbundinni
lengd. Sé borðhaldi ekki lokið þegar
auglýsingar bresta á, má kúpla yfir á
Áfanga. Og reyndar var enginn svik-
inn af því í gærkvöldi. Ég las í Vísi í
gær að þátturinn væri orðinn
rúmlega 6 ára gamall, kominn vel á
skólaskyldualdurinn á mannlegan
mælikvarða. Á þessum aldri eru út-
varpsþættir hins vegar alla jafnan
gamlir og lúnir. En Áfangar held ég
ætli bara ekkert að fótfúna. Að
minnsta kosti var þátturinn ágætlega
sprækur og skemmtilegur í gær-
kvöldi.
Uppvaskið dróst á langinn; ég
skellti mér í það um leið og Áfangar
kvöddu. Ætlaði reyndar að slökkva á
tækinu um leið, en gaf Þorkeli Sigur-
björnssyni tækifæri. Þátturinn hans
um nútímatónlist hefur alltaf farið
viljandi fram hjá mér. Sjálfsagt inn-
byggðir og áskapaðir fordómar. Ég
hafði þó bara lúmskt gaman af þessu.
Einhverjir myndu vafalaust kalla nú-
tímatónlistina hálfgerðan Bakka-
gerðisblús og ulla á hana umsvifa-
laust. Ég lýsi mig á hinn bóginn
reiðubúinn til að hlusta betur næst
þegar nútímatónsmíðar verða á veg-
inum.
Afganginn af útvarpsdagskráinni
lét ég öðrum eftir að hlýða á og hafa
gaman af. Ég hafði ekki nokkurt geð
í mér til að hlýða á útvarpssögu, frá-
sagnir af frönskum rithöfundi sem ég
hafði aldrei heyrt um getið og kvöld-
tónleika með israelskri síonistahljóm-
sveit. Svei. Hins vegar rak ég augun í
það í blaði að í sjónvarpi væri endur-
tekinn þáttur með Tradkompaníinu
þar sem þeir félagar, reyndar al-
íslenzkir, spiluðu gamlan djass. Ég
að sjónvarpinu. Það var ákaflega ljúf
stund. Kvöldið í heild var því hreint
ekki svo bölvað af miðvikudags-
kvöldi að vera. Stanzlaus tónlistar-
hlustun frá sjónvarpsfréttum til hálf-
ellefu!
Sagan er að vísu ekki öll sögð enn-
þá, því ég gleymdi að geta Vettvangs-
ins Ástu og Sigmars B. Sá þáttur er á
bezta útvarpstíma að kvöldi og er
mjög oft þess virði að hlusta á. Ég
reyni að minnsta kosti að missa aldrei
af Jóni Viðari Þjóðleikhúsbana flytja
gagnrýna pistla um leikhúslífið. í
gærkvöldi tók hann Alþýðuleikhúsið
í bakaríið og hældi því nógu mikið til
að ég ákvað að skella mér á stykkið.
Ég afskrifa nánast umsvifalaust leik-
verk sem þessi orðhvati Vettvangs-
maður hefur rakkað niður í vetur. Og
þau eru ekki fá. Segið svo að gagn-
rýnendur haft ekki áhrif. Björg Árna-
dóttir flutti að vanda ágætan pistil
frá London. Hún og Sigurborg
Ragnarsdóttir eru oft á ferðinni í
Morgunpósti og nú líka á Vettvangi,
með Lundúnapistlana sina. Það
finnst mér undantekningarlítið ákaf-
lega áheyrilegt og skemmtilegt efni.
Góð dæmi um hve oft er hægt að
matreiða efni sem virðast lítilfjörleg,
þannig að úr verði ágætasta fóður
handa útvarpshlustendum.
Guðmundur Magnússon sagn-
fræðingur flutti okkur líka pistil um
bók í Vettvangi. Auðheyrilega hið
forvitnilegasta ritverk, en pistillinn
var fluttur í óþarflega hátíðlegum
tón. Rétt eins og hvarflaði að flytj-
andanum að skutlast i framboð til
biskups þegar sól hækkar á lofti og
kýrnar fara að bera í sveitum. Að svo
mæltu minni ég á aðalfund Svarfdæl-
ingasamtakanna á laugardaginn.
Sundmót Ægis
verður haldið í Sundhöll Reykjavíkurdagana 9. og 10.
febrúar næstkomandi.
Keppt verður í eftirtöldum greinum:
Mánudaginn 9. febrúar:
1500 m skriðsund karla
1500 m skriðsund kvenna
Þriðjudaginn 10. febrúar:
400 m fjórsund karla
400 m fjórsund kvenna
200 m bringusund karla
200 m bringusund kvenna
200 m skriðsund karla
100 m skriðsund kvenna
200 m baksund karla
200 m baksund kvenna
200 m flugsund karla
100 m flugsund kvenna
4 x 100 m skriðsund karla
4 x 100 m fjórsund kvenna
Þáttöku skal skila á tímavarðarkortum SSÍ fyrir
laugardaginn 7. febrúar til Kristins Kolbeinssonar,
Granaskjóli 17 Rvk, simi 10963, eða Guðfinns Ólafs-
sonar, Gyðufelli 10 Rvk, sími 72379. Með þátttöku
skulu fylgja 5 nýkr. fyrir hverja grein.
Islandsmótið í
handknattleik
Fimmtudagur 5. febrúar
Laugardalshöll:
Valur—Þróttur, 1. deild karla. kl. 20.
Víkingur—Valur, 2. fl. karla B. kl. 21.15.
íslandsmótið í
körfuknattleik
Fimmtudagur 5. febrúar
Iþróttahús Kennaraháskólans:
ÍS—Ármann, úrvalsdeild, kl. 20.
Tónleikar
Tónleikar á Hótel Borg
íslenzka sveitahljómsveitin Amon Ra flytur
moðrokk.
Þekktur óbóleikari einleikari
hjá Sinfóníunni
Na^tu tónleikar Sinfóníuhljómsveitar íslands, sem
eru jafnframt hinir fyrstu á siðara misseri þessa starfs-
árs. verða í Háskólabíói i kvöld, fimmtudag 5. febrúar.
Efnisskráin verður sem hér segir: Hándel: Flugelda-
svítan; Haydn: Konsert fyrir óbó; R. Strauss: Konsert
fyrir óbó og Rosenkavalier, svíta. Þrjú síðastnefndu
verkin hafa ekki verið flutt hér á landi fyrr.
Stjórnandi þessara tónleika er Jean-Pierre
Jacquillat. Einleikarinn. Maurice Bourgue, er
franskur og er einn virtasti og eftirsóttasti einleikari á
óbó nú um stundir.
Undir
fölsku
flaggi
Undanfarið hafa drengir verið á
ferðinni og reynt að selja almanök i
nafni Styrktarfélags vangefinna og
líklega fleiri líknarsamtaka. Þessir
drengir eru ekki á vegum líknar-
félaganna og er fólk beðið að vara sig á
þeim. Styrktarfélag vangefinna hefur
verið með jólakort og happdrætti og er
það þá vandlega merkt félaginu.
GENGIÐ
GENGISSKRÁNING Ferðamanna-
NR. 24-4. FEBRÚAR1981 gjaldeyrir
Einingkl. 12.00 Koup Sala Sala
1 Bandarfkjadollar 6,230 6,248 6,873
1 Steriingspund 14,650 14,892 16,161
1 Kanadadollar 5,208 5,223 5,745
1 Dönsk króna 0,9515 0,9543 1,0497
1 Norskkróna 1,1517 1,1550 1,2705
1 Sœnskkróna 1,335297 1,3689 1,5036
1 Hnnsktmark 1,5048 1,5092 1,8601
1 Franskur franki 1,2676 U713 1,3984
1 Belg. franki 0,1821 0,1826 0,2009
1 Svfasn. franki 3,2322 3,2415 3,5657
1 Hollenzk fiorina 2,6939 2,7017 3,9719
1 V.-þýzkt mark I 2,9226 2,9310 3,2241
1 Itöbk Ifra 0,00617 0,00618 0,00680
1 Austurr. Sch. 0,4126 0,4138 0,4552
1 Portug. Escudo 0,1113 0,1117 0,1229
1 Spánskurpeseti 0,0743 0,0745 0,0820
1 Japanskt yen 0,03060 0,03069 0,03376
1 Irsktpund 10,913 10,945 12,040
SDR (sérstök dráttairóttindi) 8/1 7,6934 7,7157
* Breytíng fró siðustu skráningu. Simsvari vegna gengisskráningar 22190.