Dagblaðið - 26.02.1981, Qupperneq 28
28
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 26. FEBRUAR 1981
íslenzki þjóðbúningurínn vakti athygli:
Landinn á skján-
um í Uruguay
Akureyri:
Sjallinn
styttir
afgreiðslu-
tímann
— á föstudagskvöld-
um vegna slœmrar
reynslu af afgreiðslu-
reglum Steingríms
— áfram boðið upp á
nœturskrall til
klukkan 03 á laugar-
dagskvöldum.
„Við breyttum opnunartimanum
að undangenginni rækilegri könnun á
því hvenær gestirnir kæmu og færu
af staðntim. Eftir reynsluna sem
fékkst á föstudagskvöldið er öruggl
að breytingin verður varanleg,”
sagði Sigurður Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri Sjallans eina og sanna,
Sjálfstæðishússins á Akureyri.
Opnunarlima Sjallans var breytt á
sínunr tima, eins og svo fjölmargra
veitingastaða, eftir að Steingrimur
dómsmálaráðherra Hermannsson
breytti reglugerð unt opnunartíma
um árið. Unr helgar var opið í Sjall-
anum til klukkan þrjú að nótlu. En
síðastliðið fösludagskvöld auglýsti
svo Sjallinn aðeins opið til kl. 2, en til
kl. 3 á laugardagskvöld eins og áður.
„Við könnun kom í Ijós að fólkið
kom á föstudagskvöldum á tímabil-
inu 00.30—1.00 og var farið að tín-
asl burtu uppúr kl. 2. Við ákváðunr
að prófa að hafa opið aðeins til kl. 2,
enda cr þessi cini klukkutími mjög
dýr l'yrir húsið. j staðinn auglýstum
við að á bilinu kl. 9 til 11 á föstu-
dagskvöldið yrði tekið á móti liðinu
mcð snittum, hanastéli og hugguleg*
heitum. Og þá bar svo við að flestir
gestirnir voru komnir fyrir hálftólf
og sárafáir voru óánægðir meðstyttri
opnunartima. Á laugardögunt horfir
málið öðruvísi við enda breytist opn--
unartíminn ekki þá.”
Sjallinn býður gestum upp á dans í
tveimur sölum á tveimur hæðum. í
aðalsalnum sjá hljómsveitin Vaka og
Erla Stéfánsdóttir söngkona dönsur-
um fyrir tónlist en á efri hæð ræður
diskóið rikjum. Og um næstu helgi
heltekur rokkið Sjallann. Fá ætla Ut-
angárðsmenn að rokka Akureyringa
uppúrskónum. -ARH.
Vúdú-it yourself tónleikar á Borginni:
ÞEYR FRUMFL YTURFJÖGURNÝLÖG
— íslenzk kona
með hálftíma
sjónvarpsþátt
um land
og þjóð
Landinn fer ótrúlega víða og-það
eru fáir staðir á jarðarkringlunni þar
sem ekki er möguleiki að hitta einn af
skerinu. í því fjarlæga landi Uruguay
búa þrír íslendingar, allir tengdir
'flugi á einn eða annan hátt. Þessir
þrírbúa í höfuðborginni Montevideo.
Hætt er við að þarlend alþýða viti
næsta lítið um ísland, eylandið í
norðri, en taéplega hallast á því varla
er mörlandinn margfróður um mann-
líf í þessu Suður-Ameríkuríki. En
vitneskja Uruguaybúa hefur þó auk-
izt nokkuð, þökk sé einum landanum
þar, Maríu Karlsdóttur Huesmann.
María er gift Luxemborgara og
hafa þau búið á þriðja ár í Monte-
video. Maður hennar starfaði áður
hjá Cargolux i Luxemborg en er nú
framkvæmdastjóri Aero Uruguay,
sem er dótturfyrirtæki Cargoluxi
María kynntist 1<onu, sem starfar
við sjónvarpið í Uruguay og sér þar
um landkynningarþætti. Henni datt í
hug að kynna ísland og fékk Maríu í
lið með sér. Þær gerðu siðan í sam-
einingu hálftíma þátt um ísland, sem
sjónvarpað var beint 14. janúar sl.
Þar var viðtal við Maríu um land og
þjóð og hún kom þar fram á islenzk-
um búningi. Jafnframt sýndi hún
ýmsa muni frá íslandi og fatnað, sern
einkennir íslenzka framleiðslu, t.d.
íslenzkan ullarfatnað.
Þá hafði María fengið landkynn-
ingarmynd frá Flugleiðum og var hún
sýnd í þættinum. í Uruguay er aðeins
svart/hvítt sjónvarp þannig að litir
landsins nutu sín ekki sem skyldi en
aftur á móti vakti íslenzki búningur-
inn mikla athygli og hefur María
fengið fyrirspurnir um hann síðar.
María er íslenzkur ríkisborgari þótt
hún hafi búið erlendis frá því að hún
gekk í hjónaband í Luxemborg árið
1969. Hún starfaði áður sem flug-
freyja hjá Loftleiðum. Foreldrar
hennar eru Jóhanna Gísladóttir og
Karl Pétursson og búa þau i Reykja-
vík. -JH.
Brúðkaupsmynd af Maríu Karísdótlur og manni hennar, Huesmann frá Luxem-
hor/-. Hann er nú framkvcemdastjóri Aero Urupuay oy húa þau hjón í Monte-
video. Maria er hér í isienzka búningnum, sem athygii vakti i sjónvarpsþœttinum
þar sem ísiand oy íslendinyar voru kynntir.
Höskuldur í or-
lof — Þorsteinn
leysir af
Höskuldur Jónsson, ráðuneytis-
stjóri fjármálaráðuneytisins, fór í
orlof um síðustu helgi. Gegnir Þor-
steinn Geirsson skrifstofustjóri störf-
um ráðuneytisstjóra i fjarveru hans.
Orlof sitt hyggst Höskuldur nota
til kynnisferðar á nokkra staði í
Bandaríkjunum á vegum Eisenhower
Foundation, í þeim tilgangi meðal
annars að kynnast einkum þeim þátt-
um stjórnsýslunnar þarlendis, sem
skyldastir eru störfum hans hér.
Höskuldur er væntanlegur heim aftur
um miðjan júnimánuð.
„íslenzk
þrœlasala”
í umburðarbréfi frá fjölda sam-
taka um allan heim til verndunar
mannréttindum, dýrum og lífinu yfir-
leitt, er fjallað um „íslenzka þræla-
sölu”. Þar er átt við veiðar á lifandi
háhyrningum og sölu þeirra viðs
vegar um heim.
Ekki skal fjölyrt um efni þessarar
útgáfu að öðru leyti en að geta þess,
að í henni er ein mynd af háhyrningi
með djúpar frostsprungur í skrápn-
um — hörmulegt slys, sem varð í
Sædýrasafninu í febrúar 1979. Ljós-
myndina tók Ragnar Th. Sigurðsson,
ljósmyndari DB, nú Vikunnar.
Tók því varla að
breyta eftir öll
þessi ár
Thyra Lange Loftsson, kona
Pálma Loftssonar forstjóra Skipaút-
gerðar ríkisins, var dugnaðarforkur
og þekktu hana nær allir Reykvík-
ingar fram undir síðari heimsstyrj-
öld. Hún var skólatannlæknir í Mið-
bæjarbarnaskólanum, þar sem flest
börn borgarinnar sóttu skóla.
Frúin vakti nokkra athygli vegna
þess að hún ók jafnan bíl, en fram á
fimmta áratug aldarinnar var það
heldur fátítt að sjá konur akandi.
Þegar hægri umferðin var upp
tekin hérlendis árið 1968 hélt hún í
byrjun fyrri vana og var að sögn strax
stöðvuð af lögregluþjóni, sem benti
henni á breytinguna. ,,Æ já, en ég
held að ég sé orðin of gömul til að
fara að breyta til úr þessu.”
Hvernig á fólk
að þekkja allar
þessar bílateg-
undir?
Þegar Ásgrímur Halldórsson var
kaupfélagsstjóri KASK, Kaupfélags
Austur-Skaftfellinga, á Höfn í
Hornafirði, átti hann eðlilega erindi
til Reykjavíkur endrum og eins.
Vegna nokkurra viðskipta við
heildverzlun Eiríks Ketilssonar,
mæltu þeir Ásgrímur til vináttu. Kom
Ásgrímur naumast svo til höfuðborg-
arinnar, að hann kæmi ekki við hjá
Eiríki á Vatnsstígnum.
Eirikur hafði eitt sinn um hádegis-
bil brugðið sér erinda í banka. Kom
þá Ásgrímur og spurði, hvort stór-
kaupmaðurinn væri við. Ung starfs-
stúlka kvaðst halda að Eiríkur hefði
farið í mat.
,,Nú, er hann ekki á díet?” spurði
Ásgrímur.
„Nei,” svaraði stúlkan. „Hann er
á Hillman.”
- BS
Hljómsveitin Þeyr hefur að undan-
förnu verið að vinna úr afrískri og
haitískri tónlistarhefð, svonefndri
„Petró-tónlist”, sem mikið er notuð
við trúar- og voodooiðkan vissra blá-
mannahópa. Afrakstur þess verður
kynntur á tónleikum á Hótel Borg í
kvöld.
,,í heildina séð má búast við öðru-
vísi tónleikum en Þeyr hefur áður
haldið,” sagði talsmaður hljómsveit-
arinnar, Guðni Rúnar Agnarsson, í
samtali við blaðamann. „Þeyr hefur
æft mjögmikið að undanförnu, og er
nú með urn tuttugu lög fullæfð. Á
þeim verður þó stöðug endurnýjun,
því að gömul lög eru lögð til hliðar
þegar ný eru fullæfð. Á hverjum ein-
ustu hljómleikum Þeys að undan-
förnu hefur verið frumflutt að
minnsta kosti eitt lag. í kvöld leikur
hljómsveitin ein fjögur lög, sem ekki
hafa heyrzt áður.”
Guðni Rúnar sagði að hljómsveitin
hafi haft nóg að gera að undanförnu.
„Við höfum reynt að fara okkur ekki
of geyst, því að liðsmenn Þeys eru
allir í skóla eða annarri vinnu. Yfir-
leitt hefur hljómsveitin komið fram
einu sinni í viku eða tvisvar í mesta
lagi.”
Þeyr hefur ekki komið fram á
opinberum hljómleikum síðan hún
tróð upp á Hótel Sögu sællar minn-
ingar. Guðni Rúnar var að lokum
spurður að því hvort búast mætti við
einhverjum óvæntum atburðum í
kvöld líkt ogá Sögu.
„Allt eins,” svaraði hann og brosti
dularfullu brosi. -ÁT.