Dagblaðið - 25.05.1981, Síða 10

Dagblaðið - 25.05.1981, Síða 10
10 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 25. MAÍ1981 Erlent Erlent Erlent Erlent 3 MÓDVERJAR OG TYRKIR ERU KOMNIR í HÁR SAMAN vegna ásakana Tyrkja á hendur þýzku lögreglunni um að hún hafi staðið sig illa viðað hafa upp á Agca þrátt fyrir margvíslegar ábendingar frá Tyrklandi - Vestur-Þjóðverjar og Tyrkir eru komnir 1 hár saman vegna ásakana lögregluyfirvalda I Tyrklandi á hend- ur starfsbræðrum í Þýzkalandi. Deilan hófst í raun aðeins nokkr- um klukkustundum eftir að Jóhann- esi Páli páfa öðrum hafði verið sýnt banatilræði á Péturstorgi og tilræðis- maðurinn hafði verið handtekinn. Hann var Mehmet Ali Agca, 23 ára gamall Tyrki, sem i átján mánuði hafði verið eftiriýstur af lögreglunni. Tyrkneska lögreglan lýsti því þegar I stað yfir að hún hefði í október og desember á síðasta ári fjórum sinnum farið fram á það að Agca yrði fram- seldur til Tyrklands eftir að til hans hafði sézt f Vestur-Berlin og öðrum borgum i V-Þýzkalandi. Yfirvöid í Bonn reiddust mjög orðum Tyrkja um „afvegaleidda evrópska vini” og svöruðu þeim fullum hálsi á þann veg að þær upp- lýsingar sem borizt hefðu frá Ankara i Tyrklandi hefðú verið ófullnægj- Agca lyrir rétti i Tyrklandi árið 1979. Tyrkir svara þessum ásökunum Þjóðverja á þann veg að dagblaðið Milliyet hafi birt bréf Agca og að vestur-þýzka sendiráðið i Ankara hafi hlotið að sjá það. önnur mistökin fólust i röngum heimilisföngum sem Tyrkir gáfu Þjóðverjum upp varðandi aðsetur Agca. Annað þeirra var í Vestur- Berlin og hitt i norðurhluta landsins. Fyrir hvorugu þeirra reyndist vera nokkur fótur. Vegna hinnar miklu reiði sem morðið á Ipecki ritstjóra orsakaði segjast tyrkneskir blaðamenn hafa fengið margvislegar upplýsingar um Agca frá Tyrkjum I V-Þýzkalandi sem munu vera um 1,5 milljón tals- ins. meta hvaða ábendingar um hann væru á rökum reistar. Fljótlega eftir fyrstu framsals- beiðnina flutti tyrkneska sendiráðið lögregluyfirvöldum í V-Þýzkalandi þau boð að Agca byggi einhvers staðar á Stuttgart-svæðinu og væri kvæntur þýzkri konu að nafni Christ- ina Klein. Þessar upplýsingar voru aldrei staðfestar og talið var að sá Agca sem þarna væri um að ræða væri annar maður með sama nafni. önnur ábending sem tyrkneska sendiráðið taldi svo sennilega að hún fékk hana þýzkum Iögregluyfirvöld- um í hendur kom frá Bad Wirzach, litlum bæ I Suður-Þýzkalandi, nærri Ulm. Agca var sagður búa þar, i þetta sinn með tyrkneskri konu. Aftur kom sama svarið: Þýzka lögreglan hafði gripið I tómt. Ráðgátan varðandi dvöl Agca i Þýzkalandi er ekki minni fyrir þá sök að nafn hans hefur tengzt tveimur óleystum morðmálum þar í landi. Við þessi morð var hann bendlaður bæði af lögreglu og fjölmiðlum. Annað fórnarlambið var vinstri sinnaður tyrkneskur blaðamaður sem var stunginn til bana fyrir einu ári í Reutlingen, á milli Ulm og Stuttgart. Hitt fórnarlambið var tyrkneskur nýlenduvörukaupmaður sem var skotinn til bana í nóvember síðast- liðnum í Kepten i Bavariu. Hann mun hafa gefið lögreglunni upp mörg nöfn áður en hann lézt af völdum skotsáranna, þeirra á meðal nafn Agca. Tyrknesk yfirvöld grunar að Agca þegi nú yfir dvöl sinni í V-Þýzkalandi til að gefa vitorðsmönnum sinum þar ráðrúm til að breiða yfir spor hans þar. Tyrkir segja að samstarfserfiðleik- arnir við þýzku lögregluna í leitinni að Agca hafi ekki sízt stafað af var- færni lögreglunnar þar í Iandi sem megi rekja til þess óorðs sem lögregl- an hafi fengið á sig á nasistatímabil- inu og sé enn þann dag í dag að reyna að hreinsa af sér. í öðru máli, sem hinar tyrknesku heimildir nefna, báðu Tyrkir Þjóð- verja um aðstoð við að hafa upp á öfgamanni sem eins og Agca hafði sézt í Þýzkalandi. Hann hafði áður andi og aðeins gert Þjóðverjum erfið- arafyrir meðleitina. Talsmaður stjórnarinnar í Bonn segir aö rannsókn ftölsku lögreglunn- ar hafi ekki leitt neitt í ljós sem bendi til að Agca hafi verið í Vestur-Þýzka- landi. „Við andmælum kröftuglega ásökunum Tyrkja,” sagði hann. Að baki þessum ásökunum liggja tvö veigamikil mistök í upplýsinga- streymi milli Þýzkalands og Tyrk- lands að þvi er heimildir innan lög- reglu beggja landanna greina. Þessir heimildarmenn eru sammála um að Tyrkjum hafi láðst að láta vita af fyrri hótunum Agca um að myrða páfann, jafnvel þó svo að páfinn hafi heimsótt Vestur-Þýzkaland í nóvem- bermánuði síðastliðnum, einmitt á þeim tima sem Agca var álitinn vera í landinu. Hótunin var sett fram 1 nóvember 1979 i bréfi sem Agca ritaði til tyrk- neska dagblaðsins Milliyet skömmu eftir að hann slapp úr fangelsi í Istan- bul þar sem hann beið réttarhalda vegna morðsins á ritstjóranum Abdi Ipecki. Yfirvöld í Bonn áætla að um 30 þúsund Tyrkir I V-Þýzkalandi tilheyri róttækum hægri hreyfingum og álíka margir séu i öfgahreyfingum á hægri vængnum. Agca hefði verið í litlum erfiðleik- um, segja tyrkneskar heimildir, að finna samherja í hópum eins og „gráu úlfunum” sem er öfgahreyfing hægri þjóðernissinna. Vandamálið var fólgið í þvi að Mehmet Ali Agca. Fylgdarmenn stumra yflr páfa eftir að Mehmet Ali Agca hefur hæft hann þremur skotum. verið dæmdur af herdómstóli í Tyrk- landi. Þýzk yfirvöld óskuðu þá eftir þvi að fá fyrst skjalfesta sönnun fyrir því að niðurstaða dómstólsins væri í samræmi við stjórnarskrá Iandsins. Heimildir segja að það hafi tekið mánuði að koma málinu á réttan kjöl og á þeim tíma hafi fuglinn að sjálf- sögðu verið floginn úr hreiðrinu. (REUTER)

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.