Dagblaðið - 25.05.1981, Qupperneq 14
14
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 25. MAt 1981.
.. .. . ...........................................................
Enska hljómsveitin AnyTrouble
leikur á jimm hljómleikum hér
— meöal annars kemur hún jram á hvítasunnurokki í Laugardalshöllinni
Getur hálfsköllóttur karl með gler-
augu orðið poppstjarna? Þessari
spurningu er varpað fram í upplýs-
ingablaði Stiff hljómplötuútgáfunnar
umhljómsveitinaAny Trouble. Ein-
hverja trú virðast forráðamenn S'tiff
hafa á þvf að svar við spurningunni
kunni að vera jákvætt. Alla vega ætla
þeir að gefa út aðra LP plötu Any
Trouble áður en júnímánuður er
allur.
íslendingar — eða að minnsta
kosti Sunnlendingar, fá þó vonandi!
eitthvert forskot á sæluna. Ekki það
að platan komi út hér á landi áður en
hún verður gefin út erlendis. Nei,
Any Trouble er aftur á móti væntan-
leg til landsins um fyrstu helgina í
júní og ætlar að dveljast hér í nokkra
daga. Meðan á dvölinni stendur
kemur hún fram á fimm hljómleikum
ásamt íslenzkum hljómsveitum.
Fyrstu hljómleikarnir verða á
Hótel Borg föstudagskvöldið 5. júní.
Hápunktur ferðar Any Trouble til
landsins verður síðan daginn eftir. Þá
kemur hún fram i LaugardagshöU-
inni ásamt hljómsveitunum Start,
Taugadeildinni og Bara flokknum frá
Akureyri. Þar sem konsert þennan
ber upp á laugardaginn fyrir hvita-
sunnu hefur hann hlotið nafnið
Hvítasunnurokk.
Þá er fyrirhugað að Any Trouble
komi fram í Selfossblói, Stapa í
NjarðvUcum og loks á Borginni aftur.
Þar verða siðustu hljómleikar Any
Trouble að sinni.
Any Trouble hefur leikið saman í
nokkur ár. Hún vakti ekki á sér neina
athygli fyrr en á siðasta ári er út kom
LP platan Where Are AU The Nice
Girls. Um hana er fjaiiað annars
staðar í blaðinu f dag. Any Trouble
skipa Clive Gregson, Phillip Barnes,
Christopher Parks og Martin Hugh-
es. Með þeim f íslandsförinni verður
hljómborðsleikarinn Nick Coler.
Einnig kemur með einn helzti for-
vígismaður Stiff hljómplötuútgáf-
unnar, grínistinn Alan Cowderoy.
Erindi hans er að skoða fslendinga
hátt og lágt og í bak og fyrir.
-ÁT-
Þessi mynd er úr leikritinu Dr. Jón Gálgan sem Leikfélag Fljótsdalshérads
sýnir í tilefni 15 ára afmœlis slns. Þetta leikrit var Karl einmitt að taka upp á
myndsegulbandsspólu fyrir skömmu.
Húsavík:
::
ka upp leikrit
íþrótta-
i á myndbönd
selja félögunum
„Við
síðan 1978. Ég er búinn að taka upp
fyrir leikfélagið hér á Húsavfk og
nokkur leikfélög á Austfjörðum,”
sagði Karl Hálfdánarson á Húsavík f
samtali við Fólk-sfðuna. Karl hefur
rekið fyrirtækið Radfóver í 10 ár.
Undanfarið hefur Karl ferðazt á
milli áhugaleikfélaga og tekið upp
leikrit þeirra á myndsegulbands-
spólu. „Þetta er nú eiginlega einungis
gert tU að varðveita leikritin, en leiga
hefur einnig komið til greina. Ég tek
bara leikritin upp, að öðru leyti sjá
leikfélögin um hvað þeir gera við
spólurnar,” sagði Karl.
,,Ég held að það komi ekki til
greina hjá leikfélögunum að leigja
spólurnar í fjölbýUshús. Sú leiga er
ekki nema 45 krónur á dag þannig að
það mundi aldrei borga sig. Einnig
hefur verið tekið upp fyrir frumsýn-
ingu þannig að leikararnir geta séð
vitleysur sem þeir gera,” sagði Karl.
Karl og meðeigandi hans, Hákon
ELIN
fll RFRTSnÓTT"
Ólafur Guðmundsson, hafa ekki ein-
ungis tekið upp fyrir leikfélögin þvf
iþróttafélög hafa sýnt þessu mikinn
áhuga. „Við tökum upp hvað sem er,
bindum okkur ekki við neitt sérstakt.
Annars er þetta bara tómstundagam-
an hjá okkur á milli þess sem við
erum í búðinni.”
Myndsegulbandsalda er skollin yfir
landið, það hefur komið glögglega i
Ijós undanfarna mánuði. Væntanlega
á þetta eftir að verða enn meira og
spá margir að innan skamms verði
komið upp myndsegulbandstækjum f
öllum skólum landsins.
-ELA
Norrœna trimmkeppni fatlaöra:
Lítill áhugi á
keppninni í byijun
— en eftir smávœgilegar upplýsingar var
allt komið á fleygiferð
1 byrjun voru aöeins örfáir I lauginni. Sigurður Guðmundsson framkvœmda-
stjóri landskeppni fatlaðra útskýrir fyrir þeim reglur keppninnar og stuttu
síðar fylltist allt.
15 ~ heföi 'byrjað að taka þátt í
keppninni miklu fyrr hefði ég vitað af
henni,” sagði Sigurmundur Guðna-
son einn vistmanna á heilsuhælinu í
Hveragerði í samtali við blaðamann
DB. í heimsókn á heilsuhælið kom í
ljós að lftil þátttaka var þar í lands-
keppni fatlaðra sem nú stendur yfir.
Það kom fljótlega I ljós að hælið
hefur ekki nægilegt starfsfólk til að
drífa vistmennina. Einnig kom f ljós
nokkur misskilningur um hve mikla
fötlun þarf að vera að ræða til að
,taka þátt f keppninni. Reglur keppn-
innar eru þær að allir fatlaðir megi
taka þátt í keppninni hvort sem um er
að ræða tímabundna fötlun eða æ-
varandi. Skilgreining á fötluðum er
erfið en miðað er við alla þá, sem eiga
við fötlun að búa. Má þar nefna sjón-
skerta, heyrnarskerta, hreyfihaml-
aða, þroskahefta, gigtveika , brjóst-
holssjúklinga og öryrkja svo eitthv-*
sénefnt. "u°
„Við vorurv • .,
t upphafi þrju sem
y vauum að taka þátt í keppninni.
] Hér er góð sundlaug og flestallir sem
geta fara I hana meira eða minna dag-
lega. Þetta fólk heföi auðveldlega
geta safnað stigum i keppnina hefði
þetta verið rækilega kynnt fyrir
okkur. Gangan er erfiðari hér því
margt af fólkinu á erfitt með gang,”
sagöi Sigurmundur.
Er við höfðum staðið á sundlaug-
arbarminum í noWcra stund fóru vist-
menn að tínast út. Keppnin barst að
sjálfsögðu í tal og eftir samræður í
nokkrar mínútur var áhuginn orðinn
svo mikill að lá við að byrjað væri
þegar að safna stigum. Þennan dag,
er heimsókn okkar bar að, var veðrið
eins og bezt var á kosið — sólskin og
hjti. Það burfti bví ekki nj jfact um.
að hálftími f lauginni, fyrir utan að
gefa fólkinu nauðsynlega hreyfi'1'”
var ákjósanlegur til að e‘ .
, , .a brunan og
hraustlegan i'* „ , , r
svri . ° a sig. Enda var það
- er við kvöddum heilsuhælið í
Hveragerði að vistmennirnir voru
farnir að gantast hver við annan stað-
ráðnir í því að bæta stigum i Iands-
keppnina.
-ELA.
Þungar sölur
Hér í Dagblaöinu þarf ekki að
birta myndir I smáauglýsingum eða
endurtaka þær dögum saman, þvf að
vörurnar renna út. Þrautin er þyngri
á Vísi, þar sem smáauglýsingar með
myndum eru endurteknar dögum og
vikum og mánuðum saman. Nýtt met
var þar slegið 22. mal, þegar þar var
enn auglýstur Benz 300, sem fyrst var
auglýstur 14. janúar, fyrir rúmum
fjórum mánuðum!
Hvar er ritið?
í fyrra hélt Almenna bókafélagið
upp á 25 ára afmæli sitt með pomp
og prakt. Meðal annars var þá ákveð-
ið að veita skáldsagnahöfundi eða
höfundum 100.000 nýkróna verðlaun
fyrir handrit snemma á árinu 1981 en
auk þess var ákveðið að gefa út tíma-
rit. Nýverið hafa þessi bókmennta-
verðlaun verið auglýst upp á nýtt, en
ekkert bólar á ritinu. Velta menn þvf
nú fyrir sér hvort þeir bókafélags-
menn séu að heykjast á þessum
áformum.
Islenzk-ameríska
félagið fiytur
inn mótvœgi
við frjáls-
hyggjuna
Mörg bandarísk stórmenni hafa
sótt ísland heim á vegum íslenzk-
ameríska félagsins hin síðari ár. 1
haust er von á sjálfum John Kenneth
Galbraith til að halda hátfðarræöuna
á árshátíð félagsins, svona sem mót-
vægi við alla frjálshyggjuna. Og þar
næst hefur hinn þekkti dálkahöfund-
ur og fyrrv. diplómat Harrison Salis-
bury lofað að koma til fslands á
vegum félagsins.
Segir enn
af Sveinbirni
Á Fólk-sfðunni var á dögunum
sagt frá útkomu plötunnar Þjófstart
með hljómsveitinni Þokkabót og því
hvers vegna lagið Sveinbjörn Egils-
son var ekki með árið 1974. Höfund-
ur ljóðsins við Sveinbjörn, Þórarinn
Eldjárn, kvaö skýringuna sem fram
kom i DB ekki rétta. Ástæðan fyrir
því að hann hefði óskað eftir þvf að
lagið yrði fellt út hefði verið sú að þá
um haustið hafi verið væntanleg á
markaðinn fyrsta ljóðabókin hans,
Kvæði. Þar var meðal annars að
finna Sveinbjörn Egilsson'. Þokka-
bótarmenn komust yfir ljóðið hjá
kunningja Þórarins, sömdu ví« 1
—jag-og léku inn 4 •*" pa®
° .°, . - piotu án þess að
■ teyfis eða láta neinn vita. Plat-
an var svo á leið til landsins þegar
haft var samband við Þórarin og
hann beðinn leyfis til að nota ljóðið.
Hann hafnaði þeirri beiðni þar eð
það var f rétt óútkominni ljóðabók
hans. Hins vegar var leyfið góðfús-
lega veitt árið eftir, er Þokkabótar-
menn sungu um Sveinbjörn á plöt-
unni Bætiflákar.