Dagblaðið - 09.09.1981, Qupperneq 17
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 1981.
17
Friðrik Ólafsson
forseti Alþjóða-
skák-
sambandsins:
„Ég hef eingöngu haft samband
við lögfræðing Kortsnojs og ekki
talið Petru Leeuwerik, ritara Kort-
snojs, ábyrgan talsmann hans,”
sagði Friðrik Ólafsson forseti
Alþjóðaskáksambandsins, FIDE, í
gær. ,,Hún hefur sjálfsagt sínar
meiningar konan, en þeir sem til mál-
anna þekkja, leggja ekki mikið upp
úr þeim”.
„Hún hefur sjálfsagt
sínar meiningar konan"
—en Petra Leeuwerik getur ekki talizt ábyrgur talsmaður Kortsnojs
— Út í hött að ég sé hræddur um að missa embættið, segir Friðrik
í dagblaðinu Timanum á laugar-
dag er haft eftir Petru Leeuwerik, að
Friðrik Ólafsson hafi ekki gert neitt
annað en valda hneyksli með þessu
brölti sínu með tímasetningu einvígis-
ins og einnig að hann hafði séð að
Sovétmenn gætu komið honum úr
embætti forseta FIDE og því hafi
hann orðið hræddur og látið undan
kröfum þeirra í staðinn.
„Það er út í hött að ég sé hræddur
um að missa stöðuna,” sagði
Friðrik. „Ég gerði mér grein fyrir
því, að ákvörðun um seinkun heims-
meistaraeinvígisins gæti haft slíkar
afleiðingar. Mér er þetta embætti
heldur ekki það mikið kappsmál.
Þessi læti nú eru hálf kjánaleg. Ég
skýrði lögfræðingi Kortsnojs frá því
24. júlí sl., að leyfi til Bellu og Igors
Kortsnojs um brottför frá Sovétríkj-
unum væri ekki dagsett og hann
hefur væntanlega komið því til Kort-
snojs,” sagði Friðrik.
Friðrik hefur áður greint frá því að
hann telur sig hafa vissu um farsæla
lausn málsins. Slíkt sé betra en að
krefjast einhvers sem ekki er fáan-
legt. Komið hefur fram, m.a. í viðtali
DB við Petru Leeuwerik, að Igor
Kortsnoj losni ekki fyrr en í maí á
næsta ári. Samkvæmt heimildum DB
fer móðir hans alls ekki úr landi
nema hann komi með.
Igor Kortsnoj afplánar nú dóm
vegna brota á herþjónustuskyldu og
hefur sú afplánun helzt staðið í vegi
fyrir því að málið leystist skjótar.
-JH.
Nýstárleg hugmynd um lausn á brýnasta húsnæðisvandanum
íReykjavík:
Verkalýðsfélögin og borgin
byggi saman leiguíbúðir
— sem félagar í verkalýðsfélögunum hafi forgang að, segir
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir form. Sóknar
„Ég hef fært þá hugmynd í tal við
marga að verkalýðsfélögin komi til
móts við Reykjavikurborg og þessir
aðilar hjálpist að við að leysa þann
húsnæðisvanda sem nú ríkir i höfuð-
borginni. Verkalýðsfélögin legðu þá
fram fjármagn það sem þau eiga í
bönkum til byggingar íbúða í samstarfi
við Reykjavíkurborg,” sagði Aðal-
heiður Bjarnfreðsdóttir, formaður
Starfsmannafélagsins, Sóknar, í sam-
tali við DB.
Ibúðirnar yrðu síðan leigðar út
og verkalýðsfélögin fengju rétt til að
hlutast til um hverjir fengju íbúðirnar á
leigu. Eðlilegt væri að félagar í verka-
lýðsfélögunum gengju fyrir, enda
myndu ibúðirnar vera byggðar fyrir
þeirra fé.
Mál þetta er rétt í athugun og ekki
komið á rekspöl, en ég hef aðallega í
huga stóru verkalýðsfélögin í þessu
sambandi,” sagði Aðalheiður Bjarn-
freðsdóttir og bætti við að margir
hefðu lagt við eyrun, þegar hún hefði
orðað þessa hugmynd við þá.
-SA.
SILUNGSHROGN A
BÍLAÞVOTTAPLANI?
— Ekki á þessum stað þar sem eru bezt lokuðu vatnskerf i
borgarinnar, segir Vatnsveitan
„Er hugsanlegt að í bæjarkerfi
Vatnsveitunnar geti verið mengað vatn
og í því úrgangur silungshrogna eða
afgangur frá seiðakerjum,” spurði
Július Þorbergs sendibílstjóri í Reykja-
vík er hann kom á fund DB á mánudag.
„Ég fór með rútubíl sem ég hafði
tekið að mér að aka í skemmtiferð á
sunnudag á þvottaplan i Árbænum um
hálfellefuleytið á sunnudagsmorgun.
Enginn var að þvo og ég hef kannski
verið fyrstur að krananum.
Er ég hóf þvottinn kom þegar sjávar-
lykt af vatninu. Ég smakkaði á því og
að því var óbragð. í sama mund kom
grugg úr slöngunni, líkast smáum
hrognakúlum, á stærð við sagógrjón,
svo að eitthvert dæmi sé tekið,” sagði
Júlíus.
Hann sagði að þó nokkuð af þessum
smáu kúlum hefðu fallið á þvotta-
planið og hann getað tekið þær i lófa
sér af planinu. Líktist vatnið og
gruggið allt eins og það kæmi úr seiða-
kerjum, sem silungur hefði verið í, að
dómi Júlíusar.
DB bar þessa sögu undir ráðamenn
Vatnsveitunnar.
„Bæði þvottaplanið í Árbæ og
þvottaplan Esso á Ártúnshöfða fá eins
Hafnarfjörður:
„Hjólaþjófnaður”
fyrir misskilning
—og f réttin í DB varð til þess að
þau komustrax fram
og allt þetta byggðahverfi vatn sitt frá
Bullaugum. Þar er vatnið tekið með
dælum djúpt úr jörðu, svo að óhugsan-
legt er að því fylgi silungshrogn eða
óhreinindi úr seiðakerjum,” sagði
Hólmsteinn Sigurðsson skrifstofu-
stjóri.
Hann taldi hugsanlegt að á undan bil
Júlíusar hefði fiskbíll verið á planinu,
því komið gæti fyrir að sog myndaðist i
vatnsslöngum og kæmi síðan aftur úr
sömu slöngu og væri þá álitið mengað
vatn. Aðra skýringu gat Hólmsteinn
ekki gefið og taldi Bullauga — vatnsból
Árbæinga — mjög vel lokað vatnsból.
-A.St.
Já, það er eins gott að hafa góða regnhlff meðferðis þegar fólk bregður sér bæjarleið
— eins og veðrið var I höfuðborginni á dögunum.
DB-mynd: Einar Ólason.
Pelsar og kjólföt í Naustinu
Mikið verður um dýrðir á Naustinu í
kvöld og þar sýndur dýr og fínn klæðn-
aður. Það er Eggert feldskeri Jóhanns-
son sem sýnir matargestum pelsa og
dýra feldi af ýmsu tagi, bæði þá sem
hann hefur sniðið sjálfur og eins inn-
flutta frá Svíþjóð, Finnlandi og fleiri
Iöndum.
Þá sýnir herrafataverzlunin Ragnar
kjólföt, smókinga og fleira af fínum
fatnaði. Sýning þessi verður fyrir
matargesti eingöngu og hefjast herleg-
heitin um kl. 19:30.
-ÓV.
Örskömmu eftir að Dagblaðið barst
lesendum í Hafnarfirði i fyrradag með
frétt um „bíræfinn hjólaþjófnað” þar
í bæ, hringdi maður er kvaðst hafa
umrædd hjól undir höndum.
Hjólin hafði hann hirt við
öskutunnur smurstöðvar Esso í
Hafnarfirði. Hafði dóttir hans séð er
„bilstjórinn ætlaði að henda hjólunum
og segli sem verið hafði uppi ábílnum.”
Taldi maðurinn ástæðulaust að henda
heilum hjólum, hirti þau án þess að
kanna fullyrðingu dóttur sinnar betur.
Er hann sá fréttina í DB rann upp
fyrir honum ljós. Hafði hann þegar
samband við lögregluna og kom síðan
með hjólin og seglið niður á stöð. Þar
bíða hjólin og seglið nú rútubílstjórans,
sem „lagði þau” en „henti” ekki
meðan verið var að smyrja bil hans.
-ASt.
rrmTgrmiwitwttfwwwi ■'■■■■■<
FILMUR OG VELAR S.F.
iAAAIUUl
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 41 - SÍMI20235.
BORGAR-
SPÍTALINN
RAUÐI KROSS
ISLANDS
SJÚKRAFLUTNINGANÁMSKEIÐ
Rauði kross íslands og Borgarspítalinn efna til námskeiðs í sjúkraflutning-
um dagana 30. október til 7. nóvember nk. Kennsla fer að mestu fram á Borg-
arspítalanum í Reykjavík. Skilyrði fyrir þátttöku er að umsækjandi starfi við
sjúkraflutninga og hafi áður tekið þátt í skyndihjálparnámskeiðum. Þátttöku-
gjalder kr. 1.700.
Umsóknarfrestur er til 18. september og verður tekið við umsóknum í síma
91-26722 þar sem einnig verða veittar nánari upplýsingar.