Dagblaðið - 05.10.1981, Page 7
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 5. OKTÓBER 1981.
7
Þorsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri VSÍ:
Stef na á að góðum
lánum til langs tíma
— það stuðlar að jafnvægi á vinnumarkaðinum
„Óhætt er að segja, að lán til
húsnæðiskaupa ráða miklu um af-
komu fjölskyldna í landinu. Þegar
sverfur að á þeim lánamörkuðum
sem til þeirra lána, hefur það áhrif á
vinnumarkaðinn og kjarasamninga,”
sagði Þorsteinn Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Vinnuveitenda-
sambands íslands.
„Húsnæðislánakerfið er þannig,
að sé hægt að skapa lengri lánstíma,
stuðlar það að jafnvægi á launa-
markaðinum. Það ætti því að stefna
að góðum lánum til langs tíma,”
sagði Þorsteinn.
„Mín skoðun er og sú, að hús-
næðismálalán ættu í stórauknum
mæli að færast inn í hið almenna
bankakerfi og fara út úr ríkiskerfinu.
Það er hinn eðlilegi farvegur, þegar
tekið verður á því verkefni að bæta
þessa lánafyrirgreiðslu.
Það á að vinna að því að hús-
byggjendur þurfi ekki að snapa
byggingarlán sín á fjölmörgum
Bjarni Bragi Jónsson hagfr. Seðlabankans:
„Þróun verðtrygg-
ingarogendurbæt-
ur bankakerfis
haldast f hendur
stöðum, húsnæðismálastjórn, líf-
eyrissjóðum og víðar, heldur geti þeir
gengið inn í sinn viðskiptabanka og
fengið þar þau lán, sem þeir þurfa og
ráða við. Það er hið eðlilega kerfi
þessara mála,” sagði Þorsteinn.-A.St.
Þorstelnn Pálsson: Húsnæðismála-
lánin ættu að færast út úr rikis-
kerfinu inn f hið almenna bankakerfi.
við lengingu lána”
„Ég tel það misskilning að bankar
búi yfir stórum lausum peninga-
fúlgum, sem liggja lausar til
ráðstöfunar,” sagði Bjarni Bragi
Jónsson, hagfræðingur hjá Seðla-
bankanum. „Hluti af auknu fjár-
magni er bundinn í verðtryggingar-
vöxtum, sem safnast upp. Að auki
voru lán til húsnæðismálakerfisins
lengd í fyrra með sérstökum
samningi”.
Bjarni Bragi taldi það hins vegar
líklegt að bankar gætu eflzt til að
skapa húsbyggingarlán til 40 ára eða
til að gera eitthvað annað. Væri þá
e.t.v. mikilvægara að þeir kæmu inn
í stórar framkvæmdir innanlands í
stað erlendrar lántöku til þeirra.
„Fyrirgreiðsla bankanna við hús-
byggjendur er þó h'klega ekki eins
slök og menn halda. Það hlutfall
hefði náðst í fyrra að lánveitingar
opinberra sjóða, lífeyrissjóðanna og
nettóaukning bankakerfisins til hús-
Bjarni Bragi Jónsson: Fyrirgreiðsla
bankanna við húsbyggjendur liklega
ekki eins slök og menn halda.
byggingalána hefði samtals orðið
89,6% af byggingarkostnaði. í láns-
fjáráætlun fyrir 1981 má sjá þá
skiptingu að til húsbygginga fara 303
milljónir til íbúðabygginga, 385
milljónir frá lífeyrissjóðunum og 240
milljónir frá innlánastofnunum.
Þetta er samtals 928 milljónir og er
áætlað að vera 89,6% af byggingar-
kostnaði.”
Bjarni Bragi kvað þetta ótrúlega
hátt hlutfall og víst væri að ekki
notuðu allir lífeyrissjóðslán sín til
húsbyggingar, heldur t.d. bílakaupa
og viðhalds. Taldi hann að raunhæft
væri að áætla að lánshlutfall til
íbúðabygginga væri 70—75% af
kostnaði.
„Ég vara við aht of mikilli bjart-
sýni manna um að lánsaukning frá
bönkum til húsbygginga þurfi eða
eigi að vera mikil. Fjármögnun hús-
byggingamála er að komast í
sæmilegt horf, en er enn of ójöfn og
óörugg. Sumir eiga t.d. ekki aðild að
lífeyrissjóði og áður takmörkuðust
lán af tilgreindri leyfilegri stærð
íbúða,” sagði Bjarni Bragi.
„Hvort sem um það eru gerðar
„kröfur” eða ekki hlýtur þróun
verðtryggingar og endurbætur
bankakerfisins að haldast i hendur
við lengingu lána eins og hjá öðrum
þjóðum með traustan fjárhag.
„Kröfur” samtaka eins og BSRB og
ASÍ í þessum efnum eiga kannski að
vera rós í hnappagat forystumanna,
þó vitað sé hver þróunin verður.
Slikar kröfur minna á franskt kvæði
um hana, sem hélt að sólin kæmi upp
af því að hann galaði,” sagði Bjarni
Bragi Jónsson. -Á.St.
Sex stungið inn í Eyjum
Helgin í Eyjum var næsta róleg utan bænum, en hvort jasshljómsveit úr
hvað 6 manns voru settir inn aðfara- höfuðstaðnum, sem var í heimsókn í
nótt sunnudags fyrir heldur hraustlega Eyjum, á þar sök á eður ei er ekki gott
drykkju. Ekki höfðu menn þar i bæ að segja um.
neinar skýringar á mikilli ölvun í ’ / -SSv.
Hörkuárekstur á Akranesi
Hörkuárekstur varð á Akranesi um og þykir það mildi jafn harður og
kl. 13.30 í gær á gatnamótum áreksturinn varð. Sólin mun hafa átt
Kirkjubrautar og Stillholts. Lentu þar sinn þátt í slysinu því annar
saman Toyota-bifreið og bíll af ökumannanna — sá er ók eftir
Plymouth gerð. Báðir bílarnir stór- Kirkjubrautinni — blindaðist og sá
skemmdust og annar var óökufær á ekki biðskyldumerki sem er við gatna-
eftir. Meiðsli urðu lítil á ökumönnum mótin. -SSv.
MBÍAÐIÐ frfálst, úháð dagblað
ÓTRÚLEGT EN SATTI!
Nú getið þér beðið eftir skóviðgerðinni — og tekur það aðeins nokkrar
mínútur—
Við viljum einnig minna á aö hjá okkur
fæst allt fyrir heimilisdýrin.
OPID LAUGARAGA KL. 9-12
ADRA VIRKA DAGA KL. 9-6.
A TH. 400 BÍLASTÆDI
SKÓVINNUSTOFA
SIGURBJÖRNS
Austurveri — Háaleitisbraut 68. — Simi 33980.
VŒ) NEFNÖM: Gallabuxur, úlpur, peysur, sokka og skó,
bamafatnað allskonar og mokkafatnað
EINNIG: Herraföt og kvenkápur, kjóla, pils og tískuvörur úr ull.
SAMBANDSVERKSMIÐJANNA Á AKCIREYRI
1. — 10.OKTÓBER
I' SÝNINGARHÖLUNNIBÍLDSHÖFÐA.
EKKERT KOSTAR AÐ LÍTAINH-OG LÍTIÐ MEIR ÞÓTT ÞÚ VERSUR